Morgunblaðið - 24.07.1974, Qupperneq 26
Glæsilegt
100 metra
hlaupBjarna
Bjarni Stefánsson, KR, náði
bezta tíma í 100 metra hlaupi, sem
náðst hefur hérlendis og sem ís-
lendingur hefur náð, er hann
fékk tímann 10,2 sek. á Meistara-
móti Islands á Laugardalsvellin-
um í fyrrakvöld. Því miður mun
þetta afrek Bjarna ekki verða
staðfest sem Islandsmet, þar sem
meðvindur mun hafa verið of
mikill. Reyndar var enginn við
vindmælinn er hlaupið fór fram,
en skömmu áður hafði vindurinn
verið mældur rúmlega 3, en sem
kunnugt er má hann mest vera 2
til þess að met hljóti staðfestingu.
En þessi sprettur hjá Bjarna var
stórglæsilegur — hann hljóp mun
átakaminna en hann gerir svo oft,
og virtist ekkert þurfa að hafa
fyrir þessu. — Ef til vill er þetta
að koma hjá manni, sagði Bjarni
eftir hlaupið, og mikið má vera, ef
svo er ekki, a.m.k., ef Bjarni nær
að halda þeim stíl, sem hann hafði
í þessu hlaupi. Þótt meðvindur
væri of mikill var ekkert alltof
hagstætt að hlaupa á Laugardals-
vellinum í fyrrakvöld. Kalt var í
veðri, og ef litið er á árangur
hinna hlauparanna í úrslitahlaup-
inu, kemur í ljós, að þeir eru allir
nokkuð frá sínu bezta. Bjarni ætti
því að eiga góða möguleika á að
hnekkja metinu hans Hilmars í
sumar.
Þá var sprettur Ingunnar
Einarsdóttir í 100 metra hlaupinu
ekki síður fallegur, en tími henn-
ar var 12,0 sek. 4/10 úr sek. betri
en staðfest íslandsmet, en eins og
hjá Bjarna mun afrek þetta ekki
fá staðfestingu, og heldur ekki
langstökksafrek Láru Sveinsdótt-
ur, sem stökk 5,81 metra, tæplega
30 sm. lengra en Islandsmetið.
En eitt met var þó sett í fyrra-
kvöld. Það setti Guðrún Ingólfs-
dóttir, USÚ, sem kastaði kringl-
unni 36,40 metra og bætti eigið
met um 24 sm. Átti Guðrún einnig
kast, sem lenti utan geira, en var
vel yfir 37 metra.
Arangurinn á mótinu í fyrra-
kvöld var annars nokkuð misjafn,
en þegar á heildina er litið, verð-
ur hann að teljast nokkuð góður.
Það var aðeins í 400 og 1500 metra
hlaupi karla, sem búizt hafði ver-
ið við betri afrekum, en greinilegt
var, að sigurvegararnir í þessum
greinum, Vilmundur Vilhjálms-
son og Ágúst Ásgeirsson, hugsuðu
ekki um annað en sigur. Þeir láta
það bíða betri tíma að ná góðum
árangri, enda það næsta skiljan-
legt, eins og aðstæður voru á
Laugardalsvellinum í fyrrakvöld.
Erlendur Valdimarsson náði
glæsilegu afreki I kringlukastinu,
er hann kastaði 59,76 og bætti þar
með meistaramótsmetið, sem
hann setti 1972. Er það talandi
tákn um þennan mesta afreks-
mann okkar, að nú þarf að gera
sérstakar ráðstafanir, þegar hann
keppir á Laugardalsvellinum,
þannig að ekki sé hætta á, að
kringlan lendi út á hlaupabraut-
inni hinum megin á vellinum. Eft-
Urslitaleikurinn í
bikarkeppni 1. flokks
ÞRlR leikir fara fram í bikar-,
keppni meistaraflokks í kvöld.
IBI mætir Ölafsvíkur-Víkingum,
Völsungur leikur gegn Leiftri frá
Ölafsfirði og Huginn frá Seyðis-
firði leikur gegn Þrótti frá Nes-
kaupstað. Sigurvegararnir í þess-
um leikjum komast í 16 liða úr-
slitin ásamt 1. deildarfélögunum
og Fylki, Ármanni, Haukum, Sel-
fossi og Breiðablik.
Úrslitaleikurinn í bikarkeppni
1. flokks fer fram á Melavellinum
í kvöld og hefst klukkan 20.00. Til
úrslita leika Víkingur og IA.
Akurnesingarnir unnu Gróttu
4:0, Stjörnuna 8:0 og IBV 1:0 á
leið sinni í úrslitin, en Vikingarn-
ir unnu IBK 2:0 og IBA 5:0. Akur-
eyringar eru núverandi bikar-
meistarar í 1. flokki.
Á morgun fer svo fram á Mela-
vellinum úrslitaleikurinn í bikar-
keppni 2. flokks. Til úrslita leika
Breiðablik og IA.
iJf má á efn hafð. Bjarni Stefánsson mikla yfirburði f 100 metra hlaupinu, sem hann
^rL r,nn "'M" ^ * “r "áÖS‘ hér,endis- 10-2 sek- ^dri myndin er tekin er stúlkurnar komu í
mark I 100 metra hlaup.nu. S.gurvegarinn, Ingunn Einarsdóttir, hljóp á 12,0 sek. 4/10 úr sek. betri tfma
en g.Idand. Islandsmet er.
ir að hafa séð Erlend kasta í
fyrrakvöld er maður þess fullviss,
að góðir möguleikar eru á þvf, að
hann kasti 64—66 metra, jafnvel
þegar í sumar.
En það voru fleiri en Erlendur
sem vöktu athygli í kringlu-
kastinu. Bæði Hreinn Halldórsson
og Óskar Jakobsson bættu þar
árangur sinn. Þrír menn vel yfir
50 metra í kringlukasti er nokk-
uð, sem aðeins stórveldi í frjáls-
um íþróttum geta státað sig af á
meistaramótum sínum.
Erlendur vann einnig yfir-
burðarsigur í sleggjukasti, en
hann leggur ekki mikla rækt við
þá grein, enda hefur aðstaða til
æfingar hennar ekki verið sem
bezt. I þeirri grein keppti eini
Keflvíkingurinn, sem kom til
þessa meistaramóts, Björn Jó-
hannsson, og setti hann persónu-
legt met. Björn verður að koma
alla leið til Reykjavíkur, ætli
hann sér að æfa, og er
dugnaður hans og eljusemi
athygiisverð og lofsverð.
Sama verður ekki sagt um
Iþróttabandalag Keflavíkur, sem
bíður þeim, sem vilja æfa þar
frjálsar fþróttir, ekki upp á neina
aðstöðu. Þannig er t.d. ekki enn
komið efsta lagið á hlaupabrautir
vallarins, eftir 15 ár!
Stangarstökkið á meistaramót-
inu var líka ágætt, og í því náði
Guðmundur Jóhannesson, UMSK,
sínum bezta árangri er hann
stökk 4,26 metra. Hafa ekki aðrir
en Valbjörn og Torfi gert betur.
Tugþrautarmennirnir Karl West
og Elías Sveinsson kræktu í ann-
að og þriðja sætið og stórbætti
Elías sinn fyrri árangur í þessari
grein með því að stökkva 3,90
metra. Var hann einnig nálægt
því að stökkva 4,00 metra. 61,54
metrar í spjótkasti, 2,00 metrar í
hástökki, 43,84 metrar í kringlu-
kasti, 3,90 metrar í stangarstökki
og 15,7 sek. í 110 metra grinda-
hlaupi bendir til þess, að Elfas
geti veitt Stefáni Hallgrímssyni
góða keppni f tugþrautinni í sum-
ar.
1 stangarstökki vakti Sigurður
Kristjánsson, ungur ÍR-ingur,
einnig athygli, en hann setti bæði
drengja og unglingamet með því
að stökkva 3,72 metra.
I 400 metra hlaupi kvenna bar
Sigrún Sveinsdóttir, Á, sigur úr
býtum, en tíminn var ekki betri
en 62,8 mín. Keppni í 1500 metra
hlaupi kvenna var hins vegar
skemmtilegri. Báðar stúlkurnar
hlupu vel. Anna sigraði örugglega
á góðum tíma, og Lilja Stein-
grímsdóttir kom á óvart með
frammistöðu sinni.
100 METRA HLAIIP KVENNA
1. R.ÐILL:
sek
Lára Sveinsdóttir, A 12,4
Asta B. Gunnlaugsdóttir, tR 13,4
Sofffa Gestsdóttir, HSK 15,0
2. RIÐILL: sek.
Ingunn Einarsdóttir, IR 12,6
Asa Halldórsdóttir, A 13,0
Hafdfs Ingimarsdóttir, UMSK 13,1
Sveinbjörg Stefánsdóttir, HSK 14,5
3. RIÐILL: sek.
Erna Guómundsdóttir, A 12,9
Margrét Grétarsdóttir, A 13,4
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, A 13,7
X>órdfs Gfsladóttir, tR 13,4
(JRSLIT: sek.
Ingunn Einarsdóttir, IR 12,0
Lára Sveinsdóttir, A 12,2
Erna Guðmundsdóttír, A 12,6
Asta B. Gunnlaugsdóttir, tR 12,7
Asa Halldórsdóttir, A 13,4
Þórdfs Gfsladóttir, tR 13,6
100 METRA HLAUP KARLA:
1. RIÐILL: sek.
Bjarni Stefánsson, KR 10,8
Marinó Einarsson, KR 11,2
Jón H. Sigurmundsson, HSK 11,6
Friórik Þór óskarsson, IR 11,6
2. RIÐILL: sek.
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 11,5
Stefán Hallgrfmsson, KR 11,6
Kristinn Arnbjörnsson, KR 11,6
Guómundur Jónsson, HSK 11,7
Sæmundur Stefánsson, FH 12,6
sek.
Barni Stefánsson, KR 10,2
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 10,9
Marinó Einarsson, KR 11,3
Kristinn Arnbjörnsson, KR 11,6
Jón H. Sigurmundsson, HSK 11,7
STANGARSTÖKK:
m
Guðmundur Jóhannesson, UMSK 4,26
Karl West Fredredsen, UMSK 4,00
Elfas Sveinsson, tR 3,90
Siguróur Kristjánsson, IR 3,72
Hafsteinn Jóhannesson, UMSK 3,50
ÞRlSTÖKK:
m
Friórik Þór óskarsson, IR 15,01
Helgi Hauksson, UMSK 14,34
Pétur Pétursson, HSS 13,54
Jason tvarsson, HSK 13,18
KRINGLUKAST: m
Erlendur Valdimarsson, IR 59,76
Hreinn Halldórsson, HSS 51,32
óskar Jakobsson, IR 50,48
Guóni Halldðrsson, HSÞ 45,44
Elías Sveinsson, tR 43,84
Stefán Hallgrfmsson, KR 42,20
Þráinn Hafsteinsson, HSK 39,96
Jón Þ. ólafsson, IR 39,00
LANGSTÖKK KVENNA:
m
Lára Sveinsdóttir, A 5,81
Asa Halldórsdóttir, A 5,19
Hafdfs Ingimarsdóttir, UMSK 5,18
Ingunn Einarsdóttir, IR 5,11
Sigrún Sveinsdóttir, A 4,88
Asta B. Gunnlaugsdóttir, ÍR 4,82
Björg Kristjánsdóttir, UMSK 4,81
Marfa Guónadóttir, HSH 4,42
1500 METRA HLAUP: mfn.
Agúst Asgeirsson, tR 4:14,7
Jón Dióriksson, UMSB 4:18,0
Siguróur P. Sigmundsson, FH 4:21,3
Gunnar Snorrason, UMSK 4:28,1
Markús Einarsson, UMSK 4:29,2
Leif österby, HSK 4:38,0
400 METRA HLAUP KVENNA:
sek.
Sigrún Sveinsdóttir, A _ 62,8
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, HSK 64,5
Svandfs Sigurðardóttir, KR 65,4
Anna Haraldsdóttir, FH 65,6
Anna Kristjánsdóttir, KR 66,6
SLEGGJUKAST: m
Erlendur Valdimarsson, IR 57,58
óskar Sigurpálsson, A 49,96
Jón ö. Þormóðsson, IR 43,08
Björn Jóhannsson, tBK 43,02
KRINGLUKAST KVENNA:
m
Guðrún Ingólfsdóttir, US(J 36,40
Ingíbjörg Guðmundsdóttir, HSH 32,48
(Jrsúla Gristjánsdóttir, HSH 24,34
Marfa Guðnadóttir, HSH 16,82
400 METRA HLAUP:
sek.
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 53,2
Gunnar P. Jóakimsson, ÍR 53,8
Róbert McKee, FH 55,0
Þórður Gunnarsson, HSK 55,5
Einar Sigmundsson, FH 56,5
110 METRA GRINDAHLAUP:
sek.
Stefán Hallgrfmsson, KR 15,0
Hafsteinn Jóhannesson, UMSK 15,6
Elías Sveinsson, |R 15,7
Jón S. Þórðarsson, IR 15,9
Karl West Fredriksen, UMSK 16,4
Kjartan Guðjónsson, FH 16,7
1500 METRA HLAUP KVENNA:
m
Anna Haraldsdóttir, FH 5:15,9
Lilja Steingrfmsdóttir, USVS 5:17,0
4x400 METRA BOÐHLAUP KVENNA:
mfn.
Svelt IR 4:38,2
Sveit Armanns 4:45,1
4 x 400 METRA BóDHLAUP KARLA: mín.
Svelí KR 3:31,0
Sveit IR 3:36,5
Sveit UMSK 3:42,5
Sveit Armanns 3:55,5