Morgunblaðið - 26.07.1974, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JULl 1974
23
Ég held, að einhver þarfasta
breyting „byggðastefnunar“ væri
sú, að enginn þingmaður mætti
sitja á Alþingi í einu nema tvö
kjörtímabil. Ég hef trú á því, að
nýtt fólk á Alþingi hafi meiri
áhuga á að takast á við vanda
okkar og leysa hann á sómasam-
legan hátt, heldur en það, sem
lifir og hrærist á Alþingi áratug-
um saman, og hugsar í dag eins og
það hugsaði í gær og ætlar að
hugsa eins á morgun, þrátt fyrir
breyttar kröfur og þarfir sam-
félagsins.
Látrum 18/7—74.
ÞAÐ voru góðir dagar fyrir
Barðastrandarsýslu, þegar sjálf-
stæðis- og athafnamaðurinn Gísli
Jónsson gerðist þingmaður
hennar og gjörbreytti hér til betri
vegar allri aðstöðu á flestum svið-
um til hins almenna lífs á skömm-
um tfma.
Eitt af þvf, sem Gísli lagði
höfuðáherzlu á, var vegasamband
og sfmaþjónusta, enda skorti
hvorttveggja mjög, og ég held
líka, að fyrir það höfum við verið
honum þakklátust, þótt margt
bæri honum að þakka, svo fólk á
mfnum aldri mun muna þann
þingmann fyrir drenglyndi og
skörungsskap, svo lengi sem lifir.
Mikið vatn hefir runnið til
sjávar, sfðan Gfsli Jónsson Iét af
þingmennsku og margir mætir
menn tekið við af honum sem
þingmenn okkar Barðstrendinga
og Vestfirðinga. Að sjálfsögðu
hafa þeir margt gott gert fyrir
okkur strjálbýlisfólk á undan-
förnum árum á flestum sviðum,
og það ber vissulega að þakka, en
einhvernveginn finnst mér, að
það sé þeirra fgripavinna, sem
þeir sinni, þegar tími vinnst til
frá þjóðmálum og málefnum
Reykjavíkur og nágrennis, svo og
öðrum þéttbýlismálum. Við erum
hjá þeim sem öðrum sett skör
neðar en það fólk, sem betur er
búið að af hinu opinbera.
En fyrir hverjar kosningar upp-
götva okkar kæru dreifbýlisþing-
menn, að til þess að komast á
Alþingi, til dæmis fyrir Vestfirði,
þurfa þeir að fá atkvæði dreif-
býlisfólksins, og þá erum við
fólkið, sem þeir ætla að rétta
höndina og vinna fyrir, svo kjör
þess verði sem næst því, sem er á
Stór-Rey kj a vfkursvæði nu.
En um leið og atkvæði hafa
verið talin, er lítið eftir af um-
hyggjunni nema fagurt nafn, sem
oft er á vörum þingmanna og
þingmannsefna um kosningar og
þeir hafa fundið upp sjálfir sem
samheiti á öllu þvf góða, sem þeir
blessaðir ætla fyrir okkur að gera,
en þaóer „byggðastefna".
Ég verð þó að segja það, að eins
og þeir háttvirtir þingmenn
okkur Vestfirðinga hafa fram-
kvæmt þessa stefnu í minni sveit
að undanförnu, þá er hún heldur
óbyggðaleg.
Við höfum allt frá þingmanns-
tíð Gfsla Jónssonar haft hér
þokkalega símaþjónustu, sem var
fyrir mörgum árum komin upp í
það, að við höfðum sfmasamband
við umheiminn frá 8,30 að morgni
til 23,00 að kveldi og var okkur
ákaflega mikils virði á öllum svið-
um. Nú eftir kjördag var þessi
þjónusta skorin niður um tvo og
hálfan tíma á sólahring. Þetta
kemur sér að sjálfsögðu mjög illa
og skerðir alla öryggisþjónustu
okkar verulega og jafnvel ein-
hverra annarra. Þessu var kippt
af okkur, án þess að við værum
látin nokkuð vita um það, fyrr en
við rákum okkur á þennan þátt
byggðastefnunar í framkvæmd
með þvf að hringja og hringja án
þess að fá nokkurt svar. Aftur á
móti er það látið berast til okkar
með fyrirvara, að póstþjónustuna
til okkar eigi einnig að skera
niður verulega, en í ráðherratíð
Hannibals Valdimarssonar var
hún aukin upp í tvær ferðir í
viku.
Vegaþjónustan, sem við búum
hér við, er komin niður í það
ófremdarástand, að það er orðið
feimnismál að tala um það og því
miður heimreknum þingmönnum
okkar Vestfirðinga til lítils sóma.
A ég þó þar sérstaklega við veg-
inn úr örlygshöfn og út á Látra-
bjarg, en hann liggur um Breiða-
vík og Látra, en um hann er veru-
leg umferð að sumrinu af inn-
lendu og erlendu fólki, þvf að
Látrabjarg laðar fólk til sín,
hvernig sem vegamálin standa.
Þannig á ekki að framkvæma
þá tfttnefndu „byggðastefnu", ef
ég hef skilið tilgang hennar rétt.
Við í dreifbýlinu eigum ekki ann-
arra kosta völ en gera þá kröfu til
háttvirtra alþingismanna okkar,
hvar í flokki sem þeir standa, að
þeir standi vörð um rétt okkar á
hinu háa Alþingi við skiptingu
sameiginlegra þjóðartekna, þjón-
ustu og þegnréttar, en það er á
svo mörgum sviðum, sem þess er
þörf. Jafnvel hlutleysi ríkisút-
varpsins virðist telja okkur dreif-
býlisfólk fyrir utan sína hlut-
helgi. Til dæmis viljum við út-
nesjamenn senda spurningu f
þáttinn „Spurt og svarað", svo
eitthvað sé nefnt, þá er það mjög
hæpið, að það fáist, því að þeir
ganga fyrir sem eru með sjálf-
virkan sfma, að þess eigin sögn
(að hafa betri þjónustu). Við get-
um að vísu beðið í símanum, þar
til þeir hafa lokið sér af eða þá
hringt aftur og aftur á Reykjavík,
en bá kostar þetta orðið veru-
legan pening. Ef til vill skiptir
þetta engú máli, en fólk finnur
það samt, að hvar sem gripið er
niður, f smáu sem stóru, þá erum
við dreifbýlisfólk alls staðar sett
skör Iægra í allri þjónustu og
fyrirgreiðslu hins opinbera.
w
AUGLÝSINGATEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
Aðalstræti 6 simi 25810
NYTT NYTT!
★ Velour bolir
★ Velour jakkar
★ Blússur
★ Flauels jakkar
★ Gallabuxur
★ Bolir
ifeÆ1. .
HUSIÐ
Grettisgotu 46 - ‘Sf 25580
MEÐ AVOLUM
ÁVALUR "BANI”
„BANA“
BETRI STÝRISEIGINLEIKAR
BETRI STÖÐUGLEIKI í BEYGJUM
BETRI HEMLUN
BETRI ENDING
Veitið yður meiri þægindi
og öryggi í akstri — notið
GOODYEAR G8,
sem býður yður fleiri kosti
fyrir sama verð.
Sölustaðir:
Reykjavík:
Hekla h.f., Laugaveg 1 70—1 72
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns
Gislasonar, Laugaveg 171.
Keflavik:
Gúmmiviðgerðin, Hafnargötu
89.
Hveragerði:
Bifreiðaþjónusta Hveragerðis
v/Þelamörk.
Akranes:
Hjólbarðaviðgerðin h.f., Suður-
götu 41.
Akureyri:
Hjólbarðaverkstæði Arthurs
Benediktssonar. Hafnarstræti 7.
Baugur h.f., bifreiðaverkstæði
Norðurgötu 62.
Stykkishólmur:
Bilaver h.f. v/Ásklif.
Neskaupstaður:
Bifreiðaþjónustan, Strandgötu
54.
Vestm a n naeyja r:
Hjólbarðavinnustofan, Strand-
vegi 95.
Dalvík:
Bilaverkstæði Dalvikur,
Kirkjubæjarklaustur
Steinþór Jóhannesson.
Hornafjörður
Jón Ágústsson, Söluskála B.P.
Reyðarfjörður
Bilaverkstæðið Lykill.
Egilsstaðir
Þráinn Jónsson, Vegaveitingar
við Lagarfljótsbrú.
Ólafsfjörður
Bilaverkstæðið Múlatindur.
Húnavatnssýsla
Vélaverkstæðið Viðir, Viðidal.
HEKLAhf
Laugaveg. 170—172 — Sim. 21240
mnRCFHLDRR
mÖGULEIKR VÐRR
Þórður Jónsson, Látrum:
„Byggðastefnan’ ’
í framkvæmd