Morgunblaðið - 26.07.1974, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JULl 1974
Akureyri —V íkingur ■
1 GÆR var dregið um það, hvaða
lið mætast f sextán liða úrslitum
Bikarkeppni KSt, en sú umferð
fer fram miðvikudaginn 31. júlf
n.k. Eftir f keppninni eru 1.
deildar liðin átta, fimm lið úr 2.
deild og þrjú lið úr 3. deild. Fóru
sfðustu leikir fyrir 16. liða keppn-
ina fram f fyrrakvöld og er skýrt
frá þeim á öcrum stað f blaðinu.
Liðin 16 leika þannig
saman f 16. liða úrslitun-
um:
Völsungur — Þróttur,
Neskaupstað
Haukar — Valur
Víkingur, Ólafsvík — ÍA
IBV — UBK
Fram — Fylkir
ÍBA — Vfkingur, Reykjavík
Ármann — KR
Selfoss — IBK
Einu 1. deildarliðin
sem leika saman í
16 liða úrslitunum
Sá háttur var hafður á, er
dregið var í gær, að fyrst voru
dregin nöfn þeirra liða, sem fá
leiki á heimavelli. Fyrrverandi
formaður mótnefndar, Jens
Sumarliðason dró fyrst út nafn
Völsunga, en Jón Magnússon, sem
um árabil var formaður móta-
nefndar, dró út nafn Hauka.
Svo sem sjá má af upptalning-
unni, er það aðeins f einu tilfelli,
sem 1. deildar lið leika saman, og
ísland mætir N-írum í
Evrópukeppni unglingaliða
DREGIÐ var um það 1 Zurich í
Sviss í fyrradag hvaða lið leika
saman í riðlum í Evrópukeppni
unglingalandsliða. Island leikur í
8. riðli og þar verða mótherjar
fslenzka liðsins Norður-írar. Sigri
íslenzka liðið f leikjum sfnum við
trana mætir liðið sigurvegurun-
um úr þriðja og f jórða riðli ásamt
gestgjöfum Sviss í úrslitakeppn-
inni. Úrslitin fara fram f Sviss f
maí á næsta ári, leikirnir í úrslita-
riðlunum fara fram 9., 11. og 13.
maí, undanúrslitin þann 16. og
úrslitaleikurinn 19. maí. Telja
verður líklegt að það verði Belgar
og Englendingar sem sigri í 3. og
4. riðli.
Riðiaskiptingin er sem hér seg-
ir:
1. riðill:
Júgóslavía og A-Þýzkaland
2. riðill:
V-Þýzkaland og Austurrfki
3. riðill:
England og Spánn
4. riðill:
Belgfa og trland
5. riðill:
Búlgaría og Ungverjaland
6. riðill:
Danmörk og Skotland
7. riðill:
Noregur og Finnland
8. riðill:
N-írland og tsland
9. riðill:
Italía og Portugal
10. riðill:
Wales og Malta
11. riðill:
Svíþjóð og Pólland
12. riðill:
Rúmenía og Sviss
13. riðill:
Tékkóslóvakía og Tyrkland
14. riðill:
Holland og Frakkland
15. riðill:
Liechtenstein og Luxemburg
I úrslitunum leika saman sigur-
vegarar úr eftirtöldum riðlum:
a. riðill:
6, 13,14. og 15.
b. riðill:
3., 4. og 8 ásamt gestgjöfunum
frá Sviss
c. riðill:
1., 2., 7. og 12.
d. riðill:
5., 9., 10. og 11.
eru það Akureyringar og Vík-
ingar. Fer sá leikur fram á Akur-
eyri. Akurnesingar fara til Ólafs-
víkur og Ieika þar, Ármann mætir
KR á Armannsvellinum, Selfoss
leikur við Keflavík á Selfossi,
Haukar við Val f Hafnarfirði og
Þróttur frá Neskaupstað sækir
Völsunga á Húsavik heim.
Átta liða úrslit bikarkeppn-
innar fara fram 14. ágúst, undan-
úrslitin 28.,ágúst og úrslitaleikur-
inn verður sfðan háður á Laugar-
dalsvellinum 11. september.
Alls tóku 34 lið þátt f bikar-
keppni KSl að þessu sinni. 8 úr 1.
deild, 8 úr 2. deild og 26 úr 3.
deild. Urslit leikja til þessa hafa
orðið sem hér segir:
Suðurland:
1. umferð:
Dregið hjá HSK
Dregið hefur verið í skyndi-
happdrætti HSK. Vinningar
komu á eftirtalda miða: Vikuferð
fyrir tvo til Danmerkur: 4177 og
vikuferð fyrir einn til Danmerk-
ur: 4180. (Vinningsnúmer birt án
ábyrgðar).
IR — Stjarnan 3—1
Grótta — Selfoss 3—4
2. umferð:
FH — Haukar 0—2
Þróttur — Armann 1—2
UBK — Vfðir 9—0
ÍR — Selfoss 0—2
Leiknir — Fylkir 0—3
Vesturland:
ÍBl — Stefnir 2—0
UMSB — Víkingur, Ól. UMSB gaf
2. umferð:
Víkingur, 01 — IBI 4—2
Austurland:
1. umferð
Austri — Leiknir 1—3
Þróttur, N — Valur 2—1
2. umferð:
Höttur — Huginn 3—5
Leiknir — Þróttur 5—6
3. umferð:
Huginn — Þróttur 0—3
Norðurland:
Völsungur — KS 2—0
Leiftur — UMSS 3—1
2. umferð:
Völsungur — Leiftur 7—1
Sigurður Leifsson markahæsti leikmaður Armannsliðsins á keppnis-
tfmabilinu f baráttu við Friðþjðf Helgason fyrrum leikmann lA og
Breiðabliks. (Ijósm. RAX).
Ármann hristi
í B í af sér
með 2:1
sigri gegn
Selfossi
Armenningar mjökuðu sér af
hættusvæðinu á botni 2. deildar,
er liðið vann Selfyssinga með 2
mörkum gegn eínu á Armanns-
velli f fyrrakvöld. Armenningar
eru nú komnir með þremur stig-
um meira en Isfirðingarnir, sem
virðast vera dæmdir til að falla
þrátt fyrir góða spretti upp á sfð-
kastið.
Leikur Armanns og Selfoss var
ekki ýkja ójafn, en þó ekki ósann-
gjarnt að heimaliðið hlyti bæði
stigin. Smári Jónsson skoraði
eina mark fyrri hálfieiksins og f
byrjun þess sfðari kom hann Ar-
mannsliðinu tveimur mörkum
yfir. Gfsli Sváfnisson átti sfðasta
orðið f leiknum, er hann komst
einn inn fyrir eftir mistök f vörn
Armanns og skoraði auðveldlega.
Isfirðingar eiga eftir að leika
fjóra leiki í 2. deild og eiga þeir
því möguleika á að ná átta stigum
í viðbót. Þó verður að telja harla
ólíklegt að svo fari. Mótherjar IBÍ
í þessum leikjum eru sterkir, FH
og Ármann úti, Breiðablik og
Völsungar á Isafirði. öll nótt er
þó ekki úti enn hjá ísfirðingum.
Fari svo að ísafjarðarliðið byrji
að hala inn stig færast fleiri lið en
Ármann á hættusvæðið. Völsung-
ar hafa hlotið 7 stig, Ármann og
Selfoss 6. Þó er óhætt fyrir Sel-
fyssinga að reikna með tveimur
stigum í viðbót. Ólafur Hákonar-
son mun hafa leikið í marki
Breiðabliks gegn Selfyssingum og
verið ólöglegur eftir að hafa fyrst
leikið með Val á keppnistímabil-
Olaisvíkur-Víkingarnir óstöðvandi
Úrslita-
leikur HM
sýndur á
þriðjudag
SEM kunnugt er hefjast sjón-
varpsútsendingar að nýju á
sunnudaginn, að loknu sumar
leyfi sjónvarpsstarfsmanna.
Iþróttaunnendur eru orðnir
anzi langeygir eftir að sjá úr-
slitaleik heimsmeistarakeppn
innar f knattspyrnu milli
Vestur-Þjóðverja og Hol
lendinga, og þvf hafði Mbi
samband við Ómar Ragnarsson
f gær og spurðist fyrir um það,
hvenær af þvf yrði. Sagði
Ómar, að leikurinn yrði að
öllum Ifkindum á dagskrá n.k.
þriðjudagskvöld og einnig
yrðu sýndar myndir frá keppn-
inni á mánudags- og föstudags-
kvöld.
Auðvelt hjá
Völsungi
VÖLSUNGUR frá Húsavfk átti
ekki f míklum erfiðleikum
með að sigra Leiftur frá Ólafs-
firði f bikarkeppninni í fyrra-
kvöld. Húsavfkurliðið hafði
yfirburði og sigraði 7:1. Stóru
nöfnin f liði Völsungs gerðu
bróðurpartinn af mörkunum,
Hreinn EUiðason gerði 3 mörk
og Magnús Torfason 2, Her-
mann og Páll skrifuðu einnig
nöfn sfn á markareikninginn.
Mark Ólafsfirðinganna var
sjálfsmark og var það sfðasta
mark leiksins.
Þessa mynd tók
Hermann Stefánsson af leik Vfkinga f 3. deiidar keppninni, en þar hafa þeir
verið sigursælir.
VlKINGAR frá Ólafsvík hafa
staðið sig með miklum sóma í
þriðju deildinni í sumar. Þeir eru
öruggir í úrslitin og hafa aðeins
gert eitt jafntefli. I fyrrakvöld
gerðu Víkingarnir sér svo lítið
fyrir og unnu 2. deildar lið IBI í
bikarkeppninni. Leikurinn fór
fram á Ólafsvík og úrslitin urðu
4:2 heimamönnum í vil, í leikhléi
var staðan 3:2.
Komust Víkingarnir í 3:0 á
fyrstu 20 mfnútum leiksins.
Fyrsta markið var sjálfsmark, en
síðan skoraði Guðmundur tvö
góð mörk og var það fyrra
gullfallegt. ísfirðingar áttu
góðan leikkafla það sem eftir
var hálfleiksins og skoruðu
þá Gunnar Pétursson og örn
Leósson tvö mörk fyrir gest-
ina. Það dugði þó skammt því í
síðari hálfleiknum héldu Víking-
arnir áfram sinni árangursríku
baráttu og skoruðu þá eitt mark.
Enn var Guðmundur Gunnarsson
að verki eftir að hafa prjónað í
gegnum vörn Isfirðinganna.
Vfkingarnir taka nú í fyrsta
skipti þátt í bikarkeppninni og
eru komnir í 16 liða úrslit. Er það
mál manna að Vfkingsliðið hafi
aldrei verið betra og þakka Ólafs-
víkingar þjálfara sfnum, Gylfa Þ.
Gíslasyni frá Selfossi, góðan
árangur. Gylfi leikur einnig með
liðinu og hvetur sfna menn óspart
áfram. Hann var ásamt Guðmundi
Gunnarssyni bezti maður liðs síns
í leiknum í fyrrakvöld.
• •
Oruggur
sigur Norð-
firðinga
NORÐFJARÐAR-Þróttur hafði
talsverða yfirburði fram yfir
Hugin frá Seyðisfirði er liðin
mættust í bikarkeppninni í fyrra-
kvöld. Leikurinn fór fram á Eski-
firði og skoraði Þróttur 3 mörk
gegn engu. Það var Arni Guðjóns-
son sem opnaði leikinn fyrir Þrótt
í fyrri hálfleiknum og í þeim síð-
ari skoraði Jón Hermannsson tví-
vegis fyrir liðið. Þessir tveir leik-
menn báru af í liði Þróttar, sem
nú er bæði í úrslitunum í 3ju
deildinni og 16 liða úrslitum
bikarsins.