Morgunblaðið - 31.07.1974, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 31.07.1974, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JULl 1974 27 Marín Guðmunds- dóttir—Kveðja F.3. ágúst 1902 D. 23. júlf 1974 Kveðja til ömmu Ég hef verið að rifja upp fyrir mér öll þau skipti, sem ég kom á Njarðargötuna og hvað hún amma mfn, Marín Guðmundsdóttir, tók alltaf vel á móti mér. Þegar hún þurfti að skreppa frá, skildi hún eftir lykilinn til þess að vera viss um, að ég kæm- ist inn; ef hún átti von á mér, var hún búin að leggja á borð fyrir mig, því að ekki mátti ég fara án þess að fá hressingu. Ég mun ætíð minnast þess, er hún kom heim af spftalanum í vetur, hve stillt og æðrulaus hún var. Mig grunaði ekki, að hún þyrfti að fara svona fljótt aftur. Hún kvartaði aldrei. Núna veit ég, að ömmu minni líður vel, hún er komin alla leið að Iitla bænum, þar sem öll blóm- in eru í kring og rauða ljósið skín f glugganum. Ég veit að blómin Sigurður H. Matthías- son — Minningarorð verða fallegri og rauða ljósið mun skína. I huga mínum er ég hjá henni og mun dást að blómunum með henni. Hvíl í friði. Þorbjörg. um viðaði hann að sér mammlegri vitneskju og þá jafnframt vísinda- legri um hvaðeina, sem menn hafa brotið til mergjar fyrr og nú. Af þessu leiddi, að hann var sjálf- ur orðinn brunnur þekkingar. Var hrein unun að ræða við hann og spyrja, því að svörin voru bor- in fram af manni, sem var óvenju gáfaður, en með öllu hrokalaus og framúrskarandi prúður og lítillát- ur. Það er með ólíkindum hvað dverghagur hann var í höndun- um. Hann smfðaði líkön af hús- um, flugvélum, skipum vopnum og síðasta verkið, sem hann lauk við, var af eimvagni þeim, er nú ryðgar niður í Árbæjarsafni. Oft þurfti hann langan undirbúning, áður en sjálf smíðin hófst, en með þrautseigju og þolinmæði, — eins og líf hans var allt, — tókst hon- um að ljúka við hvert verkið eftir annað. Hann unni Reykjavfk og var mikill áhugamaður um náttúru- vernd og vildi varðveita sögulegar minnjar þjóðarinnar. Hann ferð- aðist mikið um landið og átti ég þess oft kost að vera honum sam- ferða. Þekking hans á náttúru og jarðmyndunum var slík, að við gengum ekki á hrauni eða jökli, — heldur sögu, sem sögð var á göngunni. Hann naut fslenzkra óbyggða, útilífs og gönguferða, enda hraustur og síungur. Frá þessum ferðum geymist listrænt og fagurt safn ljósmynda. Margir leituðu til hans, sem þekktu góðvild hans og fórnar- lund og fóru ekki erindisleysu. Þær fjárhæðir, sem hann gaf í góðgerðarstarfssemi eru mér ókunnar. En í dag veit ég, að Guð hefur fært honum margfalt fyrir framlag hans til líknarmála svo og miskunsemi hans við náungan. Ég hef vissulega orðið þess aðnjótandi að þekkja göfugt fólk á lífsleiðinni, en að öllum ólöstuð- um hef ég ekki kynnzt jafnhrein- lyndum eðalsmanni, heiðarlegum og grandvörum. Þannig væri lengi hægt að telja upp og segja satt eitt um hann, en þess hefði hann sfzt óskað, því hann var afar hlédrægur og mótfallin öllu hrósi og lofi sér til virðingar. Það lyftir okkur upp úr hvers- dagsleikanum, þegar við hugleið- um, hversu vel úr garði Guð gerði þennan mann. Líf hans verður öðrum til eftirbreytni, því hann afneitaði og agaði sig til aukins þroska, gerði litlar kröfur til ann- arra og lifði í kyrrð og hógværð. Við, sem þekktum hann, minn- umst hans með djúpu þakklæti fyrir þrautseigju og kærleika, sem hann sýndi okkur í verki gegnum árin. Það verður þeim til íhugunar og lærdóms, sem komu að sjúkrabeði þessa manns, sem f dauðastríði sínu hugsaði um velferð og fram- tfð annarra og bað Guð að blessa og styrkja ástvini sína. Víkum saman neytti hann svo til engrar fæðu, en með einstakri karl- mennsku og hugprýði bar hann þjáningu sfna möglunarlaust og þakkaði Guði fyrir þann styrk, sem hann hafði þrátt fyrir voða- legan sjúkdóm. Hann var trúmaður og fann þann, sem sagði: „Ég lifi og þér munuð lifa“. Hann fór héðan frelsaður — endurfæddur— inn í Drottins dýrð, ríki Jesú Krists, þar sem gleði, fögnuður og full- komnun varir um eilífð. Megi sú fullvissa græða sár aldraðar, sorg- mæddrar móður, systkina og vina. Siðasta daginn, sem hann lifði hér, höfðum við stutta helgi- og bænastund með honum. Er hann hafði lokið bæn sinni, endaði hann með þeim orðum, sem ég vil einnig hafa fyrir lokaorð yfir lífi elskulegs bróðurs. „I JESU BLESSAÐA NAFNI, AMEN.“ Bróðir. En innsta hræring hugar mfns, hún hverfa skal til upphafs síns, sem báran endurheimt í hafið. Þessar ljóðlfnur komu mér í hug er ég — svo óvænt — frétti um andlát mfns bezta æskuvinar, Þorleifs Þoreifssonar ljósmynd- ara. Harmafregnin varð mér og mínum — raunar öllum öðrum kunningjum og vinum Þorleifs heitins — þungt áfall, þvf að þarna var vissulega drengur góð- ur burtu hrifinn, langt fyrir aldur fram. Þorleifur Þorleifsson fæddist 17. febrúar 1918 í Reykjavík, næstelztur 8 barna Elínar Sigurðard. og Þorleifs heitins Þorleifssonar ljósmyndara, sonar- sonar Þorleifs frá Bjarnarhöfn, hins mikla dulhyggju- og lækningamanns svo sem þekkt er. Stóð því að honum straustur stofn — enda Þorleifi ýmislegt það gott gefið bæði til handar og anda, er til forfeðranna mætti rekja. Kynni okkar hófust, er við, svo að segja frá bernsku, ólumst upp í sama húsi, Pósthússtræti 6 eða eins og það síðar nefndist Kirkju- torgi 6, í hjarta Reykjavíkur. Vissulega er margs að minnast frá uppvaxtarárum okkar krakkanna á Kirkjutorgi og næsta nágrennis við okkar kæru gömlu Dómkirkju og það var líka oft mikið fjör og gleðskapur, sem aðeins stöðvaðist augnablik, er á vegi okkar urðu — að okkar dómi — 2 mætustu borgarar miðbæjarins og vinir okkar, þeir séra Bjarni Jónsson dómprófastur og Ólafur Þor- steinsson læknir. Þá var stanzað og tekið í húfuna í flýti — og síðan þotið út I leik aftur. Þannig leið glatt og áhyggjulítið bernsku- og æskulíf Þorleifs heitins og okk- ar hinna og manndómsárin tóku við með alvarlegri og stærri viðfangsefnum. Hópurinn tví- straðist eins og títt er út í lífsins ólgusjó, þar sem flestir verða fyr- ir einhverjum áföllum og þannig varð einnig Þorleifur og fjöl- skylda hans fyrir miklum missi, er faðir hans lézt um aldur fram og skildi eftir Elínu konu sína með stóran barnahóp. En þar var síður en svo um uppgjöf fjölskyld- unnar að ræða heldur var tekizt á við vandann af hugrakkri móður og duglegum börnum, sem með dugnaði og harðfylgi hafa komið sér áfram. Bræðurnir Þoreifur og Oddur tóku við Amatörverzlun- inni og sýndu með þvf ræktarsemi við lífsstarf föður sins, enda þótt annað starf hafi ef til vill legið þeim nær — sökum listfengis þeirra og þá ekki sízt Þorleifs, sem var maður listfengur og dverghagur með afbrigðum, svo sem hinir ýmsu listmunir hans bera gleggst vitni um. Meðfædd hlédrægni hans og hófsemi hafa líklega verið þess valdandi, að ekki hefur verið haldin sýning á verkum hans, þótt ekki væri nema til að minna sam- borgara hans á ræktarsemi hans við fæðingarborg sina, sem hann sýndi í verki með meistaralegum eftirlíkingum af ýmsum gömlum húsum og bæjarhlutum, sem ann- ars hefðu fallið í gleymskunnar dá, en nú eru tryggilega varðveitt. Þar má með sanni segja, að brúað hafi verið bilið milli góðs vilja og góðra verka. Um tima skildu leiðir okkar Þorleifs, en einlæg vinátta hélzt og eftir að ég kom heim að siðari heimsstyrjöldinni lokinni varð ég aftur tíður gestur á himili Elínar, sem hún bjó hlýlega sonunum tveim, er hjá henni dvöldu. Þorleifur var mikill og einlæg- ur náttúruskoðari og náttúruunn- andi og urðu það ófáar gönguferð- irnar, er við fórum saman í um rúmlega 20 ára skeið. A slikum gönguferðum var eðlilega margt skrafað og rætt, en einkum voru honum andleg viðfangsefni kær- komið umræðuefni, því að Þor- leifur heitinn var mjög andlega sinnaður og leitandi maður með víðsýnt og bjart hugarfar og næma samkennd til alls, er lifði og dafnaði, hvort heldur voru æðri eða lægri lífverur, og mátti helzt ekkert aumt sjá. Það má því segja, að hann hafi hlotið þá gæfu í þessu lífi að rækta með sér flest- ar þær eigindir, er góðan og göf- ugan mann mega prýða, enda maðurinn hvers manns hugljúfi öllum þeim, er kynntust honum. Minningar um margar af skemmtilegustu samverustund- um okkar Þorleifs geymi ég I hjarta mínu sem dýrmætan fjár- sjóð, sem ég vildi ekki hafa farið á mis við. Og nú að lokum eftir langan, þungan dag og erfið veikindi er leið hans öll. Hann sezt á stein við veginn og horfir skyggnum aug- um heim I dalinn, því að nú lítur hann í himinfrið bláfjallasalsins og finnur, að nú getur hann lagt staf og bakpoka frá sér um stund, því að ferð hans er hafin á drott- ins fund. Hér skiljast leiðir að sinni, en I huga mínum ríkir þó treginn blandaður þakklæti fyrir allar samverustundirnar. Aldraðri móður Þorleifs, syst- kinum og öðrum ættingjum bið ég allrar blessunar og styrks í sorg þeirra og söknuði eftir elskulegan son bróður og frænda, sem með þessum fátæklegu orðum gamals vinar er kvaddur hinztu kveðju. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Geir R. Tómasson. I dag er til moldar borinn Þor- leifur K. Þorleifsson ljósmyndari, sem lézt á Landakotsspítala 23. þ.m. eftir langvinna og þunga sjúkdómslegu. Þorleifur var fæddur i Reykjavík 17. febrúar 1917. F'oreldrar hans voru Elín Sigurðardóttir og Þorleifur Þor- leifsson ljósmyndari. Mig Iangar til að senda Þorleifi vini minum nokkur kveðjuorð að leiðarlokum, því að við áttum saman bernsku- og unglingsárin öll og vorum mjög samrýndir. Það segir sig sjálft, að i þvi fóstbræðralagi bundum við þau vináttubönd, sem aldrei brustu siðan. Þótt við siðar á ævinni hittumst ekki eins oft og báðir hefðu viljað naut ég þess oft að finna hans traustu og hlýju vináttu jafnan, er fundum okkar bar saman. Þorleifur var hlédrægur og flíkaði ekki tilfinn- ingum sínum, en hann var einlæg- ur og vinsamlegur öllum, sem hann umgekkst, og eignaðist því traust og vinsemd þeirra, sem hann átti skipti við. Ekki er hægt að minnast Þorleifs svo, að ekki sé minnzt á hagleik hans, en hann var svo mikill smið- ur, að í huga hans og höndum urðu til þau listaverk, sem ekki missa gildi sitt á með- an fallegt handbragð og hug- vitssemi eru að nokkru metin og má þar til nefna eins konar módelsmíði (lágmyndir) af þeirri Reykjavík, sem nú er óðum að hverfa. En Þorleifur var sem fyrr segir fæddur I Reykjavík og þótti vænt um umhverfi sitt, bæði nýtt og gamalt, og um Reykjavík safn- aði hann miklum fróðleik í mynd- um og máli. Ekki treysti ég mér að lýsa þeim listmunum, sem ég minntist á, en ég tel vist, að þeir verði síðar kynntir betur en orðið er. Þeir eru þess virði og meira en það. Að lokum kveð ég kæran vin minn og þökk fyrir allt. Blessuð sé minning hans. Elínu móður Þorleifs og systkinum hans votta ég innilega samúð og þakka vin- semd þeirra fyrr og síðar. Jón Albertsson. „VINIR berast, burt með timans straumi.“ Svili minn og góðkunningi, Sig- urður H. Matthíasson, andaðist tuttugasta þessa mánaðar eftir erfiða sjúkdómslegu síðustu sex mánuði. Sigurður var fæddur í Reykja- vík 11. september 1908. Foreldrar hans voru þau hjónin Sigriður Gísladóttir og Matthías Sigurðs- son verzlunarmaður. Sigurður á eina eftirlifandi systur, Hrefnu, en hún er gift Ingvari Kjartans- syni verzlunarmanni. 26. október 1940 giftist Sigurður eftirlifandi konu sinni, Ingunni Jónsdóttur, en foreldrar hennar voru þau hjónin Valdís R. Jónsdóttir og Jón A. Benediktsson bóndi á Krossi í Innri-Akraneshrepp. Sigurður og Ingunn áttu mjög hlýlegt og fallegt heimili. Þau eignuðust eina dóttur, Steinvöru, sem gift er Elíasi Arnasyni bif- reiðastjóra. Ekki er ofsögum sagt, að Sig- urður hafði miklar mætur á dóttur sinni, en sólargeisli lífs hans nú á seinni árum var litla dótturdóttirin, Sigríður Ingunn, sem missir mikið við fráfall svo góðs afa. Sigurður lauk námi frá vél- stjóraskóla íslands árið 1929 og var eftir það vélstjóri ýmist á flutninga- eða fiskiskipum þar til fyrir nokkrum árum, að hann geróist starfsmaður í vélsmiðj- unni Hamri, en þar vann hann þar til á síðastliðnum vetri, að sjúkdómur hans var orðinn það alvarlegur, að alla, sem til þekktu, undraði, hversu lengi hann fór til starfa. Sigurður var traustur og hæg- látur maður og flíkaði ekki til- finningum sinum eða líðan við aðra. Seint mun mér og fjölskyldu minni gleymast sá hlýhugur og vinarþel, sem við mættum alltaf, er við komum á heimili þeirra Sigurðar heitins og Ingunnar. Um leið og við kveðjum góðan vin í hinzta sinn, biðjum við guð að blessa komu hans til æðri heims og styrkja eftirlifandi konu hans og aðra nákomna ættingja á erfiðri stund. Gunnar J. Sigtryggsson. ■ öll einkenni eðlislægrar snyrti- mennsku og smekkvísi beggja. Um 30 ára skeið hafði ég nokk- ur kynni af Páli. Fyrir þau vil ég nú þakka. Hann tengdist fjöl- skyldu minni sterkum böndum á fleira en eina grein. Foréldrum minum reyndist hann góður tengdasonur, tillitssamur og nær- gætinn. Heimsóknir hans og Auð- ar voru þeim gleðigjafar, sem nú er minnzt með einlægu þakklæti. Páll Magnússon var í mörgu til- liti dæmigerður fyrir þá, sem átt hafa drjúgan þátt í að móta þjóð- líf okkar: Hann gekk til starfs með því hugarfari að skila hverju verki óaðfinnanlega, bregðast í engu trausti húsbænda sinna, sjálfs sins eða fjölskyldu. Því var vel borgið, sem honum var trúað fyrir. Þannig er gott að skila sinu dagsverki, með hreinan skjöld og í sátt við samferðafólkið. Kári Jónsson. Páll Magnússon —Minningarorð F. 21. marz 1918 D. 23.JÚIÍ 1974 í dag fer fram á Akureyri útför Páls Magnússonar, bifreiðastjóra, Rauðumýri 16 þar í bæ. Hann fæddist að Grund í Svarfaðardal 21. marz 1918, sonur hjónanna Þórunnar Sigurðardóttur og Magnúsar Pálssonar, er þar bjuggu. Þau hjón eignuðust 13 börn og var Páll 6. í röðinni. Arið 1926 fluttust foreldrar Páls að Brimnesi i Viðvikursveit og bjuggu þar til ársins 1929, að þau brugðu búi og fóru til Siglu- fjarðar. Arin 1930—1940 voru landsmönnum þung i skauti. Stór- ar fjölskyldur áttu erfitt upp- dráttar og allir urðu að taka til höndum sér til lífsframfæris, ef atvinnu var á annað borð að fá. Þetta reyndi Páll. A Siglufirði gekk hann fyrstu árin til þeirrar vinnu, er til féll, en síðar hóf hann bifreiðaakstur, var um skeið hluthafi í Bifreiðastöð Siglufjarð- ar, og síðar á eigin vegum. Þann 11. júlí 1942 kvæntist Páll eftirlifandi konu sinni, Auði Jóns- dóttur (Björnssonar, verzlunar- manns) frá Sauðárkróki. Þau stofnuðu heimili á Siglufirði og bjuggu lengst af f Suðurgötu 18. Þau eignuðust 5 mannvænleg börn, sem öll eru á lífi. Þau eru, talin í aldursröð: Jón, rafvirki í Reykjavík, Guðný, kennari á Hellu, Þórunn og Unnur, hús- mæður á Akureyri og Magnús nemandi í Menntaskólanum á Akureyri. Arið 1964 fluttist fjölskyldan frá Siglufirði og settist að á Akur- eyri. Fljótlega eftir komuna þang- að réðst Pál til Landssímans og starfaði þar óslitið síðan. Hann var við skyldustörf sín, er hann kenndi sjúkdómsins, sem varð honum aðaldurtíla. Hanndvaldi á sjúkrahúsi nokkra daga og virtist á batavegi, en að kvöldi 22. júlf hrakaði honum skyndilega og lézt þar þá um nóttina. Páll var heilsu- hraustur alla ævi og mun vart hafa kennt sér meins. Umskiptin voru þvi mikil og snögg. En hann tók örlögum sinum með karl- mannlegri ró og æðruleysi. Það er samdóma álit þeirra, sem þekktu Pál, að hann væri mannkostamað- ur. Störf sfn vann hann af skyldu- rækni og miklum dugnaði; var ágætlega verki farinn, hagur vel og útsjónarsamur. Hann var snyrtimenni I umgengni, svo af bar. Hyskni eða sviksemi þoldi hann ekki, enda sjálfur vammlaus maður i öllu dagfari. Hann var jafnlyndur og háttvis og hélt sér lítt fram, gætti þess þó að halda sínum hlut, en forðaðist að ganga á annarra rétt. Heimilisfaðir var hann ágætur, umhyggjusamur og traustur. Ber heimili þeirra hjóna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.