Morgunblaðið - 31.07.1974, Page 36

Morgunblaðið - 31.07.1974, Page 36
LC5IÐ í>ií) eíbð ~~— 3n*rantiMn&u Qiuliuinga takaiafkarur i DHGLEGR MIÐVIKUDAGUR 31. JULl 1974 '' -^' i;.; "■ y~i: ^ ^ '* >* ^^^<4 ~ ' *•*< * w - ' <»««►. o, , &** ' ** \v ***> * ^ * ' ... v.,' > > *' »v » „ .jrzgy*™ > ■ ■■'■■<:■< .. v, , . >s, '*•****>*< ,:,w.. nflHB ^ Jgr. „L.4i ’ - «a*4sf.?4^ rf***íi**l*S*^^ .«***«&< ^ * ■ / .... ■ v. <t#Ví», «**»>•■* >*«,,,. , y.;,': "' •••>. , • * •:••'> '•<• > '' . ^ ,■■■■>. ■ ■- ■ ■ Þessi mynd er táknræn fyrir véivæðinguna innan landbúnaðarins á sfðustu árum. Nú heyja bændur á nokkrum dögum f hagstæðri tfð. Olafur K. Magnússon túk myndina undir Eyjafjöllum á dögunum. Ólafur Jóhannesson um utanríkismálin: _____ Auðvitaðer einhver ágreiningur ENN er með öllu óljóst, hvern árangur viðræður Framsóknar- flokksins, Alþýðubandalagsins, Samtakanna og Alþýðuflokksins um stjórnarmyndun hafa borið. Ólafur Jóhannesson, forsætisráð- herra, sagði f samtali við Morgun- blaðið, að f gær, þriðjudag, hefði verið haldinn fundur f þeirri und- irnefnd stjórnmálaflokkanna fjögurra, er fjallar um efnahags- málin. Forsætisráðherra sagðist ekki geta gefið frekari upplýsingar um viðræðurnar á þessu stigi, og ekki sagðist hann treysta sér til þess að segja fyrir um, hversu langan tfma þær muni taka, þar sem tfmi hefði verið ódrjúgur til viðræðna að undanförnu og yrði það senni- lega einnig næstu daga. Aðspurð- ur um, hvort skoðanir væru skipt- ar um utanrfkismálin, sagði Ólaf- ur Jóhannesson, að auðvitað væri einhver ágreiningur. Viðræðurn- ar væru hins vegar ekki komnar á það stig, að séð yrði, hvort jafna mætti þann ágreining. 1 þessu sambandi er vert að vekja athygli á forustugrein Þjóð- viljans f gær, er ber yfirskriftina: Hinn grái hversdagsleiki Alþýðu- flokksins. Eftir stutta hugleið- Góð kveðja frá Landsbókasafni ingu um áhrifaleysi þjóðhátfðar á stjórnmál þjóðarinnar segir leið- arahöfundur Þjóðviljans: „Óvissan f stjórnmálum þjóðar- innar er vissulega jafn mikil eftir að Gylfi Þ. Gfslason er búinn að stýra þingfundi á Lögbergi eins og hún var fyrir þann fund. Gylfi Þ. Gfslason og ýmsir hans nánustu f Alþýðuflokknum virð- ast nefnilega ekki enn tilbúnir til þeirrar heilshugar samstöðu um vinstri málefni sem ein væri for- senda vinstri rfkisstjórnar.“ Síðan segir, að Alþýðubanda- lagið hafi haft forustu um það þegar að kosningum loknum, að Alþýðuflokki var boðið til vinstra samstarfs og að Framsóknarmenn hafi rétt Gylfa Þ. Gfslasyni for- setastöðu í sameinuðu þingi, væntanlega f þeirri trú að hann yrði samningaliprari um myndun vinstri stjórnar á eftir. „Vonandi hafa landsins mögn og regin blásið honum þvf þjóðar- stolti f brjóst á pallinum við öxar- á á sunnudaginn, að hann sé nú loks tilbúinn til að vfsa banda- rfska hernum á brott og hjálpa þannig til að leysa Sóley sólufegri út f jötrinum. En þess sér enn engin merki að þingmenn Alþýðuflokksins vilji nú heyra sfna eigin hugmynd um „óvopnaða eftirlitsstöð“ á Kefla- vfkurflugvelli — eða var ekki for- senda þeirrar hugmyndar sú, að bandarfski herinn væri látinn fara?“ spyr Þjóðviljinn. Fyrri slætti að ljúka víðast hvar HEYSKAPUR hefur gengið vel f sumar, þegar litið er á landið sem heild, að sögn Gfsla Kristjáns- sonar hjá Búnaðarfélagi Islands og fyrri slætti vfða að Ijúka. Að vfsu hefur verið skúrasamt á norðausturhorni landsins, einkanlega f Þingeyjarsýslunum báðum. Heyskapartfð hefur hins vegar verið afar hagstæð um sunnan og vestanvert landið — þurrkur mestan part sumars og jafnvel svo þurrkasamt á Norðvestur- landi og Vesturlandi, að það háir endurvexti og er haft á orði, að sprettan sé of Iftil til að slegið verði þar aftur. Tæknivæðing í landbúnaði er á sfðustu árum er orðin svo mikil, að á fáum dögum má ljúka slætti og ná inn heyjum. Benti Gísli á, að í fyrra hefði tekizt að heyja að miklu leyti á tíu dögum. Núna kom hins vegar óþurrkatíð í byrj- un júlí og tafði bændur nokkuð, en frá 12. júlí má heita að hafi verið samfelld góðviðristíð. Gfsli sagði þó, að heyskapar- árangur væri sízt betri en í fyrra, einkanlega vegna svellalaganna í vetur, og víða í uppsveitum suð- vestan- og sunnanlands bæri verulega á kalblettum, sem þó væru nú aðeins að byrja að taka við sér. Horfir vel með kartöfluuppskeru HORFUR með kartöflu- uppskeru eru góðar eins og stendur, samkvæmt upp- lýsingum, er Mbl. fékk hjá Magnúsi Sigurlákssyni bónda í Þykkvabæ í gær. Magnús sagði, að kartöflugrös væru óvenju mikil og í góðu ásig- komulagi. „Ef ekki gerir frost fyrir 20. ágúst, má búast við mjög sæmilegri uppskeru," sagði hann. Um 50 manns stunda kartöflu- rækt í Þykkvabænum og eru með alls um 300 hektara undir kart- öflurnar. I vor voru settir niður um 10—11 þúsund pokar af kart- öflum. Að sögn Magnúsar var kartöflu- uppskeran í fyrra með afbrigðum léleg í Þykkvabænum og mældist aðeins um 18 þúsund tunnur, eða 36 þúsund pokar. I góðu uppskeruári á að fást upp tvöfalt meira, eða um 35 þús- und tunnur, og vonast Þykkva- bæjarbændur til þess, að afraksturinn í ár verði á því bili, ef allt gengur að óskum. Aftur á móti kvað Magnús gras- sprettu í sumar hafa verið heldur lélega og taldi ástæðuna fyrst og fremst hafa verið kuldakastið fyrripart vetrar. „Eins er ekki að vita nema þessi þungu land- búnaðartæki, sem nú er farið að nota, valdi hér einhverju um með þrýstingi á jarðveginn. Ég held, að enn séu ekki öll kurl komin til grafar, hvað snertir áhrif þess- arar nýtízku tæknivæðingar í landbúnaðinum ágróður og mold“, sagði Magnús. Færeyja F0ROYA Landsbókasavn sendi Landsbókasafni Islands að gjöf nýlega Seyðabrævið svonefnda frá 1298 í fagurri ljósprentaðri útgáfu. Seyðabrævið var rettarbók Hákonar hertoga Magnússonar til handa Færeyingum, en texti Framhald á bls. 35 Þrítug húsmóðir fór fót- gangandi suður Kjölinn ÞRÍTUG húsmóðir frá Akureyri vann það afrek nú á dögunum að ganga eins síns liðs suður allan Kjölinn og létti ekki á för inni fyrr en hjá Sandá, en þangað var hún sótt. Hljótt hefur verið um þetta afrek akureysku konunnar, „en þetta telst alltént til tíðinda hér um slóðir,“ sagöi Halla Guðmundsdóttir, veður- athugunarmaður á Hveravöllum, sem færði Morgunblaðinu þessar fréttir. Konan heitir Ólöf Halblaub og er tveggja barna móðir. Kom hún við á Hveravöllum á langri göngu sinni og þáði þar viður- gjörning af heimafólkinu, en hélt að því búnu áfram ferð- inni. Halla tók til þess, hversu skynsamlega hún var útbúin til þessarar ferðar. „Hún hafði yfirleitt gert allan sinn útbúnað sjálf — saumað tjaldið, bakpok- ann og svefnpokann og með það fyrir augum að þetta yrði sem minnst byrði,“ sagði Halla. Var Ólöf á Hveravöllum 17. júlí. Erindi Morgunblaðsins við Höllu var annars að fá fréttir af ferðum um Kjölinn í sumar. Sagði hún, að umferðin hefði verið mjög mikil í sumar — aðallega þö af hópferðabílum og jeppum. Utlendingar væru í meirihluta og kæmu aðallega með hópferðabflunum, en einn- ig kæmu nokkrir fótgangandi. Islendingar ferðast aftur a móti að langmestu leyti í jeppum. Þá hafði Morgunblaðið einnig samband við Jóhannes vitavörð í Hornbjargsvita, og sajgði hann, að þar hefði verið mikið um mannaferðir í þess- um mánuði, eins og raunar alltaf í júlí. Þessa dagana eru um 20 manna hópur á þessum slóðum og einnig hefur töluvert verið af innlendum ferðamönn- um. Sagði Jóhann, að veður hefði verið gott nú um langan tíma. Ferðamennirnir koma aðallcga á bátum til Hesteyrar og Aðalvíkur, en einnig austan að. Kappræðir um höfund Njálu HELGI á Hrafnkelsstöðum skorar á menn til kappræðu um efnið: Hver er höfundur Njálu? — á sviði Laugardals- hallar næstkomandi Iaugar- dalskvöld, þar sem Þróunar- sýningin stendur nú yfir. Helgi hefur sem kunnugt er sett fram ákveðnar kenningar um þetta efni og staðhæfir þar, að Snorri Sturluson sé höfund- ur þessarar ágætu sögu. Ymsir hafa orðið til þess að draga niðurstöður Helga f efa, en nú er hann sem sagt reiðubúinn til þess að verja hana af oddi og egg á almannafæri. Helgi gerir aðeins eina undantekn- ingu — hann vill ekki eiga orðastað við Benedikt á Hof- teigi um þessa leyndardóms- fyllstu gátu íslenzkra bók- mennta. Norsku teinær- ingarnir komnir til Grindavíkur NORSKU teinæringarnir Örn og Hrafn sigldu f gærkvöldi inn til Grindavfkur og er það fyrsta við- koma þeirra hérlendis á leið til Reykjavfkur. Ætla áhafnir bát- anna að gista f Grindavfk f nótt, en halda sfðan ferðinni áfram. Bátarnir ættu að vera komnir til Reykjavíkur á fimmtudag, ef allt gengur að óskum. örn er þjóð- hátíðargjöf frá Osló, Bergen og Þrándheimi, en Hrafn er á hinn bóginn gjöf frá ýmsum æskulýðs- félögum í Noregi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.