Morgunblaðið - 01.08.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. AGUST 1974
o
LAUGAVEG 20 A
FYRIR ÞJOÐHl iTIÐAR
Höskuldur Jónsson
stjóri í fjármála-
ráðuneytinu
settur ráðuneytis-
Fjármálaráðherra hefur
ákveðið að Ieysa Jón Sigurðsson
ráðuneytisstjóra um sinn undan
starfsskyldum í fjármálaráðu-
neyti, en falið honum f þess stað
að vinna að undirbúningi nýrrar
lagasetningar um tekjuöflun
rfkísins.
Þvi hefur Höskuldur Jónsson,
skrifstofustjóri, verið settur ráðu-
neytisstjóri fyrst um sinn frá 1.
ágúst að telja. Jafnframt hefur
Þorsteinn Geirsson, núverandi
deildarstjóri launadeildar, verið
settur skrifstofustjóri ráðuneytis-
ins.
Höskuldur Jónsson er fæddur
9. ágúst 1937. Hann lauk
viðskiptaprófi frá Háskóla
Islands 1963 og prófi í framhalds-
námi í þjóðfélagsfræðum frá
Institute of Social Studies í
Holiandi 1965. Hann hefur verið
starfsmaður fjármálaráðu-
neytisins frá 1. júní 1965 sem
fulltrúi, deildarstjóri og sfðast
skrifstofustjóri.
(Frétt frá fjármálaráðuneytinu)
Auðvitað meira og glæsilegra
sumarfatnaði en nokkru fyrr.
m\TAl■l•m
sumarvorum.
Karnabær óskar ykkur góðrar
ferðar og skemmtunar um
1 .
þessa þjóðhátíða
verzlunar-
i ’ 'Th jgp
mannahelgi. Vw
Tvöluverð
umferð um
Sprengisand
Töluverð umferð hefur verið
um Sprengisand I sumar. 1 veður-
athuganastöðinni á Sandbúðum á
Sprengisandi dveljast 1 sumar
hjónin Guðrún Sigurðardóttir og
Þorsteinn Ingvarsson ásamt
dóttur sinni Ragnheiði Önnu og
annarri lftilli stúlku, Sigrúnu
Davfðsdóttur.
Að sögn Guðrúnar er mest
umferð um helgar, en minni í
miðri viku. „Sandbúðir eru um
þrjá kílómetra frá veginum og
ekki mjög mikið um, að fólk leggi
þangað leið sína, en þó kemur
einn og einn í heimsókn,“ sagði
Guðrún, þegar við töluðum við
hana í gær. Þau hjónin verða á
Sprengisandi fram til 10. septem-
ber nk.
Vigri væntanleg-
ur í september
Vigri, skuttogari ögurvíkur hf.,
er væntanlegur til landsins í
september að lokinni viðgerð.
Skv. upplýsingum Gísla Jóns
Hermannssonar hjá ögurvík
hefur viðgerð miðað eftir áætlun
og er skipið væntanlegt til
landsins í kringum 10. september.
^VKiRnuKn
umsKiPTin sEm
ýg nucLvsní