Morgunblaðið - 01.08.1974, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. ÁGUST 1974
15
Grískir komm-
únistar vilja
í ríkisstjórn
EINN af leiðtogum gríska komm-
únistaflokksins, Artonis
Ambatielos, krafðist þess í dag, að
allir flokkar og stjórnmálahreyf-
ingar, sem barizt hefðu gegn
gömlu herforingjastjórninni,
mynduðu ríkisstjórn í Grikklandi
og ætti sú stjórn að undirbúa
frjálsar kosningar. Hingað til hef-
ur kommúnistaflokkurinn verið
bannaður I Grikklandi. Sagði
Ambatielos, að ríkisstjórn
Karamanlis væri ekki fulltrúi
meirihluta Grikkja og fasistar
ættu sæti í henni.
Reiður uppfinningamaður
FRANSKIR öryggisverðir við
Elyseehöllina í París komust i
hann krappan í dag, er reiður
uppfinningamaður lagði flutn-
ingabifreið fyrir utan höllina með-
an á ríkisstjórnarfundi stóð og
hótaði að sprengja hana i loft upp
ef innanríkisráðherrann, Andre
Jarrot, tæki ekki til athugunar
uppfinningu, sem maðurinn hélt
fram, að minnkaði til muna meng-
un frá bifreiðum. Sagði maður-
inn, að 500 litrar af bensini væru
á pallinum ásamt sprengiefni.
Eftir hálftíma örvæntingarfullar
viðræður tókst öryggisvörðum að
fá manninn til að aka á brott.
Hann var handtekinn skömmu
síðar og reyndist þá flutningabif-
reiðin tóm.
Borsen
Nr. 143 - 7V. argang - I ussalg 2.IMI
Mandag dvn 29. juli 1974
1572 5«
NORDS0EN
SOM EF-HAV
|l«.UMalri Im4 Sa
Niels Anker Koefoed truer Island: Vi kan g0re
Nords0en til et EF-fiskerihav
Fiskeriminister Niels
Anker Koefoed er parat
til at tage alles krig mod
alle om de internationale
fiskebanker. Hvis is-
lændinaene ensidigt ud-
vider aéres fiskerigrænse
til 200 somil. kan Konse-
kvensen blive, at Nord-
s0en erklæres for EF-fi-
skerihav. siger ministe-
ren til Borsen. Korer de
den hárde linje, tvinges vi
til at gore det samme.
Han ser det dog no-
digt, ikke mindst da
USSR og Polen fisker i
Nordsoen og vi i 0ster-
söen.
Koefoed mener. at
man næppe komjntflf
uden om grænser pá 200
somil. Derfor har han
sendt kuttere til New
Foundland for at sikre,
at danske fiskere. har
nogle rettigheder. hvis
grænser indfores. side 5
Topsoe má
overveje
at udvide
i udlandet
I laldor Topsoc har forgævcs lcdt cftcr lokalcr i to
ar. — Wcn mvndighcdcrnc afviscr <is mcd ligcfrcm
sadistisk gltctíc. I.æs bagsidcn
Myndin er af forsfðu danska blaðsins Börsen sl. mánudag, en þar
birtist viðtal við Niels Anker Kofoed fiskimálaráðherra Dan-
merkur, þar sem hann lýsir þvf yfir, að færi tslendingar fisk-
veiðilögsöguna einhliða út I 200 mflur muni Danir sýna sömu
hörku. Lætur ráðherrann að þvf liggja, að Norðursjór verði
gerður að einkafiskimiðum EBE-landanna, eins og sagt er frá f
frétt f Mbl. á þriðjudag.
A-Þjóðverjar hefta samgöngur til V-Berlínar:
Washingtonvið-
ræður stöðvaðar
Washington, 31. júli — AP.
BANDARtKJASTJÓRN tilkynnti
stjórn Austur-Þýzkalands f dag,
að ekki kæmi til nokkurra mála,
að stjórnmálasamband yrði tekið
upp milli landanna á meðan sam-
göngur frá Vestur-Þýzkalandi til
Vestur-Berlfnar væru truflaðar,
en slfkt gerðist sfðastliðinn
þriðjudag. Viðræður austur-
þýzkra og bandarfskra sendi
nefnda hafa undanfarið farið
fram f Washington um, að stjórn-
málasamband verði tekið upp, en
þeim var hætt á mánudaginn. Var
orsökin stöðug ágengni Austur-
Þjóðverja við fólk á þessari leið.
Hafði austur-þýzka sendinefnd-
in í Washington undir forsæti
Herbert Suss sendiherra kosið að
dvelja áfram í borginni í þeirri
von, að slfkir atburðir endur-
tækju sig ekki. Þegar hins vegar
slíkt gerðist aftur í gær, sendu
Bandarfkjamenn orðsendingu
um, að viðræðurnar væru óraun-
hæfar. Engin viðbrögð höfðu í
dag komið fram frá austur-þýzku
nefndarmönnunum. Það var
vestur-þýzkur embættismaður,
sem I gær var stöðvaður á leiðinni
til Vestur-Berlínar, og honum
snúið aftur.
RABIN AVITAR
ÞJÓÐERNISSINNA
Jerúsalem 31. júlí — AP
YITZHAK Rabin, forsætisráð-
herra Israels, sagði f þinginu í
dag, að Israelar ættu „óumdeilan-
legt tilkall" til hernumdu
svæðanna á vesturbakka
Jórdanár, en varaði um leið öfga-
menn meðal fsraelskra þjóðernis-
sinna við að taka lögin f sfnar
Málið til fulltrúadeild-
arinnar 12. ágúst nk.
hendur og sagði, að stjórnin
bannaði allt landnám Israela þar,
sem ekki hefði fengið tilhlýðan-
legt leyfi stjórnvalda. Með þessu
skfrskotaði Rabin til á*aka. er
áttu sér stað á þessum slóðum á
mánudag.
Yasser Arafat, leiðtogi
Palestfnuskæruliða kom til
Moskvu f gærkvöldi til þess að
leita stuðnings sovézkra stjórn-
valda við sjálfstætt Palestfnurfki.
Hann hafði áður farið f slfka ferð
þessara erinda, en árangurslaust.
Höfðu Arafat og stuðningsmenn
hans bundið vonir við, að honum
yrði að þessu sinni tekið sem
rfkisleiðtoga f Moskvu, en við-
tökurnar á flugvellinum f gær
bentu ekki til, að þær vonir væru
á rökum reistar.
Ríkisréttarundirbúningur í fullum gangi
Washington, 31. júlí, AP.
UNDIRBUNINGUR rfkisréttar-
halda yfir Nixon Bandarfkjafor-
seta er nú f fullum gangi eftir að
dómsmálanefnd Bandarfkjaþings
hefur lokið rannsókn sinni á mál-
inu og lagt fyrir fulltrúadeildina
tillögu f þremur liðum um, að
réttur verði settur yfir forsetan-
um. Nefndin lauk sterfum um kl.
03.00 sl. nótt eftir að hafa sam-
þykkt þriðja liðinn, sem sakar
Nixon um að hafa virt að vettugi
dómskröfur um afhendingu
skjala, sem nefndin taldi sig
þurfa á að halda f sambandi við
rannsóknina.
Skömmu áður en nefndin lauk
störfum felldi hún tvær viðbótar-
tillögur, aðra varðandi skattamál
forsetans og hina varðandi rétt
hans til að fyrirskipa leynilegar
loftárásir á Kambódfu á árunum
1969—’72. 26 greiddu atkvæði
gegn þeim tillögum, en 12 voru
með.
Tillögurnar þrjár, sem dóms-
málanefndin sendi til fulltrúa-
dcildarinnar, eru, að forsetinn
verði sviptur embætti f nafni
bandarfsku þjóðarinnar allrar
vegna misnotkunar embættis
sfns, fyrir að hindra framgang
réttvísinnar f rannsókn Water-
gatemálsins og neita að hlfta
dómskröfum dómsmálanefndar-
innar um afhendingu skjala
vegna rannsóknar hennar.
Sem kunnugt er þarf meirihluti
þeirra 435 þingmanna, sem sitja i
fulltrúadeildinni, að samþykkja
tillögur nefndarinnar áður en
hægt er að setja ríkisrétt yfir for-
setanum í öldungadeildinni, þar
sem % atkvæða þarf til að svipta
forsetann embætti. Fréttaskýr-
endur telja nær öruggt, að mál
forsetans fari fyrir öldungadeild-
ina vegna þess, hve margir dóms-
málanefndarmenn voru fylgjandi
ríkisrétti, eða 27 á móti 11. Nixon
forseti er sagður fullviss um, að
málið hljóti aldrei afgreiðslu í
fulltrúadeildinni og í versta falli,
að hann verði sýknaður ef svo
ólíklega vildi til, að málið færi
fyrir öldungadeildina.
Nú er unnið af fullum krafti við
• •
Ongþveiti í fang-
elsum Frakklands
Peter Rodino formaður dóms-
málanefndarinnar eftir lok at-
kvæðagreiðslunnar.
París, 31. júlí -AP.
ENN berast fréttir af óeirðum
innan franskra fangelsa. 1 morg-
un létust tveir fangar f St. Martin-
De-Re fangelsinu, en um 200
fangar höfðu tekið völdin I sínar
hendur I gærkvöldi og safnazt
saman I fangelsisgarðinum, þar
sem þeir reyndu að kveikja I
fangelsinsu. Gerðu öryggisvarð-
sveitir hersins árás I morgun og
brutu óeirðirnar á bak aftur.
Talsmenn yfirvalda segja, að ann-
ar hinna látnu fanga hafi verið
myrtur af félögum sfnum vegna
þess að hann neitaði að taka þátt (
aðgerðum þeirra. Dánarorsök
hins var ekki látin uppi. Hafa þá
sex fangar beðið bana I óeirðum
innan franskra fangelsa undan-
farnar tvær vikur. Vinnur dóms-
málaráðherrann, Jean Lecanuet,
nú að þvf að endurskoða refsilög-
gjöf Iandsins, en óeirðirnar munu
fyrst og fremst eiga að vera mót-
mæli gegn henni.
Þá hafa fangaverðir farið í
verkföll hópum samar. og aðeins
haldið uppi nauðsynlegustu störf-
um, svo sem matgjöfum. Hafa lög-
reglusveitir tekið við sjálfum
gæzlustörfunum. Lecanuet hefur
í hyggju meiri háttar endurbætur
á hinni úreltu refsi- og réttarfars-
löggjöf Frakklands, en engar
verulegar breytingar hafa verið
gerðar á henni síðan árið 1945.
að ganga endanlega frá skýrslu
dómsmálanefndarinnar og er tal-
ið, aðhúnverði afhentforsetafull
trúadeildarinnar nk. miðvikudag,
Skýrslan er 8000 vélritaðar blaA
siður. Ekki er vitað, hvenær hún
verður birt opinberlega, en það
verður ekki seinna en við upphaf
umræðnanna í fulltrúadeildinni.
Líklegra er þó talið, að efni henn-
ar leki til fjölmiðla frá málglöðum
þingmönnum augnabliki eftir, að
þeir fá hana i hendur, eins og
fréttamaður AP-fréttastofunnar,
Dick Barnes, kemst að orði.
Líklegt er talið, að fulltrúa-
deildin taki tillögurnar til um-
ræðu i kringum 12. ágúst og um-
ræður muni standa í u.þ.b. 100
klukkustundir og verða lokið með
atkvæðagreiðslu 26. ágúst. Eðli-
lega liggur ekki fyrir, hvenær
málið kæmi fyrir öldungadeild-
ina, en þó er þar þegar hafinn
undirbúningur málsmeðferðar ef
til kemur.
Mike Mansfield leiðtogi demó-
krata í öldungadeildinni hefur
samið algerlega nýjar tillögur um,
hvernig ríkisrétti skuli háttað og
er þar gert ráð fyrir, að öllum
umræðum i deildinni verði sjón-
varpað og útvarpað utan síðustu
klst. fyrir atkvæðagreiðslu, þá
verður lokaður fundur.
Yfirburðasigur Smiths í
kosningunum í Rhódesíu
Salisbury, 31. júlí, AP—NTB.
RHÖDESlUFYLKINGIN, flokk-
ur Ian Smiths forsætisráðherra
sigraði með yfirburðum I þing-
kosningunum, sem fram fóru f
landinu um sfðustu helgi. Hlaut
flokkur Smiths öll 50 þingsætin,
sem hvftir menn fá, og 77% af
atkvæðum hvftra manna. Aðeins
250 þúsund hvftir fbúar eru f
landinu, en um 5 milljónir
blökkumanna, scm fá 24 sæti f
þinginu, en aðeins 70 þúsund
hlökkumcnn hafa kosningarétt.
Ian Smith forsætisráðherra
sagði í ræðu, er úrslit voru kunn,
að þau sýndu, að kjósendur í
Rhódesíu væru skynsamt fólk og
kynslóðir komandi ára myndu líta
aftur til ársins 1974 með þakklæti
til þeirra, sem þá tóku rétta
ákvörðun. Þó að úrslitin hafi ekki
komið á óvart var talið hugsan-
legt, að frambjóðendur Rhódesiu-
flokksins, sem er hægfara flokk-
ur, svo og óháðir frambjóðendur
gætu sett strik í reikninginn, en
þeir fengu aðeins 18% atkvæða.
Fréttaskýrendur segja, áð u. slitin
sýni, að hvíti minnihlutinn i
landinu standi einhuga að baki
Smiths og stefnu hans í kynþátta-
málum. 1 kosningabaráttunni,
sem var fremur sviplítil, byggði
flokkur Smiths á hættunni á, að
blökkumenn í landinu næðu yfir-
höndinni og lagðí áherzlu á, að
enginn kjósandi mætti sitja
heima á kjördag. Það var sem
kunnugt er árið 1965 sem Smith
lýsti yfir sjálfstæði Rhódesiu
gagnvart Bretlandi.
'x ii t 1 imiiuvuiiv
L ». I. ». KU.UX I.U.I.»ALUW4U*WJLX*J.MX1