Morgunblaðið - 01.08.1974, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. AGÚST 1974
Ólafur S. Lárusson
— Minningarorð
F. 28. des. 1903
D. 28. júlí 1974.
Mikill víkingur er tíl moldar
hniginn. 70 ára lífsbarátta á enda.
Lífsbarátta, sem háö var við sér-
stæðar aðstæður og að mínu áliti
ef til vill einstæðar.
Foreldrar Ólafs voru hjónin
Lárus Ólafsson Hjálmarssonar frá
Melabergi á Miðnesi og kona hans
Katrín Jónsdóttir Guðmundsson-
ar og konu hans Guðrúnar Ólafs-
dóttur Ólafssonar Skagfjörð.
Bjuggu móðurforeldrar hans í
Keflavik langa tið.
Þegar Ólafur var á öðru ári fór
faðir hans til sjóróðra til Aust-
fjarða. Hann kom ekki aftur.
Hann andaðist þar fyrir austan og
var jarðsettur þar. Þannig voru
póstsamgöngur í þá daga. Þegar
t'aðir hans andaðist var móðir
hans ófrísk. Það barn náði 2ja ára
aldri.
Eftir að móðir hans missti
mann sinn fluttist hún til foreldra
sinna. Ekkja með ung börn átti
erfitt uppd-áttar á þessum árum,
jafnvel þótt aldraðir foreldrar
veittu skjól og aðstoð. Við bættist
mikið heilsuleysi hennar. Enda
fór svo, að berklarnir yfirbuguðu
hana. Hún andaðist 3 dögum áður
en Ólafur var fermdur. Síðan dóu
þau sitt árið hvort afi hans og
amma, þegar hann var 15 og 16
ára. Þá var hann eftir einn af
sínum nánustu, alger einstæðing-
ur.
Ungur var Ólafur látinn fara að
vinna bæði í landi og á sjó. Mér er
sagt, að hann hafi verið frekar
pasturslítill líkamlega sem ungl-
ingur, en innra bjó sá viljastyrk-
ur, sem skóp þá eldsál, er bæði þá
í æsku og síðar á lífsleiðinni átti
erftir að fleyta honum yfir brot-
sjói lífserfiðleikanna.
I Keflavík, þar sem Ólafur er
fæddur og uppalinn og bjó síðan
alla sína lífstíð, lá leiðin til lífs-
bjargarinnar á hans uppvaxtarár-
um aðeins í eina átt — til sjávar-
ins.
Þar biðu tækifærin fyrir dug-
mikla og dáðrakka mannkosta-
menn. Ólafur byrjaði ungur sjó-
sókn, fyrst á árabátum og siðar á
Faðir okkar og stjúpfaðir,
ASGEIR HJARTARSON,
bókavörSur,
Ljósvallagötu 1 2,
lést að heimili sinu 29 júli
RagnheiSur Ásgeirsdóttir, Halldór Asgeirsson.
Snorri Asgeirsson,
Ingimar Jóhannsson.
Eiginmaður minn,
BJARNI SIGUROSSON
trésmiðameistari,
frá Hraunsási, Njálsgötu 98, lést þann 30, júli.
Margrét Skúladóttir.
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
JÓN GUÐNASON,
bifreiðasmiSur,
Hólmgarði 10,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 2. ágúst kl.
1330
Aðalheiður Jónsdóttir, Haraldur Sæmundsson,
Gisli Jónsson, Margrét Guðnadóttir.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
ÁRSÆLL VALDEMAR SVEINBJÖRNSSON
Sólvöllum, Garði,
verður jarðsunginn frá Útskálakirkju, föstudaginn 2. ágúst, kl 2,
Fyrir hönd barna, stjúpbarna, tengdabarna og barnabarna.
Lilja Vilhjálmsdóttir.
t
Útför konu minnar,
HELGU JÓNÍNU STEINDÓRSDÓTTUR,
Eskihlfð 12,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 2, ágúst kl. 1 5.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna
Úlfar Karlsson.
t
Útför sonar okkar,
KRISTJÁNS HAUKSSONAR,
sem lést af slysförum 27. júlí s.l fer fram frá Fríkirkjunni I Reykjavík i
dag kl 1 5.00
Soffia Theódórsdóttir,
Haukur Hjálmarsson,
Áslaug Hauksdóttir,
Anna Hauksdóttir. Haraldur Guðmundsson,
Helgi Hauksson, Hugrún Ólafsdóttir
litlum vélbátum. Hann var ekki
þannig skapi farinn, að hann ætti
auðvelt með að vinna hjá öðrum.
Hann tók skipstjórapróf árið
1930. Hann vildi áfram og upp,
enda hafði hann stofnað heimili
og eignazt fjölskyldu, sem
stækkaði óðum svo sem síðar
verður frá greint. Skipstjóri varð
hann að loknu prófi á m/b Run-
ólfi, 24 lesta, sem var í eigu Elín-
mundar Ólafssonar. En tveim ár-
um síðar, árið 1932, kaupir hann
þennan sama bát ásamt þrem öðr-
um félögum sínum, sem hann
dáði mikið eins og reyndar bæði,
móðurforeldri sín. Ólafur var síð-
an skipstjóri á þessum báti til
1936 og eignaðist hann að öllu
leyti einn árið 1938.
Skipstjórnina stundaði hann af
miklu harðfylgi og varð bæði afla-
sæll og happasæll.
Eftir að hann hætti skipstjórn
stundaði hann umfangsmikla út-
gerð, fiskverkun og frysihúsa-
rekstur allt til ársins 1970. Miklar
sveiflur hafa verið í þessum at-
vinnurekstri á þeim 4 áratugum,
sem Ólafur stundaði hann. Og
hefur verið efitt, en aldrei var
gefizt upp. Stálvilji lyfti honum
yfir erfiðleikana og skapaði hon-
um traust og vinsemd þeirra, sem
við var að skipta. Stóð hann svo
upp frá sinum atvinnurekstri, að
þar var skilið við hreint borð.
Ólafi til mikillar gleði og
ánægju tóku börn hans við at-
vinnurekstri hans og stofnuðu um
hann hlutafélag, sem þau eru öll
hluthafar í og ber nafn föður
þeirra. Er það þeim metnaðarmál
að halda á lofti því merki, er faðir
þeirra bar í 40 ár. Mun minningin
um hann verða þeim sífelld
hvatning til þess að láta það
merki ekki niður falla.
Þótt margt sé andstætt í lífinu
er þó heilsuleysi verst við að
glíma. Þegar Ólafur var 22 ára
gamall fékk hann fyrst brjóst-
himnubólgu. Þessi veikindi háðu
honum eftir það sífellt öll þau ár,
er hann stundaði sjósókn. Hann
harkaði þó af sér veikindin lengi
vel, en árið 1940 var svo komið, að
hann varð að leggjast inn á Vífils-
staðahæli. Frá þessum tíma og
þar til fyrir svo sem tveim árum
hefur Ólafur dvalið langdvölum á
Vífilsstöðum. Vart hefur fallið
svo úr ár, að hann hafi ekki þurft
að dvelja þar einhvern tima. Það
hefur reynt mikið á sálarstyrk
þessa manns og eflaust oft verið
nær því að slíta hann í sundur að
þurfa sífellt að hverfa frá heimili
og starfi og taka upp glímuna við
hvíta dauðann. Auk hjúkrunar og
lyfja hafa honum reynzt í bezt í
þeirri glímu viljastyrkur hans og
lífslöngun, sem hvort tveggja er
hert í óbilandi trú hans á al-
máttugan guð. Falslaus og einlæg
trú hans á guðlega forsjón hefur
verið ein hans sterkasta stoð í
lífsbaráttunni.
Það mun mega telja til undan-
tekninga, að hann ekki sækti
guðsþjónustu á helgum dögum ef
hann mátti því með nokkru móti
við koma. Hann þakkaði algóðum
guði allt það góða, sem honum féll
í skaut. Hann reyndi að sýna
þakklæti sitt með því að hlynna
að þeim, sem áttu bágt og voru í
kringum hann. Ólafur var ekki
mannblendinn að eðlisfari. Hann
eignaðist ekki marga nána vini,
en þeir, sem urðu vinir hans, voru
það ætíð sfðan. Ekki get ég látið
hjá líða að minnast á vinfengi
hans og Elentínusar Júlíussonar,
Túngötu 16, Keflavík. Þeirra vin-
átta hefur staðið frá barnæsku og
ég veit með vissu, að hin síðari ár
hefur varla fallið svo úr dagur, að
þeir ekki hittust. Vil ég í nafni
aðstandenda Ólafs þakka
Elentínusi þá miklu vinsemd og
ástúð, sem hann af miklu örlæti
og þolinmæði sýndi Ólafi f veik-
indum hans hin sfðustu ár.
Einnig vil ég þakka starfsfólki í
Vífilsstaðahælis, sem um áratuga-
skeið hefur veitt honum aðhlynn-
ingu og þá sérstaklega Helga
Ingvarssyni fyrrverandi yfir-
lækni og konu hans, sem til
síðustu stundar veittu honum
styrk og hjálp.
Árið 1925 21. nóvember kvænt-
ist Ólafur eftirlifandi konu sinni
Guðrúnu F. Hannesdóttur. Þeim
varð 12 barna auðið. Af þeim dóu
tvö í æsku, en hin tíu eru upp-
komin og hafa öll skapað sér
heimili. Er það hinn myndar-
legasti hópur, 5 stúlkur og 5
drengir. Það má öllum ljóst vera,
að oft hefur mikill þungi hvílt á
þessari konu með barnahópinn
stóra og sársjúkan eiginmann.
t
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa
ÓLAFS SÓLIMANNS LÁRUSSONAR,
útgerðarmanns.
Vallargötu 6, Keflavík,
fer fram fimmtudaginn 1. ágúst 1974 frá Keflavíkurkirkju kl 3
síðdegis.
Þeir sem vildu minnast hans láti líknarstofnanir njóta þess.
Guðrún Hannesdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og virðingu sýnda minningu
LOFTS BJARNASONAR,
útgerðarmanns
Solveig Sveinbjarnardóttir Kristján Loftsson
Birna Loftsdóttir Gísli Torfason
Solveig Birna Gísladóttir Loftur Bjarni Gislason
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför, eiginmanns.
föður, tengdaföður, afa, bróðurog mágs
SIGURÐAR H. MATTHÍASSONAR
vélstjóra.
Sérstakar þakkir færum við járnsmiðafélaginu.
Margrét Ingunn Jónsdóttir, Steinvör Sigurðardóttir,
Elías Árnason, Sigriður Elíasdóttir,
Hrefna Matthiasdóttir. Ingvar Kjartansson.
Aldrei hefur henni verk úr hendi
fallið og óþreytandi hefur hún
verið að hlú að bónda og börn-
um. Umhyggjusemi hennar fyrir
heilsu og vellíðan hans og barn-
anna hefur verið takmarkalaus.
Hálft hans lán er því hennar verk.
Börn þeirra hjóna og makar eru
þessi: Guðrún K.J. gift Ásgeiri
Einarssyni skrifstofustjóra, Arn-
björn Hans, dó á þriðja ári, Jane
Maríe, gift Guðmundi Ólafssyni
verkstjóra, Arnbjörn Hans skip-
stjóri, kvæntur Jónu Ólafsdóttur,
Lára Hulda, dó á öðru ári, Guðjón
Gunnar framkv.stj., kvæntur
Marín Marelsdóttur, Lárus Hörð-
ur vélstjóri, kvæntur Aðalheiði
Árnadóttur, Ólafur Hafsteinn
verkstjóri kvæntur Svölu Gríms-
dóttur, Bára Erna gift Karli
Gunnlaugssyni sjómanni, Sigrfð-
ur Karólína, gift Guðmundi
Ingólfssyni verkamanni, Særún,
býr í Bandaríkjunum, Reynir við-
skiptafr., kvæntur Önnu Lilju
Gestsdóttur. AUs eru barnabörnin
41 og barnabarnabörn 15.
Afkemendur Ólafs eru nú í dag
66. Er þá orðin breyting á frá því,
að Ólafur 16 ára gamall stóð uppi
allslaus sem einstæðingur án ná-
kominna ættingja.
Ég vil að leiðarlokum þakka
Ólafi tengdaföður mínum fyrir
allt það, sem hann hefur fyrir mig
og mína fjölskyldu gert. Sérstak-
lega vil ég þakka honum þá um-
hyggjusemi, sem hann sýndi Ásu
dóttur minni í veikindum hennar
fyrir nokkrum árum. Ég vil þakka
fyrir 30 ára viðkynningu, sem hef-
ur kennt mér að góður maður er
gulli betri.
„Far þú í friði, friður guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og
allt.“
Ásgeir Einarsson.
Að morgni 28. júlí lézt Ólafur í
sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishér-
aðs eftir stutta, en stranga sjúk-
dómslegu þar. Ólafur var fæddur
í Keflavík 28. desember 1903, son-
ur hjónanna Lárusar Ólafssonar
frá Melabergi á Miðnesi og
Katrínar Jónsdóttur í Hábæ
(Jónsbæ) í Keflavík. Faðir hans
lézt, þegar Ólafur var í frum-
bernsku, á f jórða eða fjögurra ára
gamall. Hann ólst upp hjá móður-
afa og ömmu, þeim Guðrúnu
Ólafsdóttur og Jóni Guðmunds-
syni, er lengi bjuggu í Hábæ
(Jónsbæ) í Keflavík. Snemma
vandist Ólafur allri vinnu, bæði
til sjós og lands, eftir því ertil féll
í sjávarbyggðalagi á uppvaxtar-
árum hans.
A árunum 1930 til ’40 réðst
hann í útgerð á mótorbáti, er þrír
félagar hans gerðu út í fyrstu,
m.b. Jón Guðmundsson, sem þró-
aðist upp í það, að hann eignaðist
bátinn einn, en það var upphafið
að um 40 ára langri útgerðar- og
framleiðslusögu hans. Nú þegar
hann fellur frá er starfandi þrótt-
mikið framleiðslufyrirtæki, er
ber nafn Ólafs og fjölskylda hans
rekur. Mjög myndarlegt sjávar-
framleiðslu fyrirtæki, sem bæði
hefur útgerð á vélbátum og að
hluta skuttogara, auk reksturs
hraðfrystihúss.
Ólafur kvæntist hinn 21.
nóvember 1925 eftirlifandi konu
sinni Guðrúnu Hannesdóttur
Einarssonar úr Keflavík, öll
þeirra búskaparár bjuggu þau í
Keflavfk. Þau eignuðust 12 börn,
tvö þeirra dóu ung, en 10 komust
upp öll hin mannvænlegustu og
dugnaðarfólk, sem sómir sér vel í
þeim störfum, er þau hafa tekið
að sér.
Óli Sólimann, eins og kunningj-
ar hans og vinir kölluðu hann, var
léttur á fæti og léttur í lund. Það
voru eiginleikar, sem komu sér
vel fyrir hann í lífinu, því að
mikinn hluta ævinnar var hann
t
Þökkum innilega auðsýnda sam-
úð við andlát og jarðarför
KRISTJÁNS
finnbogasonar'
verkstjóra,
Reynivöllum 6, Selfossi.
Sigrfður Kristjánsdóttir,
Pétur Kristjánsson,
Ragnheiður Kristjánsdóttir.