Morgunblaðið - 01.08.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.08.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. AGUST 1974 Getraunaseðlar hækka um 100% „VEGNA verðbólgunnar hefur verð getraunaseðlanna verið hækkað úr 25 krónum í 50 kr. pr. röð. Eftir sem áður fara 50% í vinninga og 25% i sölulaun. Af hverri seldri röð fær sölufélagið kr. 12.50 í sinn hlut." Þannig hljóðar tilkynning, sem stjórn lslenzkra Getrauna hefur sent út, en starfsemi þeirra hefst Kr. 100,00 •© The Eooibali Le.iyue 1 IX 2 Leiklr 17. ágúst 1974 2 1 X 2 Birm-nah im - Miodiesbro -P~ + Buinlpy - Woives . r!. Cheisea - Carlisle : i ~! Everton - Derby Leicester - Arsenul luton - Liverpool M•Ii’ch. City - West Ham , Newcr.Ptie Coventry Sheffiold UtrJ - Q p.R. : Stoke - Leeds Torirnh-m . tp«vvirh nú brátt eftir sumarhléið. Fyrsti seðillinn gildir fyrir 17. ágúst, en þá fer fram 1. umferðin í ensku knattspyrnunni. Sú ákvörðun Getrauna að hækka verðið á seðlunum um helming er ugglaust mjög umdeil- anleg. Að margra mati var verðið á seðlunum nógu hátt fyrir, og t.d. hærra en tiðast á Norðurlöndum. Má búast við, að töluvert dragi úr sölu getraunaseðla a.m.k. til að byrja með og minna verði um, að menn kaupi mikinn fjölda miða. Eftir þessa hækkun kostar tv<’ggja raða seðill kr. 100,00 og átta raða seðill kr. 400.00. Ætli menn sér að kaupa 32 raðir, eins og margir hafa gert, kostar það hvorki meira né minna en kr. 1600.00. Þótt verðbólgan sé mikil og kostnaður við rekstur starf- semi eins og Getrauna fari vax- andi, er ekki óliklegt, að svo stórt stökk í hækkun getraunaseðla sé fullmikið af því góða. — Stjl. Framarar verða illa settir ef þeir tapa kærunni sem Valsmenn hafa lagt fram á þá. Attu fæstir von á þvf að þeir yrðu f fallhættu f sumar. Myndin er úr leik Fram og IBK f sumar. DEILDAKEPPNINNILÝKUR1. SEPT. AÐEINS þrjár umferðir eru nú eftir f 1. og 2. deildar keppninni f knattspyrnu. 1 1. deildinni er staðan nú sú, að tvö lið eiga mögu- leika á sigri: Akurnesingar og Keflvfkingar. Geta Akurnesingar mest hlotið 23 stig, en Keflvfking- ar 21 stig. Öll hin Iiðin sex eru f failhættu enn þá, Vfkingur þó f mestri, en liðið hefur aðeins hlot- ið 8 stig úr leikjum sfnum. Tvö kærumál eru f gangi f dcildinni: Valur og Víkingur hafa kært Fram fyrir að nota Elmar Geirs- son f leikjum sfnum, en Elmar hefur leikið með Berlfnarliðinu Herthu á þessu keppnistfmabili. Verður kærumál þetta tekið fyrir til afgreiðslu í dag. Falli dómur í þvf máli Fram f óhag, hafa Fram- arar aðeins hlotið 5 stig f dcild- inni, og má segja, að þar með séu Ifkurnar til þess að þeir falli yfir- gnæfandi. Það lið, sem flest mörk hefur skorað i mótinu til þessa, eru Keflvíkingar. 18 sinnum hafa þeir sent knöttinn í netið hjá andstæð- ingum sínum. Akurnesingar hafa skorað 17 sinnum, Vestmannaey- ingar 14 sinnum, Valur 14 sinn- um, KR 13 sinnum, Fram 13 sinn um, Akureyri hefur skorað 12 mörk og Víkingar 10. Það lið, sem fæst mörk hefur fengið á sig í mótinu til þessa, er lið Akraness, en hjá þeim hafa aðeins 6 mörk verið skoruð, en Akureyringar hafa fengið flest mörk á sig, 23 talsins. 1 2. deildar keppninni standa FH-ingar mjög vel að vígi, og má raunar segja, að þeir séu komnir að þröskuldi 1. deildar. Liðið er með 19 stig eftir 11 leiki, þremur meira en Breiðablik, sem er í öðru sæti. I 2. deildar keppninni eru einnig kærumál í gangi, sem kunna að breyta röð liðanna. Vinni t.d. Þróttur kæru sína á hendur Breiðabliksmönnum, hafa Þróttararnir 17 stig og eru í öðru sæti, en Breiðablik missir þá tvö stig og hefur 14. Mun meira af mörkum hefur verið skorað í 2. deild en 1. deild. Breiðabliksmenn hafa hingað til gert flest mörkin, 31 talsins, en tsfirðingar hafa fengið flest mörk á sig eða 32. Munar miklu hjá báðum þessum liðum, að UBK vann leikinn við ísafjörð í Kópa- vogi 9:0, og er það jafnframt hæsta markataia í leik í deildun- um tveimur í sumar. 1 2. deild er markahlutfall FH-inga hins vegar bezt, eða 26:3. Síðustu leikir 1. og 2. deildar keppninnar eiga að fara fram sunnudaginn 1. september, og lýkur því mótinu fyrr í ár en venjulega. Allt skipulag keppn- innar hefur verið með bezta móti í sumar, og nær engar breytingar á þeirri niðurröðun, sem tilkynnt var í byrjun keppnistímabils. Hafa alltaf heilar umferðir verið leiknar vikulega og línurnar því oftast hreinar um stöðu liðanna. Þeir leikir, sem eftir eru í 1. og 2. deildar keppninni, eru eftir- taldir: 1. DEILD: 8/8 Vlkingur — IBK 10/8 KR — IBV 10/8 IBA — Valur 10/8 IA — Fram 23/8 Fram — KR 24/8 lA — Víkingur 24/8 ÍBV — ÍBA 25/8 Valur — IBK 31/8 KR — ÍA 31/8 IBA — Fram VIKINGAR DR0GUILAND EN ÆTLA AÐ RÍÐA ÁTEKTA — Jú það er rétt. Við útbjugg- um kæru, en að athuguðu máli ákváðum við að senda hana ekki inn að svo komnu máli, sagði Jón Aðalsteinn Jónsson formaður Knattspyrnufélagsins Víkings, er við ræddum við hann í gær. Frá því var skýrt í Morgunblað- inu í gær, að Víkingar hefðu sent inn kæru sina á föstudaginn, vegna þess að þeir telja, að Elmar Geirsson hafi verið ólöglegur með Fram f leik liðsins gegn Víkingi á dögunum. Þessar upplýsingar fékk Morgunblaðið í fyrradag hjá formanni knattspyrnudeildar Víkings, en síðar sama dag ákváðu Víkingarnir að draga kæru sína til baka. — Þó svo að víð sendum kæru okkar ekki inn að sinni, er ekki þar með sagt, að við munum ekki kæra, sagði Jón Aðalsteinn í gær. — Við bíðum átekta og vinni Valsmenn sina kæru, munum við íylgja á eftir. Ef Elmar verður dæmdur ólöglegur í leiknum gegn Val, liggur á borðinu að hann hefur einnig verið það í leiknum gegn okkur, sagði Jón að lokum. Atta lið taka þátt f Islands- meistaramótinu f handknattleik utanhúss, en mótið verður að þessu sinni haldið við Austurbæj- arbarnaskólann og er það Hand- knattlciksdeild Armanns, sem um það sér. Hefur verið dregið f riðla og leika saman í A-riðli: Valur, Haukar, Vfkingur og KR og í B-riðli leika FH, Fram, ÍR og Grótta. Fyrsta leikkvöld mótsins verð- Ekki tókst að ná saman í gær þeim mönnum, sem sæti eiga í dómstól KRR, en mál Vals gegn Fram verður væntanlega dómtek- ið í dag. ur miðvikudaginn 7. ágúst, og leika þá Víkingur — KR, Valur og Haukar. Fimmtudaginn 8. ágúst leika FH — Grótta og Fram — IR, föstudaginn 9. ágúst leika KR — Valur, Víkingur — Haukar, mánudaginn 12. ágúst leika Grótta — Fram og FH — ÍR, þriðjudaginn 13. ágúst leika Haukar — KR og Víkingur — Valur og miðvikudaginn 14. ágúst leika Grótta — ÍR og Fram — FH. Átta lið í útimótinu 31/8 ÍBK — ÍBV 1/9 Vfkingur — Valur 2. DEILD: 9/8 FH — Selfoss 10/8 Armann — IBÍ 10/8 Völsungur — Þróttur 12/8 Haukar — Breiðablik 22/8 Þróttur — FH 23/8 Breiðablik — Ármann 23/8 Selfcss — Haukar 24/8 ÍBl — Völsungur 31/8 Völsungur — Breiðablik 31/8 FH — IBI 31/8 Selfoss — Þróttur 1/9 Ármann — Haukar. Neyzla hormóna- lyfja könnuð á EM Iþróttafólk það, sem tekur þátt f Evrópumeistaramótinu í frjáls- um fþróttum f Róm, mun eiga von á þvf að verða tekið f rannsókn, þar sem kannað verður, hvort það hefur notað hormónalyf, auk þess sem náið verður fylgzt með þvf, hvort það hefur notað örvandi lyf fyrir keppnina. Þetta er í fyrsta sinn, sem rannsókn fer fram á þvf, hvort fþróttafólk notar hormónalyf, en slfk lyfjaneyzla er reyndar ekki bönnuð enn sem komið er. Það er Bretinn Roger Bannister, sem stendur fyrir þessari rannsókn, en hann, ásamt nokkrum brezkum íþróttalækn- um, hafa sagt lyfjaneyzlu íþrótta- manna stríð á hendur og telja sig haf fundið sérstaka aðferð, sem skeri úr um, hvort hormónalyf hafa verið notuð. Vilja læknarnir banna slíka lyfjaneyzlu, þar sem þeir segja, að enn hafi ekki fengizt úr því skorið, hvort hún sé hættuleg eða ekki. Neyzla hormónalyfja hefur lengi veriðrædd.enmálið komst þó fyrst verulega á dagskrá, þegar sænski glímumaðurinn Pelle Svensson skrifaði bók fyrir nokkrum árum, þar sem hann lýsti gengdarlausri notkun íþróttamanna á lyfjum þessum og þeim afleiðingum, sem lyfja- notkunin hefði. Sænski kringlu- kastarinn Ricky Bruch hefur einnig óspart fjallað um reynslu sína af lyfjum þessum. Rannsóknaraðferðir Bannisters voru fyrst notaðar á samveldis- leikunum í Nýja-Sjálandi s.l. vetur, og leiddu þær í ljós, að velflestir þátttakenda í því móti höfðu notað slík lyf meira og minna, og sumir reyndar ótrúlega mikið. Ricky Bruch — einn þeirra sem notað hefur ótrúlegt magn hormónalyfja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.