Morgunblaðið - 01.08.1974, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. AGUST 1974
31
| íl'HllmffiíITIII IVIORCUNBIAÐSIHIS
Gadocha til
Bayern Miinchen
Þáttaskil er Ramsey hætti
FLESTIR þeir, sem fylgdust með
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu, voru sammála um, að
bezti miðsvæðisleikmaður keppn-
innar hefði verið Pólverjinn
Robert Gadocha. Nú hefur þessi
28 ára knattspyrnusnillingur
fengið leyfi hjá pólskum knatt-
spyrnuyfirvöldum til að gerast at-
vinnumaður I knattspyrnu I Vest-
ur-Þýzkalandi, þar sem hann mun
leika fyrir hið fræga lið Bayern
MUnchen. Hefur þegar verið sam-
ið um þá fjárhæð, sem Þjóðverj-
arnir greiða fyrir Pólverjann, en
hins vegar ekki gengið frá samn-
ingum. Ætlaði formaður Bayern
Miinchen að fara til Póllands um
síðustu helgi, en var þá vísað frá,
vegna þess að vegabréf hans var
ekki í lagi.
Fyrir lá, að Gadocha hafi mik-
inn áhuga á að gerast atvinnu-
maður I Þýzkalandi, og sýndu
mörg lið honum áhuga. Eftir að
Beyern MUnchen keypti Klaus
Wunder frá Duisburg, var gerður
um það óformlegur samningur, að
MUnchen liðið myndi ekki keppa
við Duisburg um Pólverjann, og
voru samningar milli Gadocha og
Duisburg langt komnir, er Bayern
MUnchen kom aftur til sögunnar
og bauð svo háa upphæð, að Duis-
burg hafði enga möguleika til
samkeppni.
Reglur í vestur-þýzku knatt-
spyrnunni mæla svo fyrir, að lið
þar megi aðeins nota tvo útlend-
inga í liði sínu. Fyrir hjá Bayern
MUnchen eru hins vegar nokkrir
mjög góðir erlendir leikmenn og
má þar nefna Danina Johnny
Sænska
knatt-
spyrnan
MALMÖ FF hefur nú forystu i
sænsku 1. deildar keppninni og er
með 16 stig eftir 11 umferðir og er
markatala liðsins 15—6. AIK hef-
ur einnig 16 stig, en markatalan
er 15—8. Landskrona er í þriðja
sæti með 14 stig, en siðan koma
Atvidaberg með 13 stig, Öster
með 13 stig, Gais með 13 stig,
Halmstad með 12 stig, Eflsborg
með 10 stig, Hammarby með 10
stig, Djurgaarden með 9 stig,
Norrköping með 9 stig, örebro
með 7 stig, og neðst í deildinni
eru Sirius og Brynás með 6 stig.
Efstu liðin í 2. deildar keppninni
eru GIF Sundsvall, Saab, IFK
Malmö og örgryte.
Heimsmet
BANDARÍKJAMAÐURINN Rick
Wohlhuter setti nýtt heimsmet í
1000 metra hlaupi á frjálsíþrótta-
móti sem fram fór í Osló í fyrra-
kvöld. Hljóp hann vegalengdina á
2:13,9 mín. en eldra metið sem
Daniel Malan frá Suður-Afríku
hafði sett árið 1973 og var 2:16,1
mín.
Eftir hlaupið sagði Wohluter
við blaðamenn, að hann hefði
ekki hlaupið 1000 metra hlaup
síðan 1972 og þá hefði hann náð
tímanum 2:19,4 mín. — Ég á að
geta bætt þennan árangur hve-
nær sem er, sagði Wohluter, — en
óvíst er þó að tækifæri gefist á
næstunni, það er svo sjaldan
keppt í þessu hlaupi.
Hansen og Viggo Jensen, og Sví-
ann Conny Torstensson. Aðeins
einn þessara leikmanna, Johnny
Hansen, er talinn öruggur um
framtíð sfna hjá Bayern MUnch-
en, en líklegt þykir, að Jensen og
Thorstensson verði settir á sölu-
lista innan tíðar.
SIR Alf Ramsey var hylltur af
500 gestum við hátfðarkvöld-
verð í London á þriðjudaginn.
Þá voru liðin nákvæmlega átta
ár, sfðan enska landsliðið vann
heimsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu undir stjórn Ramseys.
Meðal gesta var 101 leikmaður,
sem lék með enska landsliðinu
undir stjórn Ramseys.
1 veizlunni afhenti Harold
Wilson, forsætisráðherra Bret-
lands, Ramsey eftirlikingu af
Jules Rimet styttunni, sigur-
laununum f heimsmeistara-
keppninni,. er Englendingar
unnu 1966. Eftirlíkingin er
metin á tæpar tvær milljónir
islenzkra króna. — Það mark-
aði þáttaskil f enskri knatt-
spyrnusögu, þegar Sir Alf
Ramsey hætti sem landsein-
valdur f Englandi, sagði forsæt-
isráðherrann.
1 þakkarávarpi sínu sagði Sir
Alf meðal annars, að þetta
kvöld yrði honum örugglega
eins minnisstætt og dagurinn,
þegar Englendingar urðu
heimsmeistarar. — Ég hef þá
trú, sagði Ramsey, að Englend-
ingar muni draga fána enskrar
knattspyrnu að húni á nýjan
leik fyrir heimsmeistarakeppn-
ina f knattspyrnu f Argentínu
árið 1978.