Morgunblaðið - 24.08.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. AGUST 1974
ÞEIR, sem voru á ferli f
Austurstræti laust eftir hádegi
f gær, urðu þeirrar óvæntu
ánægju aðnjótandi að sjá og
heyra tónskáldið góðkunna Sig-
fús Halldórsson syngja og spila
nokkur af sfnum ágætu lögum.
í fyrstu vissu menn ekki,
hvaðan á þá stóð veðrið, en
skýringin er sú, að sjónvarpið
vinnur nú að gerð kvikmyndar
um Austurstræti og upptroðsla
Sigfúsar þarna undir berum
himni er einmitt liður f þeirri
mynd.
Varp misfórst í
11 arnarhreiðrum
BLAÐINU hefur borizt fréttatil-
kynning frá Fuglaverndarfélag-
inu:
Arnarungar komust upp úr
þremur hreiðrum 1974. Tveir
ungar úr einu, einn f einu, en
óvfst um fjölda unga f þriðja
hreiðrinu.
Ellefu önnur arnarhjón gerðu
tilraun til varps. Egg sáust
snemma vors f sjöhreiðrumen við
könnun sfðar höfðu eggin horfið.
1 tveimur hreiðrum voru kaldegg,
samt frjóvguð. Við 4 hreiður hef-
ur ekki sézt til fullorðnu fugl-
anna frá þvf snemma vors.
Einn örn, fullorðinn hefur
fundizt dauður. Heildartála arna
á landinu mun vera milli 70 og 80
fuglar, en ekki hafa borizt fréttir
frá 4 stöðum þar sem ernir sáust f
fyrra, og óvfst um örlög 3ja para,
sem verptu f vor.
Að áeggjan Æðarræktarfélags-
ins leyfði Menntamálaráðuneytið
útburð eiturs 1973 (svefnlyfs) ÖIl
arnarhreiður, sem misfórust,
voru á hlunnindasvæði.
Ef ekki verður bannað að eitra
er álit okkar, að arnarstofninum
verði útrýmt, enda var honum
nær útrýmt við eiturherferð Æða-
ræktarfélagsins (Vargafélgsins)
um og eftir 1880.
Tækniaðstoð við
skipasmíðaiðnað
Hinn 30.7. 1974 undirrituðu
Bent Koch yfirverkfræðingur
fyrir hönd „Svejsecentralen“ í
Kaupmannahöfn og Sveinn
Björnsson forstjóri Iðnþróunar-
stofnunar Islands samning um
tækiaðstoð fyrir skipasmíðastöðv-
ar. Samningur þessi er kominn á
fyrir frumkvæði Félags dráttar-
brauta og skipasmiðja. Markmið
þessa samnings er að bæta fram-
leiðslutækni þátttakandi skipa-
smíðastöðva og um leið byggja
upp ráðgjafaþjónustu hér á landi.
Skipasmfðastöðvarnar Stálvík hf,
Slippstöðin hf og Þorgeir & Ellert
munu taka þátt í þessari fram-
kvæmd.
Aðstoð þessi beinist aðallega að
KR og FRAM
gerðu jafiitefli
í GÆRKVÖLDI fór fram á
Laugardalsvellinum einn
leikur í 1. deildar keppni
íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Fram og KR gerðu
jafntefli, 1:1. Staðan í hálf-
leik var 1:0 fyrir Fram.
Mark Fram gerði Ásgeir
Elíasson, en Atli Þór Héð-
insson jafnaði fyrir KR úr
vítaspyrnu.
Leikurinn var mjög
harður og grófur og var
tveimur leikmönnum vísað
af leikvelli í fyrri hálfleik
fyrir slagsmál, þeim Ólafi
Ólafssyni, KR, og Sigur-
bergi Sigsteinssyni, Fram.
Með þessu jafnteflu hef-
ur KR bjargað sér úr fall-
hættu í 1. deildar keppn-
inni.
sjálfum skrokknum, allt frá nýju
vinnuteikningakerfi til endur-
bættra vinnuaðferða. Verkþættir
þeir, sem tækniaðstoðin nær yfir,
eru:
Uttekt og gerð samninga við
einstakar skipasmfðastöðvar.
Verkhönnun.
Hlutaskipting og ósamsettir
hlutir.
Teikningakerfi aðlagað fram-
leiðslu.
Upplýsingaflæði milli hönnun-
ar og smíði.
Smíðahættir og gæði.
Verkþjálfun starfsmanna.
Námskeið.
Svejsecentralen hefur mikla
reynslu á þessu sviði og hefur
m.a. tekið að sér áþekk verkefni f
Júgóslvavíu, Færeyjum og Dan-
mörku. Eins og fyrr getur er
ætlunin að byggja samhliða upp
ráðgjafaþjónustu hér á landi og
er því ætlunin að ráða 2—3 menn,
sem munu fylgja hinum dönsku
sérfræðingum eftir í starfi og eiga
auk þess kost á að kynna sér er-
lendis þá starfshætti, sem
Svejsecentralen hefur komið þar
á. Nánu samstarfi hefur verið
komið á milli Iðnþróunarstofnun-
ar Islands, Rannsóknastofnunar
iðnaðarins og Siglingamálastofn-
unar rfkisins um þetta verkefni.
Er ætlunin, að Siglingamála-
stofnun ríkisins ráði einn mann.
Hans svið á fyrst og fremst að
liggja í hönnun og vinnuteikning-
um. Ennfremur er ætlunin, að
Rannsóknastofnun iðnaðarinsráði
mann, en hans svið á að liggja
meira í framleiðslutækni. Störf
þessi munu brátt auglýst og er
víst, að hér er um mjög sérstætt
tækifæri að ræða fyrir menn, sem
áhuga hafa á þessum málum. Iðn-
þróunarstofnun Islands mun hins
vegar sjá um stjórnun þessa verk-
efnis. Iðnþróunarnefnd hefur
einnig beitt sér fyrir framgangi
þessa máls. Kostnaði vegna þessa
verkefnis verður skipt niður á
skipasmíðastöðvarnar, iðnaðar-
ráðuneytið og Iðnþróunarsjóð.
Lágmarks-
verð á síld
VERÐLAGSRAÐ sjávarútvegsins
hefur ákveðið eftirfarandi lág-
marksverð á sfld veiddri f reknet
til söltunar frá byrjun rekneta-
veiða til 31. desember 1974.
A) Stór sfld (32 sm og stærri)
hvert kg kr. 30,00.
B) Smærri sfld (undir 32 sm)
hvert kg kr. 25,00.
Stærðarflokkun framkvæmist
af Fiskmati ríkisins.
Verðið er miðað við sfldina upp
til hópa komna á flutningstæki
við hlið veiðiskips.
Verðið er uppsegjanlegt hve-
nær sem er eftir ágústlok og skal
þá nýtt verð taka gildi 7 dögum
eftir uppsögn.
25 þús. gestir á
Kjarvalsstöðum
25 ÞUSUND gestir eldri en 12 ára
hafa nú séð sýninguna Islenzk
myndlist f 1100 ár á Kjarvalsstöð-
um auk fjölmargra barna undir
12 ára aldri. Sýningunni lýkur 25.
ágúst, en hún er opin um helgina
frá kl. 2—22.
Sungið
og spilað
1 Austurstræti
Anthony Miles
heimsmeistari
Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri tók á móti
Irsku börnunum í Höfða í gær. Hér sést hann heilsa
einni stúlkunni.
Manila, Filipseyjum,
23. ágúst.AP.
BRETINN Anthony John
Miles tryggði sér heims-
meistaratitilinn í skák í
HLIF HVETUR
TIL AÐGERÐA
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Hlff:
„Fundur haldinn f stjórn verka-
mannafélagsins Hlffar fimmtu-
daginn 22. ágúst 1974 mótmælir
harðlega þeirri hækkun á verð-
lagsgrundvelli landbúnaðarvara,
sem nú er að koma til fram-
kvæmda, án þess að verðlagsupp-
bætur komi á laun svo sem vera
ber eða að niðurgreiðslur komi
til. Þá hvetur fundurinn öll
verkalýðsfélög landsins að búa
sig nú þegar undir viðeigandi að-
Eddukórinn í Álaborg
EDDUKÖRINN er um þessar
mundir í Álaborg við upptöku á
hljómskífu, þar sem kórinn
syngur íslenzk þjóðlög. Menn-
ingarsjóður mun gefa hljómskíf-
una út í haust. Á plötunni verða
ýmis þekkt og lítt þekkt þjóðlög í
raddsetningum ýmissa tónlistar-
manna.
gerðir til þess að mæta þeim
kjaraskerðingum, sem nú þegar
eru orðnar og verða munu miklu
meiri, þegar boðaðar aðgerðir
stjórnvalda koma til fram-
kvæmda á næstunni.**
unglingaflokki í dag, er
hann gerði jafntefli í síð-
ustu skákinni við Roy
Dieks frá Hollandi. Miles
fékk 7 vinninga af 9
mögulegum, en næstir og
jafnir urðu Dieks frá Hol-
landi, Marjanovic frá
Júgóslavíu og Schneider
frá Svíþjóð. Miles, sem er
19 ára gamall, varð annar í
heimsmeistarakeppninni í
fyrra, sem fram fór í Bret-
landi.
Kappreiðar Harðar
Hinar árlegu kappreiðar Hesta-
mannafélagins Harðar f Kjósar
sýslu fóru fram á skeiðvelli
félagsins við Arnarhamar laugar-
daginn 17. ágúst sl. f fögru veðri.
Skráð voru til keppni 56 hross.
Helztu úrslit voru þessi:
Gæðingakeppni A. Keppt um
Skæringsbikar og verðlaunapen-
inga.
1. Hrímnir Einars Ellertssonar
hlaut 7,76 stig.
2. Neisti Jóns Vigfússonar 7,70
stig.
3. Fatfma Unnar Andrésdóttur
7,63 stig.
Gæðingakeppni B. Keppt um
Leósbikar og verðlaunapeninga.
1. Neisti Sveins Guðmundssonar
8,07 stig.
2. Prins Hilmars Garðarssonar
7,93 stig.
3 Skjóni Jóns Vigfússonar 7,70
stig.
Unghrossakeppni. Keppt um
farandgrip, útskorna bók og verð-
launapeninga.
1. Geisli Sigurlínu Gfsladóttur.
2. Freyja Guðmundar Sigurðsson-
ar.
3. Strákur Páls Kristjánssonar.
1 hlaupum var eingöngu keppt
um ágrafna verðlaunapeninga.
Urslit urðu þessi:
250 m skeið.
1. Vafi Erlings Sigurðssonar hljóp
á 24,7 sek.
2. Ljúfur Harðar G. Albertssonar
24,9 sek.
3 Ljúfur Benedikts Kristjáns-
sonar 28,6 sek.
250 m folahlaup.
1. Þór Harðar G. Albertssonar
hljóp á 19,7 sek.
2. Hlenni Guðrúnar H. Guð-
mundsdóttur 19,7 sek.
3. Váli Harðar G. Albertssonar
20.4 sek.
300 m stökk.
1. Loka Þórdísar H. Albertsdóttur
22,8 sek.
2. Goði Höskulds Svafarssonar
23,0 sek.
3. Muggur Sigurbjörns
Báraðarsonar 23,2 sek.
400 m stökk.
1. Öðinn Harðar G. Albertssonar
29.4 sek.
2. Botna-Brúnn Harðar og Sigur-
björns 30,7 sek.
Framhald á bls. 23.
Biskup vísiterar
Rangárvelh
Biskup íslands, dr. Sigurbjörn
Einarsson, vfsiterar söfnuði
Holtsprestakalls f Rangárvalla-
prófastsdæmi nú um helgina.
Guðsþjónustur verða sem hér
segir:
Eyvindarhólakirkja laugardag
24. ágúst kl. 21. Asólfsskálakirkja
sunnudag 25. ágúst kl. 11. f.h.
Stóradalskirkja sama dag kl. 15.
Unnið að fram-
kvæmd grunnskóla-
frumvarpsins
SlÐAN grunnskólalögin voru
staðfest 21. maí sl. hefur verið
unnið að samningu reglugerðar
og erindisbréfa, sem setja á sam-
kvæmt lögum. fjallar starfið um
fjölmörg atriði í sambandi við
framkvæmd laganna.