Morgunblaðið - 24.08.1974, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. AGUST 1974
Haag-úrskurðurinn skað-
aði álit dómstólsins
Caracas, 21. ágúst,
frá Margréti R. Bjarnason.
JENS Evensen viðskipta- og
siglingamálaráðherra Noregs,
sem er formaður norsku sendi-
nefndarinnar á hafréttarráð-
stefnunni hér í Caracas, lét svo
um mælt við íslenzku frétta-
mennina f dag, að tsland væri í
hópi þeirra ríkjaáhafréttarráð-
stefnunni, sem hefðu miklu
meiri áhrif á gang máláen svar-
aði til stærðar þeirra eða póli-
tískra áhrifa í heiminum. Þann-
ig væri um ýmis riki, sérstak-
lega vegna ágætis þeirra
manna, sem stjórnuðu sendi-
nefndumþeirra.Sagði Evensen,
að íslenzka sendinefndin hefði
unnið aðdáanlegt starf á ráð-
stefnunni og við undirbúning
hennar og taldi Hans G. Ander-
sen meðal allra áhrifamestu
manna hér. Hafði Evensen eftir
einum af helztu forystumönn-
um Asíuríkjanna, að maður
eins og Andersen hefði „sett
nafn Islands á kortið hér á ráð-
stefnunni", eins og hann komst
að orði.
Aðspurður, hvort Norðmenn
myndu færa út fiskveiðilögsögu
sfna á næstunni, sagðist Even-
sen ekki geta um það sagt að
svo stöddu. Þetta væri pólitískt
og efnahagslegt vandamál, sem
taka yrði til gaumgæfilegrar yf-
irvegunar Ljóst væri, að eitthað
þyrftu Norðmenn að gera, þetta
væri fiskiðnaðinum mikið hags-
munamál — og þegar önnur
ríki færðu út sína lögsögu, eins
og til dæmis ísland, ykist á-
gangur á fiskimiðin við Noregs-
strendur. A hinn bóginn væri
þeim illa við að gera nokkuð,
sem spillt gæti fyrir árangri
af hafréttarráðstefnunni. Svo
lægi nú fyrir úrskurður Haag-
dómstólsins i málum Breta og
Þjóðverja gegn Islandi, sem
Norðmenn yrðu að taka með í
reikninginn. Þeir hefðu skuld-
bundið sig til að hlfta úrskurði
öómstólsins og það væri gömul
hefð þar f landi að virða hann.
Varðandi áhrif Haag-dómsins
á störf ráðstefnunnar sagði Ev-
ensen, að hann teldi hann
kannski hafa stappað stálinu í
vanþróuðu þjóðirnar. Persónu-
leg skoðun sín væri sú, að úr-
skurðurinn hefði skaðað álit
dómstólsins og á ýmsan hátt
torveldað störf ráðstefnunnar.
Sem kunnugt er stóð Noregur
að flutningi heildartillagna í 2.
nefnd í sumar ásamt Islandi,
Kanada, Chile, Indlandi, Indó-
nesíu, Mauritius, Mexíkó og
Nýja-Sjálandi. Sagði Evensen,
að Norðmenn hefðu á síðari ár-
um nálgazt mjög stefnu Islend-
inga í lögsögumálum. Hann
virtist bjartsýnn á, að endanleg
niðurstaða hafréttarráðstefn-
unnar yrði m.a. sú, að 200 mflna
auðlindasvæði yrðu lögfest.
Hugsanlega yrði sett þar inn
einhver málamiðlun varðandi
ríki, sem ekki nýttu fiskstofna
sfna til fulls, en hún mundi
tæpast ná til landa eins og Is-
lands og Noregs.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar, Pick-up bifreiðar og
Pick-up með 4ra hjóla drifi., er verða sýndar að
Grensásvegi 9, þriðjudaginn 27. ágúst kl.
1 2—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu okkar
kl. 5.
Sa/a varnarlidseigna.
Til sölu
er Mercedes Benz '69, sjálfskiptur með vökva-
stýri, á nýjum dekkjum einnig fylgja 4 negld
snjódekk. Ekinn rúma 80. þús. km. Skipta þarf
um diska í sjálfskiptingu. Til sýnis og sölu í
dag, laugardaginn 24. ágúst frá kl. 2, að
Ölduslóð 1 6, Hafnarfirði. Tilboð öskast.
Það gamla kemur aftur
Fulninga - hurðir
Einnig: Spjalda - hurðir
Birki - hurðir
Opið til kl. 6 ! dag
Hurðir hf.
Skeifan 1 3.
I HERRABUÐINNI
VIÐ LÆKJARTORG
mánudag, þriðjudag,
miðvikudag.
Herraföt. Mikið úrval af
góðum fötum.
Til vetrarins, kuldablússur
með loðkraga.
Ennfremur:
Stakirjakkar
^ Skyrtur
^ Peysur
^ Frakkar
Einstakt tækifæri til að
gera góð kaup fyrir veturinn.
'AM
V I Ð LÆKJARTORG