Morgunblaðið - 24.08.1974, Side 10
J0 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. AGUST 1974
Vestur-Þjóðverjar sætta sig ekki
við að hverfa af íslandsmiðum
Caraeas, 21. ágúst,
frá Margréti R. Bjarnason.
LÖGFRÆÐILEGUR ráðunautur
vestur-þýzku sendinefndarinnar á
hafréttarráðstefnunni í Caracas,
Guenther Jaenicke prófessor við
háskólann í Frankfurt, sagði í
samtali við íslenzku fréttamenn-
ina hér, að Islendingar hefðu get-
að tafið um eitt til eitt og hálft ár
fyrir þvf, að alþjóðadómstóllinn
kvæði upp úrskurð í málum Breta
og Þjóðverja gegn þeim, ef þeir
hefðu tekið þátt í málarekstrinum
þar. Sagði prófessor Jaenicke,
sem annaðist málflutning fyrir
vestur-þýzku stjórnina gegn Is-
lendingum, að reglur dómsins
væru þannig, að málflutningur
hefði tekið sýnu lengri tíma og
hugsanlega hefði verið hægt að
fresta úrskurði þar til útséð væri
um niðurstöðu hafréttarráðstefn-
unnar, ef hún þá lægi fyrir á
næsta ári, eins og menn gerðu sér
vonir um. Þess bæri þó að gæta,
að aðildarríkin ættu þá eftir að
staðfesta þá samþykkt, sem gerð
yrði — og sagðist prófessorinn
þeirrar skoðunar, að úrskurður-
inn yrði tæpast miklu öðru vísi,
þó að uppkvaðning hans hefði
frestazt um ár, því að dómar-
arnir hefðu kannað málið vel frá
sjónarhóli Islendinga. Þó hefði
það vissulega ekki verið verra fyr-
ir Islendinga að standa sjálfir fyr-
ir máli sínu.
Hann taldi alveg fráleitt, að ís-
lendingar virtu ekki úrskurðinn,
sagði, að það yrðu öll ríki að gera,
sem ættu aðiid að Sameinuðu
þjóðunum.
Aðspurður um áhrif úrskurðar-
ins á gang ráðstefnunnar sagði
Jaenicke, að um það væri ekki
gott að segja — þó væri ekki
ósennilegt, að hann skerpti skiln-
ing manna á því, hversu nauðsyn-
legt væri að taka tillit til hags-
muna allra.
Við ræddum samtímis við for-
mann vestur-þýzku sendinefndar-
innar, Karl Hermann Knoke
sendiherra, sem sagði, að ráð-
stefnan hefði ekki gengið miklu
hægar en hann hefði átt von á og
til dæmis teldi hann starf 2.
nefndar hafa gengið betur en oft
áður á undirbúningsfundum hafs-
botnsnefndarinnar. Tillögum
hefði verið fækkað mjög
verulega og málin hefðu
skýrzt. Hugmyndina um auð-
Frúarleikfimi
Innritun hefst mánudaginn 26. ágúst kt.
13.00.
Morguntimar
Dagtímar
Kvöldtímar
Sauna og háfjallasól.
Góð húsakynni.
Allt úrvals þjálfarar.
JUDO-deild Ármanns
Ármúli 32, Sími 83295.
Frá Norræna húsinu
Kór Veitvet tónlistarskólans í Oslo syngur í Norræna húsinu
kl. 1 7 I dag. Stjórnandi TOR SKAUGE.
Aðgangur ókeypis.
Litmyndasýning norræna Ijósmyndarasambandsins
er opin í sýningarsölum Norræna hússins (i kjallaranum) kl. 14:00 —
1 9:00 til 1. september n.k.
Verið velkomin.
Norræna H úsið
NORRÍN4 HUSIÐ POHJOLAN TAIO NORDENS HUS
________________________________________________________I
PÓSTUR OG SÍMI
Nemendur
Verða teknir í símvirkja- og loftskeytanám nú í haust,
ef næg þátttaka fæst.
Umsækjendur um símvirkja- og loftskeytanám skulu
hafa gagnfræðapróf eða hliðstætt próf og ganga undir
inntökupróf í stærðfræði, ensku og dönsku. Inntöku-
próf verða 10. september og verða nánar tilkynnt
síðar.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá dyraverði Póst-
og símahússins við Austurvöll.
Umsóknir ásamt heilbirgðisvottorði og Ijósriti af próf-
skírteini skulu berast fyrir 6. september 1 974.
Nánari upplýsingar í síma 26000.
PÓST- OC SÍMAMÁLASTJÓRN
lindasvæði sagði Knoke að
Vestur-Þjóðverjar væru tilbúnir
að ræða með því skilyrði, að
strandríki fengju ekki fulla lög-
sögu yfir auðlindasvæði. Þeir
væru reiðubúnir til að ganga
verulega til móts við kröfur
strandríkja um rétt til friðunarað-
gerða ef þörf krefði, en þeir gætu
ekki fallizt á fullan yfirráðarétt
strandríkja yfir fiskveiðum vegna
þess, að þá mundi mikið af sjávar-
afla lenda innan lögsögu rlkja,
sem ekki hefðu bolmagn til að
nýta hann. Leyfa yrði öðrum rfkj-
um aðgang að aflanum umfram
það, sem strandríkin gætu ekki
veitt.
Ég spurði Knoke, hvort Vestur-
Þjóðverjar myndu sætta sig við að
hverfa af Islandsmiðum ef Islend-
ingar efldu svo fiskiðnað sinn, að
þeir gætu veitt allan þann fisk,
sem fáanlegur væri innan 200
mflna — en þvf svaraði hann neit-
andi, þeir myndu ekki sætta sig
við það. Og Jaenicke bætti við, að
þeir teldu það mjög svo efnahags-
lega óhagkvæmt, að eitt rfki
byggði upp fiskiðnað sinn meðan
annað væri neytt til að leggja
sfnum skipum! Nauðsynlegt væri
að dreifa þessum auðlindum milli
þjóða. — Hvers vegna honum
fyndist frekar ætti að dreifa
fiskinum milli þjóða en afrakstri
auðlinda f landi? Þvi svaraði
hann ekki beint, en sagði, að Is-
lendingar þyrftu endilega að efla
hjá sér iðnað, það væri slæmt að
vera svona háðir fiskveiðum, fisk-
iðnaður væri svo óáreiðanlegur,
verðsveiflur svo mikiar og þar
fram eftir götunum.
Báðir Þjóðverjarnir höfðu
heyrt um vfraklippingarnar
heima á dögunum og um vörpurn-
ar, sem fundizt höfðu fóðraðar, en
þeir vildu ekki mikið um það mál
segja, þar sem þeir hefðu ekki
allar staðreyndir málsins undir
höndum. Þó sögðu þeir, að væru
ásakanir Islendinga varðandi
vörpurnar á rökum reistar, yrðu
eigendur skipanna að sjálfsögðu
að svara fyrir þetta brot á alþjóða-
lögum og reglum. Hins vegar
sögðust þeir ekki sjá, hvers vegna
vestur-þýzkir togarar ættu að
brjóta þannig settar reglur.
Glafkos Klerides forseti kom til bandarfska sendiráðsins f Nikósfu eftir morðið á sendiherra Bandarfkj-
anna, Roger Davies, til þess að láta f ljðs samúð sfna. Hann bar gasgrfmu þar sem bandarfskir
iandgönguliðar höfðu beitt gasi til þess að bægja frá fólki, sem tðk þátt f mðtmælaaðgerðum við
sendiráðið.
Hömlum létt í
Suður-Kóreu
Seoul, 23. ágúst,
Reuter, NTB, AP.
CHUNG Hee Park forseti Suður-
Kóreu aflétti í dag banni við
gagnrýni á stjórnina og stefnu
hennar, aðeins átta dögum eftir
að kona hans beið bana, þegar
reynt var að ráða hann af dögum.
Morð forsetafrúarinnar hefur
eflt þjóðareiningu i Suður-Kóreu
og kunnugir telja ráðstöfun Parks
forseta sýna, að hann telji ekki
lengur vera þörf á róttækum ráð-
um til þess að halda andstæð-
ingum stjórnarinnar f skef jum.
Um 170 menn hafa verið dæmd-
ir samkvæmt tveimur tilskip-
unum, sem Park hefur nú numið
úr gildi. Samkvæmt þeim var lagt
bann við allri andstöðu gegn
stjórnarskránni frá 1972, sem
veitti forsetanum alræðisvald.
Stjórnarandstæðingar hvetja
Park til þess að náða alla, sem
hafa verið dæmdir fyrir brot á
þessum tilskipunum. 14 hafa ver-
ið dæmdir til dauða, en hinir frá
þriggja ára fangelsi til lffstíðar-
fangelsis.
Við útvegum:
Hljóöeinangraöar huröir og skilrúmsveggi.
Hurðirhf. — Skeifan 13.