Morgunblaðið - 24.08.1974, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. AGUST 1974
Alitsgerð 12 manna
nefndar Rithöfunda-
sambands Islands
EINS og lesendum
Morgunblaðsins er kunn-
ugt hafa miklar um-
ræður orðið hér í blaðinu
um málaferlin, sem sprott-
ið hafa út af árásunum á
þá, sem stóðu að und-
irskriftasöfnun „Varins
lands“, og álitsgerð rit-
höfundanna 12. Þar sem
hún hefur ekki áður birzt í
heild í blaðinu, fer hún hér
á eftir:
i.
Hinn 24. júní síðastliðinn skrif-
aði Einar Bragi, rithöfundur, Rit-
höfundasambandi Islands bréf,
þar sem segir meðal annars:
,,Með stefnu útgefinni í Reykja-
vík 20. júní sl. hafa 12 nafn-
greindir menn, sem kalla sig
aðstandendur alkunnrar undir-
skriftasöfnunar, er fram fór á
síðastliðnum vetri, höfðað meið-
yrðamál á hendur mér vegna til-
tekinna orða og ummæla í grein
eftir mig í Þjóðviljanum 18. jan.
1974. Telja stefnendur, að í henni
sé „farið ærumeiðandi ummælum
um undirskriftasöfnunina og
aðstandendur hennar“, eins og
það er orðað.
Hin umstefndu orð eru þannig
greind í stefnu aðstandenda:
„Stefnendur telja, að eftir-
farandi orð og ummæli 1 hér
umræddri grein ... séu æru-
meiðandi fyrir sig:
1. fyrirsögn greinarinnar:
„Votergeit-vfxlinn".
2. eftirfarandi ummæli í grein-
inni: „Upp er risinn hópur hug-
prúðra dáta, sem grátbiðja þjóð-
ina að hefja minningarár ellefu
alda búsetu 1 landinu á þvf að
undirrita beiðni um erlenda her-
setu á Islandi....“
önnur eru stefnuatriðin
ekki. ..
Fyrir þetta krefjast aðstand-
endur sex hundruð þúsund króna
í miskabætur, tuttugu og fimm
þúsund króna 1 öðru skyni og þar
á ofan 9% ársvaxta frá 18. jan.
1974 til greiðsludags ...
Vegna þess að 1 skilgreiningu á
hlutverki Rithöfundasambands
Islands er tekió fram, að til-
gangur þess sé m.a. að standa
vörð um tjáningarfrelsi, fer ég
hérmeð fram á, að stjórn Rit-
höfundasambands Islands til-
nefni svo fljótt sem verða má 12
rithöfunda i nefnd, sem falið
verði að leggja mat á, hvort kæru-
mál og fjárheimtur af þessu tagi
séu árás á tjáningarfrelsi manna
eða ekki.“
II
Stjórn Rithöfundasambands Is-
lands varð við tilmælum Einars
Braga og fór þess á leit, að undir-
ritaðir 12 rithöfundar önnuðust
það mat, sem um var beðið í bréfi
hans.
Við höfum kynnt okkur eftir-
farandi gögn 1 málinu:
1. Grein Einars Braga.
2. Stefnuna, þar sem m.a. eru
gerðar þær dómkröfur:
að fyrrgreind orð og ummæli
verði dæmd dauð og ómerk.
að greinarhöfundur verði
dæmdur í þyngstu refsingu, sem á
getur reynt skv. 234. og 235. grein
laga nr. 19/1940, en þyngsta refs-
ing skv. lagagreinum þessum er
varðhald allt að einu ári.
að honum verði gert að greiða
hverjum stefnenda fyrir sig kr.
50.000.00 í miskabætur.
3. Lagagreinarnar, sem stefn-
endur höfða til, en þeirra helstar
eru:
„Hver, sem meiðir æru annars
manns með móðgun 1 orðum eða
athöfnum, og hver, sem ber slfkt
út, skal sæta sektum eða varð-
haldi allt að 1 ár“ (Lög nr.
19/1940, 234. gr.)
„ef maður dróttar að öðrum
manni einhverju því, sem verða
myndi virðingu hans til hnekkis,
eða ber slfka aðdróttun út, þá
varðar það sektum eða varðhaldi
allt að einu ári“ (235. gr. sömu
laga)
4. Þá grein stjórnarskrárinnar,
sem segir: „Hver maður á rétt á
að láta i ljós hugsanir sinar á
prenti; þó verður hann að
ábyrgjast þær fyrir dómi. Ritskoð-
un og aðrar tálmanir fyrir prent-
frelsi má aldrei i lög leiða“ (72.
gr.).
III
Á framanrituðu grundvöllum
við eftirfarandi niðurstöðu:
Það er alþjóð kunnugt, að Einar
Bragi er andvígur erlendri her-
setu á Islandi og hefur í áratugi
barist gegn henni. Til þess hefur
hann fyllsta rétt samkvæmt
stjórnarskrá landsins.
Hver sem les greinina
Votergeit-víxilinn hlýtur að viður-
kenna, að hún er samin og birt af
gefnu tilefni gegn málstað þeirra,
sem vilja, að erlendur her sitji i
landinu, en ekki til að skaða per-
sónulega æru eða virðingu neins
einstaks manns.
Miðað við þann tón, sem alvana-
legur er í opinberri umræðu um
heit deilumál á Islandi, er grein
Einars Braga að okkar mati hóf-
samlega orðuð.
Stefnendur krefjast þyngstu
refsingar, sem á getur reynt skv.
234. og 235. grein laga nr.
19/1940, það er varðhalds allt að
einu ári, og sex hundruð þúsund
króna miskabóta skv. 264 grein
sömu laga. Ef slfkum kröfum væri
sinnt, væri sú kvöð stjórnarskrár-
innar, að menn verði að ábyrgjast
hugsanir sínar fyrir dómi, orðin
svo dýrkeypt, að jafngilti óbæri-
legri skerðingu á rétti manna til
að láta í ljós hugsanir sínar á
prenti. Þess vegna svörum við
spurningunni, sem fyrir nefndina
var lögð, á þessa leið:
Kærumál og fjárheimtur af
þessu tagi eru árás á tjáningar-
frelsi manna og stefna að þess
konar tálmunum fyrir prent-
frelsi, sem stjórnarskráin kveður
svo skýrt á um, að aldrei megi f
lög leiða.
Reykjavík, 11. júlí 1974
Andrés Kristjánsson (sign.)
Gunnar Gunnarsson (sign.)
Thor Vilhjálmsson (sign.)
Hilmar Jónsson (sign.)
Jón Óskar (sign.)
Snorri Hjartarson (sign.)
Björn Bjarman (sign.)
Þorsteinn Valdimarsson (sign.)
JónúrVör (sign.)
Sigurður A. Magnússon (sign.)
Stefán Júllussón (sign.)
Olafur Jóhann Sigurðsson (sign.)
Mildur?
isnli;
I
m
Effektiv 1
rui oppvask-
mild
rn°t hendene
m
w
w
Palmolive-uppþvottalögurinn
er mjög áhrifamikill og gerir
uppþvottinn Ijómandi hreinan og
skínandi — jafnvel þótt þér þurrkið
ekki af ílátunum.
Jafnframt er efnasamsetningin
í Palmolive þannig, að hann
er mjög mildur fyrir hendurnar.
Prófið sjálf...
Palmolive í uppþvottinn
w
m
Mr.
1
Ik
\
\
, '
m
SUNN ræddi Blöndu
virkjun o.m.fl.
Rit Finns Jónssonar um skálda-
kvæðin endurprentað í Danmörku
Aðalfundur SUNN 1974 var
haldinn á Húnavöllum (Reykj-
um) við Svínavatn, dagana 17.—
18. ágúst sl.
Orkumáiin og nýjar virkjanir á
Norðurlandi voru sérstaklega til
umræðu á fundinum og gerði
Haukur Tómasson jarðfræðingur
frá Orkustofnuninni grein fyrir
þeim hugmyndum, sem fram hafa
komið í þvf efni. Spunnust af þvf
fjörugar umræður, einkum um
fyrirhugaða Blönduvirkjun, sem
vitað er að veldur töluverður
tjóni á afréttarlöndum.
I tilefni af fimm ára afmæli
félagsins samþykkti fundurinn
sérstakt ávarp til Norðlendinga.
Þá voru gerðar ályktanir um ýmis
efni, m.a. verndun á auðlindum
sjávarins, votlendisvernd, land-
græðslu, vistfræðirannsóknir við
undirbúning virkjana og um-
gengni á Kröflusvæðinu. Einnig
samþykkti fundurinn að heimila
stjórn félagsins að vinna að stofn-
un landssambands náttúruvernd-
arfélaganna, sem áætlað er að
geti orðið á hausti komanda.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in, en hana skipa: Árni Sigurðs-
son, Blönduósi, Haukur Hafstað,
Vík, Helgi Hallgrfmsson, Víkur-
bakka, Hjörtur E. Þórarinsson,
Tjörn, og Sigurður Jónsson, Yzta-
Felli.
Síðari daginn var farið f skoð-
unarferð um Vatnsdal, Vatnsnes
og Vesturhóp f fegursta veðri. Um
20 manns sóttu fundinn.
(Frétt frá stjórn SUNN).
DEN norsk-islandske Skjalde-
digtning, hið mikla ritverk Finns
Jónssonar prófessors um skálda-
kvæðin hefur nú verið endur-
prentað og gefið út af danska
útgáfufyrirtækinu Rosenkilde og
Bagge 1 Danmörku. Er það f
tveimur bindum og kostar sam-
tals 1000 krónur danskar.
Ritverk þetta kom fyrst út á
árutvum 1912-T5 og að þvf er segir
í fréttatilkynningu frá útgáfunni
er í þessu safni allt það, sem varð-
veitzt hefur af skáldaljóðum fram
til 1400. 1 fyrra bindinu eru
kvæðin prentuð stafrétt eftir
þeim handritum, sem Finnur
taldi bezt, en afbrigði úr öðrum
handritum gefin upp neðanmáls.
1 síðara bindinu, sem er nýkomið
út, eru kvæði með samræmdri
stafsetningu og leiðréttingum
Finns ásamt skýringum og
danskri þýðingu.