Morgunblaðið - 24.08.1974, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1974
17
Biggs á
grænni grein
Bridge og hrein
stærðfræði freista Omars
Það vakti heimsathygli, þegar
lestarránið mikla var framið í Bret-
landi 1963, en þá stöðvaði hópur
manna járnbrautarlest um miðja
nótt og hafði á brott með sér
stórfé. Síðan hafa mennirnir náðst
einn og einn, en lengst fór huldu
höfði einn af forsprökkunum,
Ronald Biggs. Hann hefur verið á
stöðugum flótta undan spor-
hundum Scotland Yard síðan, en
þeir náðu honum loks i Brasiliu i
febrúar sl. Brasilisk yfirvöld hafa
ekki viljað framselja Biggs til Bret-
lands þrátt fyrir itrekaðar óskir um
slíkt og nú er Ijóst að það verður
ekki gert.
Biggs bjó nefnilega með ungri
brasiliskri stúlku að nafni Rai-
munda. Hún var ófrisk, þegar
Biggs náðist og þann 1 7. ágúst sl.
fæddi hún Biggs son. Samkvæmt
brasilískum lögum geta yfirvöld
þar ekki framselt Biggs nú, þegar
hann hefur eignazt afkvæmi svo
hann er á grænni grein. Ekki getur
hann kvænzt stúlkunni, því að
hann telst enn kvæntur sinni
gömlu ektakvinnu, sem nú býr f
Ástraliu.
Góðir bridgemenn þekkja
það bezt, að bridge getur orðið
ólæknandi della, algjör ástrfða.
Kvikmyndaleikarinn Omar
Sharif, 42 ára, er einn þeirra
hamingjusömu manna (að
þeirra eigin sögn), sem haldnir
eru þessari dellu. Hann tekur
þátt ( mörgum bridgemótum og
stendur sjálfur fyrir einvfgjum
milli heimsfrægra bridge-
spilara, en hann telst að sjálf-
sögðu til þess hóps. Það vita
færri, að ef frfstundir gefast og
bridge er ekki á dagskránni
notar Omar þær til að lesa æðri
stærðfræði! — Meðfylgjandi
mynd er tekin á bridgemóti og
ber með sér, að Omar hefur
setið f norður. Og hann
gleymmir ekki að brosa sfnu
blíðasta á mótum, brosinu, sem
hefur fengið hjörtu kvenfólks
um allan heim til að slá hraðar.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Útvarp Reykfavík 4jt
LAUGARDAGUR
24. AGCJST
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 8.45: Svala
Valdimarsdóttir heldur ðfram lestri
þýdingar sinnar á sögunni „Malena
byrjar f skóla“ eftir Marittu Lindquist.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli
liAa.
Oskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristfn
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Fantasfa í C-dúr op. 17 eftir
Schumann.
Geza Anda leikur á pfanó.
14.00 Vikan sem var
Páll Heiðar Jónsson sér um þátt með
ýmsu efni.
15.00 Sænsk tónlist
Arne Domnérus og Rune Gustafsson
leika.
15.25 Á ferðinni
ökumaður: Arni Þór Eymundsson.
(16.00 Fréttir).
16.15 Veðurfregnir.
Horft um öxl og fram á við
Gfsli Helgason fjallar um útvarps-
dagskrá sfðustu viku og hinnar næstu.
17.10 Frá tslandsmótinu f knattspyrnu:
Fyrsta deild.
lA — Vfkingur
Jón Asgeirsson lýsir sfðara hálfleik frá
Akranesi.
17.45 Söngvar f léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Ungverskt kvöld.
a. Hjalti Kristgeirsson hagfræðingur
spjallar um land og þjóð.
b. Ungversk tónlist.
c. Erindi um lifnaðarhætti hinumegin,
kafli úr skáldsögu eftir Tibor Déry.
21.15 Frá útvarpinu í Búdapest.
Aurele Nicolet og Zoltá Kocsis leika á
flautu og pfnó sálmalagið „Komm sUss-
er Tod“ og Sónötu f h-moll eftir Johan
Sebastian Bach einnig tilbrigði eftir
Franz Schubert: „Ihn Blúmlein alle“.
20.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Danslög.
23.55 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
-X-
A skfanum
LAUGARDAGUR
24. ágúst 1974
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Læknir á lausum kili
Breskur gamanmyndaflokkur.
Upton tæmist arfur.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
20.5Ö Borgir
Kanadfskur fræðslumyndaflokkur,
byggður á bókum eftir Lewis Mumford
um borgir og borgarlff.
4. þáttur.
Þýðandi og þulur Ellert Sigurbjörns-
son.
21.20 Makleg málagjöld
(Death of a Scoundrel)
Bandarfsk bfómynd frá árinu 1956.
Leikstjóri Charles Martin.
Aðalhlutverk George Sanders, Zsa Zsa
Gabor og Yvonne de Carlo.
Þýðandi Brfet Héðinsdóttir.
Myndin lýsir ferli manns, sem flyst
búferlum frá Evrópu til New York, til
þess að öðlast þar fé og frama. Hann
gerist brátt athafnasamur á verðbréfa-
markaðnum, og er ekki alltaf vandur
að meðulum.
23.25 Dagskrárlok
SUNNUDAGUR
25. AGtJST 1974
18.00 Karfus og Baktus
Barnaleikrit eftir Thorbjörn Egner.
Leikstjóri Helgi Skúlason.
Leikendur Sigrfður Hagalfn, Borgar
Garðarsson og Skúli Helgason.
Fyrst á dagskrá 4. janúar 1970.
18.25 Gluggar
Breskur fræðslumyndaflokkur fyrir
börn og unglinga.
Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson.
18.50 Steinaldartáningarnir
Bandarfskur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir.
19.10 Hlé.
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Bræðurnir
Bresk framhaldsmynd.
7. þáttur. Sjálfstæðisyfirlýsingar
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.20 óperuhúsið f Sidney
Aströlsk heimildamynd um sérstæða
byggingu, sem teiknuð er af danska
húsameistaranum Jörg Utzon.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
Þulir Stefán Jökulsson og Ellert Sigur-
björnsson.
21.50 Sinn er siður f landi hverju
Breskur fræðslumyndaflokkur um fólk
f fjórum heimsálfum og siðvenjur
þess.
4. þáttur. Brúðkaupssiðir
Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
22.40 Að kvöldi dags
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson flyt-
ur hugvekju.
22.50 Dagskrárlok.
George Sanders
og Zsa Zsa Gabor
I kvöld sýnir sjónvarp-
ið bandarfsku kvikmyndina
Makleg máfagjöld (Death of a
Scoundrel), sem gerð var árið
1956. Myndin lýsir ferli manns,
sem flyzt búferlum frá Evrðpu
til New York til þess að öðlast
fé og frama. Hann gerist brátt
athafnasamur á verðbréfa-
markaðnum og er ekki alltaf
vandur að meðulum.
1 sjónvarpsbiblfunni okkar
fær myndin tvær stjörnur, sem
er ekki nema rétt f meðallagi.
Leikstjóri er Charles Martin,
en með aðalhlutverk fara
George Sanders, Zsa Zsa Gabor
og Yvonne de Carlo.
Burðarás myndarinnar er án
efa George heitinn Sanders, en
hann á að baki langan feril á
hvfta tjaldinu. Meðal þekktra
mynda, sem hann hefur leikið
f, má nefna „Rebecca" (1940),
„Foreign Correspondent“
(1940), „The Moon and
Sixpence“ (1942), „The
Picture of Dorian Gray“
(1944), „Bel Ami“ (1948), „All
about Eve“ (1950), en fyrir þá
mynd hlaut hann Oscars-verð
Iaun,og„TheQuiIIer Menorand-
um“ (1966), sem er einna
þekktust mynda hans frá seinni
árum. George Sanders svipti
§ig lffi fyrir öYfáum árum, en f
bréfi, sem hann skildi eftir,
sagði hann ástæðuna hafa verið
Iffsleiða. Sagði Sanders f bréf-
inu, að hann hefði reynt allt
það f Iffinu, sem hann teldi
einhvers virði, og þvf væri
ekkert annað eftir en að yfir-
gefa þennan heim.
Aðalmótleikari Sanders f
þessari mynd er kyntáknið Zsa
Zsa Gabor.cn þau voru gift hér
f eina tfð. Fremur litlar sögur
fara af leikhæfileikum Gabor,
en f ágætri kvikmyndahandbók
segir um hana. að „hún hafi
skreytt margar myndir frá
hinum ýmsu þjóðum".
Páll Heiðar gerir
skil byggðastefnunni
Þegar við höfðum sam-
band við Pál Heiðar til að
inna hann eftir efni
þáttar hans „Vikan, sem
var“ hafði hann m.a.
þetta að segja:
„Það má eiginlega
segja, að við höfum
„inspírerazt" af byggða-
stefnunni. Þess vegna
brugðum við okkur
norður í land og erum
með efni frá Akureyri og
Skagafirði.
Meðal þess, sem
útvarpað verður á
laugardaginn, má nefna
viðtal við Bjarna Einars-
son bæjarstjóra á Akur-
eyri um það hvernig sé
aö vera númer tvö í stór-
bæjaröðinni. Við litum
inn í minjasafnið á Akur-
eyri. Þar er hlutur, sem
er kannski hvað sér-
kennilegastur muna í
safninu, en það er Sval-
barðskirkja, sem var
flutt í safnið fyrir fjórum
árum og endurvígð þar
að loknum endurbótum,
og útvarpað er frá brúð-
kaupi í kirkjunni.
tJr Skagafirði er lýsing
úr Glaumbæjarsafninu
og sá, sem þar vísar
veginn, er Sigurður
Egilsson frá Sveins-
stöðum í Tungusveit.
Hugleiðing vikunnar
er vitaskuld einnig að
norðan og flytur hana
Kristján frá Djúpalæk,“
sagði Páll.
Þá tjáði hann okkur að
endingu, að hann ætlaði
að gera byggðastefnunni
nánar skil í næstu
þáttum og heimsækja þá
aðralandshluta.