Morgunblaðið - 24.08.1974, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGUST 1974
| ÍMTMÍTTIR MORGHMBLAÐSIWS
Sigur á síðustu
stundu í keppn-
inni við Glasgow
Frá Gylfa Kristjánssyni, frétta-
manni Mbl. með körfuknattleiks-
liðinu.
Eftir æsispennandi lokamfnútu
f borgakeppni Reykjavfkur og
Glasgow f körfuknattleik fór svo,
að það voru Reykvfkingarnir,
sem stóðu með pálmann f hönd-
unum. 64:62 urðu úrslit leiksins
— naumari gat sigurinn tæpast
verið, en eftir atvikum mátti Is-
lendingarnir vel við þessi úrslit
una. Þeir höfðu átt undir högg að
sækja lengst af leiknum og tókst
ekki að jafna fyrr en f seinni
hálfleik. Virtist taugaóstyrkur há
hjá sumum fslenzku leikmann-
anna, enda fyrsti stórleikur
margra leikmannanna.
I liði Glasgow-borgar eru sex
landsliðsmenn, og lék liðið mjög
vel til að byrja með og virtist
stefna í það að íslenzka liðið yrði
kafsiglt. Eftir örstutta stund var
staðan orðin 6:0 fyrir Skotana og
um miðjan hálfleik var staðan
18:8. Skotanýting íslendinganna í
þessum leikkafla var með afbrigð-
um slæm — eða ekki nema um
22%. Var það ekki fyrr en undir
lok hálfleiksins að liðið fór að ná
sér á strik og tókst að minnka
muninn niður í 5 stig fyrir hálf-
leik 32:27. Munaði þar mestu, að
fslendingarnir hittu úr 9 af þeim
10 vítaskotum, sem þeir fengu á
lokamínútunum.
1 seinni hálfleik breytti ís-
lenzka liðið um vörn. 1 fyrri hálf-
leik hafði verið leikin „maður á
mann" vörn, en í seinni hálfleik
var tekin upp svæðisvörn, sem gaf
miklu betri raun, auk þess sem
Framhald á bls. 23.
FH tapaði
kærunni
EINS og frá hefur verið skýrt f
Mbl. kærðu FH-ingar Hauka eftir
leik liðanna f 2. deildar keppn-
inni f knattspyrnu, en þeim leik
lyktaði með jafntefli. Töldu FH-
ingar, að Haukar hefðu notað of
marga leikmenn úr öðrum flokki
f leiknum, en samkvæmt reglum
KSl má aðeins nota 4 leikmenn úr
2. flokki f meistaraflokksleik.
Iþróttadómstóll Hafnarfjarðar
hefur nú fellt úrskurð f máli
þessu, og dæmir Hauka sýkna
saka, á þeim forsendum, að þótt
fleiri leikmenn úr 2. flokki en
fjórir hafi verið skráðir á leik-
skýrslu, félagsins í viðkomandi
leik, þá hafi aðeins fjórir leikið.
Telur dómstóllinn, að komi leik-
maður ekki inná í Ieik, verði ekki
unnt að telja, að hann hafi tekið
þátt í leiknum. Er þessi úrskurð-
ur dómstólsins í samræmi við þær
reglur, sem viðteknar hafa verið.
Leikmenn í knattspyrnu hafa t.d.
ekki fengið landsleiki skráða,
nema þeir hafi komið inná,
jafnvel þótt þeir hafi verið valdir
sem varamenn í liðið.
Logi sækir að Þróttarmarkinu í leiknum í fyrrakvöld, en Halldór Bragason og Jón
Þorbjörnsson eru til varnar og höfðu þarna betur.
FH-in2ar í 1.
eftir 1:0 sig-
ur yfir Þrótti
FH VANN Þrótt 1—0 á Þróttar-
vellinum við Sæviðarsund á
fimmtudagskvöldið og tryggði sér
þar með sæti f 1. deild á næsta ári.
Þetta er f fyrsta skipti, sem
félagslið frá Hafnarfirði nær
þessum árangri, en árin 1957,
1958 og 1961 lék lið frá IBH f 1.
deild. Skömmu eftir það fóru
Hafnarfjarðarliðin að senda lið
til keppni f 2. deild f sitt hvoru
lagi. Arangurinn af þvf starfi er
kominn f ljós, þvf annað liðið,
FH, hefur eins og áður er sagt
tryggt sér sæti f 1. deild, en Hauk-
ar eru f 3ja sæti f 2. deild.
Sigur FH yfir Þrótti var verð-
skuldaður, þvf þeir voru betri
aðilinn allan leikinn, þó sérstak-
lega er Ifða tók á sfðari hálfleik.
Leikurinn var ekki vel leikinn,
enda vart við þvf að búast, þar
sem vallarskilyrði bjóða ekki upp
á slíkt.
Fátt gerðist markvert tíl að
byrja með í leiknum, eða allt þar
til á 10. mín. Þá myndaðist þvaga
fyrir framan mark Þróttar og náði
Jón Þorbjörnsson markvörður
ekki til knattarins, sem rúllaði til
Helga Ragnarssonar, sem ekki var
seinn á sér að ýta honum yfir
marklínuna í mannlaust markið.
Það sem eftir var hálfleiksins var
lítið um marktækifæri, nema
hvað á 23. mfn. átti Gunnar
Ingvarsson skot ofan á þverslá
eftir aukaspyrnu og rétt fyrir
leikslok áttu Aðalsteinn örnólfs-
son og Þórður Hilmarsson þokka-
leg tækifæri, en Ömar Karisson
markvörður FH varði vel.
Síðari hálfleikur:
Sfðari hálfleikur var mun
skárri og bauð uppá nokkur
skemmtileg marktækifæri og oft
ágæt tilþrif, en fleiri mörk voru
ekki skoruð, þannig að leiknum
lauk með 1—0 sigri FH.
Lið FH var vel að sigrinum
komið, enda er liðið skipað
ungum leikmönnum, sem eru sér-
lega baráttuglaðir. Erfitt er að
tala um að einn sé öðrum betri, en
í þessum leik sýndi Ólafur Dani-
valsson mikla yfirferð og dugnað.
Þá voru Janus Guðlaugsson og
Viðar Halldórsson góðir. En eins
og áður segir er liðið í heild mjög
áþekkt að styrkleika og auðséð er
að hinn skozki þjálfari þeirra, Pat
Quinn, hefur náð góðum árangri í
sumar með liðið.
I liði Þróttar bar mest á Hall-
dóri Bragasyni, sem eins og svo
oft áður stóð fyrir sfnu og vel það.
Jón Þorbjörnsson gerði margt vel
í markinu, en framlínan var bit-
laus. Þróttarar léku oft vel útr á
vellinum, sérstaklega í fyrri hálf-
leik, en ef á heildina er litið er
vörnin sterkari hluti liðsins.
Við óskum FH til hamingju með
að hafa hlotið sæti f 1. deild og
vonandi verður það til þess, að
flýta þvf, að Hafnfirðingar eignist
grasvöll, enda er vart annað sæm-
andi jafn stóru bæjarfélagi sem
Hafnarfjörður er.
Samkvæmt Mótaskrá KSI á FH
að leika sinn siðasta leik f 2. deild
gegn Isafirði, laugardaginn 31.
ágúst. Þeim leik hefur nú verið
flýtt og verður hann leikinn á
Kaplakrikavelli fimmtudaginn
29. ágúst kl. 19.00. Að honum .
loknum verður FH afhentur
bikar sá, sem keppt er um í 2.
deild.
Tryggja Akurnesingar sér
meistaratitilinn í dag?
MEÐ sigri f leik sínum gegn Vfk-
ingum f 1. deildar keppni Islands-
mótsins f knattspyrnu á Akranesi
í dag geta Akurnesingar tryggt
sér Islandsmeistaratitilinn f ár.
Þeir hefðu þar með hlotið 21
stig, en Keflvfking, þeir
einu, sem ógnað geta sigri
Akraness, ættu mest mögu-
leika á 20 stigum. Akurnesingar
munu þvf örugglega leggja sig
fram f leiknum f dag, og freista
þess að tryggja sigur sinn, cn á
sama hátt munu Vfkingar berjast,
þar sem mikið er í húfi fyrir þá.
Tap á Akranesi f dag þýðir, að
þeir halda sig enn á botninum f 1.
deild, en sigur eða jafntefli getur
haft afgerandi þýðingu fyrir lið-
ið.
Fyrri leik liðanna lauk með
sigri Akurnesinga 1:0, f leik þar
sem Víkingar höfðu miklu betur
frá upphafi til enda. Voru allir
sammála um, að Akurnesingar
hefðu unnið mikinn heppnissigur
í þeirri viðureign.
(Jrslitakeppnin í 3. deild
stendur nú yfir. Þessi
mynd var tekin í leik
Stjörnunnar úr Garöa-
hreppi og KS frá Siglufirði
í keppninni í fyrrakvöld,
en Stjarnan sigraði f þeim
leik 2—1.
Önnur úrslit í 3.
deildar keppninni í fyrra-
kvöld urðu þau, að Vfking-
ur Ölafsvík og Reynir úr
Sandgerði gerðu jafntefli
1— 1, Austri frá Eskifirði
vann Þrótt frá Norðfirði
2— 0 og Reynir frá Áskóg-
strönd vann Stefni frá Suð-
ureyri 1—0.
Þrjár bókanir — enginn dómur,
vikið af velli — enginn dómur
FLESTIR bjuggust við þvf, að
Marteinn Geirsson, einn sterk-
asti leikmaður Fram, yrði f
leikbanni f leiknum gegn KR f
gærkvöldi, þar sem hann hefur
fengk* þrjár bókanir f sumar.
Svo var þó ekki þar sem skýrsla
um eina bókunina hefur aldrei
borizt aganefnd KSl.
Virðast dómarar geta haft
sfna hentisemi með það hvort
þeir senda inn skýrslur um
bókanir sfnar eða ekki. Nær
það náttúruiega ekki nokkurri
átt og var þetta mál til umræðu
á stjórnarfundi KSt f fyrradag.
Var Bjarna Felixsyni falið að
skrifa samtökum knattspyrnu-
dómara og áminna þá um að
senda inn skýrslur noti þeir
gula spjaldið eða það rauða.
Páli Björgvinssyni var vikið
af velli f leik Vfkings og KR f
bikarkeppninni á dögunum.
Leikmaður, sem vfsað er af
velli, á á hættu að fá leikbann,
minnsta lagi einn leik, mesta
lagi þrjá. Þó svo að aganefnd
KSt hafi haldið tvo fundi frá
þvf Páli var vikið af vclli hefur
hún enn ekki heyrt neitt um
það frá dómara leiksins og Páll
sleppur þvf sennilega án leik-
banns. Er þetta ekki f fyrsta
skipti f sumar, sem leikmaður,
sem vikið hefur verið af velli,
sleppur án þess að fá lcikbann.
I Vestmannaeyjum mætast
heimamenn og Akureyringar, og
er þar einnig um að ræða botnbar-
áttu. Fyrri leikinn, sem f ram fór á
Akureyri, unnu Vestmannaey-
ingar með yfirburðum, eða 3:0, og
sigur í leiknum í dag myndi færa
þá endanlega af hættusvæðinu í
1. deildinni.
Fjórði leikurinn f 13. umferð
verður svo leikinn á Laugardals-
vellinum annað kvöld, og mætast
þar Valur og ÍBK. Urslit í fyrri
leik þessara liða urðu markalaust
jafntefli. Einnig þessi leikur
hefur mjög mikla þýðingu, sér-
staklega fyrir Valsmenn.
Einn leikur verður í 2. deild í
dag. A Isafjarðarvelli leika Isfirð-
ingar og Völsungar, liðin sem eru
við botninn á 2. deildinni.