Morgunblaðið - 24.08.1974, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. AGUST 1974
23
Skipting tekna af land-
grunnssvæðinu þjóða í milli
Caracas 22. ágúst,
frá Margréti R. Bjarnason
„Þegar við krefjumst réttar yfir
auðlindasvæði strandríkja og
landgrunni, erum við í raun að
berjast fyrir hagsmunum allt að
því 90% íbúa heimsins. Vitaskuld
verður að taka tillit til hagsmuna
allra og ég tel, að það ætti að vera
hægt.“
Nokkurn veginn á þessa leið
mælti Allan Beesley, sendiherra
Kanada, formaður kanadisku
sendinefndarinnar og sérstakur
ráðgjafi stjórnar sinnar í haf-
réttarmálum, þegar ég ræddi við
hann í gær.
Kanada er svo sem fyrr hefur
komið fram, eitt þeirra rikja, sem
halda fram kröfunni um yfirráða-
rétt yfir landgrunni utan 200
mflna auðlindasvæðis og munu að
sögn Beesleys halda henni til
streitu. Hann sagði, að um 25—30
lönd hefðu landgrunn, sem næði
lengra út en 200 sjómílur og þau
væru ekki reiðubúin að láta þessi
svæði af hendi, enda teldu þau
kröfur sínar byggðar á gildum
stoðum, þar sem væri Genfarsam-
þykktin gamla.
Mörg ríki eru þessu sjónarmiði
andvíg og telja, að með þessu móti
sé verið að rýra um of hið alþjóð-
lega hafsbotssvæði, sem eigi að
nýta með hagsmuni vanþróuðu
ríkjanna sérstaklega fyrir augum.
Beesley sagðist telja mál þetta
leysanlegt, m.a. hefði Kanada
þegar fyrir tveimur árum lagt
fram tillögu um skiptingu tekna
af landgrunnssvæðinu þjóða í
milli. Þeir hefðu að vísu ekki
ítrekað hana hér í Caracas, en ef
aðrar þjóðir brydduðu upp á ein-
hverju slíku kynni Kanada að
taka þar undir. En hann kvað
mjög ólíklegt, að umræddar þjóð-
ir féllust á, að væntanleg stjórnar-
stofnun alþjóðahafsbotnssvæðis-
ins fengi leyfi til nýtingar auð-
linda á landgrunnssvæðinu.
„Þau hafa einmitt sérstakan
áhuga á að halda framkvæmdum
á landgrunninu og stjórn fiskveið-
anna innan auðlindasvæðisins í
sfnum höndum. Sá er einmitt
hornsteinninn í stefnu Kanada.“
I þessu sambandi minnti
Beesley á, að Kanada og Island
Bílvelta í
Hrafnagilshreppi
BlLVELTA varð í gær, föstudag,
við bæinn Vagla f Hrafnagils-
hreppi f Eyjafirði. Fór fðlksbíll
með þremur mönnum út af veg-
inum þar og skarst einn nokkuð
illa á höfði. Var hann fluttur f
sjúkrahús. Bfllinn er illa farinn.
hefðu á Stokkhólmsráðstefnunni
um umhverfisvernd lagt fram
sameiginlega og fengið sam-
þykkta ályktun um nauðsyn þess,
að stjórn væri höfð á nýtingu
hafsins og tekið tillit til sérstöðu
strandrikjanna í þeim efnum.
„Þessi hugmynd er að minu
mati það merkilegasta, sem að er
unnið á hafréttarráðstefnunni og
hún er m.a. grundvöllur hug-
myndarinnar um auðlindasvæð-
ið.“ sagði Beesley.
Kanada á sem kunnugt er aðild
að tillögunum, sem Island og
fleiri rfki lögðu fram í sumar —
og taldi Beesley góðar líkur á þvf,
að þær næðu fram að ganga, þær
hefðu mestan stuðning af þeim
tillögum, sem fram hefðu komið f
2. nefnd og fælu í sér þau tvö
meginatriði, sem stór meirihluti
fulltrúa væri fylgjandi á einn eða
annan hátt, það er 12 mílna land-
helgi og 200 mílna auðlindasvæði.
Beesley vildi ekkert um það
segja að svo stöddu, hvort Kanada
mundi færa út lögsögu sfna ein-
hliða, ef árangur næðist ekki á
ráðstefnunni. „Sennilega telja
margar rfkisstjórnir sig nauð-
byggðar til slfkra aðgerða — en
við vinnum af kappi að þvi að
ráðstefnan beri árangur og ég hef
persónulega trú á þvf, að hún geri
það,“ sagði Beesley.
„Mistakist okkur hins vegar,
kæmi til greina að hafa aðra ráð-
stefnu, sem bundin væri við þátt-
töku þeirra ríkja, sem vilja ná
Sunnugleðí á
Mallorka og
Costa del Sol
FERÐASKRIFSTOFAN Sunna
mun efna til Sunnugleði fyrir far-
þega sina á Mallorka og Costa del
Sol dagana 29. og 30. ágúst, en þá
verða yfir 1000 Sunnufarþegar á
þessum stöðum.
Sunnugleðin á Mallorka 29.
ágúst veröur í næturklúbbnum
Jack E1 Negro, sem söngflokkur-
inn Valdemosa rekur. Þar mun
m.a. hljómsveit Ingimars Eydal
leika fyrir dansi, Kristinn Halls-
son óperusöngvari syngur, Árni
Johnsen vísna- og þjóðlagasöngv-
ari tekur lagið og söngflokkurinn
Valdemosa mun einnig skemmta.
Dansað verður fram undir
morgun, en Sunnugleðin á Costa
del Sol hefst að kvöldi 30. ágúst.
Þar mun spænsk hljómsveit leika
og Kristinn og Arni skemmta.
samkomulagi um 12 mílna land-
helgi og 200 mflna auðlindasvæði
ásamt lögsögu yfir landgrunni.
Slík ráðstefna gæti leitt til mjög
svo athyglisverðs samkomulags,"
sagði Beesley.
Allan Beesley vili eins og fleiri,
lftið segja um úrskurð alþjóða'-
dómstólsins f Haag — mönnum er
illa við að gagnrýna hann opin-
berlega þó að þeir finni honum
ýmislegt til foráttu. Þó benti
Beesley á, að dómstóllinn hefð’i
ekki fellt úrskurð um grundvall-
aratriði deilunnar, sem sé hvort
útfærsla lögsögu Islands bryti í
bága við alþjóðalög — heldur að-
eins um þessar aðgerðir gagnvart
Bretum og Vestur-Þjóðverjum.
„Hefði dómstóllinn gert það,“
sagði Beesley, „tel ég persónu-
lega, að hann hefði orðið að hafa
hliðsjón af hvers konar venjum
sem viðhafðar eru víðsvegar í
heiminum í þessum efnum og þar
á meðal einhliða útfærslu ann-
arra ríkja á lögsögu sinni — svo
og af þeim tillögum, sem fram
hafa komið á hafréttarráðstefn-
unni.“
Viðræður
um Guineu
á lokastigi
Lissabon, 23. ágúst, Reuter.
MARIO Soares utanrfkisráðherra
tðk f dag upp að nýju leynilegar
viðræður við leiðtoga Guineu-Biss
au f Algeirsborg samkvæmt opin-
berum heimildum.
Því er spáð, að þetta verði loka-
áfangi viðræðnanna og að algert
samkomulag náist um sjálfstæði
Guineu-Bissau, þótt enn séu ýmis
tækniatriði ðleyst.
LEIÐRÉTTING
Á Slagsfðunni í blaðinu í gær
misritaðist nafn Hallgríms Björg-
ólfssonar. Er hann beðinn velvirð-
ingar.
— íþróttir
Framhald af bls. 22
Islendingarnir fóru nú að fá hrað-
upphlaup, sem báru árangur.
Fljótlega tókst að jafna 39:39, en
síðan sigu Skotarnir aftur framúr
og þegar 4 mínútur voru til leiks-
loka var staðan 58:51 fyrir þá. En
lokasprettur íslenzka liðsins var
góður. Það náði að jafna 62:62
þegar rúm mínúta var eftir og
upphófst þá mikill darraðardans.
Dæmd voru tvö vftaköst á Skota
og skoraði Þröstur Guðmundsson
úr þeim báðum. Næsta upphlaup
hjá Skotunum mistókst, Islend-
ingar náðu knettinum og tókst að
halda honum, unz tfminn rann út.
Beztan leik Islendinganna í
þessum leik sýndu þeir Kolbeinn
Pálsson og Þröstur Guðmundsson
og voru þeir jafnframt stigahæstu
leikmenn liðsins. Kolbeinn
skoraði 18 stig, Þröstur 16, Jón
Sigurðsson skoraói 11 stig, Bjarni
Gunnar 7 stig og Torfi Magnússon
6 stig.
— ísrael
Framhald af bls. 1
lendingar hyggi á nýja sókn í Gol-
anhæðum.
I viðtalinu í Davar f dag sagði
Peres landvarnarráðherra, að
Israelar mættu ekki láta Aröbum
heppnast að tryggja sér yfir-
burðaaðstöðu eins og f október-
stríðinu, þegar þeim tókst bæði að
koma á óvart og eiga frumkvæðið.
— Minning
Björn
Framhald af bls. 14
skipunum Selfossi og fleirum var
haldin veisla mikil um borð í m/s
Lagarfossi í New York fyrir
framámenn þar f sambandi við
lán. Þeir skoðuðu m/s Lagarfoss
hátt og lágt, og sögðu á eftir, að
það væri óhætt að láná félagi, sem
hugsaði svona vel um skip sfn.
Enda var skipið fágað frá
masturstoppi og niður að sjólínu
og átti Bjössi heitinn ekki minnst-
an þátt í þvf hvað vel tókst til. Við
vinir Bjössa sendum vandamönn-
um hans okkar samúðarkveðjur
og ég vitna f orð eins skipsfélaga
okkar þegar hann vildi fá stað-
festingu á orðum sfnum, þá sagði
hann: „Eins og Bjössi veit.“ Eins
vitum við, sem þekktum hann, að
minning um góðan dreng geymist.
Góða ferð vinur.
Skjöldur Þorgrfmsson.
— Djúpvegur
Framhald af bls. 9
stærri. Mæltist Jón til þess, að
umræðu um málið yrði frestað og
það athugað betur, enda væri
þegar tryggt nægilegt fé til fram-
kvæmdanna i ár, svo stuttur frest-
ur sakaði framkvæmdina á engan
hátt.
Albert Guðmundsson tjáði sig í
einu og öllu samþykkan fram-
kvæmd þeirri, sem frumvarpið
gerði ráð fyrir. Hann væri samt
andvígur fjáröflunarleiðinni. Að
sfnu mati tæki slík sala happ-
drættislána of mikið ráðstöfunar-
fé frá bönkunum, sem ekki gengi
of vel að gegna sínu hlutverki,
þ.e. að fjármagna nauðsynlegan
atvinnurekstur, sem allur þorri
manna ætti afkomu sfna og at-
vinnu bundna við. Lánsfjárskort-
ur lánastofnana væri þegar
flestum atvinnurekstri alvarlegur
ljár f þúfu. Væri þvf vafasamt að
ríkisvaldið seildist um of inn á
þennan takmarkaða lánsfjár-
markað.
Að máli Alberts Ioknu var
málið tekið út af dagskrá og um-
ræðu frestað.
— Kafbátur
Framhald af bls. 24
annað. Héðan fer báturinn
beint til Danmerkur og er
áætlað að sigla f kafi alla leið
án þess að koma upp á yfir-
borðið. Þegar báturinn kom
hingað að landinu kom hann
úr kafi við Gjögra f minni
Eyjafjarðar. 21 manna áhöfn
er á kafbátnum, sem er 44
metrar á lengd, 4,5 m á dýpt og
4,5 m á breidd.
— Grikkir
Framhald af bls. 1
er bannað að fara í eftirlitsferðir
eða stunda líknarstörf í Fama-
gusta. Danskir friðargæzlumenn
fá ekki að fara út fyrir Lefka.
Samkvæmt tillögu Rússa skal
það verða verkefni ráðstefn-
unnar, sem þeir leggja til, að
verði haldin á vegum S.Þ. um
Kýpur-málið, að sjá um brott-
flutning erlends herliðs frá Kýp-
ur. Tyrkir hafa margítrekað, að
þeir muni ekki flytja lið sitt frá
eynni fyrr en réttindi Kýpur-
Tyrkja hafi verið tryggð.
Kýpur-Grikkir neita fyrir sitt
leyti að taka að nýju upp viðræð-
ur fyrr en Tyrkir hörfi til vopna-
hléslínunnar.
Klerides forseti ftrekaði þetta,
þegar hann kom til Aþenu i dag.
Hann lagði einnig áherzlu á, að
hann hefði hingað til stutt heils-
hugar þá stefnu, sem gríska
stjórnin hefði fylgt í Kýpurdeil-
unni.
— Kappreiðar
Framhald af bls. 2
3. Blesi Páls Kristjánssonar 32,2
sek.
Sportstyttuna, sem árlega er
veitt bezt búnum og prúðustum
hesti og knapa i gæðingakeppni,
hlaut að þessu sinni Hugrún Þor-
gerisdóttir og hestur hennar
Ljúfur.
Mótið fór vel og prúðmahnlega
undir stjórn Gísla Jónssonar vall-
arstjóra.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Hvernig get ég orðið betri fræðari og betri lærisveinn Krists?
Hafið þér reynt Nýja testamentið? Ég á næstum
öll skýringarrit á ensku í bókasafninu mínu, og oft
fæ ég þar einhverja hjálp. En hvergi finn ég eins
mikla hjálp og innblástur og í Biblíunni sjálfri. Ég
óttast, að of margir kennarar séu um of háðir
hugmyndum og hugsunum annarra. Það er dásam-
legt, hvernig Biblían opnar sig, þegar við lesum hana
og íhugum. Davíð var mikill maður, og einn leyndar-
dómur tignar hans er fólginn í þessum orðum. ,,Ég
hugleiði lögmál þitt dag og nótt.“ Job sagði: ,,Ég hef
varðveitt í brjósti mér orð munns hans.“
Ég legg til, að þér lesið skýringarrit yðar, en
hugleiðið ritningarkaflann, sem þér eigið að kenna.
Lesið hann með bæn í huga, og ég spái því, að þér
komist að raun um, að Guð talar til yðar í þessum
ritningarorðum. Hugsanir munu vakna hjá yður,
hugsanir, sem eiga erindi til kynslóðar í vanda.
Þegar þér gerið þetta, mun sál yðar sjálfs styrkjast.
Þér munuð því eflast og verða áhrifameiri kennari
orðsins.
Það eru Hljómarnir, sem mæta þrælgóðir að
vanda og hryssta pleisið í sundur og skila því
fokheldu. Takk fyrir!
Hvar er 5 pela flaskan mín?
Vinninqur kvöldsins: 5000 skeini, (hvað er nú
það?)
Eneka meneka súkken dí
ebbel dobbel dom og dí
der skal komme en Stebba mann
og drive glugga ude og ann
express debbei dess.
Holu Hjálmar.
Svo eru sætaferðirnar frá B.S.Í. alltaf jafn
vinsælar, svei mér þá.