Morgunblaðið - 24.08.1974, Blaðsíða 24
MIGIVSinGRR
^-»22480
l^mnRCFniDnR
7r mnRKRÐ VÐHR
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1974
LANDGRÆÐSLAN
DREIFÐI 2250
TONNUM í SUMAR
73% aukning á áburðar- og frœdreifingu
LANDGRÆÐSLAN dreifði f sum-
ar 2250 tonnum af fræi og áburði
með báðum flugvélum Land-
græðslunnar, en sl. ár var dreift
um 1300 tonnum. Að sögn Sveins
Runólfssonar landgræðslustjóra
var dreift 1520 tonnum úr flug-
vélinni Páli Sveinssyni og 730
tonnum úr TF-TtJN. Eitt tonn fer
á 2,5 ha. Hluti fræsins sem dreift
var úr Páli Sveinssyni, fór á eldri
sáningarsvæði, sumt I hálfgróin
beitilönd bænda. Var flugvélin að
mestu notuð f bein uppgræðslu-
störf I landgræðslugirðingum og
einnig I skipulögðum upp-
græðslugirðingum, sem kostaðar
eru sameiginlega af sveitarfélög-
um, uppgræðslufélögum eða ein-
stökum bændum. Minni flugvél-
in, TtlN, var notuð vfðs vegar um
landið til uppgræðslustarfa og
einnig til þess að bera á beiti-
lönd bænda, f sumum tilvikum til
þess að þeir geti fækkað fénaði á
afréttum sfnum.
Enn skellur á Eyjamönnum:
Ríkisvaldið skattleggur
[nir undir hrauni
fasteigi
I LJÓS kom, þegar skattseðlar
Vestmannaeyinga bárust þeim I
hendur, að ríkisvaldið tekur fast-
eignaskatt af bótafé því, sem Við-
lagasjóður greiddi mönnum, sem
misstu eigur sínar undir hraun og
gjall, en samt sem áður hefur
komið fram, að þessar bætur
greiddu I fæstum tilvikum yfir
hálft raunverulegt tjón á fast-
Flugvöllur vígð-
ur við Selfoss
Selfossi, 23. ágúst.
Á MORGUN verður vigður nýr
flugvöllur hjá Selfossi. Það er
nýstofnað félag áhugamanna um
flugmál, Flugklúbbur Selfoss,
sem staðið hefur fyrir gerð flug-
vallarins, sem er í landi Sand-
vikurhrepps vestan við Selfossi.
Flugbrautirnar eru tvær, 400 og
600 m langar. Fyrirhuguð er flug-
sýning á flugvellinum kl. 14 á
morgun ef veður leyfir. 10—15
flugvélar munu koma frá Reykja-
vik I hópflugi og lenda á vell-
inum. Þyrla Landhelgisgæzl-
unnar mun sýna björgun og
einnig verður sýnt fallhlífar-
stökk. 1 Flugklúbbi Selfoss eru 30
félagar og eru þeir víðs vegar að
úr Arnessýslu. Formaður klúbbs-
ins og aðalhvatamaður að stofnun
hans er Jón I Guðmundsson yfir-
lögregluþjónn. Einn af klúbb-
félögunum hefur þegar keypt
flugvél.
— Tómas.
eignum miðað við verðlag í dag.
Frá þessu var sagt í Eyjablaðinu
Dagskrá I gær og þess getið, að
ekki væri ein báran stök í við-
skiptum Vestmannaeyinga við
„ríkisvaldið“ og önnur náttúru-
öfl. Brá mörgum Eyjamönnum í
brún við þessa sendingu, sérstak-
lega þeim, sem töpuðu húsum sín-
um undir hraun og gjall. Þá getur
Dagskrá þess, að hér sé aðeins um
að ræða eitt af mörgu, sem gerir
erfitt fyrir um viðreisn í Eyjum
bæði vegna sleifarlags og skiln-
ingsleysis ríkisvaldsins og stjórn-
valda I Vestmannaeyjum. Bent er
á til umhugsunar, að samkvæmt
lögum sé hluti björgunarlauna
undanþeginn skatti og ef til vill
hefði verið nær að taka slíkt til
greina í því auðsæja björgunar-
starfi, sem allir unnu í Vest-
mannaeyjum sl. ár f stað þess að
láta „ríkisvaldið“ enn einu sinni
skella á Eyjamönnum.
Utanríkisráðherra-
fundur í Reykjavík
Fundur utanríkisráðherra
Norðurlanda verður haldinn í
Reykjavík í næstu viku, dagana
29.—30. ágúst. Venjulega eru
haldnir tveir utanríkisráðherra-
fundir á ári og var sfðasti fundur í
Helsinki í vetur. A þessum fundi
munu ráðherrarnir undirbúa og
ræða vantanlegt allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna og fjalla um
afstöðu einstakra Norðurlanda í
sérstökum eða sameiginlegum
málum Norðurlandanna á alls-
herjarþinginu.
Saumuðu 4600
íslenzka fána
fyrir afmælið
SAUMASTOFAN á Hofsósi, sem
rekin er af Kaupfélagi Skagfirð-
inga og Heklu á Akureyri, saum-
aði 4000 fslenzkafána fyrir þjóð-
hátíðarárið og á þessu ári saumaði
saumastofan 600 fána. Svanhildur
Guðjónsdóttir veitir þessari
saumastofu forstöðu, en hún var
sett á stofn um áramótin
1972—1973. 1 upphafi var ein-
göngu unnið að því að sauma fs-
lenzka fána í 10 stærðum og eru
þeir sendir út um allt land. Arið
1973 skilaði saumastofan 4000
fánum, en á þessu ári hefur
einnig verið hafizt handa við að
sauma sloppa og skyrtur fyrir
sláturhús og fpístihús. 7—8 kon-
ur vinna yfirleitt á saumastofunni
að sögn Ola Þorsteinssonar kaup-
félagsstjóra á Hofsósi. Einnig
saumar saumastofan sérfána, t.d.
rfkisfánana fyrir varðskipin, en
þeir eru klofnir og með skjaldar-
merkinu í.
Lítið hefur verið að gera f
gjaldeyrisdeildum bankanna
sfðan gripið var til neyðarráð-
stafana f gjaldeyrismálunum.
Fram til 15. ágúst afgreiddu
bankarnir 1200 millj. kr. f
ferðagjaldeyri, en umferðin f
gjaldeyrisdeildir bankanna
minnkaði snariega, þegar 25%
kostnaðurinn kom til sögunnar.
Ljósmynd Mbl. Öl.K.M.
Stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknar
Samningaþófið
enn á miðnætti
stóð
Lokaþáttur f stjórnarmynd-
unarviðræðum Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknarflokksins
stendur enn yfir. Talið er, að f
gærdag og gærkvöldi hafi einkum
verið rætt um verkefnaskiptingu
og ráðuneyti. Samningaþófið stóð
enn um miðnætti, er Morgun-
blaðið fór f prentun.
A miðnætti stóð enn fundur 1
þingflokki sjálfstæðismanna, þar
sem ræddar voru sfðustu tillögur
Framsóknarflokksins og andsvör
Sjálfstæðisflokksins við þeim.
Viðræðurnar hófust 1 gærmorgun
með viðræðum milli forystu-
manna flokkanna. Kl. 11 árdegis
var stuttur fundur f þingflokki
sjálfstæðismanna. Sfðan ræddu
forystumenn flokkanna saman og
viðræðunefndirnar sátu fundi.
Þingflokkur framsóknarmanna
kom saman til fundar kl. 14
síðdegis. Þegar að þeim fundi
loknum hófst fundur f þingflokki
sjálfstæðismanna, en áður höfðu
viðræðunefndirnar rætt stuttlega
saman. Þeim fundi lauk um kl.
19. Þá var gert hlé. En kl. 21 kom
þingflokkur og framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokksins á
fund og ræddi hugmyndir frá
sjálfstæðismönnum. Þegar að
þeim fundi loknum eða kl. 22
hófst svo flokksfundur hjá sjálf-
stæðismönnum. Sá fundur stóð
enn á miðnætti.
Sinnuleysi yfirvalda í hús-
næðismálum Eyjamanna
Olíustyrkurinn fk 717' A/TTU' UDT 1?V"DT1>
ti7Ktíparoffs6«a:*>ll^tVlllT.IÍ(Iul T I lUllU
ALMESTU SKRIFFINNSKU”
— segir Jón Guðlaugur bæjarritari
ÞAÐ er algjör vitleysa hvernig
þetta kerfi er byggt upp, dæmi-
gert fyrir almestu skriffinnsku
og seinagang, sem hægt er að
hugsa sér, sagði Jón Guðlaugur
Magnússon bæjarritari f Kópa-
vogi, þegar við inntum eftir
fréttum af útborgun og af-
greiðslu á olfustyrknum.
Kópavogur fékk um 17 millj.
kr. til ráðstöfunar fyrir tfma-
bilið marz—maí og hafa 12
millj. kr. af því verið afgreidd-
ar á 8 dögum, eða frá 13.—22.
ágúst sl. Olíustyrkurinn er til
þeirra, sem kynda hús sín með
olíu, og er miðað við 600 kr. á
mánuði á hvern íbúa og 900 kr.
til elli- og örorkulífeyrisþega.
Þann 6. sept. hefjast bætur
aftur, en þeir, sem eiga að
framfylgja kerfinu, eru ekkert
hressir yfir vinnubrögðunum:
„Þetta hefur sett allt úr
skorðum hjá okkur hérna i af-
greiðslunni og innheimtunni,
því að hver einasti maður hefur
orðið að fara í þessa afgreiðslu.
Þetta hefur verið algjört auka-
álag,“ sagði Jón Guðlaugur, „og
það við verkefni, sem ekki eru
einu sinni á okkar vegum. A
þessum tfma höfum við ekki
getað sinnt okkar eigin verk-
efnum og fjárhagsástand
sveitarfélaganna er nógu slæmt
þó að við sláum ekki slöku við.
Menn, sem hingað hafa komið
til þess að greiða gjöldin sín,
hafa líka horfið frá hópum
saman, því að þeir hafa ekki
treyst sér til að eyða tfmanum í
bið.“
MIKIÐ hefur verið rætt um hús-
næðisskort í Vestmannaeyjum
eftir gos og ekki að ástæðulausu.
Mjög mikill hægagangur hefur
verið á allri fyrirgreiðslu opin-
berra yfirvalda bæði á meginland-
inu og eins úti f Eyjum. Hins
vegar eru liðlega 20 einstaklingar
sem hófu byggingu f vor, búnir að
gera hús sfn fokheld. Hundruð
Vestmannaeyinga eru í húsnæðis-
hraki f Vestmannaeyjum og til
þess að leysa nokkurn vanda
ákvað Viðlagasjóður á sfnum tfma
eftir beiðni frá Guðmundi Karls-
syni forstjóra að senda hús þau,
sem voru f Hveragerði, út f Eyjar
til bráðabirgða. Hluti þeirra kom f
vor og var settur upp, en hins
vegar var ekkert gengið frá lóðum
húsanna. Bæjarstjórnarmeiri-
hluti Vestmannaeyja hefur rætt
um það að undanförnu að kaupa
til Vestmannaeyja hjólhýsi eða
lftil hús erlendis frá, en á sama
tíma hafa 14 svokölluð „tele-
skopehús“ úr Hveragerði staðið
óuppsett í Eyjum sfðan 14. ágúst
sl. og ekki hefur einu sinni verið
hafizt handa um undirbúning við
að setja þau upp. Fjöldi fjöl-
skyldna á ekki í nein hús að
venda á sama tíma og einnig sér
margt eldra fólk lítil ráð til þess
að geta flutzt aftur út f Eyjar f
sína heimahaga. Þá má geta þess,
að hátt f 100 fbúðir standa auðar í
bænum vegna þess meðal annars,
að ekki hefur verið hægt að gera
við þær. Síðan eftir gos hefur
bæjarstjórn Vestmannaeyja haft
forgöngu um að koma upp einu
húsi f bænum, innfluttu áhalda-
húsi, og fólkið bíður.
450 tonna
kafbátur
heimsækir
Akureyri
DANSKUR kafbátur, 450 tonn
að stærð, kom til Akureyrar f
gær og sigldi hann i kafi þang-
að alla leið frá Þórshöfn f Fær-
eyjum. Að sögn Björns Bald-
vinssonar hafnarstjóra á Akur-
eyri er hér um nýjan kafbát að
ræða, sem er 1 leiðangri til að
kanna tæki sín, sjóhæfni og
Framhald á bls. 23. .