Morgunblaðið - 08.09.1974, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1974
11
Tommy
— fyrst með The Who,
síðan með Sinfóníuhljómsveit
Lundúna, og nú í kvikmynd
SLAGSlÐUFÖLK þekkir sjálf-
sagt flest efni poppóperunnar
Tommy, — söguna um dreng-
inn, sem verður blindur, mál-
laus og heyrnarlaus sex ára að
aldri þegar hann verður vitni
að ákveðnu atviki, um uppvöxt
hans, tvfsýna leit að lækningu
og furðulegar afleiðingar
hennar. Hin upprunaiega út-
gáfa hijómsveitarinnar Who
undir leiðsögn höfundarins,
Pete Townshend, kom fram á
sjónarsviðið árið 1969, og fór
þegar sigurför um heiminn.
Sfðar kom út viðameiri útgáfa,
stjórnuð af Lou Reizner, með
Sinfónfuhljómsveit Lundúna
og ýmsum stórstjörnum eins og
Richard Harris, Rod Stewart,
Stevie Winwood, Richie
Havens og Ringo Starr, auk
Who. Sú framleiðsia stendur þó
hinni upprunalegu langt að
baki, og er aðeins glysmikil út-
þynning hennar.
Hér á landi flutti Náttúra
sáluga búta úr verkinu í sjón-
varpi og víðar við góðan orðstír,
og Verzlunarskólakórinn flutti
það f heild á skemmtun og f
ömurlegum sjónvarpsþætti sl.
vetur.
I kvikmynd Russeils væsir
heldúr ekki um Tommy hvað
flytjendur varðar, — allavega
eru nöfnin nógu stór. Roger
Daltrey, söngvari Who, leikur
titilhlutverkið Tommy, Oliver
Reed fer með hlutverk stjúp-
föðurins, Ann-Margret leikur
móðurina, Eric Clapton pré-
dikarann á kynlegum helgi-
stað, þangað sem farið er með
Tommy í leit að lækningu,
Keith Moon, trommuleikari
Who, leikur hinn illgjarna
Ernie frænda, sem aðeins hefur
tvennt á heilanum, — peninga
og samfarir. Paul Nicholas er
Kevin frændi, sem haldinn er
kvalalosta (er hrekkjusvín eins
og krakkarnir segja), Robert
Powell er hinn raunverulegi
faðir Tommys, kafteinn Walk-
er, sem sagður er hafa horfið í
heimsstyrjöldinni síðari, en
skýtur síðan upp kollinum með
þeim afleiðingum, að Tommy
verður blindur, mál- og
heyrnarlaus, Tina Turner (sbr.
Ike og Tina Turner) leikur
hina furðulegu Acid Queen eða
„sýrudrottningu", sem reynir
að lækna Tommy með eiturlyfj-
um, Elton John leikur Pinball
Wizard-inn, sem lætur titil sinn
sem heimsmeistari í Pinball-
spili af hendi til Tommys, og
Jack Nicholson kemur fram í
gestahlutverki sem frægur
læknir. Þá koma Who sjálfir
fram í tveimur atriðum.
Kvikmyndagerðin stendur
enn yfir, en takan fór að mestu
fram í Portsmouth og
Hampshire á Suður-Englandi.
og á vatnasvæðinu í Norður-
Englandi.
Marilyn Monroe: Dýrlingurinn. . .
Þegar Tommy hitti
Marilyn Monroe....
Slagsíðan ræðir við Stefan Jakobek,
sem viðstaddur var kvikmyndatökuna
Peter Townshend stjómar tónlist-
inni i myndinni, en hún er öll
unnin upp á nýtt: „Alveg eins og
ofdekraður krakki."
með blátt hár, og litla dóttur, Victoriu,
sem fer með hlutverk í myndinni. Sjálf-
ur er Russell IFtill, þybbinn kall, með
stórt hvítt ullarskegg, eins og jóla-
sveinn."
„Russell var mjög virkur í sjálfri
kvikmyndatökunni, og stjórnaði henni
að mestu sjálfur, — tékkaði t.d hvert
einasta skot. Allir, sem unnu þarna,
virtust bera mikla virðingu fyrir hon-
um, og likaði vel við hann. Flest starfs-
fólkið hafði reyndar unnið með honum
áður En auðvitað lét hann engan kom-
ast upp með neinn moðreyk "
0 Af drykkjuskap Townshends og
Claptons.
Stefan hafði hins vegar ekki jafn
góðan vitnisburð um ýmsa aðra þátt-
takendur í kvikmyndinni. „Roger
Daltrey var að vísu ágætur náungi, þótt
hann hafi reyndar getið sér orð fyrir að
vera einna óstýrlátastur af liðsmönnum
Who. En Pete Townshend kom mér
fyrir sjónir sem ofdekraður krakki. Einu
sinni sem oftar voru t.d. Townshend,
Keith Moon og Eric Clapton staddir á
sérstökum bar, sem opnaður var vegna
kvikmyndatökunnar, og var raunar op-
inn frá 10 að morgni til 1 1 að kvöldi.
Þá gerðu þeir Townshend og Clapton
sér lltið fyrir, vöfðu 20 punda seðli
saman og kveiktu I honum. Þetta var
augljóslega gert til þess að sýnast, þvl
að þarna allt I kring vorum við, blá-
fátækir stúdentar, og ef satt skal segja,
fannst mér þetta alls ekkert sniðugt."
„Þá gerðist það einu sinni er hlé var
gert á kvikmyndatökunni," hélt Stefan
áfram, „að Clapton smellti fingrum til
eins að róturunum. Kom sá þegar I
stað með box I hendi Þegar það var
opnað kom I Ijós, að það var fullt af
uppvöfðum marlhúanavindlingum. Al-
máttugur! Clapton var alveg eins og
stór og feitur bisnesskall með þetta,
hampandi Churchill-vindlunum sínum.
Einn daginn tókst þessum náungum að
eyða 200 pundum á barnum, — og
þó var þetta tiltölulega mjög ódýr bar!"
Þá sagði Stefan frá kvikmyndatök-
unni er hún fór fram I kirkju einni. „í
hvert sinn, sem hlé varð á tökunni,
fleygði Keith Moon trommukjuða I Eric
Clapton, sem stóð I um 20 feta fjar-
lægð. Clapton svaraði i sömu mynt, og
þeir voru sífellt að ausa hvor annan
svívirðingum. — Þegar menn væntan-
lega sjá þetta atriði, þar sem Clapton er
I prédikunarstólnum, þá vita menn
ekki, að rétt á bak við hann var allan
tímann stór vínflaska og nokkur glös
Clapton var pöddufullur á meðan þetta
atriði var tekið, þótt ekki hafi sézt mikið
á honum."
0 Af Marilyn Monroe, dýrlingi
tuttugustu aldarinnar.
Stefan gaf Slagsíðunni dæmi um
þau atriði, sem vænta má úr mynd
Russells um Tommy. Það var tekið upp
I hlaðinni kirkju frá siðustu öld I
gotneskum stll, en þangað kemur
Tommy til að leita sér lækningar,
ásamt miklum fjölda bæklaðs fólks,
kryplingum, blindum, mál- og heyrnar-
lausum og vangefnum. Og þess ber að
geta að það fólk, sem Russell fékk I
þessa hópsenu, var raunverulega
bæklað, vangefið o.s.frv., — auk
stúdentanna."
„Þessi kirkja er — eins og Ken
Russell orðaði það — helguð dýrlingi
tuttugustu aldarinnar, sem lét Itfið af
völdum auglýsingaskrums og peninga-
hyggju, þ.e. Marilyn Monroe. Þarna er
stórt líkneski af Marilyn, líklega
um 20 feta hátt, sem búa á yfir miklum
lækningamætti. Þá eru myndir af
Marilyn við hverja súlu I kirkjunni.
Russell leiðbeinir Roger Daltrey:
Báðir ágætis náungar, — segir
Stefan Jakobek
Russell reynir að sjá Kevin frænda
frá sjónarhóli Tommys: „Hann
tékkaði hvert einasta skot sjálf-
ur."
Þetta var alveg furðuleg sena,
og gamalt fólk úr nágrenninu,
sem kom þarna, fórnaði höndum þegar
það sá hvað búið var að gera við
sóknarkirkjuna þeirra Þarna var Keith
Moon á altarinu með trommurnar sínar
og Eric Clapton I prédikunarstólnum,
báðir klæddir i eins konar munkakufla.
Siðan er llkneskið af Marilyn Monroe
með pilsið hálfpartinn uppum sig,
borið inn af einum 12 stúlkum, sem
allar eru klæddar kuflum gerðum úr
blaðaúrklippum þar sem skýrt er frá
dauða Marilyn, og allar bera Marilyn
Monroe grímur Múslkin glymur um
kirkjuna, og söfnuðurinn vaggar sér I
takt, allur afmyndaður og bæklaður,
llklega alls um 4—500 manns. Þetta
var svo áhrifaríkt að ég varð ef satt skal
segja bara hálfhræddur Fyrst þetta
kom svona sterkt út þarna, ætti það
ekki síður að virka á hvlta tjaldinu. I
þessu atriði gerir Tommy sér grein fyrir
því, að hann er á rangri braut og hann
molar llkneskið. Þótt mér hafi fundizt
inntak þessa atriðis svo lítið væmið,
eins og Ken Russell útskýrði það fyrir
okkur, þá held ég, að þetta geti vel
staðizt og virkað I myndinni."
0 Af limlestingum
og leikhúsbruna.
Það fer auðvitað ýmislegt úrskeiðis
við sllka framkvæmd sem kvikmynda-
taka er. „Á einum stað I atriði með
laginu Pinball Wizard, en það var tekið
upp I leikhúsi einu I Portsmouth,
brýtur Pete Townshend gitar sinn, og
öll statistahersingin æðir að honum.
Þetta þurfti að endurtaka tvisvar og á
kortéri var Toynshend búinn að brjóta
þrjá gitara, — alla rándýra Gibson Les
Paul gltara, llklega upp á 5—600
pund. í einni atrennunni handleggs-
brotnaði t.d. ein stúlka, önnur skarst á
hálsi þegar gltarbrot skauzt I hana, og
margir hlutu minni háttar limlest-
ingar "
Og þá gerðist atburður, sem vakti
verulega athygli á kvikmyndatökunni.
Það var þegar fyrrnefnt leikhús brann.
„Þetta leikhús, South Parade Pier I
Portsmouth, var úr timbri og talið eitt
bezt varðveitta viktoríanska strandleik-
húsið á Suður-Englandi (þessi gerð
leikhúsa er byggð á bryggju sem
skagar út I sjó), og svo koma þessir
fýrar og brenna það til grunna," sagði
Stefan. „Að vísu var þetta slys, að ég
held, a.m k trúir maður ekki öðru
nema þeir koma með þetta I myndina.
Það, sem mun hafa gerzt, var, að það
kviknaði I flauelstjöldum út frá þeim
fjölmörgu Ijóskösturum, sem þarna
voru Innan dyra voru um 4-—500
manns, en enginn slasaðist. Hins
vegar er leikhúsiðað mestu eyðilagt "
0 Af kjúklingalærum
Kvikmyndatakan i og umhverfis
Portsmouth tók um þrjár vikur seinni
partinn I mal, en Stefan og félagar
hans tóku þátt I henni I viku. „Fyrir
þetta fengum við fjögur pund á dag,
ókeypis hljómleika með Who, og eins
mikinn mat og við gátum I okkur látið
Ég hafði aldrei étið eins vel allan vetur-
inn. Maður mátti ekki opna munninn,
þvi þá var stungið upp I mann íspinna
eða kjúklingalæri eða einhverju matar-
kyns."
„Það var afar gott andrúmsloft
þarna," sagði Stefan Jakobek að lok-
um, „og ég hugsa, að þetta ætti að
geta orðið verulega góð kvikmynd. En
það tekur auðvitað svolltið dramatikina
úr þessu að hafa fylgzt með þvl hvern-
ig þeir gera hlutina, — hvernig kvik-
mynd verður raunverulega til "
—Á. Þ.