Morgunblaðið - 08.09.1974, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.09.1974, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1974 EHmi Járnamenn — Verkamenn Vanir járnamenn og verkamenn vanir byggingavinnu óskast. Skeljafell h. f., sími 86394. Verkamenn Verkamenn óskast í byggingavinnu að Höfðabakka 9. Upplýsingar á vinnustað og í síma 83640. ‘ Trésmiðir Óskum að ráða nokkra trésmiði í uppmæl- ingar nú þegar. Símar 38220 og 32874. Atvinna. Viljum ráða nú þegar karlmenn og kven- fólk til starfa í verksmiðju okkar. Vakta- vinna — dagvinna. Upplýsingar hjá verkstjóra, ekki í síma. H.F. Hamiðjan, Stakkholti 4. Skrifstofustúlka Vön skrifstofustúlka óskast til starfa strax, hálfan eða allan daginn. Upplýsingar í síma 41621. Auglýsingastofa Kristínar Álfhólsvegi 5, Kópavogi. Piltur eða stúlka óskast til þess að annast sendiferðir, afgreiðslu pósts og fleiri störf. Við leggjum til vélhjól. IBMÁ ÍSLANDI Klapparstíg 2 7 Sími 27700 2 vélstjórar The National Textile Corporation (TEXCO) P.O. Box 9531, Dar es Salaam, Tanzaníu vill ráða 2 vélstjóra í 2 spunaverksmiðjur sínar, sem eru staðsettar í Dar es Salaam og Arusha, Tanzaniu. Umsækjendur verða að hafa vélstjórapróf frá Vélstjóra- skóla íslands og próf í rafmagnsfræðum einnig 5 ára starfsreynslu að minnsta kosti. Aldur 30—45. Samningurinn er til 2 ára, en möguleikar eru á framlengingu. Laun £ 4,500 á ári og 25% þóknun. Frí læknishjálp og tann- lækningar, húsnæði og barnaskóli. Fríar flugferðir fyrir umsækjanda og fjölskyldu hans. Umsóknir skulu sendar fyrir 20. sept. til: National Textile Corporation, P. 0. Box 9531, Dar es Salaam. Stúlka óskar eftir starfi, sem hægt er að vinna að nokkru leyti sjálfstætt. Er með Verzlunarskólapróf. Góða tungumálakunnáttu (þýzku, dönsku og ensku). Hefur starfað sem ritari I nokkur ár. Tilboð, sem greini laun sendist Mbl. fyrir miðvikudagskvöld merkt: „7271". Reglusamur viðskiptafræðinemi á 1. ári, með stúdentspróf frá Verzlunarskóla íslands, óskar eftir heils eða hálfs dagsvinnu, helzt við bókhald eða gjaldkera- störf. Get unnið sjálfstætt. Þeir, sem áhuga hafa leggi nöfn sín á afgr. Mbl. fyrir 1 3. þm. merkt: „8509". Bakari og aðstoðarmaður Bakari og aðstoðarmaður óskast nú þegar. Uppl. í Björnsbakaríi, Vallarstræti 4 frá kl. 8—1 2 næstu daga. Dyraverðir óskast frá kl. 18—24. Veitingahúsið Óðal, sími 11630. Afgreiðslustúlka Sérverzlun v/Laugaveg óskar að ráða afgreiðslustúlku nú þegar hálfan daginn. Upplýs. um menntun og fyrri störf send- ist Mbl. merkt 9529. Ferðaskrifstofa ríkisins óskar að ráða nú þegar, í eftirtalin störf: 1. Forstöðustarf fyrir utanlandsferðir. 2. Forstöðustarf fyrir hópferðir útlendinga innanlands, móttöku erlendra skipa og skipulagningu ráðstefna. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á ferðamálum og hafi áður starfað við þau störf. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu vorri. Ferðaskrifstofa ríkisins, Reykjanesbraut 6, sími 1 -15-40 Við viljum ráða menn til eftirtalinna starfa í verksmiðjum okkar að Flatarhrauni í Hafnarfirði og að Háteigsvegi 7 í Reykjavík: 0 Afgreiðslumann í smiðjubúðina. 0 Bílstjóra. 0 Laghenta menn til framleiðslustarfa. 0 Dreng eða stúlku til sendistarfa. Tilboð óskast bréflega eða í síma 18106 milli kl. 1 7 og 1 8 alla starfsdaga. H.F. Ofnasmiðjan, Háteigsvegi 7, Reykjavík. Iðnverkamenn óskast Viljum ráða nokkra verkamenn til verk- smiðjustarfa. Mikilvinna. Upplýsingar hjá verkstjóranum. Málningarverksmiðjan Harpa h. f., Skú/agötu 42. Afgreiðslumaður óskast Framtíðarstarf. Uppl. á skrifstofu vorri mánudaginn 9. sept. kl. 5—6. Verzlun O. Ellingsen HF., Hafnarstræti 15. Frá Söngskólanum í Reykjavík. Söngskólinn í Reykjavík tekur til starfa 1. október. Umsóknarfrestur um skólavist er til 23. september. Umsóknareyðublöð fást í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundsson- ar, Austurstræti. Upplýsingar um nám og inntökuskilyrði eru gefnar í síma 21942 kl. 12 — 1 3 alla næstu viku. Skólastjóri Sveitarstjóri Reyðarfjarðarhreppur óskar eftir að ráða sveitarstjóra frá n.k. áramótum. Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist oddvita Reyðarfjarðarhrepps fyrir 20. september n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir núverandi sveitarstjóri sími 97-4245 eða oddviti sími 97-4244. Laus staða Prófessorsembættið í barnasjúkdómum og staða yfirlæknis á Barnaspítala Hrings- ins er laus til umsóknar. Gert er ráð fyrir að sama lækni verði veitt bæði störfin. Umsækjendur mega gera ráð fyrir því, að núverandi fyrirkomulag barnaspítalans breytist. Um mat á hæfni umsækjenda verður fjallað samkv. 11. gr. laga nr. 84/1970 og 33. gr. laga nr. 56/1973. Umsóknarfrestur er til 1 0. október 1 974. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn- inni upplýsingar um námsferil og fyrri störf, svo og ítarlega skýrslu um vísinda- störf þau, er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir. Umsóknir sendist öðru hvoru ráðuneyt- inu. Menntamá/aráðuneytið, Heilbrigðis- og tryggingamá/aráð uneytið, 5. september 1974.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.