Morgunblaðið - 14.09.1974, Blaðsíða 2
2______________
Valur - Portadown
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1974
Híndrunartrimm
til gamans i leikhléi
SU NÝBREYTNI verður tekin
upp f leikhléi Vals og Portadown
f Evrópukeppninni n.k. þriðjudag
á Laugardalsvellinum, að
skemmtidagskrá fer þar fram. 1
leikhléinu fer fram hindrunar-
trimm og þar munu landsfrægir
heiðursmenn keppa.
Hlaupið verður 400 metra
trimm og mega þátttakendur nota
ýmiskonar hjálpartæki svo sem
þríhjól, hlaupahjól, reiðhjól og
reiðhest svo eitthvað sé nefnt, en
frjálst val er í þeim efnum. Ýmsar
hindranir verða hins vegar á
veginum en keppendur eru Ömar
Ragnarsson, Laddi, Karl Einars-
Rætt við
vinnuveit-
endur í gær
FUNDUR var með fulltrúum
Vinnuveitendasambands íslandsf
gær f forsætisráðuneytinu, en það
er annar fundur ráðherranefnd-
arinnar og vinnuveitenda. Sam-
kvæmt upplýsingum Geirs Hall-
grfmssonar forsætisráðherra var
á fundinumígærfáriðyfir sömu
atriði og rædd voru á fundi með
fulltrúum Alþýðusambandsins í
fyrradag, láglaunabætur og fyrir-
komulag þeirra.
Geir kvað menn myndu vinna
nánar úr þeim gögnum sem fyrir
hendi væru yfir helgina. Næsti
fundur með fulltrúum ASl verð-
ur á mánudag og kvað Geir næsta
fund með vinnuveitendum líkleg-
ast verð á þriðjudag. Sá fundur
hefur þó ekki endanlega verið
ákveðinn.
Harður árekstur
ALLHARÐUR árekstur varð f
gær á mótum Bólstaðarhlíðar og
Stakkahlíðar. Tveir Fiatbflar rák-
ust saman, og var annar þeirra
talinn ónýtur á eftir. Konur óku
bílunum, og meiddust þær lítil-
lega.
son, Alli Rúts, Ragnar Bjarnason,
Pétur Kristjánsson, Árni Johnsen
Magnús Bjarnfreðsson og Bjarni
Guðnason. Keppt verður f tveim-
ur riðlum og munu sigurvegarar í
riðlunum siðan taka þrjár víta-
spyrnur á hinn gamalkunna
markvörð Hermann Hermanns-
son. Stjórnandi, kynnir og ræsir
er Jón Ásgeirsson.
Umbúðasam-
keppni í
fjórða sinn
FÉLAG fsl. iðnrekenda mun nú
gangast fyrir umbúðasamkeppni f
fjórða sinn, en slfk samkeppni
hefur verið haldin annað hvert ár
undanfarið. Tilgangurinn með
samkeppninni er að kanna hvað
gert hefur verið af nýjum umbúð-
um og veita þeim beztu þeirra
viðurkenningu. Með þessu er
ætiunin að auka skilning og
áhuga á gildi hagkvæmra og fal-
legra umbúða f sölustarfsemi.
Keppnin er fyrir allar gerðir
umbúða, svo sem flutnings-
umbúðir, sýningarumbúðir og
neytendaumbúðir. Verða þær að
vera hannaðar á tslandi og hafa
komið á markað hér og erlendis.
Allir íslenzkir umbúðaframleið-
endur og umbúðanotendur geta
tekið þátt f samkeppninni, svo og
aðrir þeir sem hafa með höndum
gerð og hönnun umbúða.
I fréttatilkynningu frá Félagi
ísl. iðnrekenda kemur fram, að
sýning á umbúðum f umbúðasam-
keppninni verður að þessu sinni
sameinuð finnskri umbúðasýn-
ingu, sem opnuð verður í Nor-
ræna húsinu 8. október. Munu
tveir finnskir sérfræðingar í um-
búðamálum starfa með dóm-
nefndinni að vali þeirra umbúða,
sem viðurkenningar hljóta. Þá
verða viðurkenningar afhentar
um leið og finnska sýningin
verður opnuð. Einnig gangast
finnsku sérfræðingarnir fyrir
tveggja daga fræðslunámskeiði
um umbúðir dagana 9. og 10.
október, þar sem fjallað verður
um hin margvíslegustu efni.
Hlaut doktorsgráðu fyrir rann-
sóknir á litningum sjávarspendýra
Hinn 7. maí sfðastliðinn varði
Úlfur Árnason erfðafræðingur
doktorsritgerð við Háskólann í
Lundi. Doktorsritgerðin, sem er
samantekt úr 7 fyrri ritgerðum
Ulfs ber heitið „Phylogeny and
Speciation in Pinnipedia and
Cetacea. — A Cytogenetic Study“.
Ulfur lauk stúdentsprófi við
Menntaskólann á Akureyri 1958
og innritaðist f Háskólann í Lundi
þá um haustið.
Hann lauk phil. cand. prófi
1962, námsgreinar dýrafræði,
grasafræði og landafræði. Ulfur
nam erfðafræði og vatnafræði
1964—1965 og hóf framhaldsnám
í erfðafræði 1966. Sérgrein hans
er frumuerfðafræði og litninga-
rannsóknir og lagði hann fyrst
stund á litningarannsóknir á
mönnum en á sjávarspendýrum
1967. Árið 1971 lauk hann fil. lic.
prófi í erfðafræði við erfðafræði-
stofnun háskólans i Lundi. Auk
rannsókna í erfðafræði lagði
hann stund á umhverfisvernd ár-
ið 1972.
Ulfur Árnason hefur aflað
gagna í ritgerð sina hér á landi og
auk þess í Alaska veturinn 1971.
Kaliforníu, Kanada og Græn-
landi, en ritgerðin fjallar um þró-
un og tegundamyndun sjávar-
spendýra — hvala og sela. Kostn-
aður við rannsóknir hans hefur
verið greiddur af Rannsóknaráði
sænska ríkisins sfðati 1972. tJlfur
sagði í viðtali við Morgunblaðið:
„Verkið sjálft er grundvallað á
litningarannsóknum og saman-
burði á litningum hjá þessum dýr-
um. Niðurstöður eru að mjög lftill
munur er á litningum mismun-
andi tegunda sjávarspendýra og
sem dæmi má nefna, að allar
hvalategundir utan tvær hafa 44
litninga. Þessar tvær undantekn-
ingar hafa hins vegar 42 litninga.
Rostungar og margar selategund-
ir hafa 32 litninga, aðrar tegundir
sela 34 og sæljón 36 litninga.
Breytileiki er þannig lftiil. Þessar
niðurstöður fengust með beinum
Framhald á bls. 14.
Frá skyndiskoðun lögreglunnar. Lögreglumaður kemur með tvær bifreiðar til
skoðunar. Númerin voru klippt af annarri, en hin fékk leyfi til að fara beint á
verkstæði. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Slysaaldan hefur hjaðnað
Kærum hefur fjölgað — Eftirliti haldið áfram
„SLYSAALDAN sem gekk yfir
borgina f byrjun mánaðarins
hefur greinilega hjaðnað, og
þakka ég það stórauknu eftirliti
lögreglunnar og áróðri f f jölmiðl-
um,“ sagði Óskar Ólason yfir-
lögregluþjónn umferðarmála f
samtali við Mbl. f gær. Samkvæmt
upplýsingum Óskars er þó enn
langt frá þvf að ástand umferðar-
mála f höfuðborginni sé gott, eins
og bezt sést á þvf, að frá áramót-
um hefur lögreglan gefið út 6350
kærur vegna umferðarlagabrota,
nær 2500 skýrslur vegna árekstra,
þúsundir stöðusekta og tug-
þúsundir stöðumálasekta. Þetta
er mikil aukning frá f fyrra.
Eftirlit lögreglunnar hefur
aðallega verið fólgið í radar-
mælingum, skyndiskoðunum bif-
reiða, eftirliti með umferðarljós-
um og gangbrautum og nú sfðast
sektunum fyrir að leggja bifreið-
um ólöglega. Sektarupphæð er
800 krónur, og er lögreglustjóra
heimilt að afgreiða hana með sátt,
Hellissandsmálið
er enn óupplýst
STORÞJÓFNAÐURINN sem
framinn var á Hellissandi um síð-
ustu helgi er enn óupplýstur.
Rannsókn málsins er haldið
áfram, bæði af lögreglumönnum á
Snæfellsnesi og sérfræðingum
rannsóknarlögreglunnar í
Reykjavík.
Komið hefur f ljós, að talan sem
nefnd var i upphafi, 495 þúsund
krónur, er ekki rétt. Við nýja út-
reikninga kom fram, að stolið var
388,900 krónum.
Spilakassi
brotinn upp
BROTIZT var inn f þvottastöðina
Blika og Kaffistofu Guðmundar,
sem er f sama húsi, f fyrrinðtt.
Þjófurinn eða þjófarnir fengu
augastað á spilakassa frá Rauða
krossinum, sem er f kaffistof-
unni.
Brutu þeir hann upp og tæmdu.
Spilakassinn var fullur af tiköll-
um, en ekki er vitað nákvæmlega
hve upphæðin var há. Ekki var
öðru stolið í húsinu, en nokkur
spellvirki unnin á búnaði þess.
m.a. hurðum sparkað upp.
Þá var einnig brotizt inn í vél-
smiðjuna Kistufell Brautarholti í
fyrijnótt. Þar var engu stolið, en
einhverjar skemmdir unnar.
en málin fara ekki til Sakadóms.
Á annað hundrað ökumenn hafa
verið teknir dag hvern fyrir of
hraðan akstur, og hafa tveir
radarar verið í notkun. Nokkuð
hefur borið á þvf, að sömu menn
hafi verið teknir oftar en einu
sinni. Skyndiskoðun bifreiða
hefur leitt í ljós, að ástand öku-
tækja er yfirleitt gott, nema hvað
Ijósaútbúnaður bifreiða er oft í
ólagi. Eftirlit með umferðarljós-
um hefur sýnt, að brögð eru að
því að ökumenn virði ekki settar
reglur, og tugir ökumanna hafa
verið staðnir að því að aka á
rauðu ljósi
Þá hefur verið rækilega fylgst
V
Matthfas Johannessen ritstjóri
Morgunblaðinu
Reykjavík, 13. september 1974.
Kæri Matthfas.
Þar eð þjóðhátíðarárið leggur
væntanlega okkur öllum sérstak-
ar skyldur á herðar gagnvart
fornkveðnum heilræðum, tel ég
nauðsynlegt að leiðrétta rang-
hermi Mbl„ um útvarpsráð, sem
birtist á baksíðu blaðsins sl. mið-
vikudag. Allir skulum við heldur
það hafa, sem sannara reynist.
Á fundi útvarpsráðs sl. mánu-
dag var formaöur ráðsins ekki
víttur. Fjórir ráðsmenn létu hins
vegar f ljósi þá skoðun, að ekki
hefði verið rétt af formanni að
láta hafa eftir sér í fjölmiðlum
efnisdóm um framkvæmdina á
upptöku Lénharðs fógeta á meðan
rannsókn málsins færi fram inn-
an Ríkisútvarpsins. Þegar Jón
Þórarinsson dagskrárstjóri krafð-
ist þess, að útvarpsráð fordæmdi
ummæli formanns með sérstakri
samþykkt, taldi Njörður P. Njarð-
vík rétt að víkja af fundi, til þess
að menn gætu óhikað rætt kröfu
Jóns Þórarinssonar. Sýndi for-
maður með því sjálfsagða kurteisi
og eölilega lýðræðislega fram-
komu. Fól hann undirrituðum að
stjórna fundinum. Utvarpsráð
komst hins vegar að þeirri niður-
stöðu, að ekki væri tilefni til sér-
stakrar samþykktar, heldur gætu
ráðsmenn, sem og oft áður í öðr-
um tilfellum, látið bóka skoðun
sína. Var skoðun fjórmenning-
anna sfðan bókuð. Engar vítur
voru samþykktar. Frétt Mbl. um
þær og brotthlaup formanns út-
varpsráðs vegna þeirra af fundi
er því röng.
Ég vona svo, að þú sért búinn að
ná þér eftir allt þjóðhátíðarst'and-
Framhald á bls. 14
með því að ökumenn virði rétt
gangandi vegfarenda við gang-
brautir, og að mati Öskars Ólason-
ar þyrfti næsta skref að verða
stóraukið eftirlit með hegðun
gangandi vegfarenda í umferð-
inni og beiting sekta ef útaf er
brugðið. „Ég er mjög ánægður
með viðbörgð ökumanna og
annarra vegfarenda á sfðustu dög-
um og vona að árekstra- og slysa-
tíðni eigi enn eftir að lækka. Við
munum halda áfram okkar eftir-
liti,“ sagði Óskar Ólason að lok-
um.
Fasteignamarkaðurinn:
Mikið
framboð
MIKLAR kostnaðarhækkanir á
efni til byggingariðnaðarins hafa
orðið til þess að mjög erfitt er að
selja nýbyggingar. Hins vegar er
eftirspurn eftir notuðum fbúðum
með bezta móti, enda segja fast-
eignasalar að hagstætt verð sé á
þeim um þessar mundir og út-
borgunarskilmálar eru nú rýmri
en oft áður.
I samtali við Morgunblaðið í
gær, sagði Ragnar Tómasson hjá
Fasteignaþjónustunni, að í stór-
um dráttum mætti segja um fast-
eignamarkaðinn nú, að framboð
væri þar meira en hann myndi
eftir nokkur undanfarin ár. Sala
hefði verið betri nú seinni part
sumars en hann hefði átt að venj-
ast, en hún hefði verið mjög treg í
vor og fyrripart sumars.
Ragnar sagði, að verðlag eldri
fasteigna hreyfðist hægt og væri
orðið það lágt, þrátt fyrir gffur-
legar hækkanir síðustu tvö árin,
að ekki væri óvarlegt að staðhæfa
að það væri nú um 20% undir
eðlilegu markaðsverði með tilliti
til venjulegs hlutfalls milli verða
á nýsmíðuðum íbúðum og notuð-
um íbúðum. Taldi Ragnar, að
byggingarmeistarar sem nú stæðu
í húsbyggingum fyrir hinn frjálsa
markað mættu halda vel á spöð-
unum til að sleppa sléttir út.
Ragnar sagði ennfremur, að út-
borgunarkjör væru nú orðin
rýmri fyrir kaupendur en verið
hefði undanfarið.
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Arna Grétar Finnsson
fasteignasala í Hafnarfirði og
hafði hann svipaða sögu að segja.
Framhald á bls. 14