Morgunblaðið - 14.09.1974, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1974
Fa
/T llí l . l I .IK. t V
4 LUR?
220-22*
RAUOARÁRSTIG 31
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
MIKIÐ SKAL
TIL
t SAMVINNUBANKINN
Ferðabílar hf.
Bílaleiga S 81260
5 manna Citroen G.S. fólks- og
stationbilar 1 1 manna Chevrolet
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðarbilar (með bilstjórn).
«im|A
■Tilboð-
AKIÐ NÝJA
W HRINGVEGINN
Á SÉRSTOKU .
■ AFSLÁTTARVERÐI ■
Shodh
ICIGAH
CAR RENTAL
AUÐBREKKU 44, KÖPAV.
4-2600
■4
SNOGHOJ
Nordisk folkehejskole
(v/Litlabeltisbrúna)
6. mán námskeið
frá 1 / 1 1
Sendið eftir bæklingi
DK 7000 Fredericia,
Danmark,
sími 05-952219.
Þrístirni
og litprentun
Hin litríka og byltingarsinn-
aða hugsjónabarátta Alþýðu-
bandalagsins rfður alls ekki við
einteyming á sfðum Þjóðvilj-
ans sl. fimmtudag. Blaðið birtir
frásögn af umræðum á Alþingi
um samkomudag Alþingis f
haust. Frásögnin ber litprent-
aða (rauða) yfirskrift um
þvera sfðu og hana prýða mynd-
ir af þrfstirni úr þingliðinu,
sem til er vitnað, Ragnari Arn-
alds, Magnúsi Kjartanssyni og
Svövu Jakobsdóttur.
Grein þessi er dæmigerð fyr-
ir skrif Þjóðviljans og mál-
flutning Alþýðubandalagsins á
sumarþinginu. Þar er fimbul-
fambað um 3ja vikna frestun á
samkomudegi reglulegs
Alþingis, og sú mikla uppgötv-
un gerð, að „Alþýðubandalagið
var eitt flokka f fullri andstöðu
við þessa frestun á samkomu-
degi þingsins...“ Þessu er sleg-
ið upp eins og sérstöku þing-
afreki, sem teljist til meirihátt-
ar sigurs f marx-lenfniskri bar-
áttu og róttækni.
„Tilræði við
þingræðið”, sem
ekki átti að
„tefja formlega.”
ryrsta atriði þessarar leik-
rænu frásagnar er að sjálf-
sögðu svipmynd af hófsömum
andróðri Magnúsar Kjartans-
sonar, sem Þjóðviljinn lýs-
ir svo: „Magnús kvaðst telja
það fráleitt að fresta sam-
komudegi Alþingis um 3
vikur!“ Þá veit maður það.
Svava Jakobsdóttir er mun
herskárri f afstöðu sinni
til þessa mikilvæga máls.
„Við Alþýðubandalagsmenn er-
um andvfgir þessu á þeim for-
sendum, að við teljum þetta
tilræði við þingræðið...“, segir
valkyrjan.
Og enn heldur Þjóðviljinn
áfram: „Ragnar (Arnalds)
lýsti þvf sfðan yfir, að Alþýðu-
bandalagið myndi ekki tefja
formlega framgang frumvarps-
ins um frestun á samkomudegi
Alþingis, en Alþýðubandalagið
myndi greiða atkvæði gegn
frestuninni sem slfkri.“ Þar
með eru upptalin efnisatriði
þessarar frásagnar Þjóðviljans
af frábærri frammistöðu hetju-
tenóra Alþýðubandalagsins á
Alþingi tslendinga.
Nauðsynlegur
un dirbúningstí m i
Fáir munu telja það umtals-
vert og þaðan af sfður óeðlilegt,
þó að ný rfkisstjórn taki sér
fárrra vikna umþóttunar- og
starfstfma til að móta afstöðu
sfna til margbrotinna efnahags-
legra vandamála, sem við var
tekið og við þarf að glfma. Þá er
ekki sfður skiljanlegt, að nokk-
urn tfma þurfi til að móta
frambúðarstefnu f ýmsum
málaflokkum, sem óhjákvæmi-
lega verða á verkefnaskrá
næsta reglulegs þings.
Alþýðubandalagið, sem stóð
með þingrofinu í vor, er þing-
menn voru sendir heim, hver á
sfna sveit, með sögulegum og
sérstæðum hætti, fellur sem sé
illa inn f það andófshlutverk,
sem það kemur nú fram f, jafn-
vel þótt alþjóð viti, að hér sé
um lftilsiglt sjónarspil að ræða
af þess hálfu.
Grjót úr glerhúsi
Eitt höfuðviðfangsefnið, sem
rfkisstjórninþurfti að skapa sér
tfma til að sinna voru viðræður
við launþegasamtökin. Efna-
hagsaðgerðir, sem voru bein af-
leiðing vangetu fráfarandi
stjórnar, hlutu að skerða hag
allra starfsstétta þjóðfélagsins
um sinn. Rfkisstjórnin boðaði
hliðarráðstafanir, til að létta
birgðar þeirra, sem sfzt gátu
mætt afleiðingum óstjórnar-
innar. Viðræður við launþega-
samtökin þóttu sjálfsagður
undanfari ákvarðana f þvf efni.
— Engu að sfður var opinskátt
rætt um hugsanlegar leiðir f
þessu efni, sem velja þyrfti á
milli, eða samræma, f samráði
við launþegasamtökin: lág-
launabætur, hliðstæðar hækk-
'anir tryggingarbóta, niður-
greiðslur nauðsynjavara og
jafnvel skattívilnanir.
En að dómi Alþýðubanda-
lagsins var sá tfmi, sem rfkis-
stjórnin tók sér f þessum tvf-
þætta tilgangi, með fullu sam-
þykki meirihlut^ Alþingis,
„fráleitt athæfi" og „tilræði við
þingræðið." Þannig er stundum
grjóti kastað úr gierhúsi.
r
SJONVARPSDA GSKRA
mAnudagur
16. september 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Frá hafréttarráðstefn-
unni f Karakas
Fyrsti fréttaþátturinn af
þremur með viðtölum við
fulltrúa ýmissa þjóða á ráð-
stefnunni.
Umsjónarmaður Kiður
Guðnason.
21.05 Maðurinn á bátnum
Sænskt lcikrit eftir Per Olaf
Enquist.
Leikstjóri Inge Roos.
Aðalhlutverk Krister Hell,
Johan Hell, Ernst Wellton og
Göran Eriksson.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
t leiknum rifjar fullorðinn
maður upp hálfgleymdan at-
burð frá bernskuárum
sfnum. Hann er að leik ásamt
vini sfnum. Þeir búa til fleka
og sigla honum til eyjar
skammt undan landi.
En á heimleiðinni gerist
hræðilegur og óskiljanlegur
atburður.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
21.50 Albanfa
Frönsk fræðslumynd um
land og þjóð.
í myndinni er lýst stjórnar-
háttum, atvinnulffi og lífs-
kjörum, og rætt er við
nokkra Albani um þjóðfé-
lagsmál.
Þýðandi og þulur Oskar Ingi-
marsson.
22.50 Dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR
17. september 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Bændurnir
Pólsk framhaldsmynd, byggð
á sögu eftir Wladislaw Ray-
mont.
9. þáttur. Páskar
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
Efni áttunda þáttar:
Eftir átökin f skóginum eru
flestir karlmenn f þorpinu
hnepptir f varðhald. Liðið er
fast að páskum, og flest
bendir til, að konurnar verði
einar að sjá um öll hátfða-
höldin, sem þeim fylgja.
Boryna gamli er stöðugt rúm-
fastur, og Jagna, kona hans,
verður að þola strfðni Hönku,
konu Anteks, sem ein allra
veit hvar gamli maðurinn
hefur fólgið fé sitt.
21.30 Olfan
Norsk fræðslumynd um olfu-
lindir við Noregsstrendur og
áhrif þau, sem væntanleg
olfuvinnsla hlýtur óhjá-
kvæmilega að hafa á þjóðfé-
lagið.
Þýðandi og þulur Ellert Sig-
urbjörnsson.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
22.00 Enska knattspyrnan
22.55 Dagskrárlok
MIÐVIKUDAGUR
18. september 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Nýjasta tækni og vfsindi
Tæknitungl ATS 6
Lungnaþemba og reykingar
Haglrannsóknir
Atlantshafslaxinn
Umsjónarmaður Örnólfur
Thorlacius.
21.05 Frá hafréttarráðstefn-
unni f Karakas
Annar þáttur.
Umsjónarmaður Eiður
Guðnason.
21.25 Upp koma svik . . .
(So Well Remembered)
Bandarfsk bfómynd frá árinu
1947, byggð á skáldsögu eftir
James Hilton.
Aðalhlutverk John Mills og
Trevor Howard.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
Myndin gerist á árunum 1919
til 1945. Aðalpersónan,
George Boswell, er ungur
hugsjónamaður. Hann bfður
sig fram til þings, en missir
áhugann og snýr sér að
mannúðarmálum f heimabæ
sfnum. Konu hans mislfkar
þessi ráðabreytni og segir
skilið við hann. Og löngu sfð-
ar, þegar ný kynslóð er vaxin
úr grasi, gerast atburðir, sem
verða tii þess, að hann tekur
að rifja upp minningar frá
fyrri árum.
23.05 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
20. september 1974
20.00 Fréttir
20.25 Vcður og auglýsingar
20.35 Frá hafréttarráðstefn-
unni f Karakas
Þriðji og sfðasti þáttur.
Umsjónarmaður Eiður
Guðnason.
21.00 Kapp með forsjá
Breskur sakamálamynda-
flokkur.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.55 Portúgal
Nýleg, norsk fræðslumynd
um ástand og horfur í portú-
gölskum stjórnmálum eftir
vaidatöku hersins.
Þýðandi Dóra Diego.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
22.20 Iþróttir
Meðal annars myndir frá
Evrópumótum f sundi og
frjálsum fþróttum.
Umsjónarmaður Ómar Ragn-
arsson.
23.10 Dagskrárlok
LAUGARDAGUR
21. september 1974
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Fornleifauppgröftur í
Kfna
Fræðslumynd frá Kfnverska
sendiráðinu.
Þýðandi Þórhallur Guttorms-
son.
Þulur Gylfi Pálsson.
21.05 Gestir hjá Dick Cavett
Flokkur bandarfskra viðtals-
þátta þar sem Dick Cavett
tekur tali frægt iistafólk og
kvikmyndaleikara. Gestur
hans f þessum þætti er hinn
kunni leikari og leikstjóri
Orson Welles.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
22.05 Ævintýri Earnies
(The Man from Diners’Club)
Bandarfsk gamanmynd frá
árinu 1963, byggð á sögu eftir
Blatty og John Fenton
Murray.
Leikstjóri Frank Tashlin.
Aðalhlutvcrk Danny Kaye,
Cara Williams og Martha
Hyer.
Þýðandi Heba Júlfusdóttir.
Aðalpersónan, Earnie,
vinnur við nýskráningu fé-
laga, sem fengið hafa inn-
göngu f velmetinn og virðu-
legan klúbb. Öll er þessi
skráning unnin með vélum
og tölvum, sem gera vesa-
Iings Ernie ruglaðan f rfm-
inu. Hann reynir þó að
þrauka f starfinu, til þess að
bregðast ekki trausti Lucy,
vinkonu sinnar. En dag nokk-
urn gerir hann afleita
skyssu, sem veldur miklum
vandræðum.
23.35 Dagskrárlok
Messur á morgun
Dómkirkjan
Biskup landsins vígir kl. 11 árd.
stud. theol. Jon Dalbo Hró-
bjartsson til stúdentaprests.
Séra Jóhann Hlíðar lýsir vígslu.
Vígsluvottar auk hans eru sr.
Guðmundur Öli Ólafsson, sr.
Lárus Halldórsson og sr. Jónas
Gíslason. Sr. Þórir Stephensen
þjónar fyrir altari og hinn ný-
vígði prestur prédikar.
Langholtsprestakall
Guðsþjónusta kl. 11 árd. Sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson.
Bústaðakirkja
Guðsþjónusta kl. 11 árd. Sr.
Ólafur Skúlason.
Grensássókn
Guðsþjónusta kl. 11 árd. í
safnaðarheimilinu. Sr. Halldór
S. Gröndal.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 14. Fél. fyrrv.
sóknarpresta.
Kapella
St. Jósefsspftalans Landakoti
Lágmessa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Lágmessa kl. 2 síðd.
Háteigskirkja
Messa kl. 2 síðd. Sr. Arngrímur
Jónsson.
Arbæjarprestakal!
Messa í Árbæjarkirkju kl. 11.
Minnst 11 alda sambýlis hús-
dýra við manninn. Séra Guð-
mundur Þorsteinsson.
Lágafellskirkja
Messa kl. 2 síðd. Sr. Bjarni
Sigurðsson.
Kirkjuvogskirkja
Messa kl. 2 síðd. Sr. Jón Arni
Sigurðsson.
Kálfatjarnarsókn
Helgistund í Brunnastaðaskóla
kl. 2. Skólasetning. Sr. Bragi
Friðriksson.
Breiðholtsprestakall
Messa kl. 2 síðd. Sr. Ingólfur
Guðmundsson messar. Sóknar-
presturinn.
Hallgrfmskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. — Guð
blessaði dýrin. Dr. Jakob Jóns-
son.
Kópavogskirkja
Messa kl. 11. Sr. Árni Pálsson.
Hafnarf jarðarkirkja
Messa kl. 2 síðd. Sr. Garðar
Þorsteinsson.
Stokkseyrarkirkja
Messa kl. 2 síðd. Sr. Þórir
Stephensen dómkirkjuprestur
prédikar. Sóknarprestur.