Morgunblaðið - 14.09.1974, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1974
15
100 manns á lands-
fundi bókavarða
LANDSFUNDUR Bókavarða-
félags Islands var settur I gær-
kvöldi f Lögbergi, húsi lagadeild-
ar háskólans. 1 tengslum við
landsfundinn hefur verið sett upp
sýning um bókasafnsbyggingar.
Albert Guðmundsson, 1. varafor-
seti borgarstjórnar Reykjavíkur,
setti fundinn og Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamálaráð-
herra, flutti ávarp.
Margt er á dagskrá fundarins,
sem stendur fram á sunnudag. 1
dag flytja bókafulltrúi rfkisins og
landsbókavörður yfirlitserindi
um safnþróunina sl. tvö ár. Þá
flytja þeir Bjarni Vilhjálmsson,
þjóðskjalavörður, Grímur M.
Helgason, forstöðumaður hand-
ritadeildar Landsbókasafnsins, og
ögmundur Helgason frá Héraðs-
skjalasafni Skagafjarðar erindi
um skjala- og handritasöfn.
Þá verða umræður um hag
almenningsbókasafna, en hann
mun vera mjög bágborinn.
Á morgun verður fjallað um
rannsóknarbókasöfn. Haraldur
Sigurðsson, bókavörður í Lands-
bókasafni, ræðir um kort, skrán-
ingu þeirra og umbúnað og Þórir
Ragnarsson og Einar Sigurðsson,
bókaverðir f Háskólabókasafni,
fjalla um samskrá um erlend
timarit og samvinnu íslenzkra
rannsóknarbókasafna. Þá flytur
Súsanna Bury, kennari f bóka-
safnsfræðum erindi um þjálfun
og menntun bókavarða.
Á sunnudag er þáttur um bóka-
söfn og skóla og hinn aukna þátt,
sem bókasöfn eiga í skólastarfinu
samkvæmt grunnskólalögunum.
Framsögu um þetta efni hafa Sig-
rún Klara Hannesdóttur, skóla-
bókafulltrúi, dr. Maggi Jónsson,
arkitekt, og Guðmundur Magnús-
son, skólastjóri. Þá flytur Elfa
Björg Gunnarsdóttir, bókavörður
í borgarbókasafninu, erindi um
bókaþjónustu við aldraða og aðra,
sem ekki eiga þess kost að fara
sjálfir á bókasöfn.
Um eitt hundrað manns sitja
landsfundinn.
Þær virðast ánægðar yf-
ir að hittast aftur þessar
leikkonur Þjóðleikhúss-
ins við upphaf nýs leik-
árs. 30 leikarar eru nú
fastráðnir við leikhúsið,
en alls eru leikarar að
jafnaði um 50.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Hefur heilsu
Chou hrakað?
Tókfó, Hong Kong,
12. sept. AP.
ERLENDIR sendiráðsstarfsmenn
í Peking hafa látið hafa eftir sér,
að líðan Chou-en Lais, forsætis-
ráðherra Kína hafi enn versnað
og langtséí, aðhanngeti gegnt
störfum sínum á ný. Aftur á móti
er lögð áherzla á það af opinber-
um aðilum, að þeir, sem hafa tek-
ið við störfum hans, gegni þeim
aðeins til bráðabirgða og hann
taki síðan til óspilltra málanna
jafnskjótt og heilsa hans leyfi.
Maðurinn minn drekkur mikið og spilar f járhættuspil, en
hann segist vera kristinn. Eg sé ekki, hvernig hann getur
hegðað sér svona og samt trúað þvf, að hann sé kristinn.
Við verðum að gera greinarmun á því að segjast
vera kristinn og að vera kristinn í raun og veru. Líf
sannkristins manns vitnar um sig sjálft. Jafnvel lítið
barn getur bent á lifandi, helgaðan mann, sem er
„allur“ Krists.
Ein ástæðan til þess, að svo fáir veita kristindómn-
um viðtöku er sú, að þeir, sem játa að þeir séu
lærisveinar Krists, eru svo léleg „dæmi“. Ég veit um
mann, sem var spurður, hvort hann væri kristinn.
Hann svaraði: „Á pörtum“. Ég óttast, að margir
okkar séu ekki kristnir á öllum sviðum lífsins. Þetta
ætti að vera öllum fylgjendum Krists hvatning til
þess að helga sig honum algjörlega. Við erum Biblí-
an, sem heimurinn les. Við erum játningin, sem
heimurinn þarfnast. Við erum predikanirnar, sem
heimurinn veitir athygli. Biblían segir: „Sá, sem
segist vera stöðugur í honum, honum ber sjálfum að
breyta eins og hann breytti." (Jóh. 2,6).
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
EDWARD P.
SVENDSEN,
Lindarbrekku, Vogum,
andaðist 1 1 sept.
Margrét Ólafsdóttir
og synir.
f
Þökkum innilega öllum þeim, er
sýndu okkur vinsemd og hlýhug
við andlát og útför móður okkar,
SÚSÖNNU MARÍU
MATTHÍASDÓTTUR
Túngötu 15,
ísafirði.
Sigmundur Jónsson,
Matthías Jónsson,
Jón Jónsson,
SigurSur Jónsson.
Konan min,
SOFFfA LILLIENDAHL
andaðist á Hrafnistu, föstudaginn 1 3. september.
Björn Grímsson.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINGRÍMUR PÁLSSON.
Selvogsgrunni 3,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju mánudaginn 1 6. september kl.
1.30.
Kristfn Jónsdóttir.
Ólöf Steingrímsdóttir,
Bjarni Steingrímsson, Erla Kristjínsdóttir,
Ragnhildur Sóley Steingrlmsd. Hjálmar Bjarnason
og barnaböm.
Dulræna
vísindahandbókin
Nýlega var þess getið í Mbl., að
Sigurður Eyþórsson hefði gefið út
bók, sem nefnist Dulræna vís-
indahandbókin, en í fréttinni mis-
ritaðist heiti bókarinnar. 1 bók-
inni eru 26 ljósmyndir, en á hægri
slðu I hverri opnu bókarinnar
stendur þessi setning: „er sálin
dauðleg sálin er dauðleg". A
vinstri síðu stendur þetta: „er sál-
in ódauðleg sálin er ódauðleg".
Bókin er gefin út 1150 eintökum á
kostnað höfundar.
Afmælis-
og minn-
ingar-
greinar...
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á I
miðvikudagsblaði, að berast f
sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera f sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þa*r
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu Ifnubili.
Kynþáttaóeirðir í Boston
Boston 12. sept. AP
ÞUSUNDIR hvftra barna mættu
ekki f skóia f Boston f dag, eftir að
skólar þar tóku tii starfa sam-
kvæmt nýjum iögum, þar sem
bann er Iagt við öllu kynþáttamis-
rétti f skólunum. Eitt hundrað
svertingjar komu f skólavögnum
að einum skólanna og var þá sam-
ankominn hópur manna, senni-
lega um fimm hundruð manns, og
gerðu þeir aðsúg að svertingjun-
um, köstuðu trjábútum að skóla-
vagninum og höfðu f frammi hið
versta orðbragð.
Nokkrir hafa verið handteknir
vegna óeirðanna og frá einum
skóla er þá sögu að segja, að af
600 nemendum hvítum, sem sótt
höfðu um inngöngu í skólann,
mættu aðeins fimm f dag. Hefur
lögregluvörður verið við nánast
alla skóla f borginni í dag og virð-
ist mikil ólga vera meðal hvftra
nemenda. Segjast þeir ekki sækja
skóla með svertingjum, enda hafi
þeir sfna skóla og geti verið þar
eins og áður. Lögregla segir, að
það megi öllum vera ljóst, að for-
eldrar viðkomandi hvftra skóla-
barna beri aðalábyrgðina, þvf að f
Sinatra fyrir rétti
Los Angeles 12. sept. NTB.
FRANK Sinatra, bandarfski
dægurlagasöngvarinn, á enn f úti-
stöðum við fulltrúa réttvfsinnar.
Lögð hefur verið fram kæra á
hendur honum og verði hann
dæmdur sekur kann svo að fara,
að hann verði að reiða fram allt
að 2.5 milljónir dollara fyrir
víkið.
Það er Frank nokkur Wein-
stock forstjóri, sem kærir Sinatra
og sagði hann f upphafi réttar-
halda í dag, að þrír af lífvörðum
Sinatra hefðu slegið sig í rot, eftir
að hann hefði tekið fálega tilraun-
um Sinatra til að gerast nærgöng-
ull við eiginkonu hans. Gerðist
þetta á gistihúsi í Kalifornfu í
fyrra.
Verjandi Sinatra viðurkenndi,
að einn af vinum Sinatra hefði
slegið til Weinstocks, en stað-
hæfði, að forstjórinn hefði byrjað
að abbast upp á söngvarann og að
vinir hans hefðu móðgað eina af
stúlkum þeim, sem voru f fylgdar-
liði söngvarans.
Mikið ber á milli í framburði og
er fylgzt af athygli með yfir-
heyrslum, segir í fréttaskeyti
NTB-f réttastof unnar.
BlfREIDAEFTIRIIT RlKISINS
LJÖJAJKOÐUN
1974
mjög mörgum tilvikum sé vitað
til, að þeir hafi harðbannað börn-
um sínum að fara f skólana, eftir
að nýja löggjöfin var samþykkt.
Fórust á
Everest
Katmandu, Nepal,
12. september. AP.
FORINGI leiðangurs franskra
f jallgöngumanna, Gerard Devous-
soux, og fimm innfæddir leið-
sögumenn grófust undir skriðu,
sem sópaði burtu tveimur tjald-
búðum og neyddi leiðangusmenn
til þess að hætta við tilraun til að
Klffa Mount Everst, að þvf er ut-
anrfkísráðuneytið f Nepal til-
kynnti f dag.
Skriðan féll tveimur dögum eft-
ir að Frakkarnir höfðu slegið upp
tjöldum í 6.900 metra hæð í þriðja
áfanga leiðangurs þeirra upp á
tindinn, sem er 8.500 metra hár.
Ákveðið var að hætta við tilraun-
ina, og þeir níu Frakkar, sem
voru f leiðangrinum með Devous-
soux, munu snúa aftur til Kat-
mandu.
--------------
Eldur
í lysti-
skipi
Key West, 12. september. AP.
ELDUR kom upp f lystiskipinu
Gunard Ambassador á
Mexfkóflóa f dag og flestir af 309
manna áhöfn skipsins fóru f
björgunarbátana. Skip, sem komu
til aðstoðar, björguðu þeim úr
sjónum.
Vélarúmið stóð í björtu báli í
kvöld, en að sögn talsmanns
bandarísku strandgæzlunnar í
Miami tókst að hefta útbreiðslu
eldsins. Þó var talin hætta á
sprengingu.
52 valdir menn af áhöfninni
berjast við eldinn undir stjórn
skipstjórans og með aðstoð
þriggja lítilla skipa strandgæzl-
unnar.
Farþegar voru ekki i skipinu,
þegar eldurinn kom upp og engan
af áhöfninni virðist hafa sakað.