Morgunblaðið - 14.09.1974, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.09.1974, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1974 OPIÐ I KVÖLD ! Dansað til kl. 2.00 Matur framreiddur frá kl. 19.00 Borðapantanir frá kl. 16.00 í síma: 52502 Borðum eigi haldið lengur en til kl. 21.00 Veitingahúsid r SKIPHOLL Strandgötu 1 ■ Hafnarfirði • ® 52502 STJÖRNUBÍÓ MACBETH BEST PICTURE OFTHE YEAR! —National Board ot Review Heimsfræg ný ensk-amerísk verðlaunakvikmynd. Leikstjóri Roman Polanski. Aðalhlutverk: Jon Finch, Francesca Annis. Sýnd í dag og morgun Sýnd kl. 4, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. — Afmæli Framhald af bls. 10 inn, sem hann risti ofan af við fjárhús sín i Lágu Kotey, eða áveitugarðana, sem hann hlóð þar. Víðáttan var ekki mikil, en nóg til þess að sanna að með rækt- un mætti margfalda ávöxt jarðar ekki sfður í Meðallandinu en í öðrum sveitum. Einar frá Kotey er í hópi hinna mörgu öldruðu Islendinga, sem veitt hefur at- hygli margþættri byltingu í lífi þjóðarinnar, efnislega og andlega, og kann vissulega að meta þær, sem til heilla eru. Innan ung- mennafélaganna var rætt um þörf breytinga, en möguleikarnir til framkvæmda fjarlægari en svo að menn eygðu leiðir að settu marki. Á þesssu sólbjarta sumri, sem nú er tekið að halla, hefur Einar upplifað þann merka atburð að aka í bíl til Hornafjarðar. Þetta þykir eflaust áður en varir ofur hversdagslegur atburður, vart þess virði að á hann sé minnst. En í vitund aldraðra borinna og barn- fæddra Skaftfellinga, sem um langan aldur þráðu það heitast að sigra vötnin miklu, sem aðskildu sýslurnar og eiga samskipti við sýslunga sína austan vatna, rætt- ist þarna draumur sem þeir öðr- um fremur kunna að meta og þakka, — meta að verðleikum það verk sem þarna var unnið af hugkvæmni og snilld. Fáum mín- útum eftir að brúin yfir Skeiðará var formlega opnuð til umferðar á vígsludegi, 14. júlí s.l. ók ég eftir brúnni. A undan okkur gekk hæg- Ungó — Ungó STUÐDANSLEIKUR Það verður hasa show í Ungó með hljómsveitinni Brimkló (ath. að enginn þarf að taka með sér píu), því það eru sætaferðir frá B.S.Í. klukkan hálf tíu. PELICM GRUVI SVEITADANSLEIKUR að Félagsgarði í Kjós í kvöld, með PELICAN (þeirsem lesið hafa blaðaummælin síðustu •daga og hlustað á plótuna „Uppteknir" vita að ballið er pottþétt Enginn er svikinn af sætaferðunum frá BSI og frá Akranesi AÐDÁENDUR BEST IN THE WEST IN FEST Það eru tvær svimandi grúppur, sem halda þrælgóðu stuði í mannskapnum í kvöld (músik fyrir alla) önnur heitir HAFRÓT (sjá mynd) en hin CLEÓPATRA (hinir hressu sveinar úr Keflavíkinni). EKKERT Live Show milli kl. 10.00 og 02.00, en sætaferðir frá BSÍ fyrir þá sem vilja fara í Kjósina og styrkja Áma, því þar eru Pelican og Parker. Innanhússíminn er kominn í lag og hægt að ná sambandi um allt hús. Mikið var. Hóbi my friend, how is the veila in your heila? Aldrei sá ég neina mús í Úngó á laugardaginn. Verzlingar, nú er skólinn byrjaður og um að gera að skvetta úr klaufinni í tilefni dagsins. Bannað að slást við dyraverðina, því þeir eru í nýjum jökkum. Tommi. FÉLAGSHEIMILIÐ FESTI Grindovík um skrefum gjörfulega vaxinn maður, nokkuð lotinn, en bros lék um andlit hans. Húfuna bar hann undir handlegg sér. Ekki veit ég um nafn þessa manns, en svipmót hans gaf til kynna að áður hafi hann átt erfiðari kynni af Skeið- ará en nú er hann gekk þurrum fótum yfir hana á þessum sól- bjarta degi. Skaftfellingar fögnuðu þessum degi, — og ég veit að Einar tók þátt í honum, því að svo rík ítök á allt það í honum, sem Skaftafells- þingi má til bóta verða. Einar Sigurfinnsson er enn barn sveitarinnar, þótt langt sé síðan hann bjó f sveit eða að hann vann hjá Landssímanum í Vest- mannaeyjum. Enn ræðir hann um það sem til framtíðarheilla má verða í lffi einstaklingsins og þjóðar — og enn sem fyrr má hann ekki vamm sitt vita í orði eða verki. Einar er tvíkvæntur. Fyrri kona hans, Gíslrún Sigurbergs- ddttir, dó á nýársdag 1913, en þau bjuggu þá á Efri-Steinsmýri í Meðallandi. Tvo sonu áttu þau: Dr. Sigurbjörn núverandi biskup Islands, kvæntur er hann Magneu Þorkelsdóttur. Þau eiga 8 börn. Sigurfinn, verkstjóra í Hvera- gerði. Hann er kvæntur Önnu Sig- urðardóttur. Eiga þau 3 börn. Síðari kona Einars er Ragnhild- ur Guðmundsdóttir. Eiga þau einn son, Guðmund, garðyrkju- bónda í Hveragerði. Kvæntur er hann Sigfríði Valdimarsdóttur. Þau eiga 6 börn. I dag verður Einar á heimili Guðmundar og Sigfríðar að Varmahlíð 20 og tekur þar á móti vinum sínum og f jölskyldunnar. Ctaldir eru þeir vinir Einars frá Kotey og fjölskyldu hans, sem þakka honum fyrir kynni liðinna ára, gleðjast yfir þeim áfanga, sem honum er gefinn til að staldra við og Ifta til baka um farinn veg. Einari kynnin allt frá bernsku minni, er ég naut næstum dag- legrar samfylgdar hans og sona hans í góðu nágrenni, um leið og ég árna honum og f jölskyldu hans allrar blessunar. Ingim. Ölafsson. Mývatnssveit: Fjöllin komin með hvítu hettuna Björk, Mývatnssveit 12. sept. HÉR HEFUR verið fremur óstöðug tíð að undanförnu, tvær síðustu nætur gerði frost. Náttúran er farin að skarta sfnum fjölbreyttu haustlitum og fjöllin hafa dregið upp sfna hvítu hettu. Margir telja, að sumarið hafi verið fremur skúrasamt, þegar á allt er litið, norðlægar áttir og oft tafsamt við heyskap. Allt hefur þó bjargast vel, og má þar þakka hinum nýju hjálpartækjum, sem flestir bændur eru nú búnir að fá sér. Göngur eru hafnar, og í gær var farið i Suðurafrétt. Réttað verður í Baldursheimsrétt á laugardag. Þann dag hefjast göngur í Austurafrétt og rétt- að verður í Reykjahlíðarrétt 17. þ.m. Óhemjumargt fé er komið í heimahagana og eru grös því farin að sölna fyrr venju á heiðum, en það er eðli- legt miðað við snemmbæran gróður f vor. — Kristján. Dæmdur til dauða Atlanta, Georgíu, 12. september. AP. MARCUS Wayne Chenault var í dag dæmdur til að láta lífið í rafmagnsstólnum fyrir að myrða frú Martin Luther King, móður blökkumannaleiðtogans og djákna einn í kirkju f Atlanta í júní.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.