Morgunblaðið - 14.09.1974, Síða 17

Morgunblaðið - 14.09.1974, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1974 17 fclk í fréttum EFTIR Þessi 16 ára danska stúlka, Solveig Thomasen, hafði veriö sköllótt frá fæðingu. Það hafði faðir hennar einnig verið, og virtist þetta vera arfgengt. Sol- veig hafði gengið til ýmissa sér- fræðinga, en ekki gátu þeir fengið hárið til að spretta. Virt- ist þvf svo sem Solveig yrði að bera hárkollu alla ævi. En að lokum var hún send til Erik O. Lauridsen, hárskerameistara, scm undanfarið hefur sagzt geta framkallað hárvöxt hjá sköllóttu fólki með sérstakri aðferð, sem nefnist OGI-kúr. Um þennan kúr veit ritstjórn Fólks f fréttum þvf miður ekki neitt, en hann bar þann árang- ur, sem myndirnar sýna. Hann kom f Ijós, eftir að Solveig hafði verið á honum f eitt ár. Soffía fertug og fjörug Hér sést Sofia Loren, leik- kona og þokkadís, með fjöl- skyldu sinni, Carlo Ponti eigin- manni og sonum þeirra á af- mælisdaginn. Hún var að verða fertug. Hún kvaðst f afmælis- yfirlýsingu stefna að þvf að lifa jafnlffvænlega næstu fjörutfu ár og hingað til. . . ■ ” ' 'jy „!(• 'V’" .• -r 4 ! 11 KSNRHHhBHI Baunsgaard „púttar” pent Hilmar Baunsgaard, fyrrum forsætisráðherra Dana, er enn að vasast í stjórnmálunum. En til þess að slappa af frá amstrinu og þrasinu á Baunsgaard sér tvö áhugamál í frístund- unum, — garðyrkju o golf. Hér sjáum V iO Baunsgaard í ham annars vegar einbeittan að miða út síðasta höggið, hins vegar „púttar“ eins og það er víst kallað á fagmáli. FYRIR - Útvarp Reykfavík 0 LAUGARDAGUR 14. september 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Guð- rfður Guðbjörnsdóttir heldur áfram lestri sögunnar „Fagra Rlakks" eftir önnu Sewell (6). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Óskalög sjúklinga kl. 10.25: Krfstfn Sveinbjörnsdóttír kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 Franskir vfsnasöngvarar Felix Leclerc og Leo Ferré syngja. 14.00 Vikansemvar Páll Heiðar Jónsson sér um þátt með ýmsu efni. 15.00 Bikarkeppni f knattspynu Jón Asgeirsson lýsir sfðari hálfleik úr- slitaleiksins. 15.45 A ferðinni ökumaður: Arni Þór Eymundsson (16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir). 16.30 Horft um öxl og fram á við. Gfsli Helgason fjallar um útvarpsdag- skrá sfðustu viku og hinnar komandi. 17.30 Söngvar í léttum dúr. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Sjálfsþekking f fslenzkum fornrit- um Hermann Pálsson lektor flytur erindi. 20.00 Karlakór Vfnarborgar syngur þjóðlög og drykkjuvfsur. 20.30 Frá Vestur-tslendingum Ævar R. Kvaran sér um þáttinn. 21.15 Alþýðutónlist frá Rúmenfu Nicu Pourvu og hljómsveit hans leika á Pan-flautur. 21.40 „Maður, sem var ódrepandi,“ smá- saga eftir Einar Loga Einarsson. Höf- undur les. 22,00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok. Á skfánum LAUGARDAGUR 14. september 1974 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 „Grúsfudansar“. Rússneskur dans- flokkur sýnir grúsfska þjóðdansa. 20.50 Landsmót hestamanna 1974 Kvikmynd frá móti Landssambands hestamannafélaga, sem haldið var á Vindheimamelum f Skagafirði dagana 10. til 14. júlf f sumar. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 21.10 Livingstone Bresk fræðslumynd um skoska trúboð- ann og landkönnuðinn David Living- stone (1813—1873) og æviferil hans. Þýðandi Heba Júlfusdóttir. Þulur Ingi Karl Jóhannesson. 21.40 Leyndarmál konu Bandarfsk bfómynd frá árinu 1949. Leikstjóri Nicolas Ray. Aðalhlutverk Maureen O’Hara, Melvyn Douglas og Gloria Grahame. Þýðandí Sigrún Helgadóttir. Ung söngkona finnst myrt á heimili sfnu. Vinkona hennar, sem áður fyrr var kunn söngkona, en hefur orðið að draga sig f hlé af heilsufarsástæðum, játar á sig glæpinn. Kunningja þeirra beggja gengur illa að trúa þessu, og tekur hann til við að kanna málið. 23.15 Dagskrárlok. SUNNUDAGUR 15. september 1974 18.00 Meistari Jakob Brúðuleikur, fluttur af „Leikbrúðu- landinu". Þriðji og sfðasti þáttur. Aður á dagskrá vorið 1973. 0 18.15 SögurafTuktu Kanadfskur fræðslumyndaflokkur fyrir börn. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Þulur Ingi Karl Jóhannesson. 18.30 Steinaldartáningarnir Bandarfskur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir. 18.50 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.30 Bræðurnir Bresk framhaldsmynd. 10. þáttur. Lfnudans Þýðandi Jón O. Edwald. Efni 9. þáttar: Edward gerir sitt besta til að ná sam- komulagi við ökumennina, en þeir hafna öllum sáttaumleitunum. Verk- fallíð virðist munu hafa alvarlegar af- leiðingar, ef ekki verður hægt að standa við samninginn við Parker. Barbara Kingsley er ákveðin f að ferðast til Parfsar með Fox, vini sfnum, og veldur móður sinni miklum áhyggj- um með þvf. 21.20 Á bökkum Missisippis Frönsk mynd um „Blues-tónlist“ og uppruna hennar og þróun meðal bandarfskra blökkumanna. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.15 Sinn er siður f landi hverju Breskur fræðslumyndaflokkur. Sjöundi og sfðasti þáttur. Dauðinn. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 23.05 Að kvöldi dags 23.15 Dagskrárlok rrr fclk f fjclmiélum Páll Heiðar skoðar fasteignamarkaðinn 1 þætti Páls Heiðars Jónssonar, „Vikan sem var“, verður f dag fjallað um fasteignakaup. Páll ræðir þá við Ragnar Tómasson, fasteignasala, og fjallar samtalið um það hvers sé helzt að gæta fyrir þann, sem hyggst ráðast f fasteignakaup, hverjar séu skyldur fasteignasala gagnvart kaupanda og seljanda, hvernig komið verði f veg fyrir að aðrir en þinglýstir eigendur selji fasteignir o.s.frv. Páil sagði blaðaskrif um þetta efni hafa orðið kveikjuna að þvf, að hann tekur þetta mál til meðferðar f þáttum sfnum, en spjall þetta er hugsað sem fyrsti hluti smáskoðunar á fasteignasölu hér. Þá ætlar Páll að taka fyrir skrif um sjðnvarpsmálið fræga, — þáttur verður frá Briissel, þar sem rætt er við Tómas Tómasson sendiherra tslands hjá Atlantshafsbandalaginu, rætt er við Klaver flotaforingja þar, en hugleiðingu vikunnar flytur Jón Sigurðsson, skrifstofustjóri hjáMáli og menningu. 100 ár frá dánardægri Livingstones t kvöld kl. 21.10 verður sýnd sjónvarpsmynd um David Living- stone, hinn fræga landkönnuð, lækni og trúboða. Livingstone var Skoti, fæddur f Blantyre árið 1813. Þegar hann var 10 ára gamall fór hann að vinna f baðmullarverksmiðju, en hóf læknanám f Glasgow þegar hann var 24 ára að aldri, og lauk þvf þremur árum sfðar. Að loknu prófi gerðist hann trúboði, og hélt til Afrfku á vegum kristniboðssambandsins f Lundúnum. Það var svo um það bil 10 árum sfðar að hann hóf landkönnuðarferðir sfnar fyrir alvöru, og vonaðist hann til að geta beint ferðum kaupmanna og kristniboða til Afrfku og hafa þannig áhrif á að draga mætti úr þrælasölu, sem þá tfðkaðist mjög á þessum slóðum. Hann fann marga staði á ferðum sfnum, t.d. fann hann Viktorfufossa árið 1855. Árið 1869 hvarf hann, og var mikið leitað, t.d. sendi hlaðið New York Herald blaðamann sinn út af örkinni til að leita hans. Blaðamaðurinn var enginn annar en Henry Morton Stanley, og bar fundum þeirra Livingstones saman árið 1871. Sá fundur varð upphaf vináttu og samvinnu, og könnuðu þeir saman norður Tanganíku. Livingstone lézt árið 1874, þannig að nú eru liðin 100 ár frá dánardægri hans. Hann var grafinn f Westminster Abbey, en það er mesti heiður, sem Bretar sýna látnum afburðamönnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.