Morgunblaðið - 24.09.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGUR 24. SEPTÉMBER 1974
11
Olafsfirðingar hafa
fengið nýjan togara
Ölafsf jörður 20. sept.
KLUKKAN 18 f gærkvöldi kom
til heimahafnar f Ólafsfirði nýr
skuttogari frá Frakklandi, Sól-
berg ÓF 12, eign Sæbergs hf. f
Ólafsfirði. Skipið hafði niðkomu f
Noregi á heimsiglingu.
Sólbergi var fagnað með þvf að
fánar voru dregnir að húni í
kaupstaðnum og fólk safnaðist
saman á hafnargarðinum. Þar
flutti séra Birgir Asgeirsson
ávarp og blessunarorð yfir skipi
og skipshöfn. Bæjarstjórinn, As-
grímur Hartmannsson, bauð skip
og skipshöfn velkomin til heima-
hafnar og þakkaði eigendum
þann stórhug, sem þeir sýndu
með kaupum á þessu glæsilega
skipi. Sigvaldi Þorleifsson
þakkaði móttökurnar fyrir hönd
eigenda og iýsti skipinu, sem er
glæsilegt að útbúnaði og öllum
frágangi.
Togarinn var smíðaður í Siccna^
í St. Malo f Frakklandi og er þetta
fyrsta skipið sem er smíðað fyrir
tslendinga í Frakklandi. Sólberg
er 496 lestir að stærð, 50,80
metrar að lengd og 10,30 metrar á
breidd. Aðalvél skipsins er
Crepell 1800 hestöfl, en ljósavélar
af Boduangerð. Vindur eru raf-
knúnar, nema flotvörpuvindan,
sem er vökvaknúin. Fiskileitar-
tæki eru öll af nýjustu gerð frá
Simrad. Fiskilestar eru úr heil-
soðnu stáli, búnar skilrúmum og
losanlegum styttum, ef kassa-
notkun er æskilegri. Þá er í skip-
inu ísframleiðsluvél og ísdreyf-
ingarkerfi frá Finsam-verk-
smiðjunum norsku. Afkastageta
er 10 lestir á sólarhring. Helzta
nýjungin í skipinu er svokallaður
stýrisskrúfuhringur, sem eykur
togkraft skipsins og snúnings-
getu.
Um 30 erlendir vís-
indaleiðangrar hér
Skipstjóri á Sólberg er Björn
Kjartansson, 1. stýrimaður
Kjartan Eiðsson og 1. vélstjóri
Jón Þorvaldsson. Stjórn Sæbergs
hf. skipa þeir Ásgeir Ásgeirsson,
Jón Þorvaldsson og Sigurður
Guðmundsson, en framkvæmda-
stjóri er Gunnar Þór Sigvaldason.
Skipið mun halda til veiða eftir
nokkra daga.
— Jakob.
A árinu 1974 hafa komið til
lslands 31 .eriendur rannsóknar-
leiðangur eða einstakir vfsinda-
menn til rannsókna. Hefur Rann-
sóknaráð rfkisins sent frá sér
lista yfir þá, en ráðið veitir slfk
rannsóknaleyfi. Um helmingur-
inn af þessum leiðangrum eru
skólaleiðangrar, þar sem kennar-
Viðbótarvirkjun í
Fljótaá gengur vel
FRAMKVÆMDUM Rafveitu
Sigluf jarðar við viðbótarvirkjun f
Fljótaá (við Þverá), stækkun
Skeiðsfossvirkjunar, miðar vel
áfram. Lokið er grefti og spreng-
ingum f stöðvarhússgrunni og
steyptur hefur verið botn í
sográs. Sprengingum er að Ijúka
fyrir pfpuinntak. Fest hafa verið
kaup á sem svarar helmíngi af
áætlaðri þörf af steypustyrktar-
stáli og timbri.
Komið hefur verið upp aðstöðu
fyrir vinnuflokk, nema mötu-
neyti, sem verður byggt að vori.
Steypuefni var valið úr námu
við Kolkuós í samráði við Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðar-
ins.
Tekið var tilboði Norðurverks
hf. á Akureyri um gerð að-
rennslisskurðar. Hefst vinna við
hann innan skamms og áformað
að ljúka þvf verki á þessu ári. Þá
er unnið við mótasmíði við sográs
og grunn stöðvarhúss og er áætlað
að ljúka steypu á undirstöðum
véla og gólfi stöðvarhúss í haust.
Samningum er lokið um kaup á
vatnsvél frá Þýzkalandi fyrir DM
600 þúsund og rafal og rafbúnaði
frá Svíþjóð fyrir s. kr. 710 þús-
und.
ar fara með háskólanemendur til
verklegra æfinga, mest til jökla
og berathugana á Islandi.
Aðrir þessara vísindamanna
leggja hingað leið sfna til eigin
athugana eða fyrir stofanir. 6 leið-
angrar komu frá Bretlandi, 5 frá
Bandaríkjunum, og 4 frá Dan-
mörku. Auk þess er eitt rann-
sóknaskip frá Belgíu. Það er
rannsóknaskipið Atlante, sem
stundaði rannsóknir á hafinu
milli Islands og Grænlands. Einn
ig mældi rannsóknaskipið danska,
Tycho Brahe frá Geolætisk
Institut, á landgrunni Islands.
Flestir vísindamennirnir hafa
verið hér við bergfræðilegar eða
jarðfræðilegar rannsóknir og
nokkrir við fuglaathuganir eða
plöntusöfnun.
Skólaleiðangrarnir komu frá
Englandi, Frakklandi, Noregi,
Skotlandi, Svíþjóð og Þýzkalandi.
Námskeið í
meðferð græn-
metis og ávaxta
Undanfarna daga hefur verið
haldið námskeið fyrir verzlunar-
fólk í meðferð grænmetis og
ávaxta. Er námskeiðið haldið
fyrir tilstuðlan Kaupmannasam-
takanna, en félögin, sem standa
að þvf, eru: Verzlunarmannafélag
Reykjavfkur, Sölufélag garð-
yrkjumanna, Grænmetisverzlun
landbúnaðarins, Heildverziun
Björgvins Schram og Kvenfélaga-
samband tslands.
Á námskeiðinu hefur verið
f jallað um hvað gera skuli til þess
að koma grænmetinu í hendur
neytenda nýju og fersku, hvernig
fara skuli meðgrænmeti og ávexti
í verzlunum svo að sem minnst
fari til spillis og ennfremur hefur
verið kynnt matreiðsla á græn-
meti og ávöxtum svo að verzlunar-
fólk geti leiðbeint viðskiptavinum
sínum.
I fréttatilkynningu frá Kven-
félagasambandinu segir m.a., að
enginn efi sé á því, að vöruúrval í
matvöruverzlunum hafi mjög
mikil áhrif á matarvenjur fólks.
Segir gnnfremur að grænmeti og
ávextir séu mjög holl fæða, og
innihaldi fáar hitaeiningar og þvf
æskilegt að landsmenn leggi sér
það til munns í ríkara mæli, ekki
sízt vegna þess, að hjartasérfræð-
ingar hafa bent á, að fæði íslend-
inga er heldur of ríkt af hitaein-
ingum.
Willoch vill
útfærslu
Ösló 20. september —r NTB
NORÐMENN eiga sem fyrst að
lýsa þvf yfir, að þeir ætli að færa
út fiskveiðilögsögu sfna meðfram
hluta af okkar strönd og að þeir
óski eftir viðræðum við önnur
rfki, sem útfærslan snertir, eins
fljótt og auðið verður, um tilhög-
un, sem þau geta sætt sig við.
Þetta sagði formaður þing-
flokks Hægriflokksins norska,
Káre Willoch, f samtali við
Stavanger Aftonblad.
Willoch sagði, að útfærslan
gæti ekki orðið fyrr en að loknum
öðrum hluta hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna. „Að færa út
þann 1. janúar 1975 yrði til þess
að okkur yrði stefnt fyrir Alþjóða-
dómstólinn í Haag og hann myndi
skipa okkur að bíða,“ sagði
Willoch.
Ford Escort
Litlir bílar eru vinsælir vegna þess að þeir eru ódýrir
og spara kaupendum sínum peninga. Að þessu leyti er
Ford Escort í flokki með smábílum.
En þegar kemur út á vegina, kemur munurinn í Ijós.
Þótt Ford Escort kosti ekki meira en aðrir ódýrir bílar,
eru þetta samt allt önnur kaup.
Ford Escort er afburða bíll, ekki sízt á misjöfnum veg-
um. Auðveldur og öruggur í akstri, stöðugur á beygj-
um og lætur vel að stjórn.
Ford Escort hefur því hina vinsælu eiginleika sport-
bílsins, en hann hefur lika þægindi fjölskyldubílsins.
Hægt er að fá 2ja eða 4ra dyra bíl, og fjölda viðbótar-
hluta.
Það er engin tilviljun að Ford Escort er mesti sigur-
vegari í kappakstri á vegum og hefur unnið meira en
200 sigra í slíkri keppni á síðustu árum.
Ford Escort sameinar þægindi og hagkvæmni fjöl-
skyldubílsins með rúmgóðum sætum og gólfrými — og
hins vegar hraða og öryggi sportbílsins.
Kynnið ykkur Ford Escort, og hann sannar yfirburði
sína í reynd.
Fordumboðin á Islandi eru seljendur að Ford Escort.
Escort ánægja
Ford visar veginn