Morgunblaðið - 24.09.1974, Side 23
MÓRGUNBLÁÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGUR 24. SÉPTÉMBÉR' 1974
Um sýningar
beztan árangur.
Þessi gamla afstaða mín fékk
hljomgrunn í sýningu Braga Ás-
geirssonar og gladdi það mig
mjög. Tvennt er það, sem ég hef
orðið áþreifanlega vör í starfi
mínu undanfarin ár: 1) Hversu
ábótavant er hinni almennu
teiknikunnáttu. 2) Hve mikil þrá
fólks er að tjá sig á einn eða
annan hátt í myndlist. Eins og
ástatt er f dag þá er þessari þörf
svalað með eftirlíkingum og stæl-
ingum á gömlum mynstrum
(venjulega erlendum). Mynstrin
eru seld af hannyrðaverzlunum
um þvert og endilangt landið án
nokkurs annars tilgangs en gróða-
sjónarmiðs.
Svo að ég komf aftur að sýn-
ingu Braga, þá sýnir hún.að hægt
er að gera góða hluti úr hvers-
dagslegum efnivið, sem lítið kost-
ar. Það, sem er aðall allrar listar,
er að koma auga á fegurðina í
hinu einfaldasta.
Reykjavík 16. sept. 1974
Sigrún Jónsdóttir.
Það er að sjálfsögðu mörgum
mikið gleðiefni hversu listalíf —
og þá fyrst og fremst málaralistin
— stendur nú með miklum blóma
hér á landi. Eða er ekki svo? Ef
dæma skal eftir öllum þeim
fjölda, sem leggur stund á list-
sköpun, verður að trúa því, að
margt sé vel gert. Engum getur
blandazt hugur um, að allt það,
sem sýnt er, getur ekki verið góð
og gild vara og góð list. Margar af
þeim sýningum, sem opnaðar
hafa verið, hefðu betur aldrei
opnað. Þetta er ekki neitt sérstakt
íslenzkt fyrirbrigði heldur gerist
þessu líkt hjá öllum þeim þjóðum,
sem ég þekki til. Það er einungis,
að menn þurfa að reka sig á, fá
heilbrigða gagnrýni og vita hvar
þeir standa áður en lengra er
haldið. Það er einmitt hér, sem
mér fir.nst mikill munur á að-
stöðu hérlendis og erlendis. Er-
lenis rita yfirleitt færustu list-
fræðingar gagnrýnina, en hér á
landi eru starfandi listamenn og
rita hver um annan á þann hátt,
að svo er nú komið, að þeir eru
ekki teknir alvarlega lengur. Ef
ekki eru til þeir menn í þessu
landi, sem geta skrifað hlutlausa
og uppbyggilega um sýnin'gar er
betra að láta það ógert. Það er
hins vegar umhugsunarefni hvort
hinni andlegu velferð sé ekki mis-
munað samanborið við hina
líkamlegu, þegar haft er í huga,
að sérfræðingar eru fengnir er-
lendis frá til að kanna hér íþróttir
og fá greiddar milljónir árlega
fyrir.
Annað finnst mér ábótavant.
Má t.d. nefna það, að helztu
sýningarsalir borgarinnar hafa
ekki fyrirlestra eða skýringar af
neinu tagi fyrir almenning. Fólki
er ætlað að koma á sýningar,
mynda sér eigin skoðun og í bezta
tilfelli árétta hana með því að lesa
hvað starfsbróðir viðkomandi
skrifar í dagblað nokkrum dögum
síðar. Er þetta ekki heldur von-
laus leið til að auka og bæta list-
þroska fólksins f landinu. Ef til
vill gætu myndlistarmenn eða
samtök þeirra tekið málið í sínar
hendur og leyst það með þvf að
nota sjónvarpið, gefa út tímarit
eða á annan hátt, sem þeir næðu
til fjöldans?
í dag standa yfir tvær mál-
verkasýningar hér f borginni, sem
ég hef haft tækifæri til að sjá.
Önnur er á Kjarvalsstöðum, en
það er sýning FlM (Félags is-
lenzkra myndlistarmanna). Hin
er sýning Braga Ásgeirssonar í
kjallara Norræna hússins.
Sýningin á Kjarvalsstöðum olli
mér nokkrum vonbrigðum. Þátt-
ur leiktjaldamálara bætti þó úr og
vakti athygli. Var ánægjulegt og
fræðandi að fá að kynnast þeirri
listgrein. Ekki er vonum fyrr að
menn fái að kynnast svo miklu og
góðu starfi, sem þar hefur verið
unnið.
I Norræna húsinu sýnir Bragi
Asgeirsson myndverk eins og
hann kallar myndir sínar. Annars
er „mottó" sýningarinnar „Við
lágmark efniviðar, en hámark
ævintýraþrár". Þessi sýning vakti
athygli mína og mér verður hún
minnisstæð. Það er ferskur, djarf-
ur blær yfir sýningunni. Þar sem
myndverkin eru lík í tæknilegri
uppbyggingu, þá verður sýn-
ingin ein sterk heild, samsett af
54 sjálfstæðum verkum. Bragi
hefur eðlilega orðið fyrir áhrifum
á ferðum sínum erlendis og er
óragur við að nýta þá hluti, sem
til falla, svo sem þegar hann gerir
hreint á vinnustofu sinni!! Það er
ekki á margra færi að gera lista-
verk úr kössum undan olíulitum,
nöglum og skrúfum eða brúðu-
andlitum. Það verk, sem ég var þó
hvað hrifnust af, var „primadonn-
an“. Hár hennar var gert úr svört-
um fuglsvængjum og myndin á
annan hátt svo frumstæð í efnis-
meðferð, en útkoman stórkostleg
og áhrifank. Það er ángæjulegt
til þess að vita, að maður, sem svo
er I sviðsljósinu sem Bragi er,
skuli vera svo djarfur og alþjóð-
legur sem raun ber bitni. Það er
ósk mín og von, að þessi sýning
megi birtast á sem flestum stöð-
um á okkar vogskornu ströndum.
Það er ekki vansalaust, að við.
sem búum á Reykjavíkursvæðinu,
sitjum ein að sýningum sem þess-
ari.
Mörg undanfarin ár hef ég
kennt handíðir úti um lands-
byggðina. Það hefur verið föst
regla hjá mér að reyna að fá fólk
til að tjá sig eða vinna úr eigin
hugmyndum. Það er sama hvort
um var að ræða myndvefnað,
keramik eða postulínsmálun.
Einnig hef ég lagt mikla áherzlu á
að nýta þau efni, sem fundizt hafa
á hverjum stað. Þegar ég var
norður á Ströndum reyndi ég t.d.
að nýta rekavið ög þann gróðúr,
sem ég fann. Síðan notaði ég
plastvökva til að innsigla þann
árangur, sem að var stefnt. Það,
sem skiptir mestu máli í hverju
verki, er árangurinn — ekki það
efni, sem notað er. Það eru ekki
alltaf dýrustu efnin, sem gefa
• *
mmm m m» '■
I— B ka Bagb
cin nœ
eftir
SJALFBOÐ^LIf>A
vantar tll starfa rnÉívlkudaö frá kl. 5.
Sjálfstæðishúsið
DALE CARNEGIE
NÁMSKEIÐIÐ
I RÆÐUMENNSKU
SAMSKIPTUM
MANNLEGUM
Ný námskeið eru að hefjast —
Námskeiðið mun hjálpa þér að:
★ Öðlast HUGREKKI og SJÁLFSTRAUST
+ Tala af ÖRYGGI á fundum.
■jk Auka TEKJUR þínar, með hæfileikum
þínum að umgangast fólk.
★ Talið er, að 85% af velgengni þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst að
umgangast aðra.
★ Afla þér VINSÆLDA og ÁHRIFA.
+ Verða betri SÖLUMAÐUR hugmynda
þinna, þjónustu eða vöru.
ic Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og stað-
reyndir.
it Verða betri STJÓRNANDI vegna þekk-
ingar þinnar á fólki.
it Uppgötva ný ÁHUGAMÁL, ný markmið
að stefna að.
it Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga
úrKVÍÐA.
FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR ÞÉR
ARÐ ÆVILANGT
Q
Innritun og upplýsingar í dag og næstu daga í síma 82411.
Stjórnunarskólinn
Konráð Adolphsson
Byggingarfélag verkamanna.
Reykjavík
Til sölu
3ja herbergja íbúð í 3. byggingarfl. við Háteigs-
veg.
3ja herbergja íbúð í 4. byggingarfl. við Meðal-
holt.
Umsóknir félagsmanna berist skrifstofu félags-
ins að Stórholti 16 fyrir kl. 12 á hádegi
mánudaginn 30. september n.k. Félagsstjórnin.
SPÓNAPLÖTUR:
Bison (danskar)
(10og 12 mm)
Ath. Söluskattur hækkar 1. október n.k.
^ TIMBURVERZIUNIN VÖLUNDURhf.
Klapparstíg 1 Skeifan 1 9
Símar 18430 — 85244
® Notaiir bílar til sölu <£3
____________________________
Volkswagen 1 200 árg. '68 — '70
Volkswagen 1200Lárg.'74
Volkswagen 1300 '68—'73
Volkswagen 1 302 '71 — '72
Volkswagen 1303 '73
Volkswagen sendiferðabifr. '72
Landrover bensín '62 — '74
Range Rover '72 — '74
Fiat 128 '72
Morris Marina station '74
Hillman station '66
Mazda 616 '74
Cortina '70.
RÚMGÓÐUR SÝNINGARSALUR —
TÖKUM í UMBOÐSSÖLU NOTAÐA BÍLA
HEKLA HF.
Laugavegi -170—172 — Simi 21240
HANS
A
<$>
%
Innritun
stenduryfir
ísíma 83260
frá kl. 10-12
og 1-7
Vegna gífurlegrar eftir-
spurnar í jutterbug og J
rokk, hef ég ákveðið að
bæta við tíma fyrir 13
— 15 ára.
Kennt \
verður:
Barnadansar
Táningadansar
Stepp
Jazzdans
Samkvæmis- og
gömlu dansarnir
Kennslu-
staðir:
Safnaöarheimili
Langholtssóknar
Ingólfskaffi
Lindarbær, uppi
Rein, Akranesi
Samkomuhúsiö
Borgarnesi d.S.Í.