Morgunblaðið - 29.10.1974, Page 26

Morgunblaðið - 29.10.1974, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1974 Kristján Guðmunds- son Flateyri - Kveðja Sfðbúin vínarkveðja. Það var á ofanverðu sumri árið 1958, sem fundum okkar Kristjáns bar fyrst saman. Ég og fjölskylda mín vorum þá að flytjast búferlum til Flateyrar, þar sem ég var að taka við emb- ætti héraðslæknis. Þá voru margar hendur á lofti okkur til hjálpar, enda reyndust íbúar Flateyrarhéraðs okkur ætfð vel. Við minnumst þessa sam- ferðafólks okkar því ávallt með hlýhug. Frá þeim tíma hlaut það að verða, að við Kristján og fjöl- skyldur okkar knýttust þeim vina- böndum, sem æ hafa síðan hald- izt. Kristján var alinn upp á Patreksfirði í stórum systkina- hópí, en út í það verður ekki nánar farið, það hafa þegar aðrir gert. Kristján var slíkur mann- köstamaður, að þeir, sem svo láns- samir voru að kynnast honum, munu ætíð minnast hans sem ein- staks drengskaparmanns. Það fór því svo, að á herðar Kristjáns hlóðust hin margvísleg- ustu trúnaðar- og þegnskapar- störf. Nánast var ekkert leikrit sett á svið á Flateyri svo að Kristján léki þar ekki aðalhlut- verk. Það er enginn vafi, að Krist- ján var miklum leiklistarhæfi- leikum búinn. Það var illt, að Kristján skyldi ekki geta öðlast þá þjálfun og starfsaðstöðu, á þessu sviði, sem nauðsynleg var til þess að hinir ótvfræðu hæfileikar hans fengju notið sín. Þá voru Kristjáni og falin marg- vísleg opinber trúnaðarstörf, sat lézt 27. október t BJARNI KOLBEINSSON, bóndi, Stóru Mástungu, Börnin t Eiginmaður minn, HARALDUR VÍGLUNDSSON, fyrrv. tollvörður, Seyðisfirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 29. október kl 13.30. Ambjörg Sverrisdóttir. t Faðir, fósturfaðir og afi, SIGURÐUR VALDIMAR STEFÁNSSON, verður jarðsunginn I Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. október n.k. kl. 3 e h. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnarfélag íslands. Ásdís Sigurðardóttir og synir, Jórunn Karlsdóttir og fjölskylda. t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, KONRÁÐS MATTHÍASSONAR, Langholtsvegi 142, fer fram fimmtudaginn 3 1 október kl. 1 5 frá Fossvogskirkju Viktorfa Eggertsdóttir, Sigrfður Unnur Konráðsdóttir, Ægir Vigfússon, Guðlaug Konráðsdóttir, Agnar Þór Haraldsson og barnabörn. t Kveðjuathöfn um móður mína, tengdamóður, ömmu okkar og lang- ömmu, ÞÓRHILDI E. M. BJARNADÓTTUR, frá Heiði á Síðu, fer fram í Bústaðarkirkju miðvikudaginn 30. október kl. 1 3.30. Útförin verður gerð frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 2. nóvember kl. 2 e.h. Bjarni Jón Gottskálksson, Christhild Gottskálksson, barnabörn og barnabarnabarn. t Útför eiginkonu minnar, systur okkar og mágkonu GUÐRÚNAR STEINDÓRSDÓTTUR ferframfrá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 30 þ.m. og hefst kl. 3 e.h. Blóm og kransar eru afbeðin, en þeir, sem vilja minnast hinnar látnu eru beðnir um að láta Krabbameinsfélagið njóta þess. Leifur Ólafsson Sigurður Ó. Steindórsson Jóhanna Ó. Steindórsdóttir Sigurbjörg Steindórsdóttir Arinbjörn S. Steindórsson Björgvin Steindórsson Friðrik Steindórsson. Elfn Ása Guðmundsdóttir Njáll Þórarinsson Ólafur J. Sveinsson Steinunn Jónsdóttir Halla Guðnadóttir meðal annars í hreppsnefnd Flat- eyrarhrepps. I þeim störfum naut hann allra trausts, bæði samherja og andstæðinga, enda vissu allir, að Kristján hallaði á engan, en stóð fastur fyrir því málefni, sem hann vissi réttast. I afskekktum héruðum kemur það iðulega fyrir að vitja þarf sjúklinga í vondum veðrum og við hin erfiðustu skilyrði. í minni héraðslæknistíð á Flateyri komu slík atvik alloft fyrir. Þegar svo bar undir var Kristján ávallt sjálfsagður fylgdarmaður minn. Tvær ferðir eru mér minnis- stæðar frá þessum árum. önnur ferðin var farin yfir Vestfjarðahálendið til Reykja- víkur og aftur vestur. Á vestur- leið hrepptum við stórhrfð og frost á hálendinu. Kom þá fram hin mikla karlmennska Kristjáns, því að hann gekk fyrir bílnum klukkustundum saman. Hin ferð- in var f arin yfir heiði þá er aðskil- ur Önundarfjörð og Dýrafjörð, Gemlufallsheiði. Mikil ófærð var og stórhríð. Kristján fylgdi mér þá upp á heiðina, þar til við mætt- um mönnum úr Dýrafirði, sem á móti komu. En allt eru þetta fátækleg orð og lítt mun Kristjáni vini mínum að skapi, að slíku sé á loft haldið. Ungur að árum gekk Kristján að eiga sæmdar- og mannkosta- konu, Þorbjörgu Jónasdóttur, sem lifir mann sinn. Þau hjónin eignuðust tvö börn, Jónas skrif- stofumann á Flateyri og Maríu Kristfnu húsmóður í Reykjavík. í heimili Kristjáns og Þorbjarg- ar var alla tfð móðir Þorbjargar, heiðurskonan Marfa Þorbjarnar- dóttir. Reyndist Kristján henni sem bezti sonur. öllu þessu fólki og öðrum ættingjum og vinum votta ég og fjölskylda mín dýpstu samúð. Blessuð sé minning Kristjáns Guðmundssonar. B.Ön. Afmælis- og minn- ingar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á f miðvikudagsblaði, að berast í sfðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. S. Holgason hf. STEINIÐJA tlnholtí 4 Stmar 24677 og 142S4 t Eiginmaður minn og faðir okkar, GUNNLAUGUR JÓNSSON, vélstjóri Grenivöllum 16, Akureyri, er lést að heimili sinu 25. októ- ber, verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju föstudaginn 1 nóv- ember kl 1 3,30 Álfhildur Guðmundsdóttir, Ásdís Gunnlaugsdóttir, Páll Gunnlaugsson. S VERRIR BRIEM — MINNINtíARORÐ Fæddur 24. janúar 1905 Látinn 23. ágúst 1974. Sverrir Briem var fæddur í Við- ey. Foreldrar hans voru þau Egg- ert og Katrín Briem. Sverrir móð- urbróðir minn hafði mikla mann- kosti til að bera, og vildi öllum gott gera. Skemmtilegri mann var varla hægt að hugsa sér. Á barns- aldri dvaldi ég oftar en einu sinni hjá honum og hans elskulegu konu Maríu Magnúsdóttur Briem. Komu þau hjónin fram við mig eins og ég væri þeirra eigið barn. Sverrir var ákaflega vel látinn í starfi sínu og voru honum falin ýmis trúnaðarstörf. Hann bar hag barna sinna mjög fyrir brjósti og var þeim góður faðir. Mikið bar- áttuþrek og dugnað sýndi Sverrir í erfiðum veikindum og það er dásamlegt að hugsa nú til þess, að hann er laus við þjáningar. Guð blessi minningu Sverns og styrki ástvini hans. Ásthildur Guðmundsdóttir. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég hef margsinnis heyrt yður segja, að breytni mannanna verði ekki bætt með lagafyrirmælum. Við hvað eigið þér? Ég á vió, að réttlætið verði ekki lögfest. Þetta felur þó engan veginn í sér, að okkur beri að afnema öll lög, sem sett hafa verið til þess að vernda þjóðfélag- ið. Móse er mestur allra löggjafa. Hann sá, að löggjöfin er prófsteinn á tign þjóðanna. Engum heilbrigðum manni dettur samt í hug að setja lög, sem skipa fyrir um manngæzku. Lögmál Guðs á Sínaífjalli var ekki gefið til þess að gera mennina góða, heldur til að sýna þeim, að þeir væru vondir. Það afhjúpar okkur. Lögmálið er kallað skólameistari eða tyftari í heilagri ritningu. Undirstaðan að verndun fjölskyld- unnar eru lögin. Ef við afnemum lögin, dugar engin predikun, eða þrumuræður til þess að varðveita fjölskylduna sem stofnun í samfélaginu. Laga er þörf til þess að tryggja öryggi manna og eigna og til að gera fólki kleift að lifa í friði, án þess að eiga árásir ofbeldismanna yfir höfði sér. Samt bærist undir niðri í hverjum manni hin meðfædda hneigð Adams til þess að létta á sér öllum hömlum og losa sig við öll lög. Eina lækningin við þessu er ný fæðing. Endurfæddur maður öðlast nýja löngun, nýja þrá, ný markmið, sem hann keppir að. Hann fer að elska það, sem er hið efra. Þá spretta réttlæti og siðgæði úr hjarta, sem kærleikur býr í, en ekki af ótta eða valdi. Spáir úrkomu eða snjóum í vetur SL. laugardag var fyrsti vetrardagur og f tilefni þess hringdum við í Helga á Hrafnkelsstöðum og spurð- um hann hverju hann spáði um veður f vetur, en Helgi er einn af fjölmörgum sem spá veður út frá einu og öðru f náttúrunni. „Ég er stundum að grulla f þessu“, sagði Helgi, „en ég er hræddur um að það verði úrkomuvetur í vetur. Það er búið að vera svo úrkomulftið undanfarið. Ég spái þvf að ef hitastig verður eðlilegt, þá verði snjóasamt, en ef hlýtt verður þá verði hins vegar rigningar. Annars er margt við að miða f þessum efnum, og það er t.d. alltaf harður vetur A 2. ári eftir eldgos á lslandi, en þetta hef ég kannað allt sfðan á miðri 19. öld. Þó er ein undantekning og það var fyrir tveimur árum. Þá var mikill músagangur, annað ár frá Heklugosi og allt útlit fyrir harðan snjóavetur, en hlýindin voru svo mikil að allur snjór varð að rigningu. Ég hef aldrei upplifað annað eins. Á öllum þeim tfma, sem ég hef kannað, frá miðri 19. öld, hefur það aldrei brugð- izt að árið eftir eldgos hefur verið mikið hlýindaár, gott veðurfar, og er þá t.d. sama hvort maður r.efnir árið eftir Heklugosið 1845 eða Eyjagosið 1973. Afi minn var unglingur f sveit 1845 og veðrið var svo gott veturinn eftir, að þótt sauðféð væri látið ganga úti og þvf gefið aðeins tvisvar um veturinn, þá át það ekki gjöfina, þvf nóg var fæðan. 1876, árið eftir eldgosið mikla f Dyngjufjöllum, var svo góð tfð á Norðurlandi, að f dag- bók Sigurðar gamla á Yzta- felli segir að helmingurinn af öllum heyjum hafi verið eftir þegar vorið gekk f garð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.