Morgunblaðið - 05.11.1974, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÖVEMBER 1974
Frá sýningu Oidtmans f Þýzkalandi.
I 1 [] m 3?m
I jm
Frá listasýningunni. A miðri mynd er mosaikmynd eftir Gerði.
Steindur gluggi eftir unga fslenzka listakonu, Svövu Björnsdóttur.
Þrjár íslenzkar lista-
konur á sýningu í
Þýzkalandi
1 ÞVZKALANDI stendur nú yfir
stór listsýning með 81 verki, þar
af 5 eftir fslenzka listamenn, auk
teikninga þeirra af listaverkum á
opinberum byggingum f Reykja-
vfk. Það þykir allnýstárlegt, að
þessir fslenzku listamenn eru
þrjár konur. Þarna á verk sín
alþjóðlegur hópur listamanna,
um 30 manns, en fyrir utan
fslenzku listakonurnar eru aðeins
f hópnum tvær konur, báðar frá
Þýzkalandi.
Þessi sýning er á vegum H. Oidt
mans i Linnich, sem hafa fram-
leitt steinda kirkjuglugga og
mosaik eftir þessa listamenn. Er
Fritz Oidtman var spurður hvers
vegna íslenzkir listamenn ættu
svo stóran hluta þarna, sagði
hann að þeim bræðrum lfkaði svo
vel við Island, þar sem þeir hefðu
oft komið, og að þar fyndist gott
listafólk.
Á sýningunni er stór höggmynd
eftir Gerði Helgadóttur við inn-
ganginn og er sú mynd úr stein-
steypu og gleri. Einnig er þar
steindur gluggi eftir Gerði og
mosaikmynd, auk frumteikningar
af mosaikmyndinni á Tollstöðinni
í Reykjavík. Þá er sýndur steind-
ur gluggi eftir Nínu Tryggvadótt-
ur og frumteikning af glugga
hennar í Listasafni Islands. Og
þriðji Islendingurinn er Svava
Björnsdóttir, ung listakona, sem
verið hefur við nám í Frakklandi
og sýnir þarna sinn fyrsta steinda
glugga, sem Oidtman-bræður
völdu og framleiddu.
Sýningin stendur frá 28.
september til 3. nóvember í skóla-
húsi í Linnich, heimabæ Oidtman-
bræðra. Er þetta i fyrsta skipti í
156 ára sögu fyrirtækisins að þeir
sýna þar, þó sýningar með verk-
um þeirra hafi verið víða um
Þýzkaland og önnur lönd. En til-
efni sýningarinnar var það, að
eftir að þeir bræður höfðu verið
sæmdir heiðursborgaratign í
bænum, þá fóru bæjaryfirvöld
þess á leit að þeir settu upp eina
stóra og veglega sýningu f sínum
eigin bæ. Urðu þeir við þeim til-
mælum og settu sýninguna upp í
skólahúsi í Linnich. Völdu þeir
verk eftir listamenn frá ýmsum
löndum, Frakklandi, Banda-
ríkjunum, Þýzkalandi og víðar og
framleiddu um helminginn af
steindu gluggunum og mosaik-
myndunum sérstaklega fyrir
þessa sýningu. En einnig sýndu
þeir 3 eftirlíkingar af
gömlum kirkjugluggum frá
15. og 16. öld, sem gerðir
voru sérstaklega. Sýningin
hefur verið ákaflega vel sótt, og
menn koma víðs vegar að frá
Köln, Dusseldorf og víðar. Fyrstu
vikuna sóttu hana 2800 manns og
nýlega höfðu komið 4000 fullorðn-
ir.
Þá sagði Fritz Oidtman okkur
þær fréttir, að skólablaðið Phiff-
erling í Linnich, sem hefur hlotið
rfkisverðlaun sem bezta barna-
blaðið i Þýzkalandi, hafi haft á
annarri útsíðu sinni nýlega lit-
mynd af kirkjugluggunum í
Kópavogi eftir Gerði Helgadóttur,
en á hinni útsíðunni mynd eftir
þýzku listakonuna Katzgrau, sem
gerði kirkjugluggana á Siglufirði
og í Hornafirði. En þessar myndir
tvær voru einmitt litprentaðar á
vönduðu almanaki fyrir árið 1974
í Þýzkalandi.
Það útgáfufyrirtæki notar nú
þessar tvær myndir sem auglýs-
ingu fyrir Christelicher Kunst-
kalender fyrir árið 1975. Er
þannig frá gcngið, að hægt er að
taka litprent'uðu myndina með
kirkjugluggunum í Kópavogi eft-
ir Gerði Helgadóttur, og nota sem
póstkort til sendingar. Svo þessi
litmynd af gluggum Kópavogs-
kirkju fer orðið býsna vfða, enda
þykja þeir mikið listaverk.
Almanakið „Christlicher Kunst-
kalender 1975“, sem Kiefer forlag
í Wupperyal gefur út, er komið
út, ákaflega vandað að venju með
listaverkum af steindum glugg-
um, er nota má svo sem póstkort
eftir að réttur mánuður er liðinn.
Af 13 litprentunum af verkum
kunnra listamanna eru 3 eftir
Gerði Helgadóttur, eitt eftir Nínu
Tryggvadóttur og þriðja verkið er
gluggi eftir Katzgrau, sem er í
einkaeign á Islandi. Verk Gerðar
eru öll í Þýzkalandi. Eitt þeirra er
stór gluggi á Suermond-safninu i
Achen, en hinir gluggarnir tveir
úr einkaeign í Þýzkalandi og
Hollandi. Glugginn eftir Nínu er
einnig úr einkaeign. En þetta
vandaða almanak er framleitt
með leyfi Oidtmansbræðra og af
verkum, sem þeir hafa framleitt
eftir verkum ýmissa listamanna
og er þetta orðið fallegt safn lit-
mynda.
Þannig eiga íslenzkar lista-
konur nokkuð stóran hlut á sýn-
ingunni f Linnich og f lista-
almanakinu.
Lengst til hægri eru kopfur af kirkjugluggum frá 15. og 16. öld, á ljósa
veggnum má greina hluta kirkjuglugga eftir Nfnu á fletinum næst
okkur og eftir Gerði efst á ljósa fletinum fjær. A veggnum til vinstri
efst á Ijósa fletinum fjær. A veggnum til vinstri eru frumteikningar
þeirra af Tollstöðvarmosaikinni f Reykjavfk og gluggum f Listasafni
lslands.
í , ■ *
f»r
,|1 ■ í
% ■ *■ . »—■■■ '
: srjimssm —
rm xiii
éWMti'mmmmm
IBI HSL
M .* -7»! ■ * - 'ms, .* -m | ■ W S B
— " * -----------------= =
Steindir gluggar á sýningunni f Linnich.