Morgunblaðið - 14.01.1975, Síða 30

Morgunblaðið - 14.01.1975, Síða 30
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 Ipswich með hreina forystu en margir eru enn kallaðir MEÐ 2—0 sigrí sfnum yfir Middlesbrough á hcimavelli náði Ipswich Town hreinni forystu í 1. deildar keppninni f Englandi s.I. laugardag. En mjótt er á mun- unum. Ipswich hefur nú 32 stig, Everton er í öðru sæti með 31 stig, og sfðan koma Middles- brough og Stoke með 30 stig. Röð af liðum er síðan með 29 og 28 stig, þannig að ein umferð getur breytt mjög miklu um stöðu lið- anna í deildinni. Og nú er Leicester komið á botninn í deild- inni, tapaði enn einu sinni á laugardaginn, meðan liðið sem skipað hefur botnsætið lengst af, Luton Town, náði stigi í viður- eign sinni við Chelsea. Ljóst má vera að baráttan á botninum verður ekki sfður hörð en á toppn- um. í 2. deildar keppninni eru hins vegar skýrari línur. Manchester United vann á laugardaginn og hefur nú sex stiga forskot á liðið sem er í öðru sæti, Sunderland, en mjög líklegt verður að teljast að þessi tvö lið kræki í 1. deildar sæti á næsta keppnistímabili. Slagurinn um þriðja sætið verður hins vegar mjög harður, og koma þar nokkur lið til álita: Norwich, West Bromwich Albion, Aston Villa og jafnvel fleiri. A laugardaginn beindist athygli manna mest að leik Ipswich og Middlesbrough. 24.718 áhorf- endur voru mættir á völl Ipswich til þess að fylgjast með viðureign liðanna, og kom nokkuð á óvart að áhorfendur skyldu ekki vera fleiri. Áttu forráðamenn Ipswich jafnvel von á metaðsókn að leik þessum, en völlurinn tekur um 36.000 áhorfendur. Mikil barátta var í leiknum allt frá upphafi, og léku liðin mjög ólíka knattspyrnu. Vörnin var aðall Middlesbrough og lék hún mjög aftarlega í leikn- um. Því fór meirihluti leiksins fram á vallarhelmingi þeirra, en af og til náði Middlesbrough svo hættulegum upphlaupum. Á 22. mínútu leiksins tókst Ips- wich-mönnum að splundra vörn Middlesbrough og Roger Osborne skoraði. Stóð þannig 1—0 allt fram á síðustu mínútu leiksins að David Johnson tókst að bæta öðru marki við og innsigla þannig Ips- wich-sigurinn. Everton átti ekki i miklum vandræðum í leik sínum við Leicester, sem virðist nú algjör- lega heillum horfið lið. Strax i byrjun leiksins hóf Everton sókn, sem segja mátti að stæði sfðan leikinn út. Þeir Gary Jones, Jim Pearson og Mick Lyons skoruðu mörk Everton í leiknum, og var staðan orðin 2—0 eftir fyrstu 15 mínútur leiksins. Annars var það mark- vörður Leicesters sem var hetja þessa leiks, og bjargaði hvað eftir annað stórkostlega vel. Áhorf- endur að leiknum voru 31.985. Nágrannalið Everton, Liver- pool, reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Derby á Base- ball Ground. Reyndar var þarna um frekar jafnan leik að ræða, en sóknir Derby-liðsins voru þó fleiri og til muna hættulegri en sóknir Liverpool-liðsins, sem valdið hefur aðdáendum sínum töluverð- um vonbrigðum að undanförnu. Fyrra mark leiks þessa skoraði Henry Newton, eftir góða send- ingu frá Kevin Hector, og stóð þannig í hálfleik 1—0 fyrir Derby. 1 seinni hálfleiknum gerði Liverpool örvæntingarfullar til- raunir til þess að jafna og ná öðru stiginu í leiknum, en það tókst ekki og á siðustu minútu leiksins bætti Francis Lee öðru marki við. Með sigri þessum komst Ðerby í 6. sætið í 1. deildinni — hefur 29 stig. Burnley er hins vegar á hraðri Þessi mynd er úr leik Queens Park Rangers og Chelsea fyrr f vetur og sýnir Q.P.R.-leikmanninn David Webb skalla frá eftir sókn Chelsea, en aórir leikmenn á myndinni eru Don Wasson, John Hollins og lan Hutchinson. Á laugardaginn tapaði Queens Park fyrir Burnley á heimavelli, en Chelsea gerði jafntefli við Luton Town á útivelli. uppleið, og krækti á laugardaginn í bæði stigin i viðureign sinni við Lundúnaliðið Queens Park Rang- ers. Ray Hankin skoraði markið á 58. mínútu. Queens Park Rangers sótti meira í þessum leik, og var oft hætta við mark Burnley, en aldrei tókst Queens Park- leikmönnunum að reka endahnút- inn á sóknarlotur sínar. Stoke tapaði dýrmætu stigi í baráttunni á toppnum, er það varð að láta sér nægja markalaust jafntefli í leiknum við Birming- ham. Þetta þótti heldur lélegur leikur hjá Stoke og Birmingham var betri aðilinn, og reyndar óheppið að sigra ekki, þar sem þeir áttu tvívegis skot í þverslá. Mikil barátta var f leik Man- chester City og Sheffield United. I fyrri hálfleik náði Sheffield liðið forystu með marki Bill Dearden, en Tommy Booth jafn- aði fyrir City skömmu eftir að seinni hálfleikurinn hófst. Leeds Unitéd potast stöðugt upp á við í deildinni og sigraði West Ham 2—1 á laugardaginn í skemmtilegum og vel leiknum leik. Leeds átti þá undir högg að sækja í þessum leik, þar sem Keith Robson náði forystunni fyrir West Ham þegar á 10. mín- útu. Eftir mjög góðan leikkafla hjá Leeds jafnaði Alan Clarke á 35. mínútu og seint í leiknum skoraði Duncan McKenzie sigur- mark Leedsaranna. Eftir tap þetta er West Ham komið í ní- unda sætið í deildinni með 28 stig, en Leeds sem var við botninn fyrst framan af er nú komið í 10 sætið með 27 stig, aðeins 5 stigum á eftir forystuliðinu í deildinni. Tottenham Hotspur átti sann- kallaðan glansleik gegn New- castle á heimavelli hinnar siðar- nefndu. Maðurinn á bak við 5—2 sigur Tottenham var Alfie Conn, hinn nýkeypti leikmaður frá Glas- gow Rangers. Conn skoraði tvö mörk sjálfur í þessum leik, þegar á fyrstu mínútunum, og varð það til þess að gefa heldur betur tón- inn. Lundúnaliðið átti leikinn í þeirra orða fyllstu merkingu og í seinni hálfleiknum skoraði Conn sitt þriðja mark. Virðist hann ætla að verða Tottenham virði þeirra 140.000 punda sem félagið greiddi fyrir hann. Arsenal átti í miklu basli með Carlisle, en vann þó 2—1 sigur. Náði Arsenal forystu i leiknum á 29. mínútu með marki Rad- fords, en sjö mínútum síð- ar hafði O’Neill jafnað fyrir Carlisle. Mikill þæfing- ur var svo í leiknum, og virtist jafntefli ætla að verða úrslitin. Skömmu fyrir leikslok bar þó ein sókna Arsenals árangur er Ale Cropley, sem Arsenal keypti ný- lega frá Hibernian, skoraði. Áhorfendur að leik þessum voru 21.539. Luton Town náði enn stigi á laugardaginn og hefur liðið nú fengið sjö stig i síðustu fjórum leikjum sínum, og virðist á hraðri uppleió. Lengi vel var ekkert mark skorað í leiknum, þrátt fyrir góðar sóknarlotur á báða bóga, en á 63. mínútu tókst Husband að skora fyrir Chelsea, og átta mín- útum fyrir leikslok jafnaði Ichan- son fyrir Luton. í annarri deild heldur Manchester United fram sínu striki og vann á laugardaginn 2—0 sigur yfir Sheffield Wed. A sama tíma töpuðu helztu keppi- nautar United, Norwich og Sunderland, leikjum sínum. Kom það mjög á óvart að Sunderland skyldi fá svo slæma útreið í leik sínum við Portsmouth. Notthing- ham Forest, undir stjórn hins nýja framkvæmdastjóra síns, Brian Clough, vann sinn fyrsta sigur á útivelli í nokkurn tima og ríkir nú mikil bjartsýni hjá for- ráðamönnum félagsins að Clough nái að rífa það upp. Martin Dobson. Everton keypti hann f vetur fyrir 300.000 pund og hann hefur reynzt drjúgur fyrir hið nýja félag sitt, sem stöðugt er við toppinn í 1. deildar keppninni, og ætlar sér hann, þegar upp verður staðið. Knattspyrnuúrslit o ENGLAND l.DEILD: Arsenal—Carlisle 2—1 Coventry — Wolves 2—1 Derby—Liverpool 2—0 Everton — Leicester 3—0 Ipswich — Middlesbrough 2—0 Leeds — West Ham 2—1 Luton — Chelsea 1—1 Newcastle — Tottenham 2—5 Queens Park — Burnley 0—1 Sheffield Utd. — Manch. C. 1—1 Stoke — Birmingham 0—0 ENGLAND 2. DEILD: York — Southampton 1—1 Aston Villa — Bristol City 2—0 Bristol Rovers — Oldham 2—1 Cardiff — Norwich 2—1 Fulham — Nottingham 0—1 Hull — Oxford 1—0 Manch. Utd. — Sheff. Wed. 2—0 Notts County — Blackpool 0—0 Orient — Millwall 2—1 Portsmouth — Sunderland 4—2 ENGLAND 3. DEILD: Tranmere — Colcester 2—0 Blackburn — Charlton 3—1 Bournemouth — Plymouth 3—7 Bury — Port Vale 3—1 Cesterfield — Aldershot 0—2 Crystal Palace — Watford 1—0 Gillingham — Huddersfield 3—2 Halifax—Grimsby Town 1—1 Peterborough — Wallsall 0—0 Preston — Wrexham 3—1 Southend — Brighton 1—0 Swindon — Hereford 1—0 ENGLAND 4. DEILD: Cambridge — Stockport 1—0 Chester — Rotherham 0—1 Darlington — Bentford 2—1 Hartlepool — Doncaster 2—1 Northampton—Exeter 1—1 Reading — Lincoln 1—0 Rochdale — Crewe 3—0 Scunthorpe — Newport 4—1 Shrewsbury — Mansfield 0—1 Torquay — Barnsley 1—1 Workington — Bradford 0—0 Úrslit getrauna Leikir 11. jan. 1975 Arsenal - Carlisle Coventry - Wolves Derby - Liverpool Everton - Leicester Ipswich - Middlesbro Leeds - West Ham Luton - Chelsea ‘— 1 X 7 / / /1 / / 71 z Q.P.R. - Burnley Sheff. Utd. - Man. City Stoke - Birmingham . Cardiff - Norwich ,2 X z SKOTLAND 1. DEILD: Aberdeen — Kilmarnock - 4—0 Airdrieonians — St. Johnstone frestað Arbroath — Dundee 2—2 Ayr Utd.—Clyde 1—0 Celtic — Motherwell 2—3 Dumbarton — Rangers 1—5 Dundee Utd. — Hibernian 1—3 Hearts — Dunfermline 1—0 Partick — Morton 3—1 SKOTLAND 2. DEILD: Alloa — Stranraer 1—3 Berwick — Forfar 1—1 EastFife — Clydebank 1—0 Falkirk — Albion Rovers 3—1 Hamilton — Stirling Albion 3—1 Meadowbank — Raith.Rovers 1—0 Montrose — Queens Park 0—0 Queen of the South — Stenhousemuir 2—1 St. Mirren — Brechin 6—1 * X

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.