Morgunblaðið - 09.02.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.02.1975, Blaðsíða 12
12 MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1975 Konur eru engín fórnarlömb Þær standa bara á tímamótum segir Francoise Giroud, ráðherra um málefni kvenna og stórkost- legasta kona Frakklands I kvöldverðarveizlu f Washing- ton ðskaði einn gestanna eftir að hitta hana og annar benti á hana. — Nei, nei, mig langar til að hitta Francoise Giroud, franska kvennamálaráðherrann. — En þetta er einmitt Francoise Giroud, var svarið. — Nú, sagði maðurinn. Hún er ekkert lfk þvf sem ég bjóst við. Þannig hefst viðtal, sem blaða- maður enska blaðsins Guardian átti nýlega við Francoise Giroud, fyrstu konuna, sem fær sérstakt ráðuneyti fyrir málefni kvenna. En hún tók sæti f frönsku stjórn- inni sl. sumar. — Þegar ég hitti ókunnugt fólk, á það von á að sjá einhverja fyrir- ferðarmikla kvenpersónu, segir Francoise með sinni kvenlegu rödd og sýnir fyrirferðina með því að baða út höndunum. — Og búizt er við, að ég tali hátt og mikið, bætir hún við og gerir mál- róminn grófan. — En hvorki konur né karlar þurfa að hræðast mig. Þeim mun róttækari sem maður er, því ljúf- ari verður maður að vera í orðum og framgöngu. Ég læt mig ekki f mikilvægum málum, en get vel tekið hefðbundnum venjum, sem minna máli skipta. 1 daglegri um- gengni get ég hegðað mér eins og dama. Þó þessir smámunir séu mikilvægir, þá get ég einmitt vel þolað þá vegna þess að ég er rót- tæk í skoðunum. Francoise Giroud er „Madame ráðherra“, og sennilega stórkost- legasta kona Frakklands. Hún var annar af tveimur stofnendum stærsta fréttatímaritsins í land- inu, „L’Express", og stjórnaði því ein um skeió. Hún hefur veitt sterkustu stjórnmálamönn- um Frakklands andstöðu. Og þó henni tækist að hafa algerlega yfirhöndina í sjónvarps- umræðum með Giscard d’Estaing og berðist opinberlega gegn kosn- ingu hans, þá sótti hann það fast að hún tæki sæti í stjórninni eftir að hann hafði verið kosinn forseti Frakklands. Oft hefur það verið sagt, að hún sé slík kona, að hvern karlmann í landinu mundi langa til að sofa hjá henni, en samt sé hún virt af mestu gáfumönnum þjóðarinnar fyrir störf sín. — Aldrei hefi ég haft áhuga á því að lifa bara til þess að lifa. Ég vil lifa lífinu vel, segir hún í sjálfsæfisögu sinni „Upp á æru og trú“, sem kom nýlega út. Hún kveðst vera feimin, óáreit- in, hæversk og kvenleg. — Konur virðast vera dauðhræddar um að þær missi kvenleikann, skrifar hún. Eins og kvenleiki sé eitt- hvað, sem hægt er að týna, rétt eins og vasabók; hmm, hvar f ósköpunum lét ég nú kvenleikann minn? Hún segist líka vera kappsfull, sterk, þrjósk og ögrandi. Hún er ein af þessum manneskjum, sem lætur hendur standa fram úr erm- um og fær líka aðra til að taka til hendi. Á aðeins þremur mánuð- um hefur hún valdið miklum breytingum á kjörum og hag kvenna í Frakklandi og dregið fram margt annað, sem laga þarf. Aður en hún varð ráðherra, hafði hún skrifað: Sá maður, sem kemst til valda, hefur þrjá mánuði til að hneyksla. Hann hefur 100 daga til að hrista upp í hlutunum. Og sjálf hefur hún fylgt eigin ráðum. Hún er hreinskilin og snýr sér beint að hlutunum, sem raunar er ekki undarlegt fyrir blaðamann, en furðulegt þegar um stjórn- málamann er að ræða. Hún vill láta ávarpa sig með fornafni, Francoise, en maður finnur að lengra á ekki að ganga. — Ég er ekki nein kvenrétt- indakona, segir hún ákveðin. — Ég hefi engan áhuga á konum sem slíkum. En ég á góðar vin- konur og finnst gott að starfa með þeim. Aftur á móti geðjast mér ekki að þessum áköfu og ágengu manneskjum. Þær eru gamaldags. Þegar konur voru að berjast fyrir kosningarétti og kjörgengi, þá voru þær mjög hugrakkar. En ég get ekki þolað þá hugsun, að karl- menn séu meó eitthvert alheims samsæri til að halda konum niðri. Sé það satt og hafi þeim tekizt það, þá eru konur óttalega heimskar. Finnist þeim þær vera einhver fórnarlömb, ja, fórnar- lömb eru ósköp heimsk. Það er ekkert samsæri á ferðinni. Konur standa bara á vissum tímamótum í sögunni. — Gallinn er sá, að konur virð- ast fljótt missa kímnigáfuna, segir hún. Er. það gera allar ný- frjálsar manneskjur raunar lika. Þetta er fjarska leiðigjarnt. Eintak af kvennatímaritinu MS barst mér i hendur og í þvf var ein grein um einhverja kynvillta konu og önnur um sjálfshjálp. Hvers lags vitleysa er þetta? Þegar Francoise Giroud var 15 ára gömul, missti hún vel efnaðan föður og varð að fara út að vinna, til að hjálpa til við að sjá fyrir sjálfri sér, móður sinni og systur. Hún varð aðstoðarstúlka hjá kvik- myndastjóranum Jean Renoir og síðan handritahöfundur. Á stríðs- árunum varð hún svo fyrir tilvilj- un blaðamaður. Á stríðsárunum varð hún vanfær og gat ekki fengið fóstrinu eytt, svo hún neyddist tii að fæða óskilgetinn son (Hann fórst tveimur árum síðar í óveðri). Seinna náðu nas- istar henni og hnepptu í fangelsi vegna starfa hennar i andspyrnu- hreyfingunni og við yfirheyrslur hryggbrutu þeir hana. Eftir stríóið vann hún við dag- blöð og tímarit, en hitti þá banda- ríska konu, Helen Lazareff. Þær stofnuðu í félagi Elle, sem er enn þann dag i dag vinsælasta kvennaritið i Frakklandi. — Hjá Elle lærði ég að meta konur og geðjast að þeim, segir hún. Þar vann hún sér orðstir sem sterk stefnumarkandi hugsjónamann- eskja. Einu sinni olli hún hneyksli um allt land með því að kanna hrein- læti franskra kvenna og birta niðurstöðurnar. Þar kom m.a. fram, að þær þvægju sokkabanda- beltin sin á tveggja ára fresti og aðeins ein af hverjum fjórum burstaði í sér tennurnar. Þegar hún hitti Jean-Jacques Servan-Schreiber, hætti hún hjá Elle. Þau urðu ástfangin og stofn- uóu í félagi hið frjálslynda tíma- rit L’Express (fíkt Time og News- week i Bandaríkjunum), en það er nú lang stærsta tímarit Frakk- lands. Þetta var stórkostlegt ástarsamband — þar til hann til- kynnti henni einn góðan veður- dag, að hann ætlaði að kvænast annarri konu. Það lá við að hún fremdi sjálfsmorð og hún hætti um sinn störfum við Express og fór að vinna hjá dagblaðinu France Soir. — 1 mörg ár var ég eins og gangandi rúst, skrifar hún i ævi- sögu sinni. Ég var likust svörtum, útbrunnum skógi eftir að eldur hefur farið um hann. Það tók mig mörg ár að finna mér annan lífs- máta og komast i sátt við sjálfa mig. Henni tókst það mjög vel. Hún sneri aftur til blaðs sfns L’Ex- press, og nú eru Servan-Schreiber og hún beztu vinir og félagar. Þau eru enn talin áhrifamestu blaða- menn í Frakklandi þegar þau leggja saman. Hún fær miklar hláturhrukkur um augun, þegar hún brosir, og hún hefur mikið aðdráttarafl fyrir karlmenn. Francoise Giroud er 58 ára gömul. Og hún viður- kennir að hún sé vinnuþjarkur. — Ég vinn betur, þegar allt er i hers höndum og ég hefi ekki einu sinni tíma til að hugsa, segir hún. Francoise Giroud hefur náð því- likum árangri i kröfum sinum fyrir konur á sínum stutta starfs- tíma sem ráðherra, að hún er orð- in einn vinsælasti opinberi emb- ættismaður landsins. Hún er í leyfi frá ritstjórastörfum við I L’Express-timaritið. — Þetta starf getur ekki enzt mér lengur en eitt til tvö ár, segir hún. Ég þarf bara að koma lestinni á spor- ið. Kona á borð við Francoise Gi- roud hefur ekki áhyggjur af því að hún er ekki lengur ung — hún hefur annað til að bera. En hún er hrædd um að mörgum konum finnist öllu glatað, þegar æskan hverfur þeim. — Konur vita ekki að æskublóminn er æði veikt hálmstrá, svo þær hanga á honum með kjafti og klóm, segir hún. Varla getur þeim fundizt lffið svo óskemmtilegt að þær séu ekki lengur manneskjur, þegar æskan er hjá liðin. Þær óttast að aðdrátt- araflið, sem þær kunna að hafa, hverfi þeim. En varla geta þær haldið því með andlitsfarða. Francoise Giroud vill ekki á það hlusta, að konur hafi ekki hæfni til að gera það sem karlmenn geta gert. — Hafi þær efni, séu vel menntaðar og búi yfir sjálfs- trausti . . . segir hún. Samt litur hún raunsæjum augum á málið. — Þó geta aðeins karlmenn gefið manni sjálfstraust. . . og að sjálf- sögðu þurfa þeir einnig á manni að halda. Nú hallar hún sér fram og leggur áherzlu á það sem hún ætlar að fara að segja: — Allt hefst þetta þó með pillunni. Nú er það á ábyrgð konunnar hvort hún á barn eða ekki. Sjálf er Francoise Giroud ekki málgefin eða frek i tali. 1 umræð- um — einkum meðal karlmanna — virðist hún feimin. 1 opinberri veizlu, sem Kissinger hélt henni i Washington nýlega, stóð hún sýnilega skjálfandi á fætur til að svara skálaræðum og lýsti því yfir að hún væri betri við ritvélina en í ræðustóli. 1 kvöldverðarboði — Hefði ég tekið við léttvægu ráðuneyti, þá hefði ég fyrr en varir verið komin fram í eldhús í Elysée-höll að hita kaffi handa ráðherrastrákunum, sagði Francoise Giroud, er hún hafnaði ráðherrastöðu, er skerða átti völd hennar. fyrir hana i franska sendiráðinu, hélt hún enga ræðu. Francoise Giroud hefur einu sinni verið gift, „ákaflega hríf- andi Rússa”. Hún átti eina dóttur i því hjónabandi og skildi 1952. Hún hefur aldrei gifzt aftur, en hefur nokkrum sinnum átt ástar- samband við mestu áhrifamenn í Frakklandi, sem ekki hefur farið leynt. Núna „er hún með“ Alex Grall, aðalritstjóra tveggja stærstu útgáfufyrirtækja Frakk- lands, Fayard og Hachette Litera- tur. 1 hennar augum hefur hjóna- band engan tilgang. — Hjónabandið er til komið af þjóðfélagslegri ýtni, segir hún. Og því ekki það? Ég er ekkert á móti hjónabandi. Mér finnst það bara ekki skipta máli. Eigi maður börn, er öðru máli að gegna. Annars þjónar það engum til- gangi. Ég vil búa ein. Ég vil vera ég sjálf. Ékki eiginkona þessa eða hins. Ég þarf engan eiginmann. Hún hallar sér aftur á bak í stóln- um 'og kimir. — Karlmönnum geðjast alls ekki að þvi að kona vilji ekki eiginmann. Karlmenn vilja hjónabandið, af því þá þurfa þeir ekki að hafa neitt fyrir þvi að halda í konur sinar. Francoise veit alveg hvernig smekk hún hefur á karlmönnum. Og hún hefur sýnilega gaman af því að svara þeirri spurningu. — Mér geðjast að karlmönnum, segir hún. Mér geðjast að karl- mönnum, sem eru sterkir og ekki ósnertanlegir. Veiklynt fólk fell- ur mér ekki i geð, hvorki konur né karlar, en að það sé móttæki- legt, hægt að koma við það, það er allt annað. Og ég vil myndarlega karlmenn og glæsilega. Mér þykir sjálfri gott að geta hlegið. Kari- maður, sem getur látið mig hlæja, er hreinasta guðs gjöf. Francoise Giroud hefur verið gagnrýnd fyrir að taka sæti i stjórn undir forustu Giscards d’Estaings. Þó hann geti varla kallast hægrisinni, þá er hann ekki eins langt til vinstri og Francois Mitterand, sem hún studdi í siðustu forsetakosning- um. En sagt er að d’Estaing sé ákaflega hrifinn af henni og hann stofnaði nýtt ráðherraembætti fyrir hana, í andstöðu við for- sætisráðherrann. Hún sér um málefni kvenna, sem forsetinn hafði lofað að taka til hendi við í kosningabaráttunni. — Ég styð Giscard nú vegna þess að enginn annar maður er til, hvorki á vinstri né hægri væng, sem hefur minnsta áhuga á mál- efnum kvenna. Hann er mjög greindur maður og skildi að breytingar voru á ferðinni í lífs- háttum kvenna. Vinstri menn- irnir eru allir „mýsogynistar” (hún segir að ekkert orð sé til á frönsku um iýðskrumaragelti). Einn af okkar kunnustu heim- spekingum vinstri manna hefur sagt, að konur geti ekki verið ann- að en húsmæður eða mellur. Og Mitterand sjálfur er í rauninni ekkert hrifinn af konum. Hann veitir þeim engin tækifæri. Hún tók þá ákvörðun að þiggja ráðherraembættið eftir að hafa hafnað því einu sinni, vegna þess að forsætisráðherrann franski, Jacques Chirac, reyndi að gera það lítilvægt. Þá skrifaði hún í dálk sinn i L’Express ummæli, sem nú eru orðin fræg. Hún sagði, að ef hún tæki starfið eins og Chirac vildi hafa það, þá mundi hún að viku liðinni áreiðanlega vera komin í eldhúsið í Elysée- höll að laga kaffi fyrir strákana. Forsetinn Giscard d’Estaing varð fjúkand reiður við Chirac forsætisráðherra, blandaði sér í málið og taldi Francoise Giroud á að taka sæti í rfkisstjórninni. Það gerði hún og valdi sér strax karl- mann fyrir ráðuneytisstjóra. Síðan hefur hún, að eigin dómi, verið að vinna að mikilvægari málaflokkum. Francoise Giroud heldur því ákveðið fram, að hún sé ekki í þessu ráðherrastarfi til að vernda konur. — Mér er illa við þetta orð „að vernda”. Konur þurfa ekki vernd. Börn þurfa vernd. Konur verða að geta tekið á sig ábyrgð, en þær eru fullar af mótsögnum. Þær vilja öryggi en um leið krefjast þær sjálfstæðis. Þær vilja borða kökuna sina og eiga hana óétna. Hvort tveggja Framhald á bis. 27.’

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.