Morgunblaðið - 14.03.1975, Síða 14
14
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1975
Ingólfur
Guðbrandsson:
Hinn
hreini
tónn
Elskulegu blásarar.
Fátt lætur ljúfar í eyrum en
hreinn og tær trompethljómur.
Jafnvel múrar Jeríkó féllu fyrir
slíkum hljóm forðum daga, og
margur herinn hefur síðan hildi
háð eggjaður fram af hvellum
lúðrum. Nú er það hvorki meira
né minna en heilt landssamband
lúðrasveita, sem sendir frá sér
tóninn, blæs til orrustu og sam-
þykkir vítur á Pólýfónkórinn,
stofnun sem reynt hefur að halda
hljómnum hreinum í nærri 18 ár
og átt hefur frumkvæði að því að
kynna löndum sínum margar feg-
urstu perlur tónbókmenntanna.
Og nú er spurningin, fyrir hvað?
Fæstir held ég að geti nú talið
þá starfsemi vítaverða, og nú
höfða ég til smekks og dóm-
greindar almennings. Komið og
heyrið snilldarverkið Messías í
Háskólabíói um páskana og
dæmið siðan sjálf þann lágkúru-
hátt, sem rætt er um í orðsend-
ingu Sambands íslenzkra lúðra-
sveita.
Flestar greinar lista- og menn-
ingarstarfsemi í landinu eiga við
ærna erfiðleika að etja, ekki sízt
vegna fjárhagserfiðleika. Það var
alls ekki ætlun Pólýfónkórsins að
varpa neinni rýrð á starfsemi
lúðrasveita almennt — sumar
þeirra eru býsna góðar — hvað þá
að upphefja sig á þeirra kostnað.
Það er síður en svo, að Pólýfón-
kórinn öfundi lúðrasveitirnar af
því fjárframiagi, sem þær hljóta
af almannafé, né telji það eftir,
þvert á móti þyrfti að hækka það
að mínum dómi. Hverjir ykkar
eru svona hörundssárir? Þið
ættuð þó manna bezt að vita, að
ekki spila allar lúðrasveitir í land-
inu hreint, og þetta veit öll
þjóðin, eftir að hafa hlustað á
ríkisútvarpið á þjóðhátíðarárinu.
I ummælum forráðamanna Pólý-
fónkórsins var aðeins tekin
viðmiðun, sem sýnir fram á ósam-
ræmi og ádeilunni beint á fjár-
veitingarvaldið en ekki neins
konar viðleitni til liststarfsemi í
landinu. En sú staóreynd stendur
óhögguð, að til eru lúðrasveitir í
landinu, sem fá meiri opinbera
fyrirgreiðslu þótt þær leiki falskt,
en Pólýfónkórinn fær fyrir að
syngja hreint.
Að lokum beini ég þeirri áskor-
un til landsmanna að halda upp á
páskana með því að hlýða á
„Messías“ og spara heldur páska-
eggjakaupin. Það er viðar ástæða
til að fylgjast með því sem gerist í
menningarmálum en á Kjarvals-
stöðum.
Lúðrasveitarmönnum sendi ég
beztu óskir og kveðjur. Haldið
áfram leitinni að „hinum hreina
tóni“. Ingólfur Guðbrandsson.
„Fjallkonurnar”
— Nýtt nafn
á kvenfélagi
í Breiðholti
KVENFÉLAG Breiðholts III hélt
í janúar aðalfund sinn í Fella-
helli. Harpa Jósefsdóttir Amin,
Vesturbergi 78, var endurkjörin
formaður félagsins. Aðrar í
stjórn eru: Bryndís F’riðþjófsdótt-
ir ritari, Brynja Símonsen gjald-
keri, Guðlaug Wium, Laufey
Magnúsdóttir og Birna Inga-
dóttir.
Lengi hafði verið í bígerð að
breyta nafni félagsins til aðgrein-
ingar frá öðru kvenfélagi i
nágrenninu. Samþykkt var á
fundinum að kvenfélagið í Fella-
og Hólahverfi skyldi framvegis
nefnast „Fjallkonurnar".
Aðalfundur
Krabbameinsfélags
Árnessýslu
verður haldinn á Hótel Selfossi sunnudaginn
16. marz kl. 3 e.h. Eftir fundinn fræðsluerindi.
Mætið með nýja félaga.
Stjórnin.
SUMARDEKK
ÁGÖMLU
VERÐI
YOKOHAMA
145 -13 Radial
155 -13 Radial
165 -13 Radial
175 -13 Radial
520
550
615
500/520
590
645
640
165/380
12-4 strigalaga
12- 4 strigalaga
13- 4 strigalaga
14- 4 strigalaga
14-4 strigalaga
14- 4 strigalaga
15- 4 strigalaga
15-4 strigalaga
kr. 3.582 msk.
kr. 3.762 --
kr. 3.858---
kr. 4.421---
kr. 3.294
kr. 3.192-
kr. 4.144-
kr. 4.158
kr. 4.129
kr. 4.495
kr. 5.332
kr. 5.321
Véladeild
Sambandsins
HJÓLBARÐAR
HÖFOATÚNI 8
SÍMAR 16740 OG 38900
slær öll met!
Astrad 302
FM bylgja, — lang.-miðbylgja,
í leðurtösku, 9 transistorar.
Verð kr. 3.610
Umboðsmenn um land allt.
Einstök gæöi,
ótrúlega Idgt verö
BIFREIÐAR l LANDBÚNAÐARVÉLAR
SUÐURLANDSBRAUT 14 — REYKJAVlK — SlMI 38600
Electrolux
ELDAVELAR
CF 266. 60 cm breið.
4 hellur. Ofn 45 Itr. aö ofan, hita-
geymsla að neðan.
Kaupa má sérstaklega:
Klukkuborð og grillbúnað.
Litir: Rautt — gult — brúnt —
hvítt.
Lituð kr. 81.500,-
Hvít kr. 74.300.-
CF 160. 70 cm breið með 4 hellum og
klukkuborði. 2 ofnar. Sá efri 54 Itr. með
innbyggðum grillbúnaði, hraðræsi og steikar-
mæli.
[ neðri ofninum er einnig hægt að baka.
Litir: Brúnt — grænt — hvítt.
Copper kr. 106.300,-
Avocado kr. 96.100.-
Hvít kr. 92.400 -
CF 205. 50 cm breið. 3 hellur. Ofn
að ofan, geymsluhólf að neðan.
Litir: Rautt — brúnt — hvítt.
Lituð kr. 49.600,-
Hvit kr. 47.900 -
EINNIG FYRIRLIGGJANDI
VIFTUR OG GUFUGLEYPAR
Vörumarkaöurinnhf.
ÁRMÚLA 1A, SÍMI 86112, REYKJAVÍK.