Morgunblaðið - 14.03.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1975
— Portúgal
Framhald af bls. 1
Spinola hefði verið handtekinn
eftir byltingartilraunina á þriðju-
daginn.
Einn valdamesti maður herafla-
hreyfingarinnar í Portúgal
(MFA), JoseCantaeCatro majór
sakaði í dag foringja Kristilega
demókrataflokksins, Jose
Sanches Osorio, um að hafa verið
viðriðinn byltingartilraunina á
þriðjudaginn.
Asökun hans er enn ein opinber
ábending um að flokkur kristi-
legra demókrata og bandalags-
flokkur hans, hinn hægrisinnaði
Miðdemókrataflokkur (CDS),
verði bannaðir áður en fyrirhug-
aðar kosningar verða haldnar.
Canto e Castro majór sagði, að
Osorio hefði flúið land og ekki
væri nákvæmlega vitað hvaða
hlutverki hann hefði gegnt í bylt-
ingartilrauninni en tengsl hans
við Antonio de Spinola fyrrver-
andi forseta sönnuðu að hann
hefði verið flæktur í byltingartil-
raunina.
Majórinn kallaði foringja
uppreisnarinnar Guilherme
Alpoin Galvao flugliösforingja og
sagði að Spinola hefði aðeins
verið leiötogi hennar að nafninu
til.
Að sögn portúgaiska utanríkis-
ráðuneytisins er unniö að þvi að
fá Spinola fram'seldan frá Spáni
en engin opinber beiðni hefur
enn verið lögð fram og kunnugir
tclja að í raun og veru vilji
portúgalska stjórnin ekki fá hann
framseldan.
Þúsundir manna gengu i dag
fram hjá kistu eina mannsins sem
féll í byltingartilrauninni,
óbreytta hermannsins Joaquim
Carvalho Luis, 21 árs. Athöfnin
fór fram við herbúðir stórskota-
liðsins og þar hafði safnazt mikiil
fjöldi manna sem veifuðu rauðum
fánum og spjöldum og kröfðust
þess að foringjar uppreisnarinnar
yrðu líflátnir.
Handtökurnar sem hófust eftir
byltingartilraunina héldu áfram í
dag og nú mun alls um 100 hafa
verið handteknir. 1 dag voru birt
nöfn 39 liðsforingja og 13
óbreyttra borgara sem hafa verið
handteknir. Þar á meðal eru
nokkrir kunnir kaupsýslumenn
og gósseigendur.
Dregið hefur verið úr viðbúnaði
en enn er vöróur víð útvarps- og
sjónvarpshúsið og bankar voru
enn lokaðir.
r
— Israel
Framhald af bls. 1
fyrir þúsundir hermanna á aust-
urbakkanum.
Vegna þessara frétta hefur
ísraelski herinn gripið til sér-
stakra ráðstafana að sögn
ísraelska útvarpsins. Utvarpið
segir aö strið brjótist út í Miðaust-
urlöndum ef sáttatilraunir Kiss-
ingers beri ekki árangur.
Aður en Kissinger ræddi við
Sadat talaði hann við egypzka ráð-
herra um tillögur Israelsmanna
um hve langt herlið þeirra á Sinai
skyldi hörfa. Egyptar segja að
helzti ásteytingarsteinninn i við-
ræðunum sé orðalag ákvæðis þar
sem báðir aðilar lofa að ráðast
ekki á hvor annan.
Egyptar vilja ekki íallast á þá
kröfu Israelsmanna að þeir lofi að
binda enda á ríkjandi styrjaldar-
ástand í sambúð þjóðanna. Þeir
vilja ákvæði um að samnings-
aðilar, lofi að virða vopnahléð og
forðast hernaðaraðgerðir.
Samkvæmt góðum heimildum
getur liðið ein vika áður en árang-
urs verði að vænta af sáttatilraun-
um Kissingers.
— Harðorð
mótmæli
Framhald af bls. 1
skáksambandið ekki svo langt
að hóta því að mæta ekki á
fundinum sem verður haldinn í
Hollandi og hefst 18. marz.
Það sagði heldur ekki afdrátt-
arlaust að Karpov myndi ekki
tefla vió Fiseher ef reglunum
yrði breytt.
Rússar telja að FIDE hafi
þegar látið undan kröfum full-
trúa Fischers og þar með standi
Karpov verr að vígi áður en
hann mæti til leiks.
I yfirlýsingunni í dag segir að
með því að láta undan fyrir
Fischer hafi verið grafið undan
áhrifum FIDE og efi hljóti að
vakna um hæfileika dr. Max
Euwe, forseta FIDE, og
annarra starfsmanna alþjóða-
skáksambandsins.
Sovézka skáksambandið segir
að samþykkt Nizza-fundarins
gildi sem lög er verði ekki
breytt. Rússar eru samþykkir
þeirri ákvörðun FIDE að í ein-
víginu verði tefldar allt að 36
skákir og jafntefli nægi ekki til
sigurs en Fischer krefst þess að
fjöldi skákanna verði ekki tak-
markaður.
Euwe hefur raunverulega
sagt að hann sé sammála Rúss-
um en hann getur lítið gert til
að koma í veg fyrir að endur-
skoðun á reglunum verði sam-
þykkt á fundinum í næstu viku,
Rússar eiga erfitt með að
sætta sig við þá ákvörðun FIDE
að einvígið skuli fara fram í
Manila eins og Fischer hefur
viljað. Karpov vildi tefla i
Milanó. I Manila voru i boði
fimm milljón dollara verðlaun
en i Milano 500.000 dollara
verólaun.
— Kambódía
Framhald af bls. 1
flugfélagið aflýsti áætlunarferð
til Bangkok en talið er að ferðir
félagsins og loftflutningar
Bandarikjamanna hefjist aftur á
morgun.
Skriðdrekalió stjórnarinnar
reyndi að hrekja stórskotalið
uppreisnarmanna frá svæðinu
umhverfis flugvöllinn og sótti 500
til 1000 metra en nánar var ekki
sagt frá þessum aðgerðum. Ein
eldflaug féll á sjálfa borgina
Phnom I'enh i dag en engan
sakaði.
Long Boret forsætisráðherra
heldur áfram tilraunum sinum til
að mynda nýja stórn og fréttir
hafa borizt um harðar
stjórnmálaværingar. Bróðir Lon
Nol forseta, Lon Non
hershöfðingi, er sagður reyna að
koma mönnum hliðhollum sér í
ráðherraembætti, Lon Non hefur
ráðió miklu að tjaldabaki síðan
hann kom úr 18 mánaða útlegð
fyrir sex mánuðum og bandaríska
sendiráðió telur áhrif hans
neikvæð eins og á stendur.
Sihanouk fursti, fyrrverandi
þjóðhöfðingi Kambódíu skoraði í
dag á allar ríkisstjórnir sem hafa
sendiráð í Phnom Penh að loka
þeim og flytja alla þegna sína úr
landi að sögn Peking-útvarpsins.
— Lofsvert
framtak
Framhald af bls. 16
kynningargildi er færa okkur
nær því stefnumarki ákaflega
þýðingarmiklar, og ofangreind
sýning er ein hin gildasta í
þeim skilníngi og er von að
verði framhald á þessu lofs-
verða framtaki upplýsingaþjón-
ustunnar, og ef ég man rétt átti
einnig að vera væntanleg sýn-
ing á grafískum verkum pop-
listamannsins fræga Jim Dine.
Aðeins einn galli er á sýning-
unni og hann er sá að hún
stendur alltof stutt eða ein-
ungis til föstudagskvölds, en
það er von mín aö hún verði
framlengd um 1 viku að
minnsta kosti.
— Ferjukaup
Framhald af bls. 1
verður einnig í ferðum til íslands,
Hjaltlandseyja og Noregs.
Ætlunin er að skipið fari fjórar
ferðir til Reykjavíkur á sumri
komanda, fjórar til Hjaltlands-
eyjar og tíu til Björgvinjar. 1
utanlandssiglingu getur skipið að
öllum líkindum tekið um 350 far-
þega. F'erjan ber einnig 110 bif-
reiðar.
Nú eru í skipinu um 50 skips-
kojur en áður en það kemur til
Færeyja mun verða komið fyrir
um 200 rúmum til viðbótar í því.
I Færeyjum hafa verið skiptar
skoðanir um kaup á þessari ferju.
Þegar atkvæðagreiðsla fór fram
um málið greiddu 14 fulltrúar
landsstjórnarflokkanna atkvæði
með því, en þeir eru alls 18 og auk
þess greiddi einn úr stjórnarand-
stöðunni atkvæði með ferjukaup-
unum. Formaður fjárveitingar-
nefndar, Haakon Djurhuss, og
fjármálaráðherrann Demmus
Hentze, voru á móti kaupunum en
aðal baráttumenn fyrir því að
festa kaup á skipinu voru Finn-
bogi Isakssen og Atli Dam lög-
maður.
— íþróttir
Framhald af bls. 31
ekki ósennilegt að það verði lið
frá þessum þjóðum sem leika hér
úrslitaleikinn, þótt fleiri komi
vitanlega til greina, eins og t.d.
Svíar.
— Hingað munu koma um 35
keppendur, fararstjórar og stjórn
Evrópusambandsins, sagði
Sveinn Áki, — og verðum við að
greiða allt uppihald þessara aðila
á meðan á mótinu stendur.
Þá er búizt við miklum fjölda
blaðamanna sem fylgjast munu
með leikjum þessum, en á undan-
förnum árum hefur úrslita-
leikjunum verið sjónvarpað í
flestum Evrópulöndum, og þeir
jafnan vakið mikla eftirtekt.
— Iðnþróunar-
sjóður
Framhald af bls. 3
styrki til markaðsathugana og sér-
stakra útflutningsaðgerða.
A fundi stjórnar Iðnþróunar-
sjóðs í Helsinki kom fram áhugi á
því að sjóðurinn beitti sér i aukn-
um mæli fyrir nýjungum í fram-
leiðslu og eflingu nýrrar iðnaðar-
framleiðslu, m.a. með því að auka
lán- og styrkveitingar til tilrauna-
starfsemi og vöruþróunar.
— Hans G.
Andersen
Framhald af bls. 32
áfram eins og hingað til að gera
sitt ítrasta til að tryggja sigur
200 mílna efnahagslögsögu
strandrikisins, þar sem öil völd
eru í höndum þess sjálfs.
Hins vegar er nauðsynlegt að
blanda ekki öðrum hlutum inn í
málið, sem gætu torveldað
lausn þessa aðalatriðis, og á það
m.a. við um óhóflegar kröfur
um mengunarlögsögu strand-
rikisins, sem mörg ríki óttast að
gætu torveldað siglingafrelsi á
hafinu — og svo mætti lengi
telja. Slikar reglur verður fyrst
og fremst að setja með sam-
komulagi, en ekki þannig að
strandríki telji sér rétt að
ákveða, hvað sem því sýnist í
því efni. Sendinefndin mun
sem sagt hafa það að leiðarljósi
að styðja þær tillögur sem
tryggja sigur efnahagslögsög-
unnar, en ekki þær sem gætu
spillt fyrir.
A ráðstefnunni verður að
taka afstöðu til a.m.k. hundrað
málaflokka og eru engin tök á
að rekja það nánar hér.
Evensens-viðræðurnar eru
kenndar við formann nefndar-
innar, en í henni eiga sæti for-
menn ýmissa sendinefnda úr
öllum heimshlutum (þ.e. 20—
30 ríkja), svo að hin mismun-
andi sjónarmið komi þar fram.
Þetta er óformleg nefnd sem
stofnað var til í samráði við
forseta ráðstefnunnar, Amera-
singhe frá Ceylon.
Viðræðurnar í nefndinni nú
undanfarið hafa leitt í ljós að
þessi vinnubrögð voru nauðsyn-
leg, ef takast á að greiða úr
öllum tillöguflækjunum, sem á
borðinu liggja, og munu áreið-
anlega flýta fyrir heildarlausn
málsins í Genf. Ákveðið hefur
verið að nefndin muni hafa
daglega fundi í Genf fyrst um
sinn og geri sitt itrasta til að
samkomulag geti náðst án at-
kvæðagreiðslu. En þótt það tak-
ist ekki, er öruggt að öll máls-
meðferð verður mun auðveld-
ari en áður var.
Nú þegar við höldum til Gen-
far, sagði Hans G. Andersen að
lokum, má minnast þess, að Is-
land hefur ekki nema eitt at-
kvæði á ráðstefnunni af eitt
hundrað og fimmtiu, en við höf-
um trú á því að með starfi und-
anfarinna ára hafi verið lagður
styrkur grundvöllur að þvi, að
okkar hagsmunum verði borg-
ið, þegar upp verður staðið'. En
að minu áliti munu línur ekki
skýrast nægilega fyrr en á síð-
ari hluta Genfarráðstefnunnar,
þ.e. eftir miðjan apríl. Genfar-
fundinum á að ljúka 10. maí,
eins og kunnugt er.
— Kirkjudagur
Framhald af bls. 2
hann haldinn í fyrsta sinn í
hinni nýju kirkju safn-
aóarins. Hann hefst með
guðsþjónustu kl. 2. Þar
prédikar Þorvaldur Karl
Helgason, guðfræóinemi,
en sóknarpresturinn
þjónar fyrir altari. Um
kvöldið veróur kvöldvaka
og hefst hún kl. 21. Þar
mun Siguróur Blöndal,
skógarvörður á Hallorms-
staó, sýna litskyggnur úr
kirkjumyndasafni sínu.
Jóhannes Tómasson, ný-
skipaður æskulýðsfulltrúi,
flytur erindi, Lúðrasveitin
Þrestir leikur og aö lokum
veróur helgistund. Egils-
staóabúar hafa ævinlega
fjölmennt til þess aó taka
þátt í kirkjudeginum og
veróur svo væntanlega
einnig nú.
— Svartolía
Framhald af bls. 32
um á strandstað í allan gærdag til
að kanna aðstæður til björgunar á
skipinu sjáifu. Komu þeir ekki til
Húsavikur aftur fyrr en seint i
gærkvöidi eða eftir að Morgun-
blaðið var farið í prentun.
Hins vegar kom Hilmar Páls-
son, fulltrúi Brunabótafélags Is-
lands, sem tryggir farm skipsins,
til Reykjavíkur i gærdag ásamt
Kristni í Björgun eftir að þeir
höfðu kannað aðstæður til björg-
unar á farminum. Sagði Hilmar í
samtali við Morgunblaðið, að ekki
væri enn búið að taka endanlega
ákvörðun um það hvort ráðizt yrði
í að bjarga farminum en allt benti
þó til þess að það yrðiofaná. Hins
vegar væri svo grunnt við hið
strandaða skip að gera þyrfti sér-
stakar ráðstafanir þess vegna og
kæmi helzt til greina að beita
pramma við flutning á farminum
frá skipinu. Væri nú verið að at-
huga hvort unnt væri að fá slikan
pramma.
— Lækkun
Framhald af bls. 32
greiðslu á allt að 59% af launum
sínum, en þegar reglunum var
breytt 1960 var um að ræða 30%
gjaldeyrisyfirfærslu. „Tveir full-
trúar frá flugmönnum,“ sagði Jó-
hann,„ og einn frá vélamönnum,
voru boðaðir til viðræðna um
þessi mál i viðskiptaráðuneytinu.
Þar voru lagðar fyrir okkur tillög-
ur um rétt til gjaldeyrisafgreiðslu
á 10% af launum okkar og 200
þús. kr. þak á heildargjaldeyrisaf-
greiðslu. Við munum engan veg-
inn sætta okkur við þessar hug-
myndir, því þær eru algjörlega út
í hött. Vegna vinnu okkar verðum
við að vera mikinn hluta starfs-
dags okkar erlendis og við getum
ekki borgað með íslenzkum krón-
um fyrir það að lifa lífinu erlend-
is. 1 margar vikur höfum við verið
háðir höftum i gjaldeyrisyfir-
færslu og aðeins fengið 100 doll-
ara á mánuði og nú siðast þegar
gjaldeyrishöft hafa verið afnumin
að mestu, þannig að gjaldeyris-
þjónusta er svipuð og s.l. ár eru
enn höft á því fólki sem þarf
vegna vinnu sinnar að fá gjald-
eyrisþjónustu. Flugmenn hafa
mótmælt harðlega þessari miklu
skerðingu á rétti til gjaldeyrisyf-
irfærslu og hugmyndum um
breytingar í því efni. Flugmenn
telja að láti stjórnvöld verða af
þessu, leiði það aðeins til vand-
ræða, ekki aðeins fyrir flugliða,
heldur einnig fyrir ríkið og flug-
félögin og við vonumst til þess að
þessar nýju hugmyndir verði end-
urskoðaðar hið bráðasta til heilla
fyrir alla.“
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Erlu Hatlemark for-
mann Félags islenzkra flugfreyja.
Hún kvaðst aðeins af afspurn
hafa heyrt um þetta mál, „sem
snerti flugfreyjur þó mjög mikið,
en það hefur ekkert verið rætt við
okkur um þessi mál af stjórn-
völdum", sagði hún. „Við erum
reyndar ekki óvanar því,“ hélt
Erla áfram, „að ekki sé rætt við
okkur um ýmis mál, sem okkur
varða þó mikið. Það er nú kominn
timi til að við okkur sé rætt, en
ekki aóeins þá sem mest hafa
kaupið. Flugfreyjur eru með laun
frá 40 þús. kr. til liólega 60 þús kr.
á mánuði og sú upphæð sem við
höfum getað fengið í gjaldeyris-
yfirfærslu er því allt að 6 sinnum
lægri en t.d. launahæstu flug-
stjóra. Þau gjaldeyrisréttindi sem
flugfreyjur hafa haft hafa gefið
okkur kost á að lifa mannsæm-
andi lífi, erlendis, en ekkert um-
fram það. Við dveljum erlendis í
starfi okkar af illri nauðsyn og
98% flugfreyja teljast til lág-
launafólks miðað vió þá skilgrein-
ingu sem stjórnvöld hafa í dag i
þeim efnum. Okkar fridagar
heima eru okkar sunnudagar og
við fljúgum jafnt á nóttu sem
degi. Sumt í daglegri þjónustu
hljótum við því að kaupa erlendis
þótt það kosti oft aukin hlaup og
amstur. Ef flugfreyjur á
byrjendalaunum ættu að fá 10%
af launum sínum x gjaldeyri,
myndi það duga t.d. fyrir einni
leikhúsferó eða tveimur bíó-
ferðum á mánuði, miðað við aó
gengið væri til og frá staðarins.
Við förum að jafnaði fjölmargar
ferðir í mánuði til útlanda og það
segir sig því sjálft hvaða augum
við lítum á þessar hugmyndir,
sem við höfum þó aðeins heyrt af
afspurn. Til vonar og vara höfum
við mótmælt þessum ráðagerðum
og undanfarnar vikur höfum við
sætt gjaldeyrishöftum. Hins veg-
ar teijum við liklegast að ekki
hafi verið talað við okkur um
þessi mál vegna þess að stjórn-
völd skilji að ekki er ástæða eða
grundvöllur fyrir breytingum í
þessum málum varðandi flug-
freyjur, ef vió eigum að njóta
almennra mannréttinda eins og
aðrir islenzkir þegnar.“
r
— Utvarp
Framhald af bls. 15
Popp kl. 11.00: Gísli Loftsson sér um
þáttinn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 A frfvaktinni
Margrét Guðmundsdóttir kynnir óska-
lög sjómanna.
14.30 tslenzk kvennasaga
Else Mia Finarsdóttir greinir frá
nýstofnuðu heimildasafni og Elfn
Guðmundsdóttir Snæhólm talar um
lopaprjón.
15.00 Miðdegistónleikar
Radoslav Kvapil leikur pfanóverk eftir
Antonfn Dvorák. Elisabeth Schwarz-
kopf og Dietrich Fischer-Dieskau
syngja þýzk þjóðlög í útfærslu Johann-
esar Brahms; Gerald Moore leikur á
pfanó.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15) Veð-
urfregnir). Tónleikar.
16.40 Barnatfmi: Gunnar Valdimarsson
stjórnar.
17.30 Framburðarkennsla f ensku
17.45 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Mælt mál
Bjarni Einarsson flytur þáttinn.
19.40 Einsöngur f útvarpssal: Elfsabet
Erlingsdóttir syngur lög eftir Karl O.
Kunólfsson og Pál tsólfsson; Guðrún
Kristinsdóttir leikur á pfanó.
20.00 (Jtvarp frá Aiþingi: Almennar
stjórnmálaumræður
Hver þingflokkur hefur til umráða 30
mfn., sem skiptast f tvær umferðir, 20
og 10 mfn., eða 15 mfn. f hvorri. Röð
flokkanna:
Alþýðubandalag,
Sjálfstæðisflokkur,
Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkur,
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna.
22.50 Veðurfregnir og fréttir.
23.00 Létt músik á sfðkvöldi.
23.45 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok.