Morgunblaðið - 14.03.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.03.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1975 Stai pi Dögg og Baldur % q -.. Brjánsson T. |# skemmta ' LífÖj V v í kvöld. t y 1 Íifc-^ÉÍ Stapi. «0«QATA KX MM 1M13 EIK í fyrsta sinn í gamla góða Þórscafé. Opið frá kl. 9—1. Þórscafé. AtOHlQATA KX MM IM2J. SKEMMTIKVÖLD föstudaginn 14. marz fyrir unga sem aldna. Gömlu og nýju dansarnir á fullu allt kvöldið. Baldur Brjánsson sýnir töfrabrögð. 2. hæð opin frá 9—1. Hverfasamtök Framsóknarmanna í Breiðholti. HÓTEL ESJA Hið stórkostlega Stuðlatríó | IÞBÓITAFRÍTTIR WBBCUMBIABSIWS IR lifir í voninni eft- ir sigur yfir Haukum IR-INGAR halda enn í þá von ad halda 1. deildar sæti sínu eftir sigur gegn Haukum á miðvikudag í Höllinni. Liðið hefir nú hlotið fimm stig úr þrettán ieikjum, en næst á undan kemur Grótta með sex stlg úr jafnmörgum ieikjum. Bæði liðin leika sína síðustu leiki á sunnudaginn kemur, fyrst Grótta gegn Ármanni og strax á eftir IR gegn Fram. Það er því ekki útséð hvort liðið fellur niður 12. deild. Leikur ÍR og Hauka var annars leikur mikilla mistaka, og áttu bæði lið þar svipaðan hlut að máli. Hvað eftir annað komust leikmenn í hin ákjósanlegustu marktækifæri, en místókst æ ofan í æ. Það var ef til vill skiljanlegt að áhugi Haukanna á leiknum væri takmarkaður, þar sem liðið hafði að litlu að keppa, en iliskilj- anlegt var áhugaleysi iR-inga þar sem sæti liðsins í deildinni var í húfi. Ef til vill hafa iR-ingar þeg- ar sætt sig við að falla niður í 2. deild. Það sem helsi gladdi í leiknum á miðvikudag var, að Herði Sig- marssyni tókst að setja nýtt markamet í 1. deild. Hann skoraði sex mörk í leiknum, og því alls 125 mörk í mótinu, eða að jafnaði tæplega níu mörk í leik, sem er frábær árangur. Fyrra markamet- ið í 1. deildar keppni átti Ingólfur Óskarsson, og var það sett síðasta árið sem leikið var að Háloga- landi, 1964. Þá skoraði Ingólfur 122 mörk. I upphafi leiksins komst IR tvö mörk yfir, en Haukarnir náðu sér á strik og höfðu örugga forystu í leikhléi. Þegar tíu mín., voru af síðari hálfleik höfðu ÍR-ingar jafnað, en sá draumur stóð ekki lengi, því Haukar skoruðu næstu þrjú mörk og staðan 17:14. Flestir reiknuðu þá með að dagar IR væru taldir, en hvað gerist, IR Ágúst Svavarsson — átti góðan leik og skoraði 7 mörk. náði að jafna 18 gegn 18 og fjórar mín. til leiksloka. Haukar glopr- uðu boltanum og ÍR sömuleiðis. ÍR-ingar náðu aftur boltanum, en misheppnaðist markskot, sömu- leiðis Haukum. Þá skoraói Ágúst Svavarsson með þrumuskoti og mínúta til leiksloka. Það sem eftir lifði tókst IR að verjast sókn Hauka og sigruðu því með 19 mörkum gegn 18. Sigur ÍR var áhangendum liðs- ins efalaust mjög kærkominn. Enn er von um áframhaldandi setu í deildinni, og liðið mun efa- laust berjast af miklum krafti gegn Fram á sunnudag. Það sætir annars undrun hve árangur IR- inga hefir verið slakur í vetur, þegar litið er til þess hve margir ágætir og reyndir handknattleiks- menn skipa liðið. 1 leiknum gegn Haukum átti Ágúst Svavarsson skínandi leik. Hann ógnaði nú mun betur en hann hefir gert hingað til, og i Iokin brugðu Haukar á það ráð að taka Ágúst úr umferð. Þá áttu Ásgeir Elías- son og Þórarinn Tyrfingsson og ágætan leik. Leikurinn gegn IR hefir líklega verið slakasti leikur Hauka í mót- inu í vetur. Flestir reyndari leik- manna liðsins, Ólafur Ölafsson, Stefán Jónsson og Elías Jónasson léku langt undir getu. Sama má raunar segja um Hörð Sigmarsson sem var óvenju daufur. Það var helst að yngri mennirnir, einkum Hilmar Knútsson og Ingimar Har- aldsson, sýndu góðan leik. Þá varói Gunnar Einarsson prýðilega í fyrri hálfleik, en í þeim síðari tókst honum illa upp. En sjálfsagt má skýra slakan leik Haukanna með því aó úrslit hans skiptu engu meginmáli fyrir liðið. Það heldur sæti sínu örugglega og á ekki kost á verðlaunasæti. En falla iR-ingar eða Grótta? Um það skal engu spáð hér, en úrskurður fellur í Höllinni á sunnudag og verður efalaust um harða keppni að ræða. Sigb.G. Endurvekjum gamla góða stuðið í UNGÓ. UNGÓ Lið IR: Ásgeir Elíasson 2, Sigurður Svavarsson 1, Ölafur Tómasson 2, Þórarinn Tyrfingsson 2, Ágúst Svavarsson 3, Hörður Árnason 1, Gunnlaugur Hjálmarsson 1, Vilhjálmur Sigurgeirsson 1, Brynjólfur Markússon 2, Jens Einarsson 2, Hörður Hákonarson 1, Guðmundur Gunnarsson 1. Lið Hauka: Ólafur Torfason 1, Svavar Geirsson 1, Þorgeir Haraldsson 1, Ingimar Haraldsson 2, Arnór Guðmundsson 1, Ólafur Ólafsson 1, Stefán Jónsson 2, Hilmar Knútsson 2, Sigur- geir Marteinsson 1, Hörður Sigmarsson 2, Elías Jónasson 2, Gunnar Einarsson 2. eman AEOttQATA KX HM IM22 FJÓLA í UNGÓ LAUGARDAG 15. marz GANGUR LEIK8INS: mín. IR Haukar 3. Vilhjálmur (v) 1:0 5. 1:1 Hilmar 7. Ásgeir 2:1 9. Ágúst (v) 3:1 10. 3:2 Eifas 11. 3:3 Hilmar 11. 3:4 Ingimar 12. 3:5 Hörður 13. Ágúst (v) 4:5 15. 4:6 Hörður (v) 20. 4:7 Hörður 21. Asgeir 5:7 23. 5:8 Hilmar 24. Asgeir 6:8 24. 6:9 Hörður 25. Ásgeir 7:9 26. 7:10 Siguigeir 27. 7:11 Sigurgeir 29. Ágúst 8:11 Hálfleikur 32. 8:12 Hörður (v) 33. Ágúst 9:12 34. Brynjólfur 10:12 36. Þórarinn 11:12 40. Brynjólfur 12:12 41. 12:13 Svavar 41. Ágúst 13:13 42. 13:14 Elías 43. Þórarinn 14:14 46. 14:15 Ingimar 49. 14:16 Árnór 50. 14:17 Sigurgeir 51. HörðurÁ. 15:17 54. 15:18 Hörður 54. Ágúst 16:18 55. Brynjólfur 17:18 56. Ásgeir 18:18 59. Ágúst 19:18 Mörk IR: Ágúst Svavarsson 7, Asgeir Elías- son 5, Brynjólfur Markússon 3, Þórarinn Tyrfingsson 2, Hörður Árnason 1, Vilhjálm- ur Sigurgeirsson 1. Mörk Hauka: Höróur Sigmarsson 6, Hilmar Knútsson 3, Sigurgeir Marteinsson 3, Elías Jónasson 2, Ingimar Haraldsson 2, Svavar Geirsson 1, Arnór Guómundsson 1. Krottv ísanir af velli: Elías Jónasson og Höróur Sigmarsson Haukum i 2 mfn. hvor. Misheppnuð vítaköst: Gunnar Einarsson varði vftakast Vilhjálms Sigurgeirssonar á 5. rnfn. og vftakast Ágústs Svavarssonar á 28. mín. Hörður Sigmarsson skaut f stöng úr vítakasti á 39. mín. Dómarar: Valur Benediktsson og'Magnús V. Pétursson gerðu rniklar og margar skyss- ur. Sigb.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.