Alþýðublaðið - 14.08.1920, Side 1

Alþýðublaðið - 14.08.1920, Side 1
Alþýðublaðið Grefið út af AlþýÖuflokknum. 1920 Laugardaginn 14. ágúst. 184. tölubl. Islandsbanki. Hvers vegna það er nauðsyn- iegt að hann hverfí úr sögunni. Undanfarna daga hefir verið sýnt fram á það hér í blaðinu, að nauðsynlegt sé að landsstjórnin (ef nokkur stjórn er í landinu) taki fram fyrir hendurnar á Fiskhringn- um og Íslandsbanka, og ráði fram úr peningamálunum með það fyr- ir augum að hinu almenna við- skiftalífi verði borgið, án tillits til þess hvað gróðabrallsmenn þeir sem í Fiskhringnum eru, álíta sér fyrir beztu, og án tillits til þess hvað er gróðavæniegast fyrir hina útlendu hluthafa íslandsbanka, og hína fáu íslenzku attaníossa hans, sem í upphafi vegar bankans var troðið hlutabréfum í, til þess þeir ýrðu bankanum fylgjandi (svo sem þeir og dyggilega hafa verið). Landsstjórnin hefir í hendi sér að knýja fram vilja sinn gagnvart bankanum, og þar með Fiskhringn- um, eigi sízt fyrir það að bankinn hefir hvað eftir annað brotið af sér öll Iög, með því í mörgum greinum að skeyta leyfislögunum ■ekki meira en væru þau alls ekki til. Má þar til dæmis nefna að bankinn hefir aðeins haft um 3/4 *nilj. kr. í gulli hér á landi til byggmgar seðlafúlgu, sem numið hefir á annan tug miijóna krónal Ennfremur má nefna það, að bank- inn hefir méð skökkum reikning- Um (sumir mundu kalla það föls- uðum reikningum) haft af lands- sjóði svo þúsundum króna skifti, sem koma hefðu átt í landssjóð- iun fyrir seðlaútgáfu bankans. En eins og sagt hefir verið áð- ur hér í blaðinu, þá er þetta ekki «óg. Með gömlum og nýjum Iaga- brotum, með vandræðum þeim sem bankinn hefir leitt landið í bieð því að lána innstæðufé al- niennings til fiskbrasks, og með þeirri smán sem bankinn hefir leitt yfir íslendinga með því að verða þess valdandi að íslending- ar nú f fjármálum etu settir á bekk með Hund-Tyrkjanum, hefir bank- inn unnið sér svo margfalt óhelgi, að óhæfa væri að láta hann halda áfram. En það er líka annað, sem ger- ir það að knýjandi nauðsyn, að Iandið taki nú við bankanum, og það er að bankinn fái ekki tæki- færi til þess að leika landsmenn eins grátt og hann gerði 1907. Hver efast um að íslandsbanki muni fara eins að núna eins og þá? Hver efast um það, að það verði hagsmunir hluthafanna sem ráða, en ekki hagsmunir þeirra sem lán hafa fengið í bankanum? Hver efast um það, að íslands- banki setji viðskiftamenn sína unnvörpum á höfuðið, ef svo ber undir að það er fremur hagur fyr- ir hluthafana, eða að bankastjór- arnir eða þeir fjármálamenn úti í Danmörku, sem þeim stjórna; að- eins halda að hagsmunir hluthaf- anna séu bezt trygðir á þann hátt? Fum og fljótfærni hefir einkent íslandsbanka þegar eitthvað hefir á bjátað, samanber það þegar bankastjórnin til þess að græða nokkur hundruð krónur handa bankanum, seldi lóðina fast upp að gluggum bankans. Og sama fljótfærnin lýsti sér nú um daginn í því þegar bankinn auglýsti er- lendis, að hann léti ekki innleysa sína eigin seðla, en það verk eitt, sem var alveg óþarft, er nóg til þess að hnekkja fjárhagsáliti lands- ins um langan tíma. Hagsmunir þjóðarinnar krefjast þess, að íslandsbanki eigi þess engan kost, að ganga að við- skiftamönnum sínum, en það verð- ur bezt trygt með því að landið taki við seðlaútgáfurétti bankans og viðskiftum hans. Um hlutafé bankans má fara eins og sýnt var fram á í gær, þegar Ijóst er orðið að landið tapi ekki á þeim við- skiftum, sem það tekur við af bankanum. Sprengiduflin við Langánes, Svohljóðandi upplýsingar hefir Alþbl. fengið hjá vitamálastjóran- um, hr. Th. Krabbe: Varðskipið »Beskytterenc er nýkomið til Siglufjarðar aftur, hefir verið vjð Langanes, á svæði 20 sjómílur norður og austur af nesinu, og þar haft tal af 16 skipum og jafnframt af mönnum á landi. Enginn hefir orðið var við sprengidufl þar nú í viku, nema 1, sem sást 45 sjóm. suð- austur af Langanesi. Líkur eru til að duflin hafi rekið suður á bóg- inn. Hætta mun sem stendur vera lítil á svæðinu um Langanes, en hugsast getur að dufl verði á næstunni á sveimi fyrir austan og sunnan land, og eru sjómenn því aðvaraðir um, að fara gætilega, og um fram alt koma ekki við dufl, sem þeir kunna að sjá, held- ur tilkynna sýslumanni það sem fyrst. Landsþingskosningarnar dönsku. Landsþingskosningarnar dönsku hafa, samkv. skeyti frá sendiherra Dana hér, farið á þessa leið: Vinstri fengið 31 (höfðu áður 26), jafnaðarmenn 19 (höfðu 15), íhaldsmenn 14 (höfðu 13), radi- kalafl. 8 (höfðu 13). Auk þessa voru kosnir tveir utanflokka íhalds- menn. Meðal þeirra er hlutu kosningu eru 8 konur; þar af eru 4 í vinstri- flokknum, 2 í jafnaðarmfl. og ein í hvorum hinna flokkanna. Munktells T. er sýndur frá kl. 1 f dag við hliðina á Botnfu. Vér ráðleggjum vélamönnum fastlega að skoða hann.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.