Morgunblaðið - 09.04.1975, Side 12

Morgunblaðið - 09.04.1975, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRIL 1975 F j ár m álar áðherr a: Skattfrádregin varasjóðsframlög Matthías A. Mathiesen (S), fjármálaráðherra, svaraði í sam- einuðu þingi í gær fyrirspurn frá Geir Gunnarssytii (K) svohljóð- andi: ,,Hve háa fjárhæð hafa fyr- irtæki fengið dregna frá tekjum við álagningu skatta vegna ráð- stöfunar hluta tekjuafgangs í varasjóð sl, 7 ár?“ Svar ráðherra var á þessa leið: Vegna þessarar fyrirspurnar háttvirts 11. landskjörins þing- manns hef ég látið taka saman yíirlit yfir þær fjárhæðir, sem félög hafa dregið frá hreinum tekjum til skattálagningar og lagt í skattlegan varasjóð skv. heimild- arákvæðum 2. mgr. 17. gr. iaga nr. 90/1965 og 2. mgr. 9. gr. laga nr. 7/1972, sbr breyting á 17. gr. laga nr. 68/1971 um tekjuskatt og eignarskatt á árunum 1968 til og með ársins 1974, þ.e. sl. 7 ár. (jjaldáriA (allt landiri) 1»«8 kr. 87.98».(>48.- 196» kr. 91.595.650.- 1970 kr. 198.788.155.- 1971 kr. :i 10.920.68:1.- 1972 kr. .122.207.488.- 1973 kr. 329.757.795.- 1974 kr. 511.105.146.- Samt. 1.852.364.565.- Ég hef látið leggja á borð þm. töflu um sundurl. þessara talna eftir kjörd. Með yfirliti þessu þykir mér rétt að láta fylgja eftirfarandi skýringar og athugasemdir: 1. Heimild til skattfrjálsra til- laga í varasjóði nær aðeins til félaga sem eru sjálfstæðir skattaóilar. 2. Tölurnar eru fengnar úr heild- arniðurstöðum Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar eins og þær eru við frumálagn- ingu og framlagningu skatt- skráa. 3. Við kæruafgreiðslu hjá skatt- stjórum, ríkisskattstjóra, og ríkisskattanefnd hafa vara- sjóðstillög breyst nokkuð, ým- ist til hækkunar eða lækkunar. Ekki er talíð framkvæmanlegt nema með mjög mikilli fyrir- höfn að ákvarða hve háar þess- Matthfas Á. Mathiesen, fjármálu- ráðherra. ar breytíngatölur eru en til þess að það væri hægt þyrfti að athuga öll framtöl áður- nefndra aðila. Þess ber að geta að breytingar þessar eru mjög smávægilegar miðað við heild- arupphæð hvers gjaldárs. 4. Ekki liggja fyrir neinar upplýs- ingar frá Skýrsluvélum rikis- ins og Reykjavikurborgar um varasjóðstillög í Reykjanesum- dæmi gjaldárið 1971. Með sam- anburði við önnur gjaldár og umdæmi hefur tilgreind tala verið áætluð og verður að taka hana með nokkrum fyrirvara. HEILBRIGÐIS- mT, 1 RÁÐHERRA: IMý rCglUgCFU fyrir ljósmæðraskóla Matthías Bjarnason (S), heilbrigóis- og trygginga- ráóherra, svaraói i gær í sameinu þingi fyrirspurn um endurskoóun laga um Ljósmæóraskóla íslands frá Helga F. Seljan (K) Fyrirspurnin er svo- hljóóandi: 1. Hvenær má vænta nióurstaóna frá nefnd þeirri, er skipuó var til aó endurskoóa lög um Ljósmæóraskóla Is- lands? 2. Getur ráöherra upplýst nokkuó á þessu stigi um störf og nióurstöóu neíndar þessarar? Ráóherra svaradi á þessa leió: Lög um Ljósmæðraskóla is- lands eru frá árinu 1964. Engin ný reglugerð hafði verið sett sam- kvæmt þessum lögum, en í gildi er reglugerð nr. 82 frá 1932. Matthías Bjarnason, heilbrigðis- ráðherra. björg R. Magnúsdóttir, hjúkr- unarkona, deildarstjóri í heil- brigðisráðuneytinu, Kristín Tómasdóttir, yfirljósmóðir, sem samkvæmt lögum er jafnframt aðalkennari skólans, og Gunnþóra Snæþórsdóttir, sem nú er nem- andi í skólanum. Þessi nefnd hefur starfað siðan og samkvæmt upplýsingum for- mannsins, þá er starfi nefndar- innar ekki lokið enn. Nefndin hefur útvegað sér upplýsingar um nám ljósmæðra erlendis, bæói frá skrifstofu Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar í Kaup- mannahöfn og eftir öðrum leiðum og hyggst nota þessi gögn til hlið- sjónar við samningu nýrrar reglu- gerðar. Þess er vænst að nefndin ljúki störfum á þessu sumri, en á þessu stigi er ekki hægt að segja annað um niðurstöðu nefndarinnar en að hún muni leitast við í tillögum sinum, að færa nám ljósmæðra til þess horfs, að það sé sambærilegt við það, sem annars staðar gerist nú, þvi í þessu sérnámi eins og öðru, þá eru sífellt vaxandi kröf- ur gerðar til nemenda. I þessu sambandi má sérstak- lega geta þess, að til umræðu hef- ur verið, hvort hjúkrunarnám ætti að vera grunnnám þeirra sem læra ljósmóðurfræði og verður þaö vafalaust eitt af þeim atrið- um, sem til umræðu koma, þegar ný reglugerð um skólann verður endanlega sett. Hafnaáætlun 1975- 1978 þrír oghálf- ur milljarður króna Lögð hefur verið fram tillaga til þingsályktunar um hafnaáætlun fyrir árin 1975—1978. Aætlunin að fjárhæð tæpir 3,5 milljarðar er f grófum dráttum sem hér segir (tölur f milljónum króna): Framkvæmdir: 1975: 1976: 1977—’78: 1. Akranes 36,0 40,0 138,0 2. Borgarnes 1,0 36,0 3. Arnarstapi 15,0 11,0 4. Hellnar 2,5 2,0 5. Ólafsvík 36,0 130,0 6. Grundarfjörður 40,0 30,0 84,0 7. Stykkishólmur 24,0 5,0 36,0 8. Haukabergsvaðall 5,0 9. Patreksfjörður 9,8 5,0 36,0 10. Tálknafjörður 32,0 11. Bildudalur 7,0 19,0 12. Þingeyri 10,0 30,0 6,5 13. Flateyri 18,9 9,5 57,0 14. Súgandafjörður 2,7 5,0 27,0 15. Bolungarvik 11,7 13,3 28,0 16. Isafjörður 12,0 6,0 51,0 17. Súð^vík 39,0 18. Norðfjörður, Djúpavík ogGjögur 40,0 19. Drangsnes 2,0 20. Hólmavík 8,5 8,0 21. Hvammstangi 12,0 6,0 32,0 22. Blönduós 2,0 37,0 23. Skagaströnd 25,0 60,0 40,0 24. Sauðárkrókur 40,0 30,0 17,0 25. Hofsós 12,0 6,0 10,0 26. Siglufjörður 22,5 17,5 15,0 27. Ölafsfjörður 16,0 20,0 28. Dalvík 12,0 20,0 82,0 29. Hrísey 5,0 15,5 30. Árskógssandur 3,0 31. Hauganes 4,0 32. Hjalteyri 20,0 33. Akureyri 60,0 68,0 54,0 34. Svalbarðseyri 5,0 35. Grenivík 15,0 36. Grímsey 4,0 6,0 37. Húsavík 10,0 20,0 115,0 38. Kópasker 10,0 39. Leirhöfn 5,0 40. Raufarhöfn 6,6 18,4 25,0 41. Þórshöfn 47,0 42. Bakkafjöíður 2,0 43. Vopnafjörður 50,0 44. Borgarfjörður eystri 32,0 60,0 45. Seyðisfjörður 24,0 5,0 46. Neskaupstaður 6,6 29,4 47. Eskifjörður 44,0 48. Reyðarfjörður 24,0 24,0 49. Fáskrúðsfjörður 30,0 20,0 50. Stöðvarfjörður 14,0 25,0 51. Breiðdaisvik 20,0 36,0 52. Djúpivogur 7,5 5,0 33,0 53. Hornafjörður 29,0 54. Vestmannaeyjar 20,0 73,0 120,0 55. Stokkseyri 15,0 56. Eyrarbakki 16,0 9,0 57. Hafnir í Höfnum 10,3 58. Sandgerði 82,0 20,0 20,0 59. Gerðar :.... 3,5 8,0 60. Vogar 2,0 15,0 61. Hafnarfjörður 65,0 20,0 113,0 Óráðstafað 100,0 Framkvæmdir alls. 822,6 881,1 1745,5 Gera má ráð fyrir því að sá fyrirhugaði samdráttur í' ríkisút- gjöldum 1975, sem ráðgerður er, eigi eftir að koma fram i umtalsverðri lækkun í þessari grein ríkisframkvæmda sem öðrum. Jóns Gíslasonar, fyrrver- andi alþingismanns, minnzt Það hefur ekki verið skipuð nefnd til að endurskoða lög um Ljósmæðraskóla Islands, heldur var hinn 6. júní sl. skipuð nefnd á vegum heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins til þess að semja nýja reglugerð um skóiann. I þessari nefnd eiga sæti Ingi- AtMflGI FORSETI Alþingis minntist ný-1 verið Jóns heitins Gislasonar, fyrrverandi alþingismanns, með þessum orðum: JÖN Gislason fyrrver. alþingis- maður og bóndi andaðist i sjúkra- húsi hér í Reykjavik í fyrrakvöld, miðvikudaginn 2. apríl, 79 ára að aldri. Jón Gislason var fæddur i Norðurhjáleigu í Álftaveri í Vest- ur-Skaftafellssýslu 11. janúar 1896. Foreldrar hans voru Gísli bóndi og hreppstjóri þar Magnús- son bónda í Jórvík í Alftaveri og víðar Ólafssonar og kona hans, Þóra Brynjólfsdóttir bónda að Hraungerði og Þykkvabæjar- klaustri í Alftaveri Eiríkssonar. Skólanám hans var barnafræðsla í farkennslu og síðan unglinga- skólanám i Vik í Mýrdal 1911—13, alls 7 mánuði báða veturna. Hann vann við bú for- eldra sinna fram á árið 1919, en tók þá við búinu og var bóndi til ársins 1962. Heimili átti hann í Norðurhjáleigu til dauðadags. Jóni Gislasyni voru falin ýmis trúnaðarstörf bæði i héraði og utan héraðs. Hann var oddviti Álftavershrepps 1928—1938 og 1946— 1974, sýslunefndarmaður 1944—1974 og hreppstjóri 1947— 1973. 1 Sauðfjársjúkdóma- nefnd -átti hann sæti á árunum 1950—1964. Hann var alþingis- maður Vestur-Skaftfellinga 1947—1953, sat á 6 þingum alls. Búnaðarþingsfulltrúi fyrir Bún- aðarsamband Suðurlands var hann 1954—1974. Síðustu tvö árin var hann að mestu frá störfum vegna veikinda. Jón Gíslason ólst upp á rausnar- búi foreldra sinna í Norðurhjá- leigu. Faðir hans var áhugamaður um samvinnu í verslunarmálum, og var stofnfundur Kaupfélags Skaftfellinga haldinn árið 1906 á heimili hans. Sjálfur tók Jón fram um afskipti sin af félagsmálum, að hann hafi tekið af nokkrum áhuga þátt i starfi ungmenna- félaganna frá 1908 og fram yfir 1930 og aðaláhugamál hans auk sveitabúskapar væru félags- og samvinnumál bænda. Hann átti lengi fyrir stóru heimili að sjá, var góðbóndi á föðurleifð sinni og bætti jörð sína mjög að ræktuðu landi og húsakosti. Hann vann ýmis trúnaðarstörf fyrir Kaup- félag Skaftfellinga, var deildar- stjóri þess og aðalendurskoðandi, og aðalendurskoðandi Slátur- félags Suðurlands var hann rúma tvo áratugi. A Alþingi var hann ötull bar- áttumaður fyrir hagsmunamálum héraðs síns. Búnaðarþing var kjörinn vettvangur fyrir áhuga- mann um velferð islensks land- búnaðar. Jón Gislason var félagslyndur maður, en þó dulur i skapi, prúð- menni í framkomu og lét ekki mikið yfir sér. Hann var gervileg- ur að vallarsýn, þrekmenni, traustur og áræðinn ferðamaður um sanda og stórfljót, sem um- kringdu byggðina, þar sem hann ól aldur sinn. Hann var enginn málskrafsmaður á þingum, hygg- inn og tillögugóður, samvinnu- þýður, en þó fastur fyrir, ef þvi var að skipta, glaður í vinahópi, naut trausts og virðingar. Ég vil biðja háttvirta alþingis- menn að minnast Jóns Gislasonar með því að rísa úr sætum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.