Morgunblaðið - 26.04.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRlL 1975
Bókaupp-
boð í dag
1 DAG heldur Guðmundur Ax-
elsson kaupmaður I listmuna-
verzluninni Klausturhólum
bókauppboð. Er þetta fyrsta
listmunauppboð Guðmundar,
en hann hefur nýlega fengið
upphoðsleyfi. Uppboðið I dag
verður I Tjarnarcafé og hefst
það klukkan 14. A uppboðinn
eru 100 númer og er þar að
finna margt fágætra bóka.
Merkust er Heimskringla
Snorra Sturlusonar I 6 bindum
en á myndinni sjást einmitt
þrjú bindanna.
Verður nýr Reykja-
víkurflugvöllur gerð■
ur í Skerjafirði?
Brýnt að hefja rækju-
veiðar á Axarfirði
— Finnast góð mið við Kolbeins-
ey og úti af Austfjörðum?
RANNSÓKNASKIPIÐ Dröfn er
nýkomið til Reykjavfkur úr
rækjuleiðangri í Axarfirði.
Leiðangursstjóri á Dröfn var Sól-
mundur Einarsson. I þessum
leiðangri kom fram, að um
nokkuð mikið magn af rækju er
að ræða í Axarfirði og að sögn
Sólmundar gera menn sér vonir
um að mikil rækjumið séu við
Kolbeinsey og djúpt úti af Aust-
fjörðum. Hann telur að brýnt sé
að hefja veiðar á Axarfjarðar-
rækjunni og eru menn farnir að
bftast um veiðileyfi.
Að sögn Sólmundar fundust
rækjumió í Axarfirði í marz-
mánuði sl. Rannsóknaskípið Arni
Friðriksson kom þá inn á Axar-
fjörð til að ná í ungviði.
Leiðangursstjóri á Árna í þessari
fercV Hjálmar Vilhjálmsson, lét
kasta vörpunni nokkuð dýpra en
venjulega eða i kantinum og eftir
að búið var að toga i 20 mínútur
var varpan innbyrt og komu þá í
ljós, að það var að mestu rækja en
ekki fiskur í henni, en aflinn
reyndist alls 600 kg af rækju.
Sólmundur Einarsson sagði, að
rækjumiðin í Axarfirði mörk-
uðust af Iinu, sem væri dregin frá
Kópaskeri í Tjörnes. Rækjan væri
mest á 60—70 faðma dýpi, en
næði þó allt niður á 90 faðma.
mest virðist magnið vera í könt-
unum að austan- og vestanverðu
og aflinn komst í 4 tonn á togtíma.
— Brýnt væri að hefja veiðar
þarna sem fyrst, því þá fyrst
kæmi í ljós, hvað þessi mið gætu
gefið af sér. Svo gæti verið að
rækjan væri árstíðabundin á þess-
um slóðum og þá jafnvel aðeins
yfir vetrarmánuðina og eins gætu
verið áraskipti að þessu. Sjómenn
á Húsavík og Kópaskeri sæktust
eftir því, að fá einir að sitja að
þessum miðum, en eins vildu
sjómenn sem verið hefðu á rækju-
miðum við Grímsey að undan-
förnu komast í Axarfjörðinn.
Þá spurðum við Sölmund, hvort
menn gætu átt von á að fleiri góð
rækjumið fyndust við landið.
Hann sagði að svo gæti verió.
Rannsóknaskipið Hafþór héldi í
leiðangur um miðjan næsta
mánuð, og byrjaði á þvf að kanna
djúpslóðir við Grímsey og
Kolbeinsey, en þar ættu menn
von á að finna góð mið. Þá hefði
fundizt rækja úti af Austfjörðum.
Þar gæti verið um góð mið að
ræða og sú rækja, sem hefði feng-
izt þar, væri sú stærsta, sem menn
hefðu augum litið. Til þess að
veiða þá rækju þyrfti stærri skip,
i líkingu við þau sem Norðmenn
nota til rækjuypiða á djúpmiðum,
en þau eru 200—300 tonn að
stærð og aflinn er blokkfrystur
um borð.
VERÐA flugvallarmál Reykja-
víkur leyst með því að gera
nýjan flugvöll á fyllingu við
Löngusker í Skerjafirði? Ung-
ur arkitekt, Trausti Valsson,
hefur nýlega sett fram þessa
hugmynd um lausn á þessu
vandamáli og tveir þingmenn
Framsóknarflokksins, þeir
Guðmundur G. Þórarinsson og
Steingrímur Hermannsson,
hafa tekið hana upp og borið
fram tillögu til þingsályktunar
um að skipuð verði nefnd sér-
fróðra manna til að kanna
hvort með þessum hætti sé ckki
fundin lausn á flugvallarmál-
um Reykjavíkur.
1 greinargerð flutnings-
manna kemur fram, að á und-
anförnum árum hafi verið uppi
háværar raddir er telji að
Reykjavíkurflugvöllur í núver-
andi mynd geti ekki verið mið-
stöð innanlandsflugsins til
frambúðar af öryggisástæðum
og eins vegna hljóðmengunar
og loftmengunar. Raktar eru
þær tillögur sem fram hafa
komið um úrbætur á Reykja-
víkurflugvelli sem miða annars
vegar að gerð nýrrar 1800 m
langrar flugbrautar til aust-
urs/vesturs og hins vegar að
lengingu núverandi austur/-
vestur brautar í 1800 metra.
Bent er á að hvor tillagan sem
valin yrði fæli i sér um 500—
600 milij. kr. kostnað en engu
að síður væri ekki fullnægt al-
þjóðlegum kröfum um 95%
opnun flugvalla.
Varðandi tillögu Trausta
Valssonar segir í greinargerð-
inni, að hún muni ekki hafa
komið fram áður en sé i senn
einföld og liggi nokkuð beint
við. Hafi hugmynd Trausta
verulega kosti umfram aðrar
hugmyndir, sem fram hafi kom-
ið um flugvallargerð á svæðinu,
t.d. sé öryggi til muna meira og
mengun mun minni.
Gerð er mjög gróf kostnaðar-
áætlun varðandi þessa fram-
Eramhald á bls. 20
Milljónaskemmdir á
Friðarhafnarbryggju
MILLJÓNATJÓN varð í Friðar-
höfn i Vestmannaeyjum er járn-
kantur gaf sig á um 10 metra bili.
Er talið fullvíst, að einn eða fleiri
bátar hafi verið með skrúfuna í
gangi á þessum stað og þannig
grafið frá þilinu með fyrrgreind-
um afleiðingum. Verður þetta
mál rannsakað á næstunni.
Að sögn Magnúsar
Magnússonar bæjarstjóra urðu
menn í Eyjum varir víð skemmd-
irnar í fyrradag. Voru þær
kannaðar og kom þá í ljós, að
járnþilið hafði sprungið neðar-
lega og uppfyllingin runnið út í
höfnina og þilið lagzt að hluta inn.
Dýpi á þessum stað í Friðarhöfn,
sem er í henni norðanverðri, er
almennt um 5 metrar en það
reyndist vera 7 metrar þar sem
skemmdirnar höfðu orðið. Sagði
Magnús að fullvíst væri talið að
bátar hefðu verió með vélarnar í
gangi og skrúfur þeirra grafið frá
þilinu. Hefði rifjazt upp fyrir
mönnum, að fyrir skömmu síðan
hefði færeyskur bátur komið með
bilaða vél til Vestmannaeyja og
lagzt þarna að bryggju. Hefðu
skipverjar reynt vélina að viðgerð
Drukknaði
MAÐURINN, sem tók út og
drukknaði af vélbátnum Vonin
II. frá Hellissandi, sl. miðviku-
dag, hét Alfreð Alfreðsson, 23 ára
að aldri. Hann átti lögheimili f
Grindavík og var ókvæntur.
Iokinni og eflaust látjð skrúfuna
ganga. Þá gætu aðrir bátar einnig
átt sök á þessu. Sagði Magnús að
málið yrði kannað á næstunni og
einnig væri væntanlegur til Eyja
verkfræðingur frá Vitamálaskrif-
stofunni.
Algjörlega er bannað að láta
skipskrúfur ganga við bryggjur
og getur það haft hinar verstu
Guðmundur hafn-
aði í 7.-9. sæti
SOVEZKI skákmaðurinn
Vladimar Liberzo, sem flutti til
Israels fyrir ári sfðan, bar sigur
úr býtum f Luis Statham skák-
mótinu f Lone Pine f Kalifornfu,
en mótinu lauk á fimmtudaginn.
Hann fékk 7 V4 vinning f 10
skákum. Guðmundur Sigurjóns-
son hafnaði f 7.—9. sæti með 6
vinninga. Hann byrjaði mjög vel f
mótinu en tókst ekki eins vel upp
þegar á leið. Keppendur voru alls
44.
I öðru sæti á mótinu varð Barry
Evans með 7 vinninga. I 3.—6.
sæti urðu Weinstein, Georgiu,
Gligorich og Pannó með 654 vinn-
ing. Ásamt Guðmundi voru
Biyiasias og Torres með 6 vinn-
inga.
afleiðingar ef útaf er brugðið. Er
þess skemmst að minnast aó stór-
skemmdir urðu á bryggjunni á
Flateyri i vetur af sams konar
orsökum.
Breti tekinn með
ólögleg veiðarfæri
VARÐSKIP kom siðdegis í gær að
brezkum togara 6 sjómílur útaf
Horni. Reyndist togarinn vera
með óbúlkuð veiðarfæri og auk
þess voru skipverjar að vinna að
viðgerð á trollinu. Hvort tveggja
er algjörlega ólöglegt innan is-
lenzkrar landhelgi og liggja við
háar fésektir ef útaf er brugðið.
Varðskipið var væntanlegt með
togarann til Isafjarðar seint í gær-
kvöldi. Togarinn heitir Arlanda
FD-206 frá Fleetwood. Hann er
431 lest að stærð, síðutogari.
Skerjafjarðarflugvöllur 1:50 000
Hindranir i látréttum fleti (lausleg athugun).
WMSfSJK
9$,
mm
&
r 1
&
r
irw
Fylgtekjal IL
Skemmdirnar á Frióarhafnarbryggju.