Morgunblaðið - 26.04.1975, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRIL 1975
19
0 Einn af hryðjuverkamönnunum tekinn á flótta úti fyrir sendiráðinu. Hann var vopnlaus en byssukúlur fundust f vösum hans.
Stokkhólmi, Bonn, 25. apríl NTB — AP — REUTER.
LÖGREGLAN i Stokkhólmi leitar nú hugsanlegra vitorðsmanna
hryðjuverkamannanna sex, sem um hádegisbilið i gær réðust til
inngöngu f v-þýzka sendiráðið i borginnij tóku tólf starfsmenn þess
gísla, drápu hermálafulltrúa þess og verzlunarfulltrúa og sprengdu
bygginguna svo f loft upp um miðnættið í nótt eftir að stjórn
V-Þýzkalands hafði hafnað kröfum þeirra. Einn hryðjuverkamann-
anna framdi sjálfsmorð en fimm þeirra voru handteknir. Utanrfkis-
ráðherra V-Þýzkalands, Hans Dietrich Genscher, kom til Stokkhólms f
dag til þess að þakka forsætisráðherra Svfa, Olof Palme, hvernig á máli
þessu var haldið af sænskri hálfu og til að ræða við starfsfólk
sendiráðsins.
Yfirmaður lögreglunnar f Stokkhólmi, Karl Linderoth, sagði á fundi
með fréttamönnum f dag, að hryðjuverkamennirnir hefðu skotið
hermálafulltrúann vegna þess, að sænskir lögreglumenn hunzuðu
ftrekaðar viðvaranir þeirra um að hann yrði drepinn, ef þeir hefðu sig
ekki á brott úr húsinu. Var þeim upphaflega gefinn tveggja mínútna
frestur til að hafa sig að brott, en þeir neituðu að fara þar til einn af
starfsmönnum sendiráðsins, sem teknir voru f gfslingu, Mark Ulrich
von Schweinitz, hafði talað við þá f síma og beðið þá að hverfa á braut.
Sænsku lögreglumennirnir höfðu ákveðið að koma hryðjuverka-
mönnunum úr húsinu með einhverjum ráðum. „Við vissum, að við
gætum ekkert gert, ef við færum úr húsinu svo að við ákváðum að vera
um kyrrt,“ sagði Dag Halldin, aðstoðarmaður lögreglustjóra.
Linderoth upplýsti, að fimm hryðjuverkamannanna, fjórir karlar og
ein kona, hefðu fundizt úti fyrir byggingunni, vopnlaus eftir að hún
var sprengd í loft upp. Hefðu þau verið handtekin án mikilla átaka, er
þau reyndu að flýja. Sjötti hryðjuverkamaðurinn, stúlka, réð sér bana
inni f byggingunni eftir að hafajskotið á lögregluþjóna er nálguðust
hana. Ekki er ljóst hvort verzlunarfulitrúinn, dr. Heinz Hillegaart, lézt
af skotsárum sem hryðjuverkamenn veittu honum eða af völdum
brunans f byggingunni eftir sprengingarnar, en úr því verður skorið
við lfkkrufningu á mánudag. Lík hans fannst ekki fyrr en f morgun.
Það var um hádegisbilið í gær,
fimmtudag, sem skæruliðarnir
sex réðust inn í sendiráðið, sem
var á þriðju hæð byggingarinnar.
Einn þeirra gekk inn fyrstur og
óskaði eftir fyrirgreiðslu varð-
andi vegabréf en síðan ruddust
hinir inn, vopnaðir vélbyssum og
sprengiefni. Ein sænsk kona
meiddist í viðureigninni, þegar
hryðjuverkamennirnir réðust
inn.
Vopnaðir lögreglumenn komu
þegar á vettvang og komu sér
fyrir á fyrstu tveimur hæðunum,
en hryðjuverkamennirnir til-
kynntu að þeir myndu skjóta her-
málafulltrúa sendiráðsins,
Andreas von Mirbach, baron, ef
lögreglan hypjaði sig ekki innan
tveggja mínútna. Er þessu var
engu sinnt, gerðu þeir alvöru úr
hótun sinni, skutu baróninn fjór-
um skotum í höfuðið. Var tveimur
lögreglumönnum síðan leyft að
bera hann brott úr húsinu stundu
siðar, en ekki fyrr en þeir höfðu
farið úr öllum fötunum nema
nærklæðunum einum. Baróninn
lézt skömmu eftir að komið var
með hann í sjúkrahús.
Að svo búnu höfðu hryðju-
verkamenn símasamband við
fréttastofu v-þýzku fréttastofunn-
ar DPA og tilkynntu hverjir þeir
væru og kröfur þeirra. Kváðust
þeir kalla sig Holger Meins-
sveitina, kenna sig víð einn af
félagsmönnum stjórnleysingja-
Framhald á bls. 20
0 Hermálafulltrúinn Andreas von Mirbach, borinn út úr sendiráðs-
byggingunni á fimmtudag, en hann var skotinn eftir að sænskir
lögregluþjónar neituðu að verða við kröfum hryðjuverkamanna um að
yfirgefa bygginguna.
0 Hér er verið að fiytja einn af
sendiráðsstarfsmönnunum f
sjúkrahús illa farinn af brunasár-
um og skurðum eftir brak, sem
þeyttist á hann við sprengingarn-
ar.
0 Menningarmálafulltrúi sendi-
ráðsins, Friedrich Schrodt, missti
heyrn við sprengingarnar í sendi-
ráðinu og hlaut brunasár en var
að öðru leyti ekki illa á sig kom-
inn, er haiin var studdur út úffc
bifreiðinni sem flutti hann f
sjúkrahús.
Skugginn við
gluggann seig
saman................
1 frásögnum sænskra sfð-
degisblaða f gær segir, að
hryðjuverkamennirnir í
Stokkhólmi hafi skotið verzl-
unarfulltrúa sendiráðsins f
augsýn þeirra, sem með fylgd-
ust á götunni fyrir neðan. Ex-
pressen segir: „KI. 22.20
greindu þeir, sem úti fyrir
stóðu, skuggamynd af manni
við einn glugganna á þriðju
hæðinni, þar sem ljós hafði
skyndilega verið kveikt. Hann
heyrðist veina f angist en orða-
skil heyrðust ekki. Hryðju-
verkamenn höfðu ákveðið að
taka einn gfslanna af lffi og sú
aftaka skyldi vera opinber.
Svo heyrðist skothríð og
skugginn við gluggan seig
saman. Lfk mannsins fannst f
brunarústunum í morgun. Það
var af v-þýzka verzlunarfull-
trúanum. Þegar þetta gerðist
vissu hryðjuverkamenn, að v-
þýzka stjórnin mundi ekki
ganga að kröfum þeirra.“