Morgunblaðið - 26.04.1975, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRlL 1975
27
Minning;
Hlín Ingv-
arsdóttir
Fædd 20. febrúar 1969.
Dáin 9. apríl 1975.
Hún Hlin er dáin. Frétt þessi
kom sem reiðarslag. Iðandi af lífi
og fjöri tekin í burt frá yndis-
legum foreldrum.
Hún kom til okkar þann sama
dag og slysið átti sér stað, rétt
undir hádegið og bað um að fá að
gæta litlu dóttur okkar, sem hún
gerði svo oft, og sagðist ætla að
koma þegar hún væri búin að
boróa.
En örlögin höguðu þvi svo til að
hún kom ekki framar. Með sökn-
uði kveðjum við þig elsku Hlín og
þökkum þær gleðistundir er þú
veittir henni Aslaugu litlu.
Góður Guð, verndaðu minningu
þessarar yndislegu stúlku.
Foreldrum hennar og aðstand-
endum sendum við hugheilar
samúðarkveðjur.
Guðrún, Skúli.
Vertu sæl, vor iitla, hvíta lilja.
Lögd í jörð með himnafööur vilja.
Leyst frá lífi nauða; Ijúf og björt f dauða.
Lést þú eftir litla rúmið auða.
IVlatth. Jochumsson.
— Vanheil börn
Framhald af bls.7
uppgötvar geðræn vandamál
barnsins sins og leitar hjálpar, en i
stöku tilfellum eru það sálfræði-
deildir eða viðkomandi skóli. Á
þessu sviði held ég að þurfi að
vinna meira varnaðarstarf og þurfi
að byrja það snemma. Vist er að í
sumum tilvikum er unnt að leysa
slík mál í skólunum.
— Fyrir atferlistrufluð börn
höfum við upptökuheimilið i
Kópavogi og skólaheimilið i
Breiðuvík, sem er eins konar útibú
frá þvi. Upptökuheimilið i Kópa-
vogi gengur vel, en sú stefna var
mörkuð þar fyrir nokkrum árum,
að láta þessa unglinga „grasséra"
dálitið i samfélaginu og hafa
heimilið ekki harðlokað eins og
refsistofnun. Þessu fylgir dálitil
áhætta. En það er verið að hæfa
þessa unglinga inn i samfélagið og
slikt starf er óhugsandi að vinna
við tilbúnar aðstæður. En þetta
getur reynt dálítið á þolrifin. En
miðað við tölur hefur náðst lygi
lega góður árangur á upptöku-
heimilinu. Í Reykjavik hefur dálit-
ið átak verið gert i málefnum
þessara hópa. Áður voru heima-
vistarskólar að Jaðri og Hlaðgerð
arkoti fyrir börn, sem glimdu við
þessa erfiðleika. Nú hafa þau ver-
ið lögð niður, i staðinn er komið
skólaheimili við Bjarkarhlíð, þar
eru 9—11 nemendur af báðum
kynjum í dagvistun og þar er einn-
ig kennsla. en aðeins 4 heima-
vistarpláss. Þá voru sett upp svo-
kölluð athvörf fyrir alls um 48
nemendur við Austurbæjar-, Fella
og Melaskóla og er vist í athvarfi
ekki bundin við barnaskólaaldur,
heldur skyldunámsstigið. Athvörf-
in hafa gefið góða raun. Þar eru
börn, sem eiga við félagslega
erfiðleika að glima. Sálfræðideild-
irnar velja börnin I athvörfin og
hafa þar síðan faglega umsjón.
Kennarar vinna með börnunum og
húsmóðir tilreiðir mat og sinnir
börnunum ásamt kennurum. Til
viðbótar þessu er svokölluð at-
hvarfsiðja sem fer fram í öllum
skyldunámsskólum. Athvarfsiðjan
miðar ekki hvað sízt að því að
vera varnaðarstarf, en þvi höfum
við sinnt of litið, ekki hvað sizt
þegar geðræn eða félagsleg
vandamál er við að eiga.
Sætaferðir frá B.S.Í. kl. 21.30.
Fjölmennið og skemmtið ykkur á mesta
stuðdansleiknum í kvöld.
STAPI
LAUGARDAGSKVÖLD
HAUKAR OG NUNNURNAR
SKEMMTA í KVÖLD
FELAGSHEIMILIÐ FESTI
Dansað á tveim hæðum
Næturgaiar
í efri sal.
Opið á milli.
Sætaferðir frá Torgi Keflavik
Nafnskirteini.
FELAGSHEIMILIÐ FESTI
Silfurtunglið
Sara skemmtir í kvöld til kl. 2.
£}cfric(ansa\(lú6(?uri nn.
Dansaði '
Félagsheimili HREYFILS
í kvöld kl. 9—2. (gengið inn frá Grensásvegi.
Fjórir félagar leika
Aðgöngumiðar í síma 85520 eftir kl. 8.
Hótel Club 33 er eina hótel veraldar, sem byggt er eingöngu
fyrir ungt fólk.
Þar býr aðeins fólk á aldrinum 18—33ja.
Hótelið rekur sina eigin útvarpsstöð, og Video sjónvarp.
Það hefur auk þess upp á að bjóða. glæsilegt diskótek,
þrjá veitingasali, og geysistóra sundlaug.
Þér gefst tækifæri til þess að iðka tennis-
badminton, borðtennis, blak, körfu og fótbolta.
15 daga dvöl á þessu stórkostlega hóteli með fullu fæði
(einnig næturmat) kostar aðeins 57.000.-
KLUBBUR 32 Lækjargötu 2 sími 26555 — 1 7800
Pelican
snúa aftur
Hvoll
Hinir stórfenglegu Pelican á Hvoli í kvöld frá 9—2.
„Silly Piccadilly" / Lady Rose"
Sætaferðir frá BSÍ kl. 21.30.
Einnig Selfossi, Þorlákshöfn og Stokkseyrarbakka.
Hvoll
h.k.