Morgunblaðið - 21.05.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1975
Mikið um óhöpp
í umferðinni um
hvítasunnuhelgina
GEYSIMIKIL umferð var um
hvíta.sunnuhelgina að sögn lög-
reglunnar. Var sérstaklega mikil
umferð frá Reykjavík austur fyr-
ir fjall til Hveragerðis og kvaðst
lögreglumaður á Selfossi, sem
Mhl. hafði tal af, ekki muna eftir
annarri eins bílamergð í og við
Hveragerði og á sunnudaginn.
Ekki gekk umferðin slysalaust
og er Mbl. kunnugt um a.m.k. átta
bílveltur og urðu nokkur meiðsli
í þeim. Mest urðu meiðslin í bíl-
veltu við Alviðru, en þar hrygg-
brotnaði farþegi og maður sem
var í bíl sem valt á Hellisheiði
Þjóðverji
halastýfður
VARÐSKIP klippti á togvíra vest-
ur-þýzka togarans Wurzburg NC-
450 aðfararnótt s.l. laugardags,
um 105 sjómílur útaf Hvalbak.
Hafði varðskipið þá veitt togaran-
uin órofna efiirför um nokkra
hríð.
Byrjun þessa máls var sú, að
varðskip kom að fimm vestur-
þýskum togurum á föstudags-
kvöldið þar sem þeir voru að veið-
um 10 milur innan fiskveiðimark-
anna útaf Hvalbak. Voru
togararnir reknir útfyrir. I hópn-
um var fyrrnefndur togari og
reyndi hann nokkrum sinnum að
beygja inn í bakborðshlið varð-
skipsins en það vék sér jafnan
undan. Við athugun kom í ljós að
þessi sami togari hafði haft uppi
svipaða tilburði gegn sama varð-
skipi nokkrum dögum áður og var
ákveðið að veita honum órofna
eftirför. Þegar togarinn var kom-
inn 103 sjómílur útaf Hvalbak
setti hann trollið skyndilega út
þvert fyrir varðskipið. Þökkuðu
varðskipsmenn gott boð og
klipptu á togvírana en Land-
helgisgæzlan telur heimilt að gera
slíkt hafi hún veitt veiðiskipi
óslitna eftirför. Átti klippingin
sér stað klukkan 2,35 aðfararnótt
laugardagsins.
Togararnir þýzku héldu til
Færeyja en þeir eru nú komnir
aftur á Islandsmið að sögn
Gæz'unnar enda munu þeir hafa
veitt allvel hér við Iand að undan-
förnu.
höfuðkúpubrotnaði. Nokkur
umferðaróhappanna stöfuðu af
ölvun við akstur en mikið bar á
ölvun um helgina að sögn lögregl-
unnar.
Hvergi voru háldnar skipu-
lagðar samkomur um hvítasunnu-
helgina en unglingar söfnuðust
saman á laugardaginn í Þrastar-
skógi og Heiðmörk. Þurfti lög-
reglan að hafa afskipti af ungling-
um á báðum þessum stöðum
vegna ölvunar. Lögreglan i
Hafnarfirði tók um helgina 11
ökumenn vegna ölvunar við akst-
ur og var í flestum tilfellum um
að ræða unglinga sem teknir voru
i Heiðmörk og nágrenni. I einu
tilfelli ók 14 ára piltur jeppa á
staur. Með honum i förunni voru
3 félagar hans á svipuðu reki og
meiddust tveir. Ökuþórinn var
ölvaður.
Mikið annríki var hjá lögregl-
unni í Reykjavík um helgina
vegna ölvunar og innbrota. T.d.
stálu tveir 17 ára piltar tveimur
haglabyssum úr verzluninni Vest-
urröst. Hófu þeir skotæfingar bak
við Hótel Esju aðfararnótt föstu-
dagsins. Lögreglan fékk vitneskju
um þessar æfingar og fann pilta
þarna i nágrenninu. Voru þeir
ekkert á því að gefast upp heldur
miðuðu byssunum að lögreglu-
Framhald á bls. 39
r
Sofico opnað fyrir Utsýn
FYRSTI ferðamannahópurinn á
vegum ferðaskrifstofunnar Út-
sýnar fór til Costa del Sol á Spáni
sl. sunnudag. I hópnum voru tæp-
lega 100 manns og heldur fólkið
til í byggingum hótelhringsins
Sofico en þær heita El Remo og
Tamarindos. Byggingarnar hafa
verið lokaðar f vetur vegna
greiðsluþrots Sofico-hringsins en
voru opnuð í tæka tíð fyrir gesti
Útsýnar. Tók Ingólfur Guð-
brandsson forstjóri Útsýnar á
móti Islenzku ferðalöngunum er
þeir komu til Tamarindos og El
Remo á hvítasunnudag. 1 tilefni
af opnun bygginganna fyrir
ferðalanga Útsýnar var þeim öll-
um hoðið til kvöldverðar og var
Ingólfur veitandinn. Öll venjuleg
aðstaða er fyrir hendi f bygging-
unum að sögn starfsfólks Út-
sýnar, t.d. matsala, barir, íþrótta-
vellir og sundlaugar.
Myndin var tekin á Costa del
Sol á hvítasunnudag og sýnir
Ingólf Guðbrandsson taka á móti
fyrsta hópnum.
SAS hefur Is-
landsflug að nýju
Myndin sýnir skemmdir á botni Hvassafells.
Ljósm. Sv. P.
Bráðabirgðavið-
gerð á Hvassafelli
Akureyri, 20. maí.
HVASSAFELL er nú til viðgerð-
Gerður Helgadóttir
myndhöggvari látin
GERÐÚR Helgadóttir, mynd-
höggvari, lézt í Landspítalanum á
laugardagsmorgun sl.
Gerður var 47 ára að aldri, er
hún lézt, fædd á Norðfirði 11.
april 1928, þar sem foreldrar
hennar, Helgi Pálsson, tónskáld,
og Sigríður Erlendsdóttir,
bjuggu. Níu ára gömul fluttist
hún til Reykjavíkur og hóf list-
nám að loknu gagnfræðaprófi f
Handíðaskólanum. Tæplega tvit-
ug hélt Gerður til Italíu til
tveggja ára náms í Listaaka-
demíunni í Flórenz, og síðar í
Grande Chaumiere Iistaskólanum
í París og hjá myndhöggvaranum
Zadkine. Eftir það bjó Gerður
lengst af í París og stuttan tima í
Hollandi, og vann að list sinni.
Hún átti listaverk á yfir 50 listsýn
ingum hér og erlendis, vann
margsinnis verðlaun i samkeppn-
um, gerði steinda glugga og aðra
listgripi fyrir kirkjur i Frakk-
landi, Þýzkalandi og víðar og við
opinberar byggingar. Á tslandi
eru þekktustu verk Gerðar
steindu gluggarnir í Skálholts-
kirkju, í Kópavogskirkju og Saur-
bæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd
og stóra mosaikmyndin á Tollstöð-
*.
ar hjá Slippstöðinni hf og er talið
að bráðabirgðaviðgerð á botni
skipsins ljúki um næstu helgi.
Ljóst er að botninn er allur meira
og minna skemmdur og fullnaðar-
viðgerð getur ekki farið fram hér.
Slippstöðin mun klæða skipsbotn-
inn undir vélarrúmi með stálplöt-
um og þétta botn skipsins þar, en
undir lestum er botninn tvöfaldur
og innri botninn heill og vatns-
heldur svo að skipið ætti að geta
flotið örugglega eftir viðgerðina.
Ætlunin er að draga skipið til
útlanda í næstu viku en ekki er
enn ákveðið hvar fullnaðarvið-
gerðin fer fram.
— Sv.P.
AKVEÐIÐ hefur verið að S.A.S.
flugfélagið hefji flugferðir til Is-
lands n.k. mánudag 26. maf og
verður flogið tvisvar í viku á milli
Kaupin annahafnar og Kefla-
víkur. Þá mun félagið gangasl
fyrir 4 ferðum f viku á milli
Keflavíkur og Narssarssuaq.
Ofangreindar ferðir standa fram
til 12. september.
Birgir Þórhallsson, forstjóri
S.A.S. á Islandi, sagði i samtali
við Morgunblaðið i gær, að flogið
yrði með Boeing 727 vélum Flug-
félagsins milli Kaupmannahafnar
og Keflavíkur og vélarnar væru
leigðar i þessar ferðir. Hins vegar
gegndi öðru máli um Grænlands-
flugið, þar væfi um samvinnu að
ræða.
Þá sagði hann, að vorið 1976
Væri ákveðið, að S.A.S. hæfi áætl-
unarflug til Islands með eigin
vélum, og leiðin yrði Kaupmanna-
höfn, Bergen, Keflavík, fram og
aftur. Vélarnar sem i þessar ferð-
ir yrðu notaðar væru af gerðinni
DC-9 og væru svipaðar að stærð
Hver hlýtur
gæðinginn?
Dregið hefur verið f happdrætti Fjár-
öflunarnefndar kvenna I Hestamanna-
félaginu Fáki. 6 vetra, grár gæðingur úr
Eyjafirði kom á miða 1123, annar vinningur,
sem er ferð fyrir einn til ttalfu, að verðmæti
40 þúsund krónur, kom á miða 599, en þriðji
vinningurinn, svipa frá Ilalldóri Sigurðssyni
gullsmið, kom á miða 3303. Vininga má vitja
á skrifstofu Fáks v/Elliðaár.
(Birt án ábyrgðar).
og Flugfélagsvélarnar. En vonast
væri til að enn nánara samstarfs
taekist í framtiðinni milli Flug-
leiða og S.A.S. en verið hefði.
I sumar mun S.A.S. fljúga á
mánudögum og föstudögum milli
Kaupmannahafnar og Keflavíkur.
Milli Keflavikur og Narssarsuaq
verður flogió á miðvikudögum og
fimmtudögum, þá í samvinnu við
Flugfélagið, og á mánudögum og
föstudögum, en þær ferðir eru
algjörlega á vegum S.A.S.
Innbrot í
Stofuna
INNBROT var framið i verzlun-
ina Stofuna við Hafnarstræti
aðfararnótt hvitasunnudags.
Höfðu þjófarnir á brott með sér
ýmsa skartgripi sem verzlunin
hefur til sölu. Aðfararnótt 1. maí
var einnig brotist inn i sömu
verzlun og þá höfðu þjófarnir
einnig á brott með sér skartgripi
að verðmæti 70—80 þúsund krón-
ur. Er hér aðallega um að ræða
hálsmen, skyrtuhnappa og
hringa. Eigandi verzlunarinnar,
Guðrún Laxdal, hefur beðið Mbl.
að koma því á framfæri við þá
sem verzla með slíka vöru að vara
sig ef einhver býður þeim slíkt til
kaups og ekki virðist allt með
felldu um tilkomu gripanna.
inni í Reykjavík. Fleiri verk, sem
hún hefur gert — sumt eftir að
hún kom sjúk heim til Islands
fyrir hálfu öðru ári — eru í loka-
vinnslu í Þýzkalandi og koma
heim I sumar, svo sem steindir
gluggar í Ólafsvíkurkirkju, bronz-
skúlptúrar í Hamrahlíðar^kóla og
veggmynd í Samvinnubankann.
Gerður lætur eftir sig óhemju
mikið og frjótt starf á listasviðinu
og verk hennar eru dreifð víða
um lönd.
Frama-stjórnin sjálfkjörin:
Kommúnistar náðu ekki nægi-
legum meðmælendafjölda
LISTI stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs í Bifreiðastjórafélag-
inu Frama varð sjálfkjörinn, þar
sem aðrir listar komu ekki fram
til kjörs, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir kommúnista til þess að
koma saman framboðslista. Tókst
þeim ekki að fá nægilega marga
meðmælendur en samkvæmt lög-
um Frama þurfa 10% félags-
manna að mæla með framboði.
Kommúnistar höfðu itrekað
reynt að reka áróður fyrir nýju
framboði frá því í marz, en ekki
tekizt. Á miðvikudag var siðan
auglýst eftir framboðum og gefin
tveggja sólarhringa frestur á að
skila framboðum, svo sem lög fé-
lagsins gera ráð fyrir. Klukkan 17
á föstudag rann framboðsfrestur
út og hafði þá aðeins borizt einn
listi stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs félagsins.
Á þeim lista, sem gekk um á
meðal félagsmanna i Frama og
reynt var að safna undirskriftum
á voru m.a. nöfn manna, sem sæti
áttu á lista stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs og hafði nöfnum
þeirra verið stillt upp á listann af
þeim forspurðum. Þrátt fyrir það
tókst kommúnistum ekki að safna
það mörgum meðmælendum, að
framboðið yrði gilt.