Morgunblaðið - 21.05.1975, Síða 39
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1975
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1975
21
íslanflsmótll 2. flellfl
............. '.................................✓
Selfoss — Víkingur 5:1
HINN marksækni miðherji Selfyssinga, Sumarliði Guðbjartsson, reyndist nýliðunum I 2.
deild, Vlkingum frá Ólafsvlk, erfiður á laugardaginn. er liðin mættust á Selfossi. Fjögur
mörk skoraði Sumarliði i leiknum, sem Selfyssingar sigruðu 5—1. Má segja að þetta sé
bærileg byrjun hjá Selfossliðinu, og má ætla að það hafi möguleika á að blanda sér í
baráttuna á toppnum í sumar undir stjórn hins ágæta þjálfara sins, Árna Njálssonar.
Sumarliði sýndi þarna mjög góðan leik, en hann er leikmaður sem virðist hafa mjög næma
tilfinningu fyrir þvi sem gerist á vellinum og þeim möguleikum sem kunna að skapast.
Milli sprettanna er Sumarliði ekki mikið áberandi á vellinum, en hann virðist jafnan vera á
réttum stað á réttum tima. og notfærir sér þá möguleika, sem bjóðast, mjög vel.
Staðan í hálfleik á Selfossi var 2—0. Sumarliði skoraði fyrra markið með skalla eftir
aukaspyrnu og hið seinna, eftir að hafa prjónað sig i gegnum vörn Víkinganna.
i seinni hálfleik breytti Sumarliði svo stöðunni fljótlega í 3:0 og skoraði það mark sitt á
svipaðan hátt og annað markið. En Ólafsvíkur Víkingar náðu aðeins að rétta hlut sinn er
15 minútur voru til leiksloka, en þá skoraði Atli Alexandersson laglegt mark. Því svöruðu
Selfyssingar hins vegar með tveimur mörkum á skömmum tíma. Stefán Larsen, kornungur
leikmaður, skoraði fjórða markið og Sumarliði það fimmta.
Sem fyrr greinir sýndi Selfossliðið lagleg tilþrif i þessum leik. Beztu leikmenn þess voru
Sumarliði, Guðjón Arngrimsson tengiliður og Óskar Marelsson miðvörður. Allt eru þetta
leikmenn sem eru mjög athyglisverðir og eiga örugglega eftir að láta enn meira kveða að
sér í sumar.
Vafalaust styrkist Vikingsliðið mikið þegar þjálfari þess, Ásgeir Eliasson, landsliðsmaður
úr Fram, verður gjaldgengur með þvi, en það verður ekki alveg á næstunni, þar sem Ásgeir
lék með Fram i Reykjavikurmótinu. Beztu menn Vikings í þessum leik voru þeir Atli
Alexanderson, Konráð Hinriksson og svo Gylfi Scheving, sem jafnan er traustur og
öruggur leikmaður.
Stjl.
Þróttur — Völsungur 4:0
16 ÁRA piltur í Þróttarliðinu. Þorvaldur Þorvaldsson, skoraði þrennu i fyrsta leik Þróttar i
2. deildar keppninni í ár, sem var gegn Völsungum frá Húsavik á Þróttarvellinum á
laugardaginn. Sigraði Þróttur i leiknum 4:0. og má segja að vel sé af stað farið hjá liðinu,
sem örugglega stefnir að því að vinna sér sæti í 1. deild að ári, undir stjórn hins nýja
þjálfara sins, Sölva Óskarssonar. Þorvaldur á ekki langt að sækja það að vera seigur
knattspyrnumaður. Bræður hans Helgi og Haukur hafa um langt árabil verið einna beztu
knattspyrnumenn Þróttar og forystumenn i félaginu.
Leikurinn á laugardaginn var tiltölulega jafn i fyrri hálfleik. Þróttarar voru þó jafnan
atkvæðameiri. en gekk illa að skapa sér verulega hættuleg tækifæri við mark Völsung-
anna, enda góð barátta í Norðanmönnum. Lögðu þeir aðaláherzluna á vörnina, greinilega
með von um annað stigið í leiknum.
En i seinni hálfleik kom greinilega fram mismunurinn á þjálfun liðanna. Þróttararnir
virðast vera i góðri úthaldsæfingu og náðu að bæta við sig. meðan Völsungarnir urðu
sifellt daufari og þreyttari. Gat ekki farið hjá þvi að Þróttur færi að skora mörk og kom það
fyrsta snemma i hálfleiknum. Þorvaldur fékk þá sendingu út til vinstri og afgreiddi
knöttinn með laglegu. viðstöðulausu skoti i markhornið hjá Völsungum. Skömmu síðar
bætti hann svo öðru marki við með skalla. Kom þar harðfylgni hans til góða, þvi þótt hann
væri lægri en flestir þeir sem börðust um knöttinn stökk hann upp á réttu augnablikí og
náði að skalla.
Þriðja mark sitt skoraði Þorvaldur með fallegu skoti af stuttu færi. um miðjan hálfleikinn,
og undir lok leiksins bætti Sverrir Brynjólfsson fjórða markinu við með góðu skoti.
Þróttarar áttu fjölmörg tækifæri til þess að skora fleiri mörk i þessum leik og gerðu
reyndar eitt i viðbót sem dómarinn dæmdi af þeim fyrir klaufaskap. Tækifæri Völsunganna
voru hins vegar fá i leiknum, enda virtist ekki hugur fylgja máli i sóknartilraunum þeirra.
Beztir Þróttarleikmanna i þessum leik voru þeir Þorvaldur Þorvaldsson, Jóhann Hreiðars-
son og Gunnar Ingvarson sem barðist af miklum krafti og stöðvaði flestar tilraunir
Völsunganna til sóknar.
Í Völsungaliðinu var Hreinn Elliðason einna atkvæðamestur, en liðið lék sæmilega meðan
fullur kraftur var í því, og verður örugglega ekki slakara i sumar en verið hefur undanfarin
ár, þegar leikmennirnir eru komnir i fulla æfingu.
—stjl.
Haukar — Reynir 5:0
Haukar frá Hafnarfirði unnu sannfærandi sigur yfir Reyni frá Árskógsströnd á Kapla-
krikavelli á mánudag. Að sögn hafa Árskógsstrandarmenn æft litið i vor og þeir munu
vera eina liðið i 2. deild, sem ekki hefur fastráðinn þjálfara. En það sem þá vantar i
sambandi við tækni, leikskipulag og þessháttar, bæta þeir upp með dugnaði og gefast ekki
upp þótt móti blási.
Það var nýliði i liði Hauka. Ólafur Jóhannesson, sem skoraði fyrsta markið á 25. mín.
með fallegu skoti. Á 30. mín. opnaði markakóngur 2. deildar frá í fyrra, Loftur Eyjólfsson,
markareikning sinn með þvi að skora úr vitaspyrnu, sem markvörður Reynis var þó nálægt
að verja. Staðan var þvi 2:0 i hálfleik.
Ólafur Jóhannesson skoraði 3ja mark Hauka á 64. mín. og var hálf klúðurslegt og
sýndist sumum, að hann hefði notað höndina við það verk. Á 71. min. var Loftur aftur á
ferðinni og skoraði fremur ódýrt mark. Guðjón Sveinsson innsiglaði svo 5:0 sigur Hauka í
þessum leik með marki skömmu fyrir leikslok.
Sigur Hauka gat orðið stærri eftir gangi leiksins, þvi þeir misnotuðu mörg góð tækifæri.
Það verður án efa þungur róður i 2. deild fyrir hina litt leikreyndu menn Reynis, en hver
veit nema þeir spjari sig, er líða tekur á keppnina.
hdan.
íslandsmótið 3. deild
Fylkir — Grindavík 7:0
EINS og úrslit leiksins gefa til kynna var þarna um yfirburði Fylkis-liðsins að ræða, og náði
það að leika allgóða knattspyrnu á köflum í leiknum. Grindvíkingar voru hins vegar fremur
daufir í dálkinn, enda sennilega ekki komnir f æskilega æfingu. Þannig var þessi leikur t.d.
það fyrsta sem hinn nýi þjálfari liðsins hafði með það að gera. í leiknum vildi það óhapp til
að tveir leikmenn skölluðu saman með þeim afleiðingum að báðir hlutu töluverð meiðsli.
Varð að flytja þá á Slysavarðsstof una og sauma 11 spor á höfði annars en 6 spor á hinum.
Mörk Fylkis: Baldur Rafnsson 2, Ásgeir Ólafsson 2, Jón Sigurðsson 1, Gunnar
Bjarnason 1 og eitt markið var sjálfsmark. stjl.
Þór, Þorláksh. — Hrönn 7 H)
ÞÓR frá Þorlákshöfn vann stóran sigur yfir Hrönn i fyrsta leik sínum í 3. deild. Þeir
skoruðu 7 mörk án þess að Hrönn svaraði fyrir sig og voru mörg markanna mjög falleg.
Jón Sigurmundsson skoraði strax á 1. mín. og hann bætti tveimur við síðar I leiknum.
Eirikur Jónsson skoraði tvö, Sigurður Óskarsson og Sigmar Ottason eitt hvor.
Lélegur leikur sögðu
þjálfarar Framliðsins
— ÞETTA var lélegur leikur
sögðu þjálfarar Fram, Guðmund-
ur Jónsson og Jóhannes Atlason,
eftir leikinn í Hafnarfirði á
laugardaginn. — Sérstaklega var
Framliðiö slakara en við áttum
von á. Við byrjuðum reyndar
nokkuð vel í leiknum, en strák-
unum tókst ekki að fylgja því
eftir, og smátt og smátt misstu
þeir tökin á leiknum. Það má
segja að við höfum aldrei komizt
verulega í gang f þessum leik.
Ekki vildu þeir Guðmundur og
Jóhannes kenna mölinni um
hversu leikurinn var lélegur. —
Malarvöllur er að minnsta kosti
engin afsökun fyrir okkur, sögðu
þeir, — en skýringarinnar er
fremur að leita í þvi að Framliðið
hefur ekki náð að mótast eftir
þær miklu breytingar sem orðið
hafa á þvi i vor.
Sem kunnugt er hafa Framarar
orðið fyrir miklum áföllum í vor.
Guðgeir Leifsson, Asgeir Elíasson
og Sigurbergur Sigsteinsson, sem
voru fastamenn i liðinu í fyrra,
eru ekki með þvi nú, og auk
þeirra vantaði svo Kristin
Jörundsson í liðið á laugardaginn,
en óvíst er hversu mikið hann
verður með því í sumar, þá varð
Helgi Númason fyrir meiðslum
nýlega og var ekki með í leiknum
á laugardaginn, en von er til þess
að hann geti hresst upp á fram-
línu liðsins, sem var heldur dauf í
dálkinn, og lítt ógnandi í leiknum
á laugardaginn. — stjl.
Sigur í leiknum var
okkur mikilsverður
BILLY Hodgson, hinn skozki
þjálfari FH-liðsins, var að vonum
ánægður eftir leik FH og F’ram á
laugardaginn. — Það var mikið
atriði fyrir okkur að sigra i þess-
um leik, þar sem strákarnir öðlast
þá meiri trú á sjálfa sig. Þessi
sigur verður okkur ugglaust gott
veganesti.
— Og F’H-sigur í þessum Ieik
var næsta sanngjarn, sagði
Hodgson, — bæði vorum við
meira með knöttinn og áttum
betri tækifæri en Framararnir.
Ég tel að okkur hafi tekizt að
leika bærilega knattspyrnu í þess-
um leik, en er viss um að FH-liðið
á þó eftir að gera betur á því sviði
þegar kemur fram á keppnistíma-
bilið. —stjl.
Jón Pétursson og Logi ölafsson berjast um knöttinn f leiknum á Kaplakrika.
FH-ingar náðu báðum stigunum
FH-ingar náðu báðum stig-
unum í fyrsta leik sínum í 1.
deildar keppni í knattspyrnu, er
þeir mættu Fram á malarvellin-
um í Kaplakrika á laugardaginn.
Mark, sem Leifur Helgason
skoraði með skalla á 35. mínútu,
réð úrslitum í leiknum, en ekki
verður annað sagt, en að sigur
nýliðanna hafi verið sanngjarn.
Þeir voru ákveðnari, áttu fleiri
tækifæri og léku betur en Fram-
arar, sem virðast óneitanlega vera
í töluverðum öldudal um þessar
mundir, sem reyndar er ekki
nema eðlilegt eftir þær miklu
breytingar sem eru að verða á
liðinu.
Má raunar segja að F’ramarar
tefli að verulegu leyti fram nýju
liði, og það sem meira er. Þeir
leikmenn sem voru helztu mátt-
arstólpar iiðsins í fyrra,
Guðgeir Leifsson, Asgeir Eliasson
og Sigurbergur Sigsteinsson,
leika ekki með því í sumar. Sá
fyrstnefndi er genginn i Víking
og þeir síðarnefndu orðnir þjálf-
arar úti á landi. Auk þess vantaði
svo þá Kristin Jörundsson og
Helga Númason í Framliðið í
leiknum á laugardaginn.
Leikurinn í Kaplakrika var
ekki til þess að hrópa húrra fyrir.
Lengst af var um mikið hnoð og
þóf að ræða — sparkað og hlaup-
ið, og því var það töluverðum til-
viljunum háð hvar knötturinn
Texti: Steinar J. Lúðvíksson.
Myndir: Friðþjófur Helgason.
hafnaði. Framarar voru frískari i
leikbyrjun, og áttu þá nokkrar
sæmilegar sóknir, en enga sem
var verulega ógnandi. Fór ekki
hjá því að taugaóstyrkur var áber-
andi meiri hjá FH-liðinu, en
smátt og smátt fóru leikmenn
þess að jafna sig og þar með að ná
betri tökum á leiknum. Fór mark
Fram að komast í hættu, eins og
t.d. þegar Helgi Ragnarsson átti
laust skot í stöng og út á 20.
mínútu, eftir að markspyrna hjá
Arna Stefánssyni í Frammarkinu
hafði misheppnazt.
Á 35. mínútu kom svo markið
sem gerði út um leikinn. Þar var
vörn Fram illilega sofandi á verð-
inum, og fengu FH-ingar þann
tíma til athafna sem þeim var
nauðsynlegur
Henson íþróttapeysur
Öll 1. deildarfið Englands og íslands.
Stæðir 28—38.
Einnig landsliðspeysur Englands, Brasilíu,
Þýzkalands og Hollands.
Strax í byrjun seinni hálfleiks
átti FH svo allgóð tækifæri til
þess að auka við forskotið, en
leikmenn liðsins voru of seinir að
átta sig á möguleikunum sem buð-
ust og „klúðruðu" færunum.
Um miðjan seinni hálfleik tóku
Þjálfarar Fram það til bragðs að
skipta Kristni Atlasyni inná i stað
Eggerts Steingrímssonar og færa
Jón Pétursson miðvörð framar.
Við þetta lifnaði nokkuð yfir lið-
inu, en vörn FH-liðsins var jafnan
vel á verði, og tókst að stöðva
sóknaraðgerðir Framliðsins í fæð-
ingu.
— ÞAÐ er alltaf gaman að skora
mark, og ekki sízt núna í þessum
fyrsta leik FH í fyrstu deildar
keppninni, sagði Leifur Helga-
son, scm á 35. mínútu leiks FH og
Fram skoraði lagiegt mark með
skalla og átti mark þetta eftir að
færa FH bæði stigin i leiknum í
Hafnarfirði.
Mark þetta kom þannig að FH-
ingar áttu sókn upp vinstri kant-
inn, þar sem Ólafur Danívalsson
náði knettinum og spyrnti honum
fyrir Frammarkið, beint á kollinn
á Leifi sem síðan afgreiddi hann
laglega í markið. Þótt vel væri að
þessu marki staðið hjá þeim Ólafi
og Leifi, áttu Framarar að geta
komið í veg fyrir það. Bæði voru
þeir seinir á móti Ólafi og eins var
Annars var það áberandi í
þessum leik, hversu framlína
Framliðsins var slök og óákveðin.
Aðeins einn maður reyndi að
hreyfa sig eftir knettinum, Rúnar
Gíslason. Meðan þjálfarar liðsins
geta ekki komið meiri ákveðni og
hörku í framlínumenn sína, þarf
Fram varla að gera því skóna að
skora mörg mörk í 1. deildar
keppninni. Komi Kristinn
Jörundsson aftur inn i liðið, má
vænta þess að nokkuð rætist úr,
en Kristinn er jafnan ógnandi og
mjög markheppinn leikmaður.
FH-liðið virðist mjög jafnt.
fyrirsendingin ekki það föst að
þeir áttu að geta náð lienni, og í
þriðja lagi gleymdist alveg að
gæta Leifs.
I seinni hálfleiknum fékk Leif-
ur Helgason svo gullið tækifæri
til þess að bæta öðru marki við.
Þá fékk hann knöttinn úti við
vítaeigslínu. Árni Stefánsson,
Frammarkvörður, freistaði að
bjarga með úthlaupi, en Leifi
tókst að snúa á hann. En í stað
þess að skjóta þá strax virtist
Leifur ætla sér að leika með
knöttinn inn í Frammarkið, og á
síðustu stundu tókst varnarleik-
mönnum Fram að komast fyrir
hann og stöðva hann. Var þarna
um eitt allra bezta tækifærið i
leiknum að ræða. — stjl.
Leikmennirnir eru flestir ungir
og eiga framtíðina fyrir sér. Ein-
hvern veginn hefði maður haldið
að þetta lið myndi njóta sin betur
á grasi en möl, en það mun tæp-
lega koma fram í sumar, þar sem
FH-ingar eru ákveðnir að leika
heimaleiki sína á malarvellinum í
Kaplakrika.
t STUTTU MÁLI:
lslandsmótið 1. deild
Kaplakrikavöllur 17. maf.
(Jrslit: FH—Fram 1:0 (1:0)
Mark FH: Leifur Helgason á35. min.
(iula spjaldið: Logi Ólafsson. FH, og
Ágústs Guðmundsson, Fram.
Áhorfendur: 800.
O 1
Hann skoraði...
Dæmigerður malarleikur
ÞETTA var dæmigerður mal-
arleikur, sagði Haraldur
Sturlaugsson Akurnesingur
eftir leikinn á Skaganum. Við
erum ánægðir með að hafa
komið með annað stigið frá
þessum leik. KR-inga hafa vfir
að ráða ungum og frískum leik-
mönnum og það var alls ekki
tilviljun að þeir unnu Rykja-
víkurmótið í vor.
Auk þess hafa þeir allt að
vinna, en við sem ætlum okkur
að verja titil okkar verðum að
leika gætilega, því í svona
lcikjum geta minnstu mistök
kostað mark og tap á báðum
stigunum. Annars er það nú
þannig að mölin virkar scm
„jafnari" á lið og sést oft á
tíðum ekki mikill munur á því
hvort liðið er í 1. eða 2. deild,
þegar leikið er á möl.
Við hefðum unnið þennan
leik með 3ja til fjögurra marka
mun, ef við hefðum leikið á
grasi, sagði Jón Gunnlaugsson.
Okkar framlínumcnn, eins og
t.d. Karl Þórðarson og Arni
Sveinsson, ná ekki að sýna neitt
af því, sem i þeim býr á möl-
inni. Eg veit að leikurinn var
ekkert skemmtilegur eða vel
leikinn, en svona hafa nú
leikirnir verið í vor hjá okkur,
en þetta á eftir að gjörbreytast,
þegar á grasið kemur.
Við erum búnir að leika 11
leiki á möl i vor á rúmum
einum og hálfum mánuði og
fiesta í roki og kulda og erum
satt að segja orðnir hundleiðir
á slíkum aðstæðum. Okkur er
því satt að segja farið að hlakka
til að komast á grasið og eins og
ég sagði áðan trúi ég ekki öðru,
en að knattspyrnan hjá okkur
eigi eftir að gjörbreytast.
OK) var bezt við hæfi 1
lélegum leik IA og KR
VIÐUREIGN Islandsmeistaranna
frá Akranesi og Reykjavíkur-
meistara KR lauk með marka-
lausu jafntefli í 1. umferð Is-
landsmótsins á Akranesi á laugar-
dag. Sennilega er 0—0 bezta lýs-
ingin á leiknum, því liðin sýndu
mjög lélega knattspyrnu, þar sem
varla örlaði á samleik eða öðru
þvf sem knattspyrnu má helzt
prýða. Hinsvegar fengu menn
stóran skammt af hlaupum og
spörkum út í loftið, þar sem til-
viljun ein réð því hvar boltinn
hafnaði. Var engu líkara, en að
leikmenn hefðu það á tilfinning-
unni að boltinn væri „baneitr-
aður“ og því bezt að koma honum
sem fyrst frá sér og það sem allra
lengst.
Veður var gott, en hins vegar
var leikið á malarvellinum og þar
er kannski að finna þá einu afsök-
un fyrir þeim lélega leik sem iiðin
sýndu þeim 1040 áhorfendum,
sem komu til að sjá leikinn.
FYRRI HÁLFLEIKUR:
Akurnesingar höfðu undirtökin
að mestu i fyrri hálfleik, en þeim
gekk illa að komast í gegnum
varnarmúr KR og skapa sér tæki-
færi. Ef hægt er að tala um mark-
tækifæri, þá var það snemma í
hálfleiknum að Matthías var ná-
lægt því að skora eftir að Magnús
Guðmundsson markvörður KR
hafði misst knöttinn, en hann
hitti ekki markið. A 26. mín.
komst Jón Gunnlaugsson í gott
færi innan vítateigs eftir horn-
spyrnu, en skot hans fór langt yfir
markið.
KR náði einstaka skyndisókn,
sem allar gengu upp miðjuna og
höfnuðu á höfði hins hávaxna
Jóns Gunnlaugssonar, sem átti
góðan leik og var án efa bezti
maður vallarins.
SLAKARI
SlÐARI HÁLFLEIKUR:
Það litla sem sagt hefur verið
um fyrri hálfleikinn á' við um
þann síðari, nema þá helzt það, að
hann var sýnu slakari. Hjá hvor-
ugu liðinu var um umtalsverð
marktækifæri að ræða. Atli Þór
Héðinsson skaut þó einu sinni í
hliðarnetið í góðu færi og Davíð
Kristjánsson varði gott skot frá
Jóhanni Torfasyni. Seint í leikn-
urn var Arni Sveinsson kominn í
gott færi, en hann misnotaði það
illa, og á síðustu mínútunni var
mikill darraðardans innan víta-
teigs KR, en það bjargaðist allt á
síðustu stundu.
Eins og áður hefur verið að
vikið, var leikurinn slakur og fátt
um fína drætti. Talsverðrar
hörku gætti i leiknum og það er
að verða áberandi í leikjum hjá
okkur og á það ekki sérstaklega
Myndir og texti:
Helgi Daníelsson.
við þennan leik, að eftir að leik-
maður hefur brotið af sér og búið
er að dæma, eru þeir að elta hver
annan til þess að hrinda eða jafn-
vel að „dangla" hver i annan.
Slikt sem þetta er ákaflega hvim-
leitt að horfa uppá svo ekki sé
meira sagt. I mörgum tilfellum er
erfitt fyrir dómarann að fylgjast
með þessu. Þá er það áberandi og
sást nokkrum sinnum i þessum
leik, að leikmenn hanga í og halda
hver öðrum. Væri það vissulega
slæmt, ef knattspyrnan ætlar að
fara að þróast í þessa átt, sem
hlýtur að verða á kostnað þess,
sem fólk kemur á vellina til að
sjá, semsé góða og vel leikna
knattspyrnu.
Bæði liðin lögðu meira uppúr
varnarleiknum og sat það í fyrir-
rúmi að halda markinu hreinu.
Sóknarleikurinn verður því meira
og minna í molum, eins og berlega
kom fram í þessum leik. KR lék
með 8 i vörn og tvo frammi, þá
Jóhann og Atla, og var þeim ætlað
að hlaupa og vinna úr sendingum,
sem meira og minna voru há-
spörk, er höfnuðu á höfði Jóns
Gunnlaugssonar.
Akurnesingar léku ekki eins
sterkan varnarleik, a.m.k. framan
af leiknum, en þeim gekk illa að
brjótast i gegnum sterkan varn-
armúr KR. Matthías og Teitur
áttu slakan leik, og sýndu lítið.
Ungu mennirnir Arni og Karl
kunna greinilega ekki við sig á
mölinni, en það verður gaman að
fylgjast með þeim þegar á grasið
kemur.
Einstakir leikmenn verða
annars vart metnir eftir þessum
leik, enda verður ekki öðru trúað,
en að bæði liðin eigi eftir að sýna
aðra og betri knattspyrnu, þegar á
grasvellina kemur, sem vonandi
verður í næstu umferð.
Valur Benediktsson dæmdi
þennan leik og gerði það með
ágætum nema hvað hann hefði
mátt hafa betri gætur á því þegar
leikmenn eru að elta hver annan
eftir að dæmt hefur verið á brot.
í stuttu máli:
Akranesvöllur 17. maí 1975.
1. deild (1. umferð)
I.A. — K.R. 0—0
Gult spjald: Haraldur Sturlaugs-
son tA
Ahorfendur: 1040.
Dómari: Valur Benediktsson.
Litlu mufrar að Jón Alfreðsson nái þarna knettinum í góðu færi, en
þeir Guðmundur Ingvason og Magnús Guðmundsson, KR markvörður
eru aðeins á undan.
Einkunnaoiöfin
BHIIBlVlalllH IMH■ ■■■
«-■ ■ :.■ ■ ■ ___________<
LIÐÍA:
Davíð Kristjánsson 2
Benedikt Valtýsson 2
Björn Lárusson 2
Þröstur Stefánsson 2
Jón Gunniaugsson 3
Haraldur Sturlaugsson 1
Jón Alfreðsson 2
Teitur Þórðarson 1
Matthías Hallgrímsson 1
Arni Sveinsson 2
Karl Þórðarson 2
Hörður Jóhannesson (varam.) 1
LIÐKR:
Magnús Guðmundsson 2
Guðjón Hilmarsson 2
Stefán Sigurðsson 2
Halldór Björnsson 2
Ottó Guðmundsson 2
Árni Steinsson 1
Baldvin Elíasson 1
Guðmundur Ingvason 2
Jóhann Torfason 2
Atli Þór Héðinsson 2
Hálfdán Örlygsson 1
DÓMARI:
Valur Benediktsson 3
LIÐlBV:
Ársæll Sveinsson 3
Haraldur Gunnarsson 1
Þórður Hallgrímsson 1
Valþór Sigþórsson 2
Friðfinnur Finnbogason 2
Snorri Rútsson 2
Örn Oskarsson 2
Karl Sveinsson 1
Sigurlás Þorleifsson 2
Sveinn Sveinsson 2
Tómas Pálsson 3
Haraldur Júlíusson (varam.) 1
LIÐ VlKINGS:
Diðrik Olafsson 2
Jón Ölafsson 1
Magnús Þorvaldsson 2
Helgi Ilelgason 2
Róbert Agnarsson 2
Eiríkur Þorsteinsson 2
Gunnar Örn Krist jánsson 3
Jóhannes Bárðarson 1
Kári Kaaber 2
Stefán Halldórsson 3
Öskar Tómasson 1
DÓMARI:
Baldur Þórðarson 3
LIÐ FH:
Ómar Karlsson 1
Jóhann Ríkharðsson 1
Jón Hinriksson 2
Janus Guðlaugsson 2
Pálmi Sveinbjörnsson 2
Ólafur Ilanivalsson 3
ÞórirJónsson 2
Leifur Helgason 2
Logi Ólafsson 2
Helgi Jónsson 2
Viðar Halldórsson 2
LIÐFRAM:
Árni Stefánsson 3
Ágúst Guðmundsson 1
Ómar Arason 1
Gunnar Guðmundsson
Marteinn Gcirsson
Jón Pétursson
Símon Kristjánsson 1
Rúnar Gíslason I
Steinn Jónsson 1
Trausti Haraldsson 1
Eggert Steingrímsson 1
Kristinn Atlason 2
DÓMARI:
Eysteinn Guðmundsson 3
M N N