Morgunblaðið - 21.05.1975, Blaðsíða 24
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1975
UMSJÓN: Bergljót Halldórsdóttir, Björg Einarsdóttir,
Lilja Ólafsdóttir.
Erna Ragnarsdóttir.
Utilokum
Dæmi um starfsheiti sem lögö voru til grundvallar í kjarasamningunum 1974.
O Samningur Fél. ísl. iðnrekenda og Vinnuveitendasambands Islands við Iðju, fél. verksmiðju-
fólks:
Vélavinna, saumaskapur, sníðsla, birgðavarsla, skinnasaumur, bílstjórar o.s.frv.
O Samningur verslunarmanna við Kaupmannasamtök Islands, Fél. isl. stórkaupmanna og
Verslunarráð Islands:
Afgreiðslu- og skrifstofufólk, símverðir, innheimtumenn, sölumenn, ritarar, fólk við götunarvél-
ar, bókarar, deildarstjórar o.s.frv.
• Samningur Verkamannafél. Dagsbrúnar við Vinnuveitendasamb. Islands o.fl.:
Byggingarvinna, fiskvinna, hafnarvinna, stjórn þungavinnuvéla, o.s.frv.
• Samningur Verkakvennafél. Framsóknar við Vinnuveitendasamb. tslands o.fl.:
Dagleg ræsting, fiskvinnsla, starfsstúlkur í mötuneytum, matráðskonur, o.s.frv.
• Samningur Starfsmannafél. ríkisstofnana við ríkissjóð Islands:
Þvottamaður ganga Landspítalans, afgreiðslumaður A.T.V.R., sjúkraliðar, hárgreiðslumaður
Þjóðleikhúss, forstöðukona dagdeildar, forstöðumaður mælastöðvar Rarik, saumakona, gæslu-
menn við gcðhjúkrun, matráðskona Kristnesi, bryti Litla-Hrauni o.s.frv.
0 Samningur Starfsmannafél. Reykjavíkurb. við Reykjavíkurborg:
Gæslustörf á Kjarvalsstöðum, gæslukonur, aðstoðarstúlkur tannlækna, aðstoðarmenn hjá
Skýrsluvélum, forstaða sundstaða, forstaða dagheimila, yfirmatreiðsla Borgarspítala, aðstoðar-
matráðskona Borgarspítala o.s.frv.
0 Samningur Fél. fsl. símamanna við ríkissjóð Islands:
Fjarritarar, talsímakonur, ritsfmaritarar, eftirlitskonur með talsímaafgreiðslu, yfirvarðsstjórar
talsímakvenna o.s.frv.
vinnuráðningar og skipunar f
starf, hlunninda, vinnuskilyrða
og fækkunar í starfi.
I stjórnarskrá lýðveldisins Ís-
lands, sem er lög nr. 33/1944,
segir svo:
69. gr. Engin bönd má leggja
á atvinnufrelsi manna, nema al-
menningsheill krefji, enda þarf
lagaboð til.
1 lögum um réttindi og skyld-
ur starfsmanna ríkisins, nr.
38/1954 3. gr., segir svo í 6.
tölulið:
Konur og karlar hafa jafnan
rétt til opinberra starfa og til
sömu launa fyrir sömu störf.
Lög um jafnlaunaráð frá
1973, 2. gr.:
Atvinnurekendum er
óheimilt að mismuna starfs-
fólki eftir kynferði. Gildir þetta
ekki aðeins um launagreiðslur,
heldur um hvers konar greinar-
mun, útilokun eða forréttindi
vegna kynferðis. Óheimiít er að
skerða jafnrétti kynjanna til at-
Samkvæmt starfs-
heitunum virðast samn-
ingsaðilarnir ekki sjá
neitt athugavert við það
að konur geti gengið í öll
störf, sem samið hefur
verið um.
Öðru máli gegnir um
karla — þar á sér stað
frekleg mismunun í
þeirra garð. Körlum er
t.a.m. tæplega stætt á því
að falast eftir starfinu:
eftirlitskona með tal-
símaafgreiðslu. Hvað er
til bragðs að taka?
Hefur löggjafinn ekki
veitt körlum neina vernd
gegn slíku misrétti á
vinnumarkaðnum?
Bæjarst/órinn í Hafnarfirdi.
Vélritunarstúlka
óskast
Félagssamtök óska að ráða vélritunar-
stúlku til starfa Vélritunarkunnátta áskil-
in.
Umsókn, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, sendist Mbl. merkt
„Rösk—6926".
Hér er greinilega atriði að vélritarinn sé
kvenkyns.
Útkeyrslumaður
Stórt innflutningsfyrirtæki óskar eftir að
ráða mann til útkeyrslustarfa Þarf að vera
eldri en 20 ára og hafa bílpróf Framtiðar-
starf fyrir samvizkusaman mann Skrif-
legar umsóknir er greini frá fyrri störfum
sendist til Mbl fyrir 15 maí n.k. merkt
Útkeyrsla — 7238
Oft sitja hæfileikar og starfsmenntun í
fyrirrúmi án tillits til kynferðis.
L.O.
(Auglýsingarnar birtust í Mbl. 10. og 11.
mai s.l.)
Undarleg er sú árátta manna
að geta ekki haldið sig að anda
laganna, a.m.k. gefur fólk sér
býsna lausan tauminn i starfs-
auglýsingum, samanber:
Bókhaldsstúlka
óskum að ráða stúlku til að færa vélabók
hald og fleira /Eskilegt að hún hafi
almenna bókhaldsþekkingu Skriflegar
umsóknir er greini frá menntun og fyrri
störfum sendist fyrir 1 5 maí n.k.
Gunnar Ásgerrsscn h. f.,
Suður/andsbraut 16.
Óskum eftir
að ráða
rennismiði
Jens Amason h.f. vélaverkstæðr.
Súðarvogi 14.
Bókari — bókhaldsvél — bókhaldsstúlka'
Tvær konur óskast
til starfa
hálfan og allan daginn. Geta byrjað strax.
Sælkermn — óðal,
Austurstræti 12.
sími 11630.
Skrifstofustarf
Hafnarstjórn Hafnarfjarðar óskar eftir að
ráða karlmann um óákveðmp tíme á skrit-
stofu hafnarsjóðs
Umsóknir um starf þetta ■kiitu séndm
undirrituðum fyrir 1 3. maí n.k.
Einaskilyrðið: kvenkyn.
Hvað skyldi maðurinn eiga að gera'
I sumum lond-
um, s.s. Kanada, er
kyngreining I
starfsauglýsingum
óheimil.
Sjoppueigandinn sagði
aðspurður:
„Auðvitað auglýsi ég eftir
stúlkum til afgreiðslu — þær
gera sig ánægðar með minnu
kaup en piltar.“
. . . og svo var það fulltrúinn,
sem fór fram á launahækkun,
vegna þess að hann þurfti að
vélrita svo mikið sjálfur.
„Hvað eru margir starfs-
menn í bókhaldinu?“
„Við erum þrír, auk aðalbók-
arans, og svo eru þar tvær
stúlkur.“ ^ ^
— Arndís
Framhald af bls. 23
meógöngu, mundu jafnvel
síður nota sér frjálsar fóstur-
eyðingar en hinar, sem betri
efni og aðstæður hefðu.
I þessu máli sem mörgum
öðrum er víða maðkur í
mysunni, en óskandi er, að
þingmenn hafi i huga réttindi
alls lífs, hvort sem um er að
ræða nýfætt barn, fóstur í
móðurkviði eða gamalmenni,
þegar þeir greiða atkvæði um
frumvarp þetta, en láti ekki
stjórnast af hræðslu um
atkvæðatap háværs minnihluta.
Arndís Björnsdóttir
kennari.
— Rut
Framhald af bls. 23
Það er innsta eðli og hæsta
ósk hverrar heilbrigðrar konu
að gefast með likama og sál
þeim manni einum, sem hún
elskar — og áð fæða börn
þeirra.
Á ábyrgð okkar kvennanna
er það að opna augu ungu
stúlknanna fyrir þessari stað-
reynd, að vekja skilning þeirra
á þessu eðli sínu, að gera þær
færar um að gefa irekar en að
krefjast.
Ast er kraftur, er sagt. Það er
lika sagt, að hún sé eiginleiki
konunnar. Þess vegna færi vel
á því á þessu kvennaári, að við
konur notuðum þennan kraft
til að leysa vandamál, frekar en
að fylgja vafasömum slagorðum
liðandi stundar.
Rut Magnúsdóttir
Eyrarbakka.
— Kjartan
Framhald af bls. 23
leikinn ný mannvera hafi
breytzt í staðreynd strax á
getnaðaraugnablikinu, og þess
vegna verður að biða með að
dæma óvelkomin fóstur úr leik
nema, eins og áður hefir verið
margsagt, þegar algerar
neyðaraðstæður krefjast þess.
Hið síðara er þetta. Ég vel
biðja menn áð gæta þess, og
gæta þess vel, að glata ekki
hæfileikanum til þess að hríf-
ast frammi fyrir hinu undur-
samlega í lífinu og tilverunni,
svo sem sköpun nýrrar mann-
veru hlýtur ávallt að teljast
vera.
Kjartan Norðdahl.
HAFNARFJÖRÐUR
— HAFNARFJÖRÐUR
Framhaldsstofnfundur Byggingafélags ungs fólks i Hafnarfirði
verður fimmtudaginn 22. maí kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu,
Strandgötu 29.
Stjórn Stefnis.