Morgunblaðið - 21.05.1975, Blaðsíða 36
ai<;lVsin<;asíminn kh:
22480
AUGLÝSINCiASÍMINN ER:
22480
JfiorcunMíitní)
MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1975
Ljósm Mbl. Friðþjófur.
13. kaupskipið
stöðvast í dag
SAMNINGAFUNDUR hafði ekki
í gærkveldi verið boðaður í kjara-
deilu togarasjómanna og Félags
íslcn/kra hotnvörpuskipaeigenda
og er nú alllangt liðið frá því er
síðast var haldinn fundur.
Samkvæmt upplýsingum frá
samninganefnd FlB nema kröfur
yfirmanna á togurunum 7,4
milljón króna útgjaldaaukningu
að meðaltali á hvert skip, en kröf-
ur undirmanna, sem þó eru
helmingi fleiri en yfirmenn,
nema samtals um 4 milljón króna
útgjaldaaukningu á hvert skip.
Sú tala myndi þó hækka
óhjákvæmilega, ef gengið yrði að
kriifum yfirmanna. Samtals nem-
ur því útgjaldaaukning vegna
krafna togarasjómanna rúmlcga
11 milljónum króna á hvert skip,
sem samtals eru 22. llcildarút-
gjaldaaukning togaraútgerðar-
innar yrði því um fjórðungur
milljarðs, ef að kröfunum yrði
gengið.
eyri, en mun stöðvast á sunnudag,
er skipið kemur til Reykjavíkur.
Ekkert skipa Hafskips hefur enn
stöðvazt vegna verkfallsins, en
Laxá verður fyrst til að stöðvast,
er væntanleg til Reykjavíkur
hinn 24. maí, Langá kemur 2.
júní, en Hvítá, Selá og Skaftá eru
væntanlegar um 5. júní. Þá hefur
eitt skip Skipadeildar SÍS
stöðvazt, Stapafell. Þá hafa þrjú
önnur flutningaskip stöðvazt,
Framhald á bls. 39
Morgunblaðsmenn skruppu út
I Skrúð um hvítasunnuhelg-
ina. A lcið sinni til Reyðar-
fjarðar hittu þeir fyrir þennan
hreindýrahóp í Fagradal og
var hann að sjálfsögðu mynd-
aður.
Sjávarútvegsráðherra:
Samúðarverkfall vélstjóra á
kaupskipaflotanum hefur nú þeg-
ar stöðvað 12 kaupskip og hið 13.
mun bætast í hópinn í dag. Sex
Eimskipafélagsskip hafa þegar
stöðvazt, en þau eru: Reykjafoss,
Irafoss, Ljósafoss, Álafoss, Mána-
foss og Askja, og i dag stöðvast
Selfoss. Urriðafoss er væntanleg-
ur á fimmtudag og mun þá stöðv-
ast. Af skipum Skipaútgerðar
rikisins hefur Hekla stöðvazt og
nú er Herjólfur að stöðvast, þar
sem skipið er að fara í slipp, en
það hefur þó haft heimild til
þessa að flytja mjólk og annan
varning til Vestmannaeyja á
undanþágu. Esja er nú á Akur-
Friðun veiðisvæða vegna smá-
fiskadráps kemur til greina
MATTHIAS Bjarnason sjávarút
vegsráðherra tjáði Morgunblað-
inu I gær, að allt eins kæmi til
greina að friða ákveðin veiði-
svæði ef það sannaðist að smá-
Umfangsmikið hasssmygl 1
rannsókn — 2 í varðhaldi
FlKNIEFNADÖMSTÖLLINN i
Reykjavlk vinnur nú að rannsókn
á umfangsmiklu hassmáli sem
upp komst í síðustu viku. Hafa
tveir piltar um tvítugt verið úr-
skurðaðir í allt að 15 daga gæzlu-
9skipseldu
fyrir 13,3
millj. króna
Síldarverð í Danmörku er
ákaflega misjafnt um þessar
mundir, en ef síldin sem seld
er þykir góð fæst ákaflega hátt
verð fyrir hana. Til dæmis
fékk Súlan EA 93 krónur fyrir
hvert kg. í gærmorgun er skip-
ið seldi I Hirtshals. 1 gær seldu
9 skip I Hirtshals og Skagen,
alls 383.3 lestir fyrir 13.3
millj. kr. og var meðalverðið
kr. 34.76.
Skipin, sem seldu i gær voru
þessi: Rauðsey AK 50.6 lestir
fyrir 2 millj. kr., Óskar
Magnússon AK 73 lestir fyrir
2.1 millj. kr., Arni Sigurður
AK 26 lestir fyrir 450 þús. kr.,
Súlan EA 11 lestir fyrir 1
millj. kr., Fifill GK 88 lestir
fyrir 2.5 millj. kr., Ásberg RE 9
lestir fyrir 290 þús. kr., Helga
2. RE 60 lestir fyrir 2.6 millj.
kr., Reykjaborg RE 13 lestir
fyrir 350 þús. kr. og Guðmund-
ur RE 52 lestir fyrir 1.9 millj.
kr.
varðhald á meðan rannsókn máls-
ins fer fram. Þeir eru báðir ís-
lenzkir.
Arnar Guðmundsson, fulltrúi
hjá dómstólnum, tjáði Morgun-
blaðinu í gær, að s.l. fimmtudag
hefði komizt upp um tilraun til að
flytja inn hass frá Danmörku.
Rannsókn málsins hófst þegar og
hafa mjög margir verið yfirheyrð-
ir vegna þess. Arnar sagði að á
þessu stigi málsins væri hægt að
meta umfang þess með fullri
vissu og þvi vildi hann engar töl-
ur nefna um magn á hassi. Kvað
töluverða vinnu vera eftir við
rannsókn málsins.
fiskadráp væri óvenjumikið á
umræddum svæðum. Ráðherra
lét svo um mælt í tilefni fullyrð-
inga fiskifræðinga og skipstjóra
um óhemju mikið smáfiskadráp á
svæðum útaf Norður- og Norð-
vesturlandi.
Ráðherrann lét þess hins vegar
getið, að ráðuneyti hans hefðu
engar skýrslur né tillögur borizt
frá Hafrannsóknastofnuninni.
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá fyrir helgina, fá íslenzkir tog-
arar geysimikinn smáfisk á veiði-
svæðunum úti fyrir Norður- og
Norðvesturlandi. I einstaka hali
hafa reynst allt að 82.4% talinna
fiska undirmáls- og smáfiskur.
Vegna þessa máls hafði Morgun-
blaðið samband við Sigfús
Schopka fiskifræðing og spurði
hann hvort Hafrannsóknastofn-
unin myndi leggja fram einhverj-
ar tillögur i átt til friðunar á
þessum svæðpm.
Sigfús Schopka sagði, að enn
sem komið væri hefðu þeir eink-
um Kolbeinseyjarsvæðið í huga.
Hafrannsóknastofnunin ætti eftir
að fá skýrslu frá Vilhjálmi Þor-
steinssyni fiskifræðingi sem verið
hefði um borð í einum togaranna
og gert mælingar. Friðun á þess-
um slóðum gæti ekki átt sér stað i
einu vettfangi, en málið væri allt í
undirbúningi, í sambandi við
frekari útfærslu landhelginnar.
Þegar Strandagrunnið hefði verið
friðað f fyrra, hefðu brezk veiði-
skip veitt þar áfram, og því væri
það til lítils að banna islenzkum
skipum veiðar, þegar annarra
þjóða skip gætu sópað upp aflan-
Laxveiði hófst í
LAXVEIÐI hófst i gærmorgun
með því að net voru lögð i Hvitá
I Borgarfirði. Fékkst ekkert í
fyrstu lögn enda áin tær og
köld.
Þór Guðjónsson veiðimála-
stjóri sagði i gær, að enn sem
komið væri, mætti aðeins veiða
gœr
i Hvítá og yrði svo fram til 1.
júni, en þá yrðu nokkrar ár
opnaðar. — Hins vegar hefði
verið tilhneiging i þá átt síð-
ustu ár að færa opnunartíma
ánna eilítið aftur, og því ekki
víst að allar ár yrðu opnaðar 1.
júní, sérstaklega þar sem þær
væru nú mjög kaldar.
Tíeyringur seldist á 48
þúsundföldu nafnverði!
Guðmundur
listaverkasaii
Axelsson
Klaustur-
Menntamálaráðherra:
Útgáfa orðabókar stöðvuð
Reglur um stafsetningu endurskoðaðar
„Það verður nú fljótlega skipuð
ný nefnd íslenzkusérfræðinga til
að endurskoða reglurnar um staf-
setningu og við höfum látið
stöðva útgáfu islenzkrar orðabók-
ar vegna þessa," sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra I samtali við Morgunblaðið
í gær, þegar hann var inntur eftir
viðbrögðum við undirskrift 33
þingmanna, sem vilja láta taka
upp aftur gömlu stafsetninguna
þar sem Z er m.a. í ritmálinu.
„Annars er fremur lítið um
þetta að segja á þessu stigi,“ sagði
menntamálaráðherra, „eftir bréf
hundraðmenninganna var farið
að kanna þetta mál betur og það
má segja að frumvarpið, tillagan
og undirskriftirnar hafi ýtt undir
nánari skoðun á þessu máli. Al-
þingismenn hafa áréttað vilja
sinn með þessum undirskriftum,
fram hjá því verður ekki litið og
málið því skoðað upp á nýtt.
Akvörðun í
hraðað, því
þessu
þetta
máli verður
sr vandræða-
ástand, kostar heilabrot, vinnu og
peninga.'1
Menntamálaráðherra kvað það
hafa komið til tals hvort stöðva
ætti um stund útgáfu hjá Ríkisút-
gáfu námsbóka, en ekki þótti það
ráðlegt. Hins vegar var stöðvuð
útgáfa á íslenzkri orðabók fyrir
grunnskólakennslu, en hún var
rituð eftir nýju reglunum. Hand-
ritið var tilbúið í setningu, en
verður nú látið bíða frekari
ákvörðunar. Hins vegar hefur
verið unnið samkvæmt áætlun við
útgáfu barnaskólabóka.
hólum hélt myntuppboð í
Tjarnarbúð á laugardaginn
og var þar margt um mann-
inn. Mörg verðmæt mynt
var í boði og voru dæmi
þess, að peningur væri
seldur á 48 þúsundföldu
nafnverði.
Þetta dæmi er 10 eyringur frá
árinu 1925 sem sleginn var á 4
þúsund krónur að viðbættum
20% söluskatti eða samtals 4800
krónur. Grænn 500 króna seðill
sem tekinn var úr umferð 1948
var sleginn á 52 þúsund krónur að
viðbættum söluskatti eða samtals
á 62.400 krónur. Þykkur túkall
frá árinu 1966 var sleginn á 12
þúsund krónur og 5 og 10 króna
seðlar frá árinu 1885 voru slegnir
á 40 þúsund krónur hvor. Tveir
ríkisskildingar frá 1885 voru
slegnir á 2 þúsund krónur hvor.
Minnispeningur Jóns Sigurðsson-
ar frá 1961 fór á 48 þúsund krón-
ur og minningarskjöldur um Sig-
urð Nordal frá árinu 1966 fór
einnig á geypiháu verði.