Morgunblaðið - 24.08.1975, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. AGUST 1975
15
Hállblindur.
Hann undirritar hér skjöl í skrif-
stofu sinni í London. Takið eftir
sérkennilegu borðinu.
Hér er hann f verkamannagallan-
um — með loðskinnskraga!
SKÖH-
öttur.
helmslrsgur, forrlkur.
Þekkið þið hálfsköllótta, hálfblinda
poppstjörnu scm er feimin við stúlkur?
Ekki?
Þa ba sona!
Þið fáið þá 22 ábendingar til að auð-
veldaykkur að finna Iausnina ágátunni:
. 1. Hann er 28 ára gamall, sonur Stanley
Dwight, sem var foringi i brezka flughern-
um. Stanley var lítt hrifinn af bernsku-
áhugamálum sonarins og kunni lítt
að meta það sem stráksi fann upp á —
nema því, er sá litli skokkaði 10 kílómetra
leið til til að horfa á knattspyrnuleiki
liðsins Watford.
2. Pabbinn hafði eitt sinn verið í popp-
inu, lék á trompett í danshljómsveit. Þess
vegna var sonur hans á kafi í gömlum
stjörnum eins og Harry James, Jo Staff-
ord og Artie Shaw, á meðan aðrir ungling-
ar í Bretlandi rokkuðu eða skóku sig eftir
tónlist Chuck Berry og Otis Redding.
3. „Þess vegna heldur fólk að ég sé 143
ára,“ segir pilturinn nú. En hann fór
snemma að læra á píanó og 11 ára gamall
náði hann inngöngu i Royal Academy of
Music, þ.e. koiyinglega brezka tónlistar-
skólann. Hann reyndi að skipta tíma sín-
um á milli poppsins og klassísku tónlistar-
innar, en þegar foreldrar hans skildu,
fékk hann vinnu við að glamra á píanóið i
krá i nágrenni heimilis sins.
4. Loks hætti hann í tónlistarskólanum,
tveimur vikum fyrir prófin, og tók saman
við hljómsveitina Bluesology. Þetta var
ekki svo afleit byrjun, en hún nægði eng-
an veginn til að tryggja honum þann
frama sem hann þráði. Nafnið var líka svo
vita vonlaust: Reginald Dwight. Hver gæti
hugsað sér poppstjörnu sem héti Reg
Dwight?
5. Hann fann ágæta lausn á vandamál-
inu: Fékk lánaða hluta af nöfnum þeirra
Elton Dean, saxófónleikara, og John
Baldry söngvara, — sem hér var á ferð
fyrr í sumar með River Band — og bjó til
nýtt nafn (þó ekki Dean Baldry) í von um,
að því fylgdi einnig nýr persónuleiki.
6. Hann átti í basli I kvennamálunum,
varð alvarlega ástfanginn fyrir 7—8 árum,
en hún sleit sambúðinni og hann gerði
einkennilega tilraun til sjálfsmorðs —
stakk höfðinu inn i ofn og skrúfaði frá
gasinu, en gætti þess að allir gluggar í
eldhúsinu væru galopnir! — Hver var
hún? Hún hét Linda og var 1.88 á hæð.
7. Einn daginn auglýsti Liberty-
hljómplötufyrirtækið í Bretlandi eftir nýj-
um söngvurum og lagasmiðum. Hann
sendi sýnishorn af framleiðslu sinni. Hið
sama gerði ungur bóndi í Lincolnshire,
sem vildi ólmur komast á brott frá
hænsnakofanum. Hann hét — og heitir
enn — Bernie Taupin.
8. „Raunar hafði ég aldrei skrifað eina
setningu í alvöru," segir Bernie núna. „En
ég var fús að reyna hvað sem var.“ Liberty
kynnti piltana hvorn fyrir öðrum og þeir
fluttust í Ibúð í Norður-London. Þegar til
kom, vildi fyrirtækið svo ekki noia ne'tt if
lögum þeirra.
9. Þeir voru I þrjú ár að vinna sig frá
Norður-London’ og hafa árin þau orðið
þeim að yrkisefni á nýjustu stóru plöt-
Hér er hann inni í fataherberginu sínu með hluta af skóbirgðum
sfnUm (hann á alls um 200 pör!).
unni, „Captain Fantastic and the Dirt
Brown Cowboy". Hænsnabóndinn fyrrver-
andi er að sjálfsögðu ,,kábojinn“.
10. Vinur vor varð frægur á nokkrum
kvöldum árið 1970, er hann lék I einum af
mikilvægustu skemmtistöðum poppheims-
ins, Troubadour-klúbbnum I Los Angeles.
Ári siðar var hann orðinn rlkur, tveimur
árum síðar ofsalega rikur. Nú eru árstekj-
ur hans um 7 milljónir dollara, eða litlar
1100 milljónir íslenzkra króna.
11. Allt I einu var þessi litli, þybbni,
feimni náungi orðinn uppáhald milljón-
anna; foreldrar litu á skrlpalæti hans sem
ósköp indælt gaman, blessunarlega laust
við kynlosta Jaggers, úrkynjun Bowies og
kvalalosta Coopers.
12. Vinur vor er vel heima I heimi
fræga fólksins. Hann stingur sér inn I
kokkteilboð hjá David Frost, spilar tennis
við Billie Jean King og Jimmy Connors,
tvo beztu tennisleikara I heimi, skellir sér
I partíin hjá Cher — og heldur sér I góðri
líkamsþjálfun með því að sækja æfingar
hjá ástkæra Watford-knattspyrnuliðinu
slnu.
13. Hann á tvo Rolls-Royce-bíla, einn
Ferrari-bll, nýtt hús I Bandaríkjunum og
er að kaupa sér sveitasetur I Bretlandi.
Hann safnar listaverkum, á m.a. nokkrar
myndir eftir Rembrandt. Hann hefur
keypt Rolls Royce handa umboðsmanni
sínum, refapels handa aðstoðarstúlku I
Rocket-hljómplötufyrirtækinu, og nóg af
rándýrum gjöfum handa vinum og
kunningjum til að fjármagna heilan flug-
her smárlkis.
14. Hann keypti hús handa bæði föður
sínum og móður I Englandi, en segir, að
millistéttargildismat þeirra hafi enn ekki
náð að aðlaga sig auðlegð hians. „Ég keypti
. veski handa mömmu,“ segir hann, „og
þegar hún frétti hvað það hefði kostað
mikið, þá fór hún og skipti því fyrir annað
ódýrara."
15. Eyðsla haps er svipuð og hjá
Presley kallinum — eins og þeir eigi
prentsmiðju I kjallaranum, sem dælir úr
sér þúsundköllunum — og líklega er
undirrótin sú sama hjá báðum — þeir eru
óöruggir með sjálfa sig. „Þetta er orðið
heldur mikið af því góða,“ segir vinur vor,
„fólk er farið að kalla mig „seðlasekk“.“
16. Vinur vor á hljómplötufyrirtækið
Rocket Records og er sjálfur aðalstjarnan.
Þar gengur allt I haginn. Hann er líka
einn af eigendunum Watford-
knattspyrnuliðsins brezka. Þar gengur allt
á afturfótunum og liðið er fallið niður I
f jórðu deild.
17. Plötusala hans gengur vel. Alls hafa
selzt um víða veröld 42 milljónir stórra
platna hans og 18 milljónir lltilla platna.
NIu af tólf stórum plötum hafa selzt I yfir
milljón eintökum I Bandaríkjunum einum
og sú nýjasta, „Captain Fantastic ... “,
hafði þegar náð þessu marki áður en hún
kom út — pantanirnar einar sáu til þess!
18. Vinur vor er fljótur að semja lögin
sín. Bernie kemur fyrst með textann og
svo sezt vinur vor niður við píanóið og
hamrar á það nokkra hljóma. Eftir
klukkutíma er komið lag, sem annaðhvort
lendir I ruslafötunni eða efst á vinsælda-
listunum. Eitt sinn sat Bernie uppi i risi
og vinur vor I kjallaranum og sömdu I gríð
og erg I 10 daga. Maxine, kona Bernie,
hljóp á milli með afurðirnar. Útkoman:
Stóra platan „Honky Chateau“, sem seld-
ist I 2,5 milljónum eintaka. Þessi tíu daga
lota þeirra færði því I kassana hér og þar
samtals 10 milljónir dollara eða eina millj-
ón fyrir hvern dag.
19. í annað skipti voru þeir stranda-
glópar á Jamaica I þrjá daga. Þegar þeir
fóru, voru þeir með 24 ný lög I pokahorn-
inu og þau fóru á „Goodbye, Yellow Brick
Road“, eina tveggja platna albúmið
þeirra. „Hann er tónlistarmaður, ég.orð-
listarmaður,“ segir Bernie. „Ég hef enga
tónlistargáfu, hann hefur enga löngun til
að semja texta. Okkur finnst, að ef við
pælum of lengi I lagi, þá förum við bara I
taugarnar hvor á öðrum."
20. Vinur vor hefur verið að leggja af,
smátt og smátt. Hann er tággrannur núna.
„Ég veit ekki hve mikið ég hef létzt,“ segir
hann, „ég vigta mig aldrei. En ég veit, að
ekkert af fötunum mínum passar á mig
núna.“ — Hann heldur I við sig, til dæmis
með því að borða bara eina plómu I kvöld-
mat! En hann sýpur gjarnan á kanadísk-
um líkjör, sem er uppáhaldsdrykkur hans
núna.
21. Hann er ekki stórstjarna af neinni
tilviljun: Þrennt kemur þar til: 1) Hæfi-
leikar. 2) Vinnuharka. 3) Fullkomið sam-
starf við Bernie Taupin og plötuupptöku-
meistarann Gus Dudgeon. En hann ætlar
ekki að reyna að vera poppstjarna til
æviloka. „Ég get aðeins staðið í þessu í
ákveðinn tlma. Ég get ekki ímyndað mér
mig syngjandi „Crocodile Rock“ þegar ég
er orðinn 34 ára. Það sem mig langar
virkilega til að gera er að sökkva mér
meira niður I Watford-knattspyrnuna og
iþróttir i Englandi almennt. Margt I
stjórnun Iþróttamálefna I Englandi er úr-
elt og aðstaðan hræðileg. Ég vil reyna að
breyta öllu þessu.“
Vitið þið núna hver maður-
inn er?
Ekki?
Þá skulið þið reyna að fá lán-
uð gleraugu einhvers staðar og
lesa greinina yfir aftur. (Þið
gætuð reynt að snúa ykkur til
Elton John. Hann á risastórt
gleraugnasafn, sem metið er á
6—7 milljónir Islenzkra króna.
Þá gætuð þið kannski séð
SP'AUNPU* n