Morgunblaðið - 05.09.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975
3
Tollgæzlubreytingin:
Sektarupphæðin
svipuð verðmæti
umframvarnings
VEGNA frétta um breytingar á
fyrirkomulagi tollgæzlu á Kefla-
vfkurflugvelli hafa ýmsir ordið til
þess að velta fyrir sér hvað hin
hertu viðlög tollgæzlunnar þýði
ef farþegi er tekinn með umfram-
varningi eftir að hafa farið gegn-
um græna hliðið.
Við höfðum samband við Þor-
geir Þorsteinsson, lögreglustjóra
á Keflavíkurflugvelli, og báðum
hann að skýra þetta atriði nánar
út. Þorgeir sagði, að tollgæzlan
byði mönnum í sliku tilfelli upp á
utanréttarsátt. I sambandi við
áfengi og tóbak væri sekt fyrir
eina flösku af sterku víni um 3000
kr. og eina lengju af vindlingum
Verðbólg-
an 54,5%
VERÐBÓLGAN sfðasta 12'
mánaða tfmabil miðað við 1.
ágúst var 54,5%, samkvæmt
upplýsingum Ólafs Davfðs-
sonar hagfræðings hjá Fram-
kvæmdastofnuninni. Er þá
miðað við hækkun vísitölu
framfærslukostnaðar, sem
reiknuð var út 1. ágúst og var
nú 458,5 stig, en var 1. ágúst í
fyrra 297 stig.
Þess ber að geta að á tímabil-
inu 1. maí til 1. ágúst 1974 varð
minni hækkun vísitölu fram-
færslukostnaðar en eðlilegt
getur talizt, þar sem stóraukn-
ar niðurgreiðslur höfðu áhrif á
niðurstöðuna. Má búast við því
að næst, þegar visitala fram-
færslukostnaðar verður reikn-
uð út, 1. nóvember, verði ekki
um eins mikla hækkun að
ræða á timabilinu næst á und-
an og nú.
Leiðrétting
I frétt i blaðinu í gær var rang-
lega sagt frá því að Coppelía yrði
sýnd í Þjóðleikhúsinu í næsta
mánuði. Hið rétta er, að Coppelia
verður sýnd fjórum sinnum í
næstu viku, og er fyrsta sýningin
á mánudagskvöld.
um 2000 kr. Ef menn viður-
kenndu brot sitt, og féllust
á að greiða sektina á staðn-
um, yrði málið þar með látið nið-
ur falla en áfengið og tóbakið
gert upptækt. Ef viðkom-
andi neitar að greiða sektina
stólanna. Sama gildir um annan
varning en sektargreiðsla yrði f
flestum tilfellum mjög svipuð
þeirri upphæð, sem ríkissjóður
hefði tapað, ef varningurinn
hefði komizt i gegnum tollinn. Ef
maður t.d. yrði staðinn að þvi að
vera með varning fyrir 20
sterlingspund umfram leyfilega
upphæð myndi sektin, ef hann
féllist á að ljúka málinu á staðn-
um, nema svipaðri upphæð, eða
um 7000 krónum og varningurinn
gerður upptækur.
Sr. Páll S. Pálsson
Prestkosning
PRESTKOSNING fer fram I
Borgþórshvolsprestakalli I
Rangárvallaprófastsdæmi sunnu-
daginn 14. september n.k. Um-
sækjandi er einn, sr. Páll S. Páls-
son.
Sama dag verður Svavar
Stefánsson guðfræðingur vígður
til Hjarðarfells á Snæfellsnesi.
Hann var eini umsækjandinn um
það prestakall og hefur hann
verið settur prestur þar.
Ragnhildur Ólafsdóttir og Ragnar I Sméra.
„Fyrir börn og fullorðna" nefnist
Ijóðabók eftir Nínu Björk Árnadótt-
ur I bókinni er Ijóðaflokkur i tveim-
ur köflum, og er yrkisefnið Jesús
Kristur „Fyrir börn og fullorðna" er
pappirskilja, 30 bls.
Þriðja bókin, sem út kom i gær er
bók Brynjólfs frá Minnanúpi,
„Sagan af Þuriði formanni og
Kambsránsmönnum," í útgáfu
Guðna Jónssonar prófessors. Þetta
er fjórða útgáfa sögunnar, en sagan
var fyrst prentuð sem fylgirit með
Þjóðólfi á árunum 1893 —1897
Bókin er 300 bls með nafnaskrá
Fjórða bókin, sem Helgafell gefur
út á kvennaári er „Kvæði" eftir Höllu
Loftsdóttur
Aðrar bækur Helgafells á þessu ári
Að sögn Ragnars Jónssonar mun
bókaútgáfa Helgafells dragast
nokkuð saman á þessu ári og er
ástæðan aukinn kostnaður við bóka-
útgáfu
Nú i haust kemur út ný skáldsaga
eftir Halldór Laxness, ,,í túninu
heima" Sagan er að nokkru leyti
byggð á æskuminningum skáldsins
um fólk og landshætti i gömlu
Reykjavik og nærsveitum
3 kvennaársbœkur komu
út hjá Helgafelli í gœr
Heildarútgáfa á verkum Magnús-
ar Ásgeirssonar og „Hagleiks-
verk Hjálmars í Bólu”meðal
bóka, sem koma
ÞRJÁR baekur komu út hjá
Helgafelli I gær ! tilefni
kvennaárs, og er útgáfa
hinnar fjórðu fyrirhuguð í
desember.
Bækur þessar eiga það
sammerkt, að þær eru
annaðhvort eftir konur eða
um konur.
Bókin „Fólk á förum" er eftir
Ragnhildi Ólafsdóttur Bókin er
skrifuð á dönsku og kom út i Dan-
mörku fyrir tæpu ári. Hún vakti
þegar mikla athygli og var nýlega
valin til lestrar I danska útvarpið
Sagan gerist á elliheimili, og er að
sögn Ragnhildar þyggð á reynslu
hennar í starfi við slíka stofnun.
Þetta er fyrsta bók Ragnhildar, en
nú vinnur hún að því að umskrifa
gamalt handrit og búa það til út-
út síðar á árinu
Nina Björk Árnadóttir.
gáfu. Ragnhildur og María Ólafs-
dóttir listmálari eru systur, en báðar
hafa þær verið búsettar I Danmörku
í fjölda ára Ragnhildur tjáði frétta-
mönnum á fundi i gær, að hún væri
nú að skrifa helgileik í samvinnu við
Nínu Björk Árnadóttur „Fólk á
förum" er papppirskilja, 1 33 bls.
Þá kemur út nýtt verk eftir dr
Kristján Eldjárn, „Hagleiksverk
Hjálmars í Bólu", en nú er liðin öld
frá andláti hans Bókin er prýdd
fjölda Ijósmynda af munum, sem
Bólu-Hjálmar bjó til
Skáldsaga um Una danska kemur
út og er höfundurinn Þórarinn bóndi
Helgason i Þykkvabæ
Nú kemur út i fyrsta sinn heildar-
útgáfa á Ijóðum og Ijóðaþýðingum
Magnúsar Ásgeirssonar Frú Anna
Guðmundsdóttir, ekk|a skáldsins,
og Kristján Karlsson bókmennta-
fræðingur hafa undirbúið útgáfuna,
og skrifar Kristján ýtarlega ritgerð
um Magnús, sem var náinn vinur
hans um langt skeið Útgáfan verður
i tveimur stórum bindum, alls um
1000 bls.
Þá koma út tvær bækur i mynd-
skreyttum útgáfum, „Maður og
kona" með myndum eftir Gunnlaug
Scheving og „Timinn og vatnið"
eftir Stein Steinarr, skreytt myndum
eftir Einar Hákonarson.
Þrjár nýjar skáldsögur koma út
fyrir jól, og eru höfundar þeirra
Guðbergur Bergsson', Þorvarður
Helgason og Þráinn Bertelsson.
I
í NÝJU HÚSNÆÐI AÐ LAUGAVEGI 66
I sama húsl við hliðina á verzlun okkar
'' o
„Ef þu hefur gert góð kaup á sumarút-
sölunni, þá gerir þú það núna. Verðin
voru lág en nú eru þau ennþá lægri."
stórkostlegt vöruurval af 1 .fl. fatnaði.
Látið ekki
happ
úr hendi
sleppa
# Laugavegi 66# sími 28155
Iv
¥