Morgunblaðið - 05.09.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975
7
r
Utflutningur á
heitu vatni
Sænskir aðilar kanna
nú tæknilega og fjárhags-
lega möguleika á útflutn-
ingi á heitu vatni frá fs-
landi til Svlþjóðar. Hyggj-
ast þeir nýta heita vatnið
til húshitunar á strönd
Sviþjóðar, I Gautaborg,
Málmey og fleiri borgum.
Að sögn hitaveitustjóra,
Jóhannesar Zoega, hefur
verið rætt um árlegan út-
flutning á 20 milljónum
heitavatnstonna, en um-
framgeta Hitaveitu
Reykjavíkur er nú um 30
milljónir tonna á ári.
I umræðum hefur
komið fram, að miðað við
að hvert skip, sem flytti
vatnið til Svíþjóðar, taki
250 þús. tonn, þyrfti að fá
tvö risatankskip til flutn-
inganna, sem færu 50 til
80 ferðir hvort skip á ári.
Þróun orkumála og
orkuverðs hefur knúið á
dyr um könnun möguleika
I þessu efni, þ.e. flutnings
á heitu vatni. Óvist er,
hve hitatap verður mikið I
slikum flutningi, en hita-
veitustjóri segir i viðtali
við Mbl. i gær, að það sé
hald fróðra manna, að
mögulegt sé að einangra
svo slfk tankskip, að
varmatapið verði innan
við 5 gráður, jafnvet
innan við 3 gráður. Nú
mun unnið að athugun á
kostnaðerhlið málsins,
þ.e. samanburði á kostn-
aði við að flytja heita
Jóhannes Zoéga
hitaveitustjóri.
vatnið til Sviþjóðar og
upphitun húsa þar með
raforku og/eða oliu.
Mál þetta er að sjálf-
sögðu enn á könnunar-
stigi. Engu að siður er hér
um slikt stórmál að ræða,
að vakið hefir sérstaka
athygli allra landsmanna.
Niðurstöðu þessarar
könnunar verður efalitið
beðið með mikilli eftir-
væntingu.
Tollgæzla á
Keflavíkurflug-
velli
Sizt ber að lasta endur-
skoðun og nýjungar i toll-
gæzlu á Keflavikurflug-
velli, sem efalitið standa
til bóta á flestan hátt. Ný
reglugerð um tollfrjálsan
farangur ferðamanna og
farmanna hefur hinsvegar
ákvæði, sem menn eru
ekki á eitt sáttir um.
Ferðamenn, búsettir hér á
landi, mega hafa með sér
til landsins varning, sem
fenginn er erlendis eða
um borð i skipi eða flug-
vél, utan áfengis og
tóbak, fyrir 14.000
krónur. Andvirði annarra
vara en fatnaðar má þó
ekki nema meiru en 7000
kr. og andvirði matvæla.
þar með talið sælgæti,
ekki meiru en 1.400.00
kr. — fjórtán hundruð
krónur. —
Heimilisfaðir, með stóra
fjölskyldu, þ.e. mörg
börn, sem vill neita sér
um allan varning annan
en matvæli og góðgæti
handa bömum sínum,
getur undir engum
kringumstæðum haft
meira með sér af þvl tagi
en andvirði lltilla fjórtán
hundruð króna sam-
kvæmt nýju reglugerð-
inni. Til að árétta enn
frekar réttleysi þeirra
smæstu i þjóðfélaginu. er
það skýrt tekið fram. að
böm innan 12 ára „njóti
ekki réttinda til innflutn-
ings gjaldskyldra vara án
greiðstu aðflutnings-
gjalda". Þau ein skulu
greiða innflutningsgjöld
af ÖLLUM meðteknum
varningi, jafnvel þótt
hann sé ekki nema litið
leikfang eða nokkrar kara-
mellur í poka. Réttur
hinna smæstu I þjóðfélag-
inu er sem sé ekki alltaf
fyrirferðarmikill. Væri
ekki nóg að takmarka
andvirði meðtekins varn-
ings en láta ferðamanninn
eða farmanninn um val
hans (annars en tóbaks og
áfengis)? Og mega yngstu
borgararnir ekki vera að-
njótandi eilltilla þegnrétt-
inda á þessum vettvangi?
---------------------\
Hringið f síma 10100
milli kl. 10.30 og 11.30
frá mánudegi til föstu-
dags og spyrjið um
Lesendaþjónustu
Morgunblaðsins.
v_____________________/
GATNAGERÐARGJÖLD
SVEITARFÉLAGA
Herdfs Hermóðsdóttir, Strand-
götu 41, Eskifirði, spyr:
,,Er það rétt að stjórnvöld
neiti sveitar- og bæjarfélögum
um lánafyrirgreiðslu til gatna-
gerðar til að þvinga þau til að
leggja á okurhá gatnagerðar-
gjöld, þó að þessi sveitar- og
bæjarfélög með hverri fjár-
hagsáætlun sinni áætli og
innheimti milljónir til varan-
legrar gatnagerðar?“
Magnús E. Guðjónsson fram-
kvæmdastjóri Sambands fsl.
sveitarfélaga svarar:
„Mér sem framkvæmdastjóra
Sambands ísl. sveitarfélaga er
ekki kunnugt um að nokkurt
sveitarfélag hafi verið þvingað
til að leggja á gatnagerðargjöld,
en með lögum um gatnagerðar-
gjöld, sem samþykkt voru á
Alþingi 1974, er sveitar-
stjórnum heimilað að leggja á
gatnagerðargjöld og hafa
ýmsar sveitarstjórnir í þéttbýli
notfært sér þessa heimild.
Byggðasjóður hefur samþykkt
þá fyrirgreiðslu til þessara
sveitarfélaga að kaupa eftir
ákveðnum reglum gatnagerðar-
skuldabréf, sem húseigendur
hafa gefið út til viðkomandi
sveitarfélags. Með þessu móti
fá viðkomandi sveitarfélög
meira fé til gatnagerðar á
stöðunum og er þetta fé til við-
bótar við það lánsfé, sem þau
fá, en sveitarfélög geta ekki
tekið á sig nema takmarkað af
lánum og verður þar að koma
til eigið fé, s.s. gatnagerðar-
gjöld og aðrar tekjur sveitarfé-
lagsins á hverjum stað.
1 þessari spurningu er slegið
saman fullyrðingu og fyrir-
spurn.“
HAFNAFJARÐAR-
STRÆTÓ
Sigurður Gunnarsson, Alfa-
skeiði 75, Hafnarfirði, spyr:
„Er von á þvi, að teknir verði
í notkun nýir vagnar á sér-
leyfisleiðinni Reykjavík —
Hafnarfjörður, og verður ferð-
um á leið tvö fjölgað á næst-
unni?“
Ágúst Hafberg framkvæmda-
stjóri Landleíða svarar:
„Athugun á þvf með hvaða
hætti megi tryggja rekstrar-
grundvöll Hafnarfjarðarvagn-
anna hefur staðið yfir og er
áfram unnið að því verkefni
með sérstöku tilliti til þess að
vagnarnir verði reknir án opin-
berra styrkja, en önnur strætis-
vagnafyrirtæki hafa notið
styrkja bæjar- og sveitarfélaga,
sem numið hefur um og yfir
helmingi rekstrarútgjalda og
þar með talin kaup á nýjum
vögnúm. Kaup á nýjum
vögnum á Hafnarfjarðar-
leiðinni er einn veigamesti
iliðurinn í fyrrnefndri athugun
og hafa þegar verið könnuð
kaup á nýjum vögnum. Sömu-
leiðis standa yfir athuganir á
breytingum á leiðakerfinu
innan Hafnafjarðar og hafa
Landleiðir i huga að gera veru-
legar breytingar á leiðakerfinu
bæði varðandi svokallaða leið
tvö og í nýjum byggðahverfum
i Hafnarfirði, en ástand gatna
og yfirstandandi gatnagerðar-
framkvæmdir í kjölfar fram-
kvæmda við hitaveitu ráða
miklu um, hvenær tekst að
koma breytingum á leiða-
kerfinu í framkvæmd.“
FRIÐUN FISKSTOFNA
Á ÞISTILFIRÐI
Trausti Guðmundsson, Leiru-
bakka 16, Reykjavfk spyr:
„Hefur sjávarútvegsráðherra
ekki í hyggju að sporna við
hinni gegndarlausu ofveiði og
rányrkju á fiskstofnum sem á
sér stað á Þistilfirði yfir sumar-
ið?“
Matthfas Bjarnason, sjávar-
útvegsráðherra svarar:
„Hér er átt við netaveiði, sem
leyfð er á sumrin á Þistilfirði,
og hefur ekki verið ákveðið að
banna þessar veiðar í sumar.
Um þessar mundir er unnið að
endurskoðun á nýtingu fisk-
stofnanna innan Iandhelginnar
og af, þeim sökum hefur ráðu-
neytið ékki gert neinar
breytingar á reglum um veiði
innan landhelginnar nema for-
ráðamenn Hafrannsókna-
stofnunarinnar hafi lagt slikt
til og hefur núverandi sjávarút-
vegsráðherra verið fljótur til að
staðfesta þær beiðnir, sem
komið hafa frá stofnuninni um
þessi mál. Að endurskoðun á
lögum um nýtingu fiskstofn-
anna innan fiskveiðilög-
sögunnar vinnur nefnd og er
ætlunin að hún ljúki störfum
seint í haust og verður þá frum-
varp um þessi efni lagt fyrir
Alþingi."
Opið til kl. 7 í kvöld og til hádegis laugardag. HERRADEILD
gm
[ÁÖSTÍ JRSTRÆTI 14 LAUGAVEGI 661
TWYFORDS
HREINLÆTISTÆKI
HANDLAUGARí BORÐ
HANDLAUGAR Á FÆTI
BAÐKÖR STÁL & POTT
FÁANLEG í FIMM LITUM
TWYFORDS-HREINLÆTISTÆKIN
ERU í SÉRFLOKKI.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
TRYGGVA HANNESSONAR,
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 83290.