Morgunblaðið - 05.09.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975
17
Ný ógnaröld
á N-lrlandi?
Belfast 4. september — AP.
ÞRlR grímuklæddir hermdar-
verkamenn ruddust inn á
afskekkt sveitabýli norður af Bel-
fast í gærkvöidi og skutu bónd-
ann, 63 ára kaþólikka, og dóttur
hans til bana, að börnum dóttur-
innar ásjáandi. Lögreglan sagði
að morðin hefði verið framin
Edward
Bishop
annar aðalsamninga-
maður Breta í land-
helgisviðræðunum
EDWARD Bishop, aðstoðar-
sjávarútvegsráðherra Breta,
sem verður aðalsamninga-
maður brezku sendinefndar-
innar í viðræðunum um land-
helgismálin 11. september,
ásamt Roy Hattersley,
aðstoðarutanríkisráðherra, er
fæddur árið 1920. Hann nam
við háskólann í Bristol og út-
skrifaðist sem flugvélaverk-
fræðingur og var i herþjón-
ustu á striðsárunum. Hann hóf
afskipti af stjórnmálum fyrir
aivöru er hann varð þing-
maður Verkamannaflokksins
fyrir Newark árið 1964. Á
árunum 1970 — 74 var hann
talsmaður skuggaráðuneytis-
ins I landbúnaðarmálum.
Bishop hefur m.a. unnið sér
það til ágætis að vera stofn-
andi og formaður þingnefndar
um jafnrétti kynjanna. Hann
er kvæntur maður og á 4
dætur. Áhugamál hans eru
fornleifafræði og ættfræði.
eftir að skyggja tók á Rockwood-
bóndabænum, sem er á svæði sem
öfgamenn úr flokki mótmælenda
hafa notað sem eins konar
„kirkjugarð". Þangað hafa þeir
farið með Ifk fórnarlamba sinna.
Morðin hækka tölu látinna sfðan
átök mótmælenda og kaþólskra
hófust fyrir sex árum upp f a.m.k.
1307, og a.m.k. 158 manns hafa
beðið bana f ár. Er óttast að þetta
sé merki um að öfgamenn úr hópi
beggja deiluaðila séu f þann veg-
inn að hefja blóðugt strfð til að
skera úr um þróun mála á
Norður-lrlandi.
Níu manns hafa beðið bana á
síðustu tveimur sólarhringum, og
er spennan i hámarki. Morðin
sem framin voru í gærkvöldi urðu
í þann mund er herskáir mótmæl-
endur hófu allsherjarverkfall til
að mótmæla „aðgerðarleysi“
brezkra stjórnvalda gagnvart
Irska-lýðveldishernum.
Spáir 10%
hækkun á
olíuverði
Kuwait 4. september AP
OLlUMÁLARÁÐHERRA
Kuwaits, Abdul Muttaleb El-
Kazemi spáði því í dag, að 10%
verðhækkun á olíu væri á næsta
leiti, og hefði samkomulag Israela
og Egypta fyrir milligöngu
Bandaríkjanna ekki nein áhrif á.
Olíuverðið verður rætt á ráð-
herrafundi samtaka olíuút-
flutningsríkja OPEC, sfðar í þess-
um mánuði.
SINAI-SAMKOMULAGIÐ —
Kortið sýnir stöðu herja
Israelsmanna og Egypta á
Sinaiskaga eftir nýja sam-
komulagið. Vfglfna tsraels-
manna er merkt “1“ og Ifna
Egypta “2“. Gæzlulið Samein-
uðu þjóðanna verður á svæðinu
milli þeirra. Á svæðunum aust-
an og vestan við lfnurnar (auð-
kennd með skástrikum) verður
takmarkað herlið. Línan sem er
einkennd “3“ er fyrrverandi
vfglfna Egypta. Nýja egypzka
varnarlfnan er þar sem fsra-
elska varnarlínan var áður. Á
svarta svæðinu við Súez-flóa
verða aðeins friðargæzluher-
menn SÞ og óbreyttir egypzkir
borgarar.
Vikurit
á Spáni
bannað
Madrid 3. september Reuter
SPÁNSKA vikuritið Triunfo
sagði í dag, að bann hefði verið
lagt við frekari útgáfu þess út
þetta ár og að framkvæmdastjóri
blaðsins hefði verið dæmdur til
að greiða sem svarar sex hundruð
og fimmtíu þúsund krónum í sekt.
Sagði í yfirlýsingu frá ritinu, að
ástæðan væri grein, sem birtist í
apríl sl., þar sem fjallað var um
möguleika á breytingum í lýð-
ræðisátt á Spáni og bar greinin
yfirskriftina: „Erum við reiðu-
búin að gera breytingar?“
Triunfo var bannað í fjóra
mánuði árið 1966 og á ný í-fjóra
mánuði árið 1971.
Bihar:
50 dánir
úr kóleru
Nýja -Delhi 4. sept. Reuter
VITAÐ er að fimmtiu manns hafa
Iátizt úr kóleru á flóðasvæðunum
við Patna í fylkinu Bihar á Ind-
landi. Um fimm þúsund manns
liggja sjúkir af kóleru. Ástandið
er hið ömurlegasta og enn eiga
um sjötíu og fimm þúsund manns
um sárt að binda á þessum svæð-
um og eyðilegging og tjón er
gifurlegt. Auk þess er skortur á
drykkjarvatni og lyfjum.
Jafntefli
í Míianó Flóttamenn frá Tímor
rændu Rauða-krossvél
Mílanó 4. september — AP.
LJUBOMIR Ljubojevic frá
Júgóslavíu náði sér vel á strik í
biðskák sinni við Ungverjann
Lajos Portisch f undanúrslitum
alþjóðlega skákmótsins f Mflanó f
dag. Náði hann jafntefli úr mun
lakari stöðu með ákveðinni tafl-
mennsku. I annarri skák undan-
úrslitanna f gærkvöldi varð jafn-
tefli milli heimsmeistarans Ana-
toly Karpovs frá Sovétrfkjunum
og landa hans Tigran Petrosjans.
Þessi tvö pör munu tefla fjórar
skákir f undanúrslitunum alls, og
eru þvf þrjár eftir. Sigur-
vegararnir munu svo tefla sex
skákir um efsta sætið.
Canberra, Darwin
4. september AP—Reuter.
VOPNAÐIR Tfmorbúar rændu
neyðarflutningavél ástralska
flughersins f borginni Bacau f
kvöld og neyddu flugmanninn að
fljúga með þá til Darwin. Menn-
irnir eru taldir hafa verið um 48
talsins og margir þeirra voru
vopnaðir. Vélin sem hafði verið
lánuð Rauða krossinum og var
merkt honum, hafði lent f mið-
borg Bacau með farm af lyfjum
handa fórnarlömbum borgara-
styrjaldarinnar á eynni. Þegar
vélin var lent þyrptust að henni
tugir borgarbúa og skipuðu flug-
manninum að fljúga til Darwin.
Ástralskur embættismaður
Sjálfsmorðið um borð í sovézku farþegaþotunni:
Átti maðurinn von á óblíðum
móttökum á Moskvuflugvelli?
London 4. september — AP.
SCOTLAND Yard hefur hætt
rannsókn á voveiflegu láti
sovézks siglingafræðings um
borð f farþegaþotu Aeroflots f
gær. Er litið á lát mannsins
sem sjálfsmorð, og ætlar
Scotland Yard að samþykkja
þá skýringu Sovétmanna, að lát
mannsins hafi borið að fyrir
utan brezka lofthelgi.
Heimildir á Heathrowflugvelli
sögðu að þær teldu að maður-
inn, Valentin Ryzov, 37 ára að
aldri, sem var ekki að störfum
og ferðaðist sem farþegi, hefði
notað skammbyssu sem falin er
um borð í vélum til notkunar
gegn flugvélaræningjum. Yfir-
völd í New York, þar sem Ryzov
kom um borð, sögðu að ólfklegt
væri að hann hefði haft byssu
meðferðis, þar eð hann hefði
gengið f gegnum leitarútbúnað
á flugvellinum þar. Ryzov
virðist hafa ferðazt á fyrsta far-
rými, sem annars var tómt, og
skotið sig f vinstra gagnaugað á
salprninu.
Aður en þotan lenti á Heath-
row um hádegið í gær hafði
áhöfnin beðið um að sjúkra-
bifreið yrði til taks. Scotland
Yard stöðvaði síðan brottför
þotunnar til Moskvu til að rann-
saka lát mannsins. Yfirheyrðu
lögreglumenn áhöfn þotunnar
og farþeganna 102, sem flestir
voru bandariskir feðamann, en
fékk lítil svör. Fréttamenn áttu
viðtöl við hátt í 30 af farþegun-
um og enginn þeirra hafði séð
neitt eða heyrt neitt. Sovézka
áhöfnin hefði ekki látið á neinu
bera.
Lögregluyfirvöld i London
veltu því mikið fyrir sér hvort
látið hefði orðið i brezkri loft-
helgi eða ekki. Sovétmenn, sem
sendu diplómata og öryggis-
verði til flugvallarins frá sendi-
ráðinu I London, héldu fast við
það, að Ryzov hefði svipt sig lífi
yfir Atlantshafi, langt utan við
brezka'lofthelgi.
Brezk blöð sögðu hins vegar í
dag, að brezka utanríkisráðu-
neytið hefði beitt þrýstingi á
Iögregluna til að hún héldi ekki
vélinni lengur á flugvellinum
af ótta við að slíkt kynni að
hafa slæm áhrif á samband
Bretlands og Sovétríkjanna.
Blaðið The Daily Mail hefur
eftir ónefndum sérfræðingi
brezku leyniþjónustunnar:
„Hin einkennilega og einstaka
tímasetning sjálfsmorðsins
bendir til þess að þarna hafi
verið um að ræða mann sem
veit að innan fárra klukku-
stunda muni eitthvað óhugnan-
legt koma fyrir hann.“ Segir
sérfræðingur þessi að allt bendi
til að maðurinn hafi annað-
Framhald á bls. 20
kvaðst telja að fólkið væri félagar
I Lýðræðiseiningu Tímor, hægri
sinnaðri frelsishreyfingu, sem
flúið hefðu Bacau vegna yfirvof-
andi ósigurs fyrir hreyfingu
vinstri manna, Byltingarfylking-
unni fyrir sjálfstæði Austur-
Tímor.
Þegar vélin var komin yfir
Darwin tilkynnti flugmaðurinn
að hann'ætti í „smávandræðum“.
Tóku lögreglumenn sér þá stöðu á
flugvellinum og er vélin lenti um-
kringdu þeir hana. Að sögn
sjónarvotta gáfust Tímorbúarnir
upp mótspyrnulaust og voru þeir
fluttir til lögreglustöðvar borgar-
innar. Embættismaður stjórnar-
innar sagði að litið yrði á fólkið
sem ólöglega innflytjendur, en
stjórnin myndi fhuga hvað gera
skyldi við það. William Morrison,
varnarmálaráðherra Ástralíu
skýrði frá því að hann hefði fyrir-
skipað stöðvun frekari neyðar-
flutninga ástralskra flugvéla
þangað til ástandið væri orðið
ljósara. Hinar stríðandi hreyf-
ingar á eynni yrðu að viðurkenna
friðhelgi véla Rauða krossins.
Skipstjórinn á flóttamanna-
skipi, sem kom í dag til Darwin
frá Tímor, skýrði frá því, að alí-
margt fólk, sem reynt hefði að
komast um borð í skipið, hefðu
beðið bana í höfninni í Dili,
höfuðborg eyjarinnar, er það
hefði lent inn í miðri skothríð
milli sjálfstæðishreyfinganna
tveggja.