Morgunblaðið - 05.09.1975, Side 19

Morgunblaðið - 05.09.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975 19 Dr. Björn Sigfússon: Ber að stofna borgsýslukjarna við Reyðarfjörð eða sáldra miðstöðvum?! I nýútkomnum fyrrihluta Austurlandsáætlunar er leit- að eftir miðstað fyrir lands- hlutann og sýnt fram á, að Reyðarfjörður liggi bezt við samgöngum, tengdum á sjó og eftir landvegum. Egil- staðir gegna að vísu einnig miklum hlutverkum, þar sem mætast krossgötur úr Hér- frá komandi Snjóholtsflugvelli; fjölbrautaskóli og margar þjón- ustustofnanir fyrir Múlasýslur verða þar, en einhlítur mið- staður stórra atvinnuvega verða þeir aldrei. Höfn í Hornafirði, með nær 1200 manns og líkur til vaxtar á borð við Norðfjörð eða Siglu- fjörð, fær hvorki auðugt upp- land né hafnarmöguleika, sem lyft gætu henni ofar en til jafns við þá kaupstaðatýpu. Vopna- fjörður, skemmra kominn, á sennilega eftir að draga veru- legan vinnukraft til sín úr N,- Múlasýslu og Þistilfirði, án þess að varði miðstöðvarval í fjórð- ungum (eða á Þórshöfn) eða snerti grein mína. Til flýtis leyfi ég mér að ganga út frá þvf, að þeir þrír úrkostir um val á miðstað, sem f jölvísir höfundar Austurlands- áætlunar kasta fram til um- ræðu, séu ræddir til að friða fólkið, en ekkert nema Reyðar- fjörður dugi, eins og horfir, til að gerast hugsanleg „höfuðborg fjórðungs", og er þá Akureyri hugsað sem viður- kenndur „staðall" fslenzkrar smáborgar við þvílíka lands- hætti. Taka skal strax fram, að hér er það lagt á vald fjarlægari framtíðar, hvort eða hvenær sú borg nyðra og þessi reyðfirzka ætti að ná „fullri hagkvæmni- stærð“ á skandinavíska visu framleiðninnar, þjónustufram- boðs og „breiddar" á atvinnu- tækifærum fyrir menntað fólk. Valdimar Kristinsson hefur (m.a. i Fjármálatíðindum 1973) fært að því rök f vekjandi greinum, að hagkvæmnimarkið fari að nást, þegar 30. þús. íbú- ar séu á borgsvæði, varla fyrr; þá sé tegundin smáborg kannski með aukinni útsjónar- semi umbreytt í virkilega borg. Þjóðflutningar eru eldfimt deiluefni og 30 þús. markið ekki sett hér á dagskrá. Stærðin 12 þús. skal ekki heldur höfð að staðli hjá mér, enda tæki Akur- eyri ekki núverandi fólkstölu sína í mál sem neinn staðal fyrir sig. Miklu teygjanlegri staðall er það, sem ég vildi tákna með hugtakinu borgsýsla i grein i Mbl. 13. ágúst í sumar. Lítum á hann. Fjölbreytni og traustleiki at- vinnutækifæranna er mesta undirstaða þess að halda uppi borgarlífi, þar með ágæt djúp- höfn, góð færð til stórs flugvall- ar, auðfarið sé á hringveg landsins, og innan 10 km hring- ferils þyrftu að búa minnst 10 þús. manns auk talsvert margra þúsunda á svæðum þeim, sem borgin á að upplandi og hefur daglegt samband við. Þetta tel ég vera staðalinn, og nú eru fslenzkar borgsýslur þrjár auk Reykjavíkur, ein þeirra norð- lenzk. Nú spyrja Iesendur mínir ö- þolinmóðir: Ef fjölbreytni at- vinnutækifæra f fjórðungi á að safnast þar í 8—16 þúsunda smáborg, svo hún geti haldið áfram að vaxa, bitnar það ekki á þeim 800—1600 manna kaup- stöðum, sem eru núna eða koka munu á Austurlandi? Austurlandsáætlun gerir ráð fyrir, að þeir staðir hagnist stórum meira en þeir tapi á breytingunni, og þróunarþætt- ir, sem utan við þetta 1. bindi liggja, benda eigi sfður sterk- lega til ávinnings, ef mannfólk- ið dugir. Engin rök eru fyrir því, að vöxtur Akureyrar, út af fyrir sig, hafi rýrt sjávarafla Húsa- víkur, Siglufjarðar, Dalvíkur, Ölafsfjarðar né haldið niðri Húsavíkurverzlun, „kísilgúr- vegi“ og ferðamálaþjónustu Þingeyinga. Og fólkstalan, sem setjazt kynni að f 800—1600 manná plássum eystra er lægri en til Reykjaneskjördæmis mundi flytjast að austan, ef þar er ekki hjálpað til að reisa hóf- lega smáan fjórðungshöfuðstað. Þetta er dæmt eftir lfkum. Krafan um, að gera þurfi öll- um téðum plássum jafnt undir höfði og aðalkaupstöðunum og smáborgunum, hvað varði breidd á atvinnutækifærunum fyrir menntað fólk, er óraunsæ, en smáborg er í því efni raun- sætt úrræði; svo er samgöngu- bótum næstkomandi aldarf jórð- ungs fyrir að þakka. Þó hring- vegur og daglegt flug auðveldi að vfsu áhrif Reykjavíkur og ýmsar lífsvenjubreytingar, kemur að því senn, að hitt vegi þyngra, hve samgöngur munu bæta skilyrði fyrir nýjar at- vinnugreinar og fleiri en einn fjölbrautarskóla eystra, þoka rfkis- og fjármálaþjónustu í Reyðarfjörð (auk Egilsstaða) og veita næg tækifæri þess, ef landsmenn vilja, að þar takist Dr. Björn Sigfússon. sér tvöfeldnina spretta af þvf, að veldi því réði Kölski og þau væru framhjátökukróar hans á annesjum. Óskandi, að engir breyttust sjálfir í króa hans við það að gerast frambjóðenda- efni. Sterkari mótrök gegn þvf að veita fjármagni margfalt meira f einn kaupstað en annan eru þau, að minna verði þá til skipt- anna með hinum; skylt sé að fyljga sem mest jöfnunarregl- um, þegar skipt sé milli héraða og atvinnugreina ríkisfé eða lánum sparaðs fjár í peninga- svipuðu máli gegni austan lands og afurðir orkufreks iðn- aðar þar færu mest til útlanda, hver svo sem verksmiðjueig- andinn teldist vera, vaxa lika við það, að flutningskostnaður yrði nokkuð jafnþungur hvort að er til erlendrar hafnar eða f þær hafnir Islands, sem hluti afurðanna fengi helzt markað í. En fyrst innflutt fjármagn þarf í slíkt, f hvaða stað sem það er sett, er þetta fyrir sig engin fyrirstaða þess, að smáborg rísi. Loks er sú mótbáran, að svo fremi sem ekki sé fiskileysi né kalhallæri í túnum, megi Aust- urland engar verkfæran mann missa í nýjar atvinnugreinar og í margföldunarvöxt eins af hafnarstöðum sínum. Meðan enn var marxískur galsi í kyn- slóð minni, hefðu þessi íhalds- rök þótt dálítið kurfsleg sbr. bann við lausamennsku. Ekki breytir það skoðun minni á þeim, þó þau kæmu e.t.v. mest úr vinstri átt núna. Hitt tek ég þó fram, svo ekki misskiljist, að í hverri fámennissýslu norðan 65° mundi stórfelld fækkun bú- jarða hljótast af því, ef mann- frekur stóriðnaður risi þar upp úr 1980. Auk þess fengist verksmiðjustjórn ekki enn til áð reisa slfk fyrirtæki nema þar, sem verulegur mannafli er búsettur fyrir, svo sem í nánd Reyðarfjarðar er. Læt ég nú lokið afsökunum á því, ef smá- borg skyldi rísa eystra. sams konar efling og á Akur- eyri er nú (ekki þó bein eftir- líking). Þau óraunhæfu slagorð, að með slíku sé gerður stéttamun- ur milli byggða og rekin ný- lendupólitfk stórkaupstaða gegn þeim litlu, hafa ekki enn reynzt sannfærandi mótrök. Slagorð þau eiga móðerni sitt í gamalli firru, að tvennt sé ólíkt og andstætt: borg (þ.e. ofvax- inn höfuðstaður) og sjálft Is- land. Sé nú 12 þúsunda bær, t.d. Akureyri eða jafnmann- margt þéttbýli vestarlega í Gullbringusýslu, nefnt borg eða borgsýslukjarni, segir undirvitund aðlögunartregu fólki, að þessar „borgir“ séu þá hættar að vera Island í jafn- ríkum skilningi og sveitir þess séu það. Ef þess kyns slagorð réðu, styddu þau á laun alveldi höfuðstaðar, og mætti fmynda Frá Búðareyrí við Reyðarfjörð. stofnunum. Ég verð að játa, að sakir þvílíkrar sjálfheldu, sem ekki er mitt að lofa né lasta, mun varla önnur leið fær en draga allmikið af erlendu á- hættufjármagni til hverrar stórverksmiðju, ef upp á að komast annarsstaðar en í höf- uðstaðarnánd, og til að marg- falda einhvern hinna smáu kaupstaða. Talið er, að t.d. hefði aldrei verið lagt í djúphafnargerð við Grundartanga og járnblendi- verksmiðjuna, ef ekki hefði bæði fyrrverandi og núverandi ríkisstjórn sýnzt ljóst, að innan skamms yrðu beinn arður og óbeinni rfkistekjur af þessu meiri en nemur framkvæmda- kostnaðinum, sem á opinbera aðila leggst, og framkvæmdin valdi því, að stórvirkjanir beri sig frá byrjun, hagkvæmari en smávirkjanir. Líkurnar á, að Annar hópur varúðarmála er bundinn því, á hvaða tegundum stórrekstrar megi byggja af- komu á svona stað og hverjar skal forðast. Umfram allt skal forðast að gera miðstöð ein- hverfa að einni atvinnugrein, hvað þá einu fyrirtæki, þó dæmi sýni, að smærri týpa, svo sem 2000 ibúa kaupstaður, geti náð langlífi af einum saman sjávarafla eða af engu fjölþætt- ara krossgatnahlutverki en Borgarnes og Egilsstaðir hafa, þ.e. mestmegnis landbúnaðar- miðstöð. Hafi norskur iðju- staður einhverfzt að tilteknu stórfyrirtæki, misst aðra val- kosti, staðnar hann eftir stutt blómaskeið og fer oft að hrörna. Þessi orð ofmikils and- varaleysis eru, móti von minni, í áðurnefndri grein eftir Valdi- mar (1973): „Leggja mætti einn fjörðinn svo sem Reyðar- fjörð, undir stóriðjuna, og þeir sem við hana ynnu, en vildu ekki búa í næsta nágrenni, gætu sem bezt komið sér fyrir á næstu fjörðum eða á Egils- stöðum." — Ég tel gott, að ein- staklingum sé auðvelduð dreifð búseta eftir eigin uppruna og smekk, en sem skipulagstillaga dugir þetta ekki, jafnvel þó til- laga V.K. gangi eflaust út frá, að mengun umræddrar stóriðju verði ekki af heilsuspillandi tegund. Ég skil orð hans sem hann miði að bæ einhverfra at- vinnuskilyrða auk verzlunar. íbúasvæðið á Reyðarfirði verður að fá að teygjast á tvær hendur frá þeim verzlunarstað, sem þegar er kominn. Þar er of lognsælt fyrir orkufrekasta iðn- aðinn, og tíðni hitaskila, sem uppstreymið stöðva í þeirri hæð, sem þokubelti hliðanna eru, er of mikil. En út með firði að sunnan virðast geta saman farið æskilegur veðramóta- blástur og bryggjustæði við mishæðalítil athafnasvæði iðn- aðar. Skipulagsvandinn mun því leysanlegur á mannsæm- andi hátt og má ekki hindra, að kaupstaðurinn nái frá einum áfanga til annars því eðli, sem íslenzka borg má ekki skorta: að reynast fjölhverf að gervöll- um þeim bjargræðisvegum, sem ein öld af annarri býður. Hve stórt þora Reyðfirðingar að ráðast 1? Um hagkvæmni stórrekstrar umfram smárekstur þarf eigi að þræta og raunar varla heldur um ávinning, sem mun hér eftir verða stór, af þvi að eignast örfá landshlutaforystu- staði og hygla þeim svo sem þarf. Hvatinn að grein minni var kynning blaða á útkomu Aust- fjarðaáætlunar I, og fer ég ekki að fjalla um þá bók né auka í kapítulum, heldur reyni að horfa á landsmál sem þessi úr stærri fjarska. Mér er tíðrætt um að varast eitt og annað, en þó eingöngu um þær hættur og mótbyr, sem gæti átt sér stað i mörgum fleiri kjördæmum; þær hættur eru dæmigerðar að breyttu breytanda. Hreppakryt hvorki þarf né vil ég sjá, hins vegar, því ég ætla hann eystra smávaxnari en er viða hvar (vex oft því smærri sem sýslur eru). Stærðarmarkið, sem ég set, er að innan 35 km ökufjarlægðar frá botni Reyðarfjarðar verði bæði sú fólkstala og fram- Ieiðslumargbreytni, sem borg- sýslu hæfir. Austurland að öðru leyti er svo uppland, sem ætti að þola samanburð við héruð þau, sem viðskipti hafa við Akureyri utan 35 km fjarska frá henni, og látum þá staðhæf- ingu duga að sinu leyti. Egilstaðir eru 34 km frá fjarðarbotninum, og frá honum er (eftir göng gerð og vega- bætur) álíka langt að aka í hvora hina áttina, til Fáskrúðs- fjarðar og Neskaupstaðar, og í þeim 3 stöðum eru 3.3 þús. manns, sem með núverandi meðalfjölgunarhraða i kjör- dæminu (s.l. 15 ár) gerir 4 þús. að áratug liðnum. Ég reikna þá þannig, að sá hlutinn af fjölgun þeirra 3.3 þúsunda, sem i Reyðarfjörð flyttist, yrði að til- tölu jafnstór og áður hefur flutzt úr þeim og raunar úr kjördæminu á liðnum áratug. Þeir tapa sem sé ekki. Sé í þeim árstíðabundinn atvinnubrestur (og allt árið fyrir konur), eins og fyrir getur komið, mundi nálægð smáborgar bæta úr Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.