Morgunblaðið - 05.09.1975, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975
46 Bretar
LANDHELGISGÆZLAN fór í
gær í könnunarflug í kringum
landið. Erlend veiðiskip á miðun-
um voru talin og reyndust 46
brezkir togarar vera hér að
veiðum, 16 vestur-þýzkir, 4
belgískir og nokkrir frá öðrum
löndum. Brezku togararnir voru
flestir á veiðum út af Norðaustur-
landi. Þjóðverjarnir héldu sig
allir nema einn utan 50 mílria
markanna.
— Sjálfsmorðið
Framhald af bls. 17
hvort verið í varðhaldi eða þá
að hann hafi vitað að hann yrði
hnepptur í varðhald við
komuna til Moskvu. The Daily
Telegraph hefur ennfremur
eftir heimildum á Heathrow að
svo virtist sem deila hefði orðið
um borð í þotunni milli Ryzovs
og eins flugliða.
En Scotland Yard féllst á
skýringar Sovétmanna að
lokum, og þotan hóf sig til flugs
áleiðis til Moskvu níu klukku-
stundum of seint. Ryzov var
enn um borð, — f Iíkkistu.
— Óðal
Framhaid af bls. 2
músík og dansa. Nokkrar aðrar
breytingar munu einnig fyrirhug-
aðar á rekstri Öðals og Sælkerans
sem er á fyrstu hæð hússins. Mun
m.a. ætlunin að gestir Öðals geti
fengið keypta þar smárétti og
annan glaðning á hagstæðu verði.
— Blaðaprent
Framhald af bls. 2
erum ekkert hræddir við sam-
keppni þessa nýja blaðs. Við
munum skrifa undir samkomu-
lagið á morgun, föstudag. 1 því
voru margir lausir endar sem
þurfti að íhuga vel. I þessu sam-
bandi ber að athuga að við höfum
engan mann í stjórn Blaðaprents
til að gæta okkar hagsmuna. Það
er að sjálfsögðu erfitt fyrir Vísi
sem einn af stofnendum fyrir-
tækisins að geta ekki sett fram sín
rök og greitt atkvæði á stjórnar-
fundi félagsins. Fyrir blaðið sitja
þar menn sem vinna á móti hags-
munum Vísis. Þetta er að sjálf-
sögðu mjög óréttlátt og því var
ekkert einkennilegt að við vildum
athuga samninginn vel og gera
okkar athugasemdir. Nú fer málið
fyrir gerðardóm og við vonumst
til þess að eftir einn mánuð verði
þessi gerðardómur búinn að skera
úr um það hverjir eiga rétt á
prentun blaðsins á kjörum Blaða-
prents. Lögfróðir menn telja að
rétturinn sé okkar samkvæmt
stofnsamningi Blaðaprents. Ef
það verður niðurstaða gerðar-
dómsins gjörbreytist staðan og
verður áfram óvissa fyrir nýja
blaðið. Þau blöð sem eru prentuð
í Blaðaprenti samkvæmt stofn-
samningi eru prentuð á kostn-
aðarverði en öll önnur blöð sam-
kvæmt taxta eða um 70% dýrari.
Þegar það verður á hreinu hvort
blaðið á réttinn, held ég að annað
hvort blaðið fari út, og þá tel ég
vafalaust að það verði nýja
blaðið.“
— Verður lagt lögbann á út-
komu Dagblaðsins?
„Nei, eins og ég sagði áðan
erum við hlynntir samkeppni og
viljum leyfa þessum mönnum að
spreyta sig en samt vil ég láta
koma frám, að þar sem réttur
okkar í Blaðaprenti hefur verið
virtur, og þessum mönnum hefur
ekki tekizt að hafa hann að engu
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,
munum við að sjálfsögðu ekki
setja lögbann á útkomu hins nýja
blaðs. Þessar ítrekuðu tilraunir
mannanna til að traðka á rétti
okkar koma okkur spánskt fyrir
sjónir, þar sem þessir menn telja
sig vera einu talsmenn frjálsrar
og óháðrar blaðamennsku á Is-
landi.“
EFTIRFARANDI fréttatilkynn-
ing barst f gær frá Dagblaðinu:
Vegna ótal fyrirspurna um
prentun Dagblaðsins þykir rétt að
skýra frá þvf, sem gerzt hefur
sfðustu daga í því efni.
Að úndanförnu hafa farið fram
viðræður við Blaðaprent hf. um
prentun blaðsins. A stjórnarfundi
sl. sunnudag samþykkti stjórn
Blaðaprents að taka hið nýja blað
í prentun með ákveðnum tækni-
legum skilyrðum, en í því efni
skyldi leita álits tiltekinna starfs-
manna Blaðaprents. Samkvæmt
álitsgerð þeirra var unnt að full-
nægja þessum skilyrðum um
'prentun hins nýja blaðs. M.a. var
því skilyrði fullnægt, að ekki yrði
haggað prentunartíma Vfsis frá
því, sem verið hefur.
Á stjórnarfundi Blaðaprents,
sem hófst um hádegi sl. miðviku-
dag, var ætlunin að taka endan-
lega ákvörðun um prentunartíma
Dagblaðsins. Kom þá í ljós, að
útgefendur Vfsis, Reykjaprent
hf., reyndu með öllum ráðum að
koma í veg fyrir prentun og út-
gáfu Dagblaðsins á þann hátt,
sem útgefendur þess og starfs-
menn prentsmiðjunnar töldu
framkvæmanlegt.
Dróst stjórnarfundur Blaða-
prents á langinn af þessum sökum
og dró til þeirra tíðinda að við
fundarstaðinn birtist borgar-
fógeti ásamt lögmönnum og að-
standendum Reykjaprents. Var
stjórnarmönnum Blaðaprents
gert Ijóst, að til stæði að beita þá
lögbanni, ef taka ætti ákvarðanir,
sem Reykjaprent gæti ekki fellt
sig við.
Við þessar aðstæður fóru fram
samkomulagsumleitanir um
prentun Dagblaðsins. Lauk þeim
með því, að snemma fimmtudags-
morguns var af stjórnarmönnum
Blaðaprents og fulltrúa Dagblaðs-
ins undirritað samkomulag um
prentun blaðsins. Fulltrúi
Reykjaprents, sem var á fundar-
stað allan timann, og hafði lýst sig
reiðubúinn að undirrita sam-
komulagið, fékk frest til að
ákveða hvort hann gerði það. Var
samþykkt að bíða til hádegis 4
fimmtudag eftir svari Reykja-
prents, en ef það gengi ekki að
þessu samkomulagi, yrði Dag-
blaðið prentað í Blaðaprenti á
þeim tíma, sem það hafði óskað
eftir.
Rétt þykir að skýra frá því, að
sú óvenjulega aðferð að ætla að
stöðva ákvarðanir félagsstjórnar,
sem situr á fundi, með lögbanni,
var m.a. á því byggð, að sá form-
galli væri á stjórn Blaðaprents, að
stjórnarmenn ættu ekki allir per-
sónuleg hlutabréf í félaginu. Lög-
bannsbeiðnin var borin fram af
Reykjaprenti hf. t>g tveimur ein-
staklingum. Svo vill til, að
þessir einstaklingar eiga ekki per-
sónuleg hlutabréf í Reykjaprenti
hf. og er stjórn þess félags einnig
ólögleg, ef beitt er sjónarmiði
þeirra um persónulega hlutafjár-
eign. I því ljósi gætu ýmsar
ákvarðanir stjórnar Reykjaprents
að undanförnu orðið vafasamar,
svo sem fyrirvaralaus brott-
rekstur ritstjóra Vísis og ýmis Iög-
bannsmál, sem til hefur verið
stofnað.
Frá Dagblaðinu.
— Danmörk
Framhald af bls. 1
látnar fara fram í haust verða
þær þriðju þingkosningarnar í
landinu á aðeins tveimur árum.
Þingið mun koma saman til
aukafundar 1 næstu viku til að
ræða tillögur ríkisstjórnarinnar í
atvinnu- og efnahagsmálum og
eru flestir flokkarnir sammála
um að nauðsynlegt sé að gera
þriggja ára áætlun og verði með
einhverjum ráðum að hafa hemil
á verðlagshækkunum og launa-
hækkunum. Flokkunum hefur þó
gengið illa að koma sér saman um
til hvaða ráða skuli gripið til að
ná því marki sem að er stefnt.
— Krafla
Framhald af bls. 26
fyrir að bora 15 holur og um
þessar mundir væri verið að láta
fyrstu holuna blása út. Þessi hola
gæfi til kynna að jarðhitasvæðið
við Kröflu væri mjög gott og lyki
mælingum þar að lútandi síðar f
þessum mánuði.
Morgunblaðið spurði Sigurð
Sigfússon hjá Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen hvort það væri
rétt, að Kröfluvirkjun stæðist
ekki að öllu leyti tæknilega. Hann
sagði að ekkert hefði komið fram,
sem benti til þess. Þetta væri að
vísu fyrsta stóra gufuaflsvirkjun-
in á íslandi, en t.d. í Bandaríkjun-
um og á ítalíu hefðu verið reistar
slíkar stöðvar og reynzt mjög vel.
Samskonar vélarbúnaður yrði
notaður í Kröfluvirkjun.
— Guðmundur
vann
Framhald af bls. 36
I 4. umferð skákmótsins í
Middlesbrough sem fram fór í
gærkvöldi gerði Friðrik Ölafsson
stórmeistari jafntefli við Stean
frá Bretlandi I 20 leikjum. Mörg
jafntefli urðu í þessari umferð.
Ungverjinn Sax hefur forystu í
mótinu með 3 vinninga en Frið-
rik er 1 9.—13. sæti með ÍVS
vinning.
— Flugfreyjur
Framhald af bls. 2
í okkur illu blóði og félagsmenn
kröfðust þess hreinlega að til að-
gerða yrði gripið. Og þessi hótun
um að Ieggja niður vinnu var ein-
faldlega til komin vegna þess að
við töldum okkur eiga inni
ógreidd laun hjá félaginu."
Erla sagði ennfremur að Flug-
leiðir hefðu að sínu mati komið
mjög illa fram í þessu máli. Félag-
ið hefði hreinlega búið til ágrein-
ing um kjarasamninga og vísað
honum svo til Félagsdóms að flug-
freyjum forspurðum. „Slíkt
getum við ekki liðið.“ sagði Erla,
„að vinnuveitandi búi til ágrein-
ing um atriði, sem báðir aðilar
túlkuðu á sama hátt við samninga-
gerðina, og sendi málið svo fyrir
dóm.“ Erla sagði að lokum, að
flugfreyjur teldu þetta mál vera
úr sögunni.
Að afloknum heildarkjara-
samningum A.S.l. og V.S.L, sem
undirritaðir voru 13. júní s.l., reis
upp ágreiningur um túlkun á
verðbótaákvæði í kjarasamningi
við Flugfreyjufélag Islands.
Agreiningnum var af hálfu Flug-
leiða vísað til úrskurðar Félags-
dóms og málið þingfest þar hinn
25. ágúst s.l., en samkvæmt lands-
lögum er það eitt af verkefnum
Félagsdóms að skera úr ágrein-
ingi um túlkun kjarasamninga.
Var því Flugleiðum komið I
opna skjöldu, þegar tilkynnt var
símleiðis kl. 9.30 í gærmorgun, að
flugfreyjur hefðu ákveðið að
leggja niður störf á hádegi þann
sama dag, ef ekki yrði gengið að
eftirfarandi kröfum þeirra:
1. Að þær fái greiddar 5.300.-
króna launahækkun á mánuði
frá 13. júní s.l. auk 2.100.-
króna launahækkunar á
mánuði frá 1. október n.k.
2. Að þær fái dráttarvexti
greidda af ofangreindri fjár-
hæð til greiðsludags.
3. Að Flugleiðir h.f. felli niður
mál það, sem rekið er fyrir
Félagsdómi.
Flugleiðir h.f. fóru þess á leit
við Flugfreyjufélagið, að
aðgerðum yrði frestað, en því var
hafnað.
. 1 ljósi þess, að sýnt þótti, að allt
flug innanlands sem utan myndi
stöðvast innan nokkurra klukku-
stunda, var gengið að þeim afar-
kostum, sem settir voru og verk-
falli þannig afstýrt. Var hér um
hreina nauðung að ræða, en ekki
samninga eftir eðlilegum leiðum,
enda hafa Flugleiðir ekki fallizt á
réttmæti krafnanna, þótt gengið
væri að þeim, hverju sem
forsvarsmenn Flugfreyjufélags-
ins kunna að halda fram.
Flugfélögin átelja harðlega þau
vinnubrögð, sem höfð hafa verið 1
frammi af hálfu Flugfreyju-
félagsins og telja að hér sé um
skýrt lagabrot að ræða — þ.e. að
hótað sé stöðvun flugflota lands-
manna vegna ágreinings, sem
verið er að fjalla um fyrir réttum
dómstóli, og hann þar með lítils-
virtur. í einu dagblaði borgar-
innar í dag er það haft eftir fors-
varsmanni Flugfreyjufélagsins
„að flugfreyjur hefðu gripið til
þessara aðgerða, þar sem þær
hefði talið óeðlilegt að beðið yrði
úrskurðar Félagsdóms". Ekki
verður öllu betur lýst þeirri óvirð-
ingu sem dómstólum landsins og
réttarkerfi er sýnd.
Ber vissulega að harma, að ekki
skuli lengur vera unnt að útkljá
ágreining um túlkun kjarasamn-
inga milli stéttarfélaga og vinnu-
veitenda eftir þeim leiðum, sem
landslög kveða á um, en þess f
stað gripið til ólöglegra verkfalla.
— Lokað
Framhald af bls. 36
eru 4 ný íbúðarhús í byggingu
og Póstur og sími er að byggja
hér nýja sfmstöð. Fer þá von-
andi að styttast i sjálfvirka
símann.
Mjög góð berjaspretta er hér
um slóðir og þó sérstaklega í
Jórvfkurskógi og hafa menn
notfært sér það óspart. Baldur.
— Samkomu-
lagið
Framhald af bls. 1
svæoum, sem málin hafa snúizt
um.
Áreiðanlegar heimildir segja að
Sovétar hafi ákveðið að senda
ekki fulltrúa til athafnarinnar
vegna andstöðu við- þann hluta
samningsins sem gengur út á að
200 bandarískir tæknimenn skuli
vera á varðstöðum í Sinai og
Bandaríkjamenn munu hafa
ákveðið að koma hvergi nærri til
að æsa ekki upp reiði Kremlar-
húsbændanna, segja fréttastofur,
Harðorð ræða Egyptalandsforseta
Anwar Sadat Egyptalandsfor-
seti flutti ræðu til þjóðar sinnar í
kvöld í tilefni Genfarsamkomu-
lagsins og réðst þar harkalega á
Sovétríkin og sagði að þau reyndu
með öllum ráðum að reka fleyg á
milli Arabaþjóðanna. Sadat var
einnig hvassyrtur í garð arabískra
bandamanna Egypta, sérstaklega
Sýrlendinga og skæruliða-
hreyfingar Palestínu, sem neitar
að viðurkenna tilveru Israelsríkis
og vfsar frá öllum hugmyndum
um friðsamlega lausn f Mið-
austurlöndum.
Fréttamenn segja, að Sadat hafi
verið mjög þungur á brún og
reiður, þegar hann vék tali sínú
að Sovétrikjunum. Rakti hann í
stuttu máli gagnrýni sóvézku
stjórnarinnar á bráðabirgðasam-
komulagið og sagði að svo virtist
sem það eitt vekti fyrir leiðtogum
Sovétríkjanna að hleypa af stað
nýrri styrjöld í Miðausturlöndum.
Fullyrt er, að það hafi komið
mönnum ákaflega mikið á óvart
hversu gramur og reiður Sadat
var og munu landar hans ekki í
annan tíma hafa séð hann svo
úfinn. Ræðu hans var sjónvarpað
til allra Arabaríkjanna.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
Sóslalistaflokksins, hefur áður
sagt að hann fari ekki inn í ríkis-
stjórn með kommúnistum nema
þvf aðeins að áhrif þeirra þar
verði í samræmi við það tak-
markaða fylgi, sem flokkurinn
fékk í kosningunum í landinu i
vor.
Mario Soares hélt í dag áleiðis
til London, en þar mun hann sitja
ráðstefnu sem leiðtogar vestr-
ænna sósíalistaflokka hafa boðað
til með það fyrir augum að ræða
ástandið í Portúgal.
Fylgzt af áhuga með Spinola
För Spinola fyrrverandi forseta
frá Brasilíu hefur, eins og í upp-
hafi var að vikið, gefið þeim orð-
rómi byr undir báða vængi að
hann hyggist snúa aftur til Portú-
gal. Spinola kom með áætlunar-
flugvél frá Brasilfu til Parísar og
hélt til gistihúss síns ásamt lff-
verði og miklum farangri, jafn-
skjótt og vélin var lent. Farþegar
í vélinni sögðu að Spinola hefði
ekki talað við neinn samfarþega
sinna á leiðinni frá Brasilfu.
Hann hefur að sögn fréttamanna
ekki farið út úr hótelherbergi
sfnu í dag, en sendi orðsendingu
til framkvæmdastjóra hótelsins,
sem hann bað um að flutt yrði
fréttamönnum. Þar kveðst
Spinola vera f vikueinka-
heimsókn í París og hann hafi
ekki í hyggju að gefa neina póli-
tíska yfirlýsingu og muni fara
aftur til Brasilfu innan fárra
daga. Mjög mikil leynd hvílir yfir
ferðalagi Spinola til Frakklands
en áreiðanlegar heimildir úr hópi
samstarfsmanna hans í Rio f
Brasilfu sögðu að hann væri að
undirbúa jarðveginn áður en
hann sneri aftur til Portúgals.
Kommúnistar áfjáðir f sam-
steypustjórn
Fréttaskýrendur segja, að
margt bendi til þess, að kommún-
istar muni leggja á það rfka
áherzlu á næstunni að mál verði
leyst til bráðabirgða í stjórnmál-
um landsins með því að mynduð
verði samsteypustjórn eins og
Alvaro Cunhal hefur stungið upp
á. I forystugrein blaðsins Avante,
sem er málgagn portúgalskra
kommúnista sagði í dag, að nú
væ,ri tímabært að hefja slíkar við-
ræður til að koma í veg fyrir að
endurskoðunarsinnar f landinu
legðu á ráðin um valdarán. í
forystugreininni er ekki dregin
dul á, að ágreiningur sé me'ð
flokkunum þremur, PS, PPD og
PCP, en einmitt þessi ágreiningur
gæti leitt til þess, að hægri
sinnaðir foringjar með fasískar
tilhneigingar freistuðust til að
gera valdarán og yrði fyrir alla
muni að koma i veg fyrir það.
— Minning
Anna
Framhald af bls. 27
skilur eftir hugljúfar minningar
hjá öllum sem kynntust þér. Blíða
brosið þitt gleymist okkur aldrei.
Við biðjum algóðan Guð að
styrkja og styðja ykkur, elsku
Imma og Tommi, einnig systur og
bræður. Drottinn veitir líkn með
þraut.
Asta og Örlaugur.
— Kaupa Baldur
Framhald af bls. 36
hjá Hafrannsóknastofnuninni
að fá nýtt rannsóknaskip til að
sinna starfseminni og áhuginn
er mikill hjá mér líka,“ sagði
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Sjávarútvegsráðherra sagði,
að þessi mál væru nú f ná-
kvæmri athugun. Hugmyndir
væru um að senda Hafþór ekki
í 16 ára flokkunarviðgerð. „Mér
finnst það lfka heldur fjar-
stæðukennt að kosta miklu upp
á það skip. Við þurfum fyrst og
fremst á togveiðiskipi að halda
fyrir stofnunina og Hafþór er
orðinn alltof lítill og úreltur."
Þá sagði ráðherrann, að til-
finnanlega vantaði skip til
rannsókna á djúpslóð „og ekki
er hægt að leysa málið betur að
mínum dómi en með kaupum á
togara."
Að lokum spurði Mbl. Matthf-
as Bjarnason hvort rætt hefði
verið um kaup á Baldri. „Það er
ekki hægt að neita því, en hins-
vegar er ekki vitað hvort af
kaupum verður."
r
— Israelar
Framhald af bls. 1
með mörgum skyndiárásum.
Palestínuskæruliðar hafa for-
dæmt harðlega bráðabirgðasam-
komulag Israela og Egypta og
Israelsstjórn óttast hermdarverk
af hálfu skæruliðanna á næst-
unni.
— Rauða strikið
Framhald af bls. 36
hækkað og nemur hækkun á þeim
vörutegundum 6,3 visitölustigum
í framfærsluvísitölu. Mjólkurvör-
ur hafa þegar hækkað og veldur
hækkun þeirra 4 til 5 stiga
hækkun framfærsluvisitölu. Kjöt-
vörur hafa enn ekki hækkað, en
þegar landbúnaðarvörur hafa
allar hækkað er gert ráð fyrir því
að hækkun framfærsluvísitölu
vegna þeirra verði um 10 stig.
Hluti þeirrar hækkunar er vegna
launaliðar bóndans, sem er
undanþeginn eins og áður segir
og er gert ráð fyrir að hann vegi f
framfærsluvísitölu tæplega 6 stig.
Hefur þetta þau áhrif, þ.e. rúm-
lega 6 stiga hækkun vegna
áfengis og tóbaks og tæplega 6
stiga hækkun vegna launaliðar
bóndans, að framfærsluvisitalan
má fara 11 til 12 stig fram yfir 477
stig án þess að verðbótasamkomu-
lagið taki gildi.
Talsvert mun þvf vanta á að
markinu 477 sé náð og að til verð-
bóta á laun komi samkvæmt áður-
nefndu samkomulagi, eða vilja
menn heldur tala um hið nýja
mark 488, eftir að kunnugt er um
hækkanir á áfengi og tóbaki og
hækkun launaliðar bóndans, sem
haft hafa þessi áhrif á rauða
strikið svokallaða.