Morgunblaðið - 05.09.1975, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975
35
FRAKKAR HAFA NU VON UM SIGUR
JÓHANNES Eðvaldsson mun
ekki Ieika með Islenzka lands-
liðinu gegn Belgíumönnum f
Liege á morgun. Félag hans I
Skotlandi, Celtic, hafði gefið vil-
yrði fyrir þvf að Jóhannes fengi
að leika með landsliðinu álaugar-
daginn, ef Islendingar sigruðu f
Frakklandi, en þá áttu þeir gðða
möguleika á sigri í riðlinum og
sæti f úrslitakeppninni.
Þá er einnig óvfst hvort Gísli
Torfason getur leikið með lands-
liðinu á morgun, en hann varð
fyrir meiðsium seint í Frakka-
leiknum. Erfitt er að segja um
hvaða menn Tony Knapp kýs að
taka inn í liðið f stað Jóhannesar
og Gisla, en ekki er ólíklegt að það
verði Akurnesingarnir Jón Gunn-
laugsson og Björn Lárusson.
Eftir leikinn í fyrrakvöld hafa
öll liðin f riðlinum nema Island
möguleika á sigri. Auk leiksins á
morgun eru þrir leikir eftir:
Belgía og A-Þýzkaland leika 27.
sept. A-Þýzkaland og Frakkland
Afrekskeppni FI
HIN árlega afrekskeppni Flug-
félags íslands í golfi fer fram nú
um helgina á golfvelli Golfklúbbs
Ness. Rétt til þátttöku í keppni
þessari eiga sex menn: íslands-
meistarinn Björgvin Þorsteins-
son, sigurvegarinn i Coca-Cola
keppninni í Reykjavík, Júlíus R.
Júlíusson, sigurvegarinn í Coca-
Cola keppninni í Vestmanna-
eyjum, Haraldur Júlíusson, sigur-
vegari í meistarakeppni Golf-
klúbbs Akureyrar, Arni Jónsson,
sigurvegar í meistarakeppni
'Golfklúbbs Suðurnesja, Þórhallur
Hólmgeirsson og sigurvegarinn f
meistarakeppni Golfklúbbs Ness,
Hannes Þorsteinsson.
Leiknar verða 72 holur, og hefst
keppni kl. 14 á laugardag.
11. október og Frakkland og
Belgía 15. nóvember.
Ur þessu stendur keppnin
væntanlega milli Belgfu og
Frakklands, þar sem möguleikar
A-Þjóðverja eru nánast fræði-
legir. Mjög mikilsvert er fyrir
Frakka að Islendingar standi sig
vel f leiknum í Belgíu á morgun,
nái stigi og helzt stigum, en færi
svo má segja að erfitt væri að sjá
fyrir um úrslit í riðlinum. Belgíu-
menn hafa sennilega á að skipa
sterkasta liðinu f riðlinum, en
þeir eiga hins vegar eftir að leika
við Frakka á heimavelli, og þar
verða þeir örugglega ekki auð-
veldir viðfangs, ef mikið er i húfi.
Hópferð á
leik Vals
í Skotlandi
ÁHANGENDUR Valsliðsins hafa
ákveSið að efna til hópferðar á
leik liðsins við Celtic I Skotlandi
1. október n.k. Enn hefur ekki
verið ákveðið hvaða form verður
á hópferð þessari, en sennilega
mun ferðin standa I þrjá daga,
farið á miðvikudegi og komið
aftur heim á föstudegi.
Upplýsingar um ferð þessa er
unnt að fá hjá Ferðaskrifstofunni
Úrvali.
I síðustu Evrópubikarkeppni
landsliða komust Belgíumenn í
undanúrslit en töpuðu þar fyrir
Vestur-Þjóðverjum 1—2. I leik
um þriðja sætið sigruðu þeir hins
vegar Ungverja 2—1. Hafa
Belgíumenn nú látið hafa það eft-
ir sér að þeir ætli sér ekkert
minna en sigur í Evrópubikar-
keppninni að þessu sinni, og á
þann hátt ætli þeir að sýna að það
hafi ekki verið „16 beztu“ sem
tóku þátt í lokakeppni HM í knatt-
spyrnu í Þýzkalandi í fyrra.
Vetrarstarf TBR
VETRARSTARF TBR er að hefj-
ast. Þeir sem aetla að iðka
badminton hjá félaginu í vetur
þurfa að hafa samband við Garðar
Alfonss’on í sima 82266 í hinu
nýja húsi félagsins við Gnoðavog
1 milli klukkan 17 og 19 í þessari
viku og fram í miðja næstu viku.
ISLENZKIR blakmenn fá ærin verkefni næsta vetur. M.a. munu þeir
taka þátt f undankeppni Olympfuleikanna á Italfu.
BLAKLANDSUDID TIL ITAIiU
Keppir þar í undankeppni Olympíuleikanna
Firmakeppni
HIN árlega firmakeppni Gróttu í
innanhússknattspyrnu hefst
laugardaginn 20. september n.k.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Garðars Guðmunds-
sonar í síma 85471 fyrir sunnu-
daginn 14. sept.
ÍR fær Real Madrid
r
og Armann Playboy
Tvö Islenzk lið taka nú þátt I Evrópubikarkeppninni I körfuknattleik. Eru það
Islandsmeistarar ÍR sem taka þátt I keppni meistara og bikarmeistarar
Ármanns sem leika I bikarmeistarakeppninni. Nú hefur verið dregið I
keppninni og fá ÍR-ingar spænsku meistarana Real Madrid, en Ármenningar
fá finnska liðið Playboy.
Lið Real Madrid er tvlmælalaust eitt bezta félagslið I Evrópu, og hefur
jafnan náð langt í Evrópubikarkeppninni, en hins vegar er litið vitað um
finnska liðið. Körfuknattleikur er mjög vinsæl iþróttagrein I Finnlandi og
standa Finnar framarlega i iþróttinni, þannig að óhætt er að gera því skóna
að einnig finnska liðið sé mjög sterkt og vel leikandi.
ÞÁTTTAKA íslands í undankeppni
Olympiuleikanna i blaki hefur verið
ákveðin. Leikirnir I þeim riðli, sem
íslendingar eru i. fara fram á Ítalíu i
janúar n.k. Auk þess mun svo is-
lenzka blaklandsliðið leika tvo leiki
við Englendinga I Reykjavík nú fyrir
jól, tvo leiki við Færeyinga og enn-
fremur er ráðgert að koma við I
Englandi á leiðinni frá italiu og leika
þartvo leiki við heimamenn.
Landsliðshópur var valinn s.l. vor og
leikmönnunum kynntar æfingar liðsins
og þeir beðnir um að reyna að æfa
sjálfir i sumar. Nú innan tlðar munu
svo hefjast reglubundnar landsliðs-
æfingar en í desember n.k. kemur1
hingað sænski þjálfarinn Erik Skær-
beck, og mun hann þjálfa landsliðið i
lokaundirbúningnum fyrir Olympíu-
keppnina, svo og þau félagslið, sem
áhuga hafa á að nýta starfskrafta hans
Ofangreint kom fram i viðtali sem
Morgunblaðið átti 1 gær við dr. Ingi-
mar Jónsson formann Blaksambands
íslands. Þegar Ingimar var ,að þvi
spurður hvort ekki væri I nokkuð mikið
ráðizt að senda blaklandsliðið til ítaliu,
þar sem lítil sem engin von væri til
þess að það megnaði að veita keppi-
nautum sinum þar nokkra keppni,
svaraði hann því til, að það væri álit
stjórnar Blaksambandsins að nauðsyn-
legt væri að sjá blakmönnum okkar
fyrir nægjanlegum verkefnum og ein-
hverju sem þeir hefðu að keppa að.
Blakíþróttin hér væri ung og ætti í
samkeppni við aðrar íþróttagreinar og
helzta vonin til þess að kynna íþróttina
og auka útbreiðslu hennar væri að
leika landsleiki og fá þannig m.a. um-
tal um iþróttina. — Við gerum okkur
það auðvitað Ijóst, að við munum ekki
verða sigursælir i keppninni á l'taliu,
sagði Ingimar.
Hann sagði ennfremur að ferðin
myndi kosta um 1 milljón króna þegar
allt væri tekið með I reikninginn. — Ég
tel að við getum klifið þetta fjárhags-
lega, sagði Ingimar, — jafnvel þótt
það verði auðvitað erfitt. M.a. fáum við
styrk frá Olympíunefndinni. Þegar
þetta mál kom þar fyrir, lýsti ég þvi
yfir, að við værum tilbúnir að hætta við
Olympiuþátttöku okkar, ef verja ætti
fjármunum þeim sem nefndin hefur
yfir að ráða skynsamlega til ákveðinna
verkefna. Það sjónarmið virðist hins
vegar allsráðandi að hver oti sínum
tota, og þvi sáum við ekki ástæðu til
þess að gefa okkar hlut eftir. Annars
mun Blaksambandið fá mun minni
styrk hjá nefndinni en sum önnur sér-
sambönd.
Nýtt snið verður nú haft á keppni
(slandsmótsins i blaki í 1. deild munu
sex lið keppa, en önnur deildin verður
opin til þátttöku, m.a fyrir b-lið þeirra
félaga sem sendS flokka I deildirnar
Munu b-liðin njóta fullra réttinda og
geta t.d unnið sig upp i 1. deild. Sá
háttur verður hafður á, að neðsta liðið I
1. deild fellur niður i 2. deild, en næst
neðsta liðið I 1 deild verður að leika
við liðið sem ve'ður i öðru sæti I 2
deild um rétt til þátttöku i 1. deild.
Þannig er möguleiki á því að tvö lið
færist milli deilda á hverju ári.
Þá mun Blaksambandið einnig efna
til (slandsmóts I „öldungaflokki" Þar
eiga þátttökurétt lið, sem eru skipuð
leikmönnum, sem eru 30 ára og eldri
og ekki leika með liðum I deildunum.
— Við höldum þetta mót til þess að
gefa þeim, sem iðka blak sér til hress-
ingar og heilsubótar, kost á einhverj-
um verkefnum, sagði dr. Ingimar Jóns-
son.
Ertu seinn í
startinu?
Þú skalt ekki hafa áhyggjur af því, þótt þú sért ekki búinn að sjá
sýninguna, þeir sem eru seinir í startinu eru oftast drjúgir á
endasprettinum, og nú stendur einmitt endaspretturinn yfir, því við
lokum á sunnudag.
NÚ ER AÐ LÁTA VERÐA AF ÞVÍ AÐ SJÁ SÝNINGUNA.
3 DAGAR EFTIR.
HAPPDRÆTTISVINNINGURINN í DAG ER:
Vikudvöl I landnámi Hrafna-Flóka.
Vinningshafi og gestur hans dvelja næsta sumar í viku á hinu glæsilega hóteli,
Flókalundi í Vatnsfirði á fríu fæði.
Tískusýningar kl. 4.30 og 8.45.
Karon — samtök sýningarfóiks sýna.
Q ALÞJÚÐLEG VÖRUSÝNING REYKJAVlK 1975